Morgunblaðið - 10.02.1961, Síða 5

Morgunblaðið - 10.02.1961, Síða 5
Föstudagur 10. febrúar 1961 MORGVNBLAÐIÐ 5 MENN 06 = MALEFN/= Á vori komanda verður haf- izt handa um að gera minning arlund um Bjarna Jónsson frá Vogi, og verður hann að sjá'lf sögðu staðsettur heima í Vogi. Sá, sem beitt hefur sér fyrir þessu máli, er Guðmundur Jónsson rithöfundur á Blöndu- ósi. Hann hefur stundað garð yrkju um ævina og stofnað ýmsa minningarlundi, svo sem Hjálmarslund við Bólu, Elín- argarð (um Elínu Briem) við Kvennaskólann á Blöndiuósi og um herra Jón Arason á Mmnkaþverá. — Óþarft er hér að rifja upp æviatriði Bjarna Jónssonar, og allir munu sammála um, að hans verði minnzt með veglegu minnismerki, en árið 1963 verða hundrað ár liðin frá fæðingu hans. — í lundinum miðjum á að standa mynda- stytta af Bjarna eftir Guð- mund Einarsson frá Miðdal. Lundurinn verður girtur, og á annan hliðstólpann verðhir þessi vísa eftir Stefán frá Hvítadal letruð: Giftu mestur, göfgi hæstur í goðorðsmaður dýrrar snilli, ((" Bjarni er og Bjarni verður, ‘j) Bjarni skilar alda milli. ^ Framkvæmdir þessar munu 'h kosta töluvert fé, og er vonazt f eftir fjárframlögum frá áhuga 'j) mönnum. Mynduð hefur verið (? framkvæmdanefnd vegna c, máls þessa. Formaður hennar J er Guðmundiur Jónsson, rithöf SC undur á Blönduósi, gjaldkeri *)) er Friðjón Þórðarson, sýslu- £ maður, ritari Ásgeir Bjarna- M son alþm. í Ásgarði og með- & stjórnendur Guðmundur Ólafs * son oddviti í Ytra-Felli, og J' Elibet Jónsdóttir, Fagradal. f Hjónum hafði lent saman í hörkurifrildi. — Ef þú hættir ekki, sagði húsbóndinn, þá tapa ég vitinu. í>að væri sannarlega slæmt, ívaraði frúin. — Það er alltaf svo erfitt að finna smáhluti aftur. ★ — Mikið öfunda ég hann Kenn edy af Ameríkönunum, sagði Krúsjeff og andvarpaði. — Hann segir þeim, að erfiðir tímar séu framundan, og allir trúa honum, en ég segi Rússum, að góðir tím- ar séu á næsta leiti, og enginn trúir mér. Laeknar fjarveiandi Gunnar Guðmundsson um óákv. tíma (Magnús Þorsteinsson). Haraldur Guðjónsson óákv. tíma Karl Jónasson). Sigurður S. Magnússon óákv. tíma — (Tryggvi Þoráteinsson). Oddur Ólafsson óákv. tíma. (Árni Guð mundsson). Bréfaskipti við útlendinga BLAÐINU hefur borizt bréf frá bandarískum kennara og blaða- manni, sem tekur að sér að koma fólki um heim allan í bréfasam- band. Hann hóf starfsemi þessa í dálki, sem hann skrifar fyrir blað í Kaliforníu, í því skyni að kynná fólk af ólíkum þjóðum, en það telur hann eitt mesta nauðsynja- mál nútímans, til þess að eyða misskilningi og úlfúS þjóða á milli. Almenningur sýndi starf- semi hans svo mikinn áhuga, að innan 5 mánaða hafði hann kom- ið um 10 þús. manns í bréfasam- band í meira en 30 löndum. Nú segir hann, að mikill áhugi sé hjá fólki á að skrifast á við ís- lendinga, en því miður vanti sig nöfn og heimilisföng hér á landi. Hann segir áherzlu lagða á að koma kynnum á meðal fólks, sem hefur sömu áhugamál eða vinnur svipaða vinnu. Vegna ýmissar skriffinnsku í byrjun, geti fólk þurft að bíða í nokkrar vikur, áður en það fær svarbréf. Fólk, sem hefur áhuga á þessu, á að rita til: Post Office Box 508, Red- lands, California, USA. Fólk á öllum aldri (þó ekki undir 11 ára) getur skrifað, en hann tekur skýrt fram., að tilgangurinn með þessari starfsemi sé alvarlegur, og hann kæri sig ekki um bréf- ritara, sem geri sér vonir um að ná í maka með þessu móti, eða hafi önnur eigingjörn mark- mið. Bréfritarar verða að taka fram aldur, kyn, hvort þeir séu giftif, atvinnu, áhugamál, kyn þess, sem þeir óska að skrifast á við, og annað um hann. Um hjarta þitt fer vorsins ungi óður, sem enginn maður þekkir, nema hann, er undir snjónum finnur falinn gróður og fósturjörð, er hjartað þráði og ann. Hér lyfti vængjum fegins hugur hljóður og harmsins logi í sporum þínum hrann Hér hneigstu oft sem barn að barmi móður, er biíða hvíld að loknu verki fann. í eyðisand er sál þín jafnvel greypt, ef sorgarbáran flæddi þar um hvarm- inn, og blik af gleði bar við hennar fald. Ó, borga þú án tregðu dauðans gjald: í landi þínu logar ævibjarminn, og líf þitt er í stuðlabergið steypt. Jón Magnússon: Ljóð átthagans. Von er vakandi manns draumur. Von er bagabót. Vant er úr vísu von að kaupa. Sjaldan er langvinnur laugardags þerrir, Þjófurinn þrífst en þjófsnauturinn eigi Það ætlar hvinn að hver muni stela. Við heimahvinnum er verst að sjá. Ekki verður þjófum við myrkur meint. Oft hengja gráþjófar bláþjófa. Þrár er þriðjudagsvefur. íbúð óskast Góð 2ja til 3ja herb. íbúð ca. 60 til 70 ferm. óskast til kaups. Kjallari kemur ekki til greina. Mikil útb. Tilb. sendist Mbl. fyrir 15. þ m. merkt: „Rólegt" 1409. , íbúð Þriggja til fjögra herbergja : íbúð óskast til leigu fyrir , 14. maí. Uppl. í síma 23063. F A M A prjónavél (eldri gerð) til sölu. Uppl. í síma 24826 kl. 1—4 dag- lega. Klæði og geri við bólstruð húsgögn, úrval af áklæðum. Húsgagnaverzlunin Njálsgötu 3. — Sími 13980. Smurt brauð Snittur, brauðtertur. Af- greiðum með litlum fyrir- vara. Smurbrauðstofa Vesturbæjar Hjarðarhaga 47 Sími 16311 Æðardúnssængur Vandaðar og vinsælar 1. fl. æðardúnssængur til sölu. Póstsendi. Vinsamlega lát- ið þetta ekki fram hjá ykk ur fara. Sími 17 Vogar. íbúð til leigu Nú þegar, 2 herb. og eld- hús í Hlíðunum, 1. hæð, svalir, hitaveita. Fyrir- framgreiðsla. Tilb. sendist Mbl. merkt. „Sólrík“ 1463. Einbýlishús til leigu. Uppl. gefnar í síma 3-77-05 milli kl. 18 og 20 föstudags- og laugar- dagskvöld. Ódýrt Eitt kvenreiðhjól og tvö krakkahjól til sölu. Sími 36252, Suðurlandsbraut 43. Ný sending af mjög fallegum BABY-DOLL náttfötum og undirpilsum LOIMDOIM dömudeild — Póst'hússtræti — Sími 14260 Keflavík nágrenni Munið Gunnarsbakarí, Hafnargötu 31. Brauð og kökur í úrvali. Opið til kl. 7 á föstudögum. — Sími 1695. Keflavík nágrenni Gunnarsbakarí opnar í dag í nýjum húsa- kynnum að Hafnargötu 31. Brauðbúðin verður framvegis opnuð kl. 8 f.h. — Einnig verður opið í hádeginu. Afgrei&sl umaður Afgreiðslumaður óskast sem fyrst í varahlutaverzl- Meðan örlög Kongó eru rædd................ (tarantel). un. — Tilboð um aldur og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir laugardagskvöld, merkt: „Bifreiðavarahlutaverzlun — 1130“. BoMapur líðandi stundar nefnist erindi, sem Júlíus Guðmundsson flytur í Aðventkirkjunni í kvöld kl. 8,30. Karlakvartett syngur Allir velkomnir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.