Morgunblaðið - 10.02.1961, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fðstudagur 10. februar 1961
Föstudagur 10. febrúar 1961
MORGUNBLAÐIÐ
13
.inttMiiMfr
Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalotræti 6.
Auglýsingar og afgieiðsla: Aðalstræti 6. Símj 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SAMEIGINLEG BARÁTTA
//
CJíðastl. miðvikudag birti^
Tíminn, aðalmálgagn
Framsóknarflokksins, frétt
um það, að á fundi verka-
lýðsmálanefndar Framsókn-
arflokksins fyrra laugardag,
hefðu nefndarmenn lagt
fram nokkra fjárhæð til
allsherjarsöfnunar þeirrar,
sem Alþýðusamband íslands
gengst fyrir til styrktar
verkamönnum í Vestmanna-
eyjum, og vegna hinnar al-
mennu kjarabaráttu sem
framundan er. Sagði Tíminn,
að verkalýðsnefndin vildi
með þessu vekja áhuga laun-
þega og undirstrika á þann
hátt, að hér væri um sam-
eiginlega hagsmuni að ræða,
sameiginlega baráttu laun-
þega í landinu fyrir bættum
kjörum. Vænti nefndin þess
að sem flestir launþegar
sæu sér fært að láta nokk-
urt fé af hendi rakna í þessu
skyni.
Hvað felst nú í þessari
yfirlýsirigu?
Hvorki meira né minna en
það, að Framsóknarflokkur-
inn hefur tekið ákvörðun um
það að standa í einu og öllu
við hlið kommúnista í því
niðurrifsstarfi, sem þeir nú
hafa hafið, og þeirri styrjöld,
sem þeir hafa lýst yfir á
hendur framleiðslunni í land
inu. Eftir þetta veit alþjóð,
að um er að ræða „sameigin-
lega baráttu" Framsóknar-
manna og kommúnista fyrir
nýju kapphlaupi milli kaup-
gjalds og verðlags, fyrir
nýrri verðbólguöldu, fyrir
nýrri gengisfellingu íslenzkr-
ar krónu.
í raun og veru boðar þessi
ýfirlýsing jafnframt full-
kominn samruna Framsókn-
arflokksins og kommúnista-
flokksins.
Hvað segja nú íslenzkir
bændur og forystumenn sam
vinnufélaganna um þessa
ráðabreytni forystumanna
Framsóknarflokksins ?
Sá stjórnmálaflokkur, sem
hingað til hefur fyrst og
fremst talið sig vera flokk
framleiðenda í sveitum
landsins og eina verndara
samvinnufélaganna, sem ann
ast dreifingu á vörum bænd-
anna, hvetur nú almenning í
landinu til þess að leggja
fram fé til þess að koma
framleiðslunni til sjávar og
sveita á vonarvöl!
Þetta atferli Framsóknar-
manna sýnir betur en nokk-
uð annað, hversu sturluð og
ábyrgðarlaus stjórnarand-
staða þeirra er og hversu
gersamlega þeir eru hlaupn-
ir yfir á snæri kommúnista.
VERKFALLIÐ I
EYJUM
A Imenningur í Vestmanna-
eyjum er að vonum orð-
inn mjög uggandi út af
hinni langvarandi stöðvun
atvinnulífsins þar. — Þegar
menn leita að lausn deilunn-
ar, er eðlilegast að byrja á
að gera sér grein fyrir or-
sökum hennar, en þær eru í
stuttu máli á þessa leið:
Framan af vetri urðu mikl
ir flokkadrættir innan komm
únistaflokksins um það,
hvernig heppilegast væri að
koma á stöðvun atvinnulífs-
ins. Lúðvík Jósefssyni tókst
þá að telja flokksmönnum
sínum trú um, að hann nyti
slíkra vinsælda meðal út-
vegsmanna, að hann mundi
á fundi þeirra í desember-
mánuði geta komið því til
leiðar að þeir stöðvuðu flot-
ann og krefðust nýs uppbóta
kerfis. Ríkisstjórnin hafði
lýst skýlaust yfir, að hún
mundi aldrei fallast á nýjar
uppbætur og þannig .bjóst
Lúðvík við að flotinn yrði
stöðvaður um ófyrirsjáanleg-
an tíma. Karl Guðjónsson
fylgdi Lúðvík í þessu máli
eins og yfirleitt öllum öðr-
um. —•
Niðurstaðan varð sú, sem
allir vita, að útvegsmenn
höfnuðu leiðsögn Lúðvíks.
Hann og hans flokkur hafði
þá margundirstrikað, að hag
ur útgerðar- og vinnslu-
stöðva væri með þeim hætti,
að skattleggja yrði almenn-
ing til að styrkja þennan
atvinnuveg. Af því leiddi svo
aftur að erfitt var að snúa
við blaðinu og segja, að sjáv
arútvegurinn gæti greitt
hærri laun og þess vegna
væri hægt að efna til verk-
falla.
Eftir ósigra Lúðvíks varð
hann fyrir mjög miklu að-
kasti innan flokks síns og
aðrir menn hófust þar til
áhrifa. Ákallaði hann þá
fylgismenn sína að reyna að
koma éinhvers staðar af stað
verkfalli til að afsanna þá
kenningu flokksbræðra sinna
að hann hefði eyðilagt alla
kaupkröfupólitík. —• Enginn
varð hinsvegar við þessum
bænum Lúðvíks nema hinn
pólitíski einkavinur hans,
Karl Guðjónsson.
Þarna er orsaka deilunnar
að leita, og hún leysist ekki
fyrr en verkamenn taka ráð-
in af þeirri klíku, sem Karl
Guðjónsson stjórnar og gera
sér grein fyrir því að þeir
Með
Jens Hansen
STÖKU sinnum sjá íbú-
arnir umhverfis Reykja-
víkurflugvöll dökkmálað-
ar og hálf þunglamaleg-
ar hervélar með langan
hala koma lágt inn yfir
flugbrautina, sem liggur
upp að Öskjuhlíðinni. —
Þær lenda ekki, heldur
hækka flugið og hverfa
jafnsnögglega og þær
koma. Þessar flugvélar
eru úr varnarliðinu. Þeg-
ar þær fljúga yfir Reykja
víkurflugvöll eru áhafnir
eru leiksoppar valdabröltsins
innan kommúflistaflokksins.
ALLIR Á MÓTI
VERÐBÖLGU
Ckrif Þjóðviljans þessa dag-
^ ana eru býsna skemmti-
leg. í 5 dálka forsíðufrétt
blaðsins í gær er um það
rætt, að ákveðnir menn inn-
an Sjálfstæðisflokksins krefj
ist verðbólgu. Þessi fullyrð-
ing er svo aftur notuð til
árása á ríkisstjórnina fyrir
það að standa gegn verð-
bólguþróun.
Við vitum nú að vísu ekki
um, að einhverjir Sjálfstæðis
menn heimti verðbólgu að
nýju. En látum það liggja á
milli hluta. Hitt virðist liggja
nokkuð beint við, að við för-
um að verða samherjar hér
á Morgunblaðinu og þeir við
Þjóðviljann. —• Mbl. styður
sem sagt ríkisstjórnina og
hún hefur marglýst því yfir,
þannig að engum fær dulizt,
að fyrsta og síðasta boðorðið
sé, að hindra verðbólgu og
koma í veg fyrir frekari
skerðingu krónunnar.
Þess vegna erum við mót-
fallnir pólitískum verkföll-
um, sem miða að því að
koma af stað nýrri verð-
bólguskriðu, sem óhjákvæmi-
lega hefði annað tveggja í
för með sér, samdrátt og at-
vinnuleysi eða þá nýja geng-
isfellingu. Hins vegar mun-
um við krefjast þess, að
verkalýður og launþegar fái
réttláta hlutdeild í þeirri
framleiðsluaukningu, sem ör-
ugglega fylgir í kjölfar bætts
efnahagsskipulags og höfum
raunar bent á leiðir, sem
þegar væri hægt að fara til
þess að ná raunverulegum
kjarabótum.
Þjóðviljinn lýsir því nú yf-
ir, að hann sé mótfallinn því
að koma af stað nýrri verð-
bólguþróun. Hann segist líka
berjast fyrir bættum kjörum
launþega. Er því ekki annað
sýnna en að hann geti stutt
stefnu ríkisstjórnarinnar ná-
kvæmlega á sama veg og
Morgunblaðið gerir.
vélanna að æfa aðflug
eftir radíóvitum, því lok-
ist Keflavíkurflugvöllur
vegna veðurs meðan vél-
arnar eru á flugi verða
þær að leita til Reykja-
víkur — og flugmenn-
irnir þurfa þá að þekkja
öll aðflugsskilyrði hér.
Neptune, heita þessar vél.
ar, og eru úr flugdeild
bandaríska flotans. Þetta
eru óvopnaðar vélar, en
engu að síður vel útbúnar.
Verkefni þeirra er sem sagt
að fylgjast með ferðum rúss
neskra kafbáta á stóru haf-
svæði umhverfis landið, en
jafnframt gegna þær því
þýðingarmikla hlutverki að
hafa gát á ísnum, sém rek-
ur súður með austurströnd
Grænlands og vara sæfar-
endur við, ef stórir borgar-
ísjakar eða ísbreiður nálg-
ast siglingaleiðir. Þannig er
ísbreiðan meðfram allri
Grænlandsströnd kortlögð
reglulega tvisvar í viku og
allar upplýsingar sendar við
komandi alþjóðlegum stofn
unum, sem annast öryggis-
mál sjófarenda.
Meginhlutverk Neptune
er, eins og fyrr segir, að
fylgjast með rússnesku kaf-
bátunum, sem eiga tíðar
ferðir fram með ströndum
íslahds, Það er ekkert nýxt,
að sMkar könnunarvélar
hafi aðsetur hér á landi.
Fyrsta könnunarsveitin þeirr
ar tegundar kom hingað 6.
ágúst 1941 — og það voru
Katalínubátar, vel vopnað-
ir og skeinuhættir þýzku
kafbátunum.
Katalínurnar reyndust
mjög mikilvægar til verndar
stkipalestunum, sem sigldu
meðfram íslandi áleiðis til
Murmansk — eða þaðan
vestur á bóginn.
Að styrjöldinni lokinni
var þessu könnunarflugi
hætt, en það hófst aftur
skömmu eftir að Varnarlið-
ið kom hingað eftir að Kór-
eustríðið skall á. Nú er þessi
starfsemi orðin geysimikil-
vægur þáttur í vörnum og
viðvörunarkerfi Atlantshafs
bandalagsins. Neptune-vélar
fljúga í könnunarferðir að
nóttu sem degi, frá miklum
fjölda bækistöðva beggja
vegna hafsins og hér á ís-
landi hafa þær stöðvar svo
til miðja vegu milli strand-
lengjanna í austri og vestri.
Þessi þáttur varnarstarf-
semi Atlantshafsbandalags.
ins verður mikilvægari með
hverju árinu sem líður. Það
gildir hið sama um hertækn-
ina á sjó og í lofti. Venju-
legar flugvélar, jafnvel hrað
fleygustu þotur, eru að
verða úreltar til beinna hern
aðaraðgerða. Flugskeytin
taka við. Þróunin er hin
sama á sjónum. Gildi ofan-
sjávarflotans rýrnar ár frá
ári — og kafbátarnir taka
við. Það er ekki út í bláinn,
að Rússar hafa á undanförn-
um árum lagt þvílikt ofur-
kapp á smíði kafbáta, að
þeir eiga nú stærsta kafbáta-
flota sem sögur fara af, a.
m. k. 450 að því er leynlþjón
í könnunarflugi á Neptune
Commander Jens Hansen
usta Vesturveldanna upplýs-
ir.
Það er deginum ljósara,
að kafbátar eru ekki fram-
leiddir svo hundruðum skipt
ir - í friðsamlegum tilgangi.
En Vesturveldin áttuðu sig
ekki í tima á fyrirætlunum
kommúnista. í „logninu“
sem varð eftir síðari heims-
styrjöldina tóku Vesturveld.
in að afvopnast samtímis og
Rússar hertu enn hergagna-
framleiðslu sína. Vesturveld
in eiga að vísu mikinn fjölda
kafbáta nú orðið, en samt
ekki nema lítinn flota miðað
við þann rússneska.
—•—
Kjarnorkukafbátarnir —
mynda vafalaust sjóher fram
tíðarinnar. Þeir geta verið
í kafi mánuðum saman, geta
kafað dýpra en hinir gömlu
og náð langtum meiri hraða
í kafi en „venjulegu" bát-
arnir. I styrjöld er hlutverk
kjarnorkukafbátanna allt
annað en hinna þýzku í
heimsstyrjöldinni. Kjarn.
orkukafbátamir eru ekki
ætlaðir til að elta uppi
skip á úthöfunum og
granda. Þeir eru bún-
ir fjarstýrðum flugskeytum,
geta jafnvel skotið skeytun-
um úr kafi — og lagt heilar
borgir í rúst í einu skoti.
Kjarnorkubáturinn getur
því orðið miklu hættulegri
en flugskeytastöðvar á landi.
Enginn veit fyrirfram hvar
kafbátarnir skjóta upp koll-
inum.
Víst er talið, að Rússar
eigi rrú þegar einn eða fleiri
kjarnorkubáta, enda þótt
enginn hafi enn sem komið
er sést á höfunum. Banda-
ríkjamenn eiga þegar lið-
lega 10 slíka, en áætiað er,
að þeir þurfi 90 til þess að
verða jafnokar Rússa Víð-
tækar áætlanir hafa þegar
verið gerðar til að flýta
smíði bátanna, enda eru
bandarisku kjarnorkubát-
arnir með Polaris-flugskeyt
in nú taldir einna öflugasta
vopn Vesturveldanna.
—•—
Það er því sjálfsagt og
eðlilegt fyrir Atlantshafs-
bandalagið að fylgjast sem
bezt með ferðum rússnesku
kafbátanna. Jafnan er urm-
ull af þeim í Atlantshafi og
þar sem vitað er, að Rússar
eiga a. m. k. 450 kafbáta,
eins og fyrr greinir, má gjarn
an minnast þess, að Þjóð-
verjar áttu ekki nema fá-
eina tugi báta, þegar þeir
létu sem mest að sér kveða
á styrjaldarárunum. '
Rússnesku kafbátarnir í
Atlantshafi hafa flestir
stöðvar í höfnum norður-
strandar Rússlands, við Bar-
entshaf — svo og við Eystra-
salt. Enginn vafi þykir leika
á því, að leið kafbátanna úr
Barentshafi suður að austur
strönd Bandaríkjanna ligg-
ur um sundið milli íslands
og Grænlands. Þess vegna er
varðstaða á íslandi mikil-
vægt fyrir varnarkerfi alls
Atlantshafsbandalagsins.
Hvað allan útbúnað snert-
ir eiga Neptune-vélarnar,
sem annast þetta könnunar-
starf, lítið sameiginlegt með
Katalínubátunum, sem eltu
Myndin var tekin yfir ís-
breiðunni við Grænlands-
strönd. Ljóskastarinn, sem
um getur í greininni, er
framan á geyminum á væng-
endanum.
þýzku kafbátana á styrjald-
arárunum. Tækninni hefur
fleygt fram á síðustu árum
og jafnhliða vaxandi viðvör.
unarkerfi Atlantshafsbanda-
lagsins vinna skarar vísinda-
manna að því að finna upp
nýjar aðferðir og ný tæki
til að finna hugsanlegan ó-
vin, hvort sem hann er í haf-
djúpinu eða háloftunum,
áður en hann gerir sjálfur
vart við sig og lætur vopn.
in tala.
Neptune er búin öllum
fullkomnustu tækjum til kaf
bátaleitar og auk þess er
flugvélin gamalreynd og
traust. — Fyrsta vélin þess-
arar gerðar flaug í maí 1945.
Liðlega ári síðar flaug sams-
konar vél frá Perth í Ástra-
líu til Columbus, Ohio, í
Bandaríkjunum án viðkomu.
Vegalengdin var 17976 km,
flugtíminn 55 klst. 17 mín.
i— og benzánið, sem hún
brenndi á leiðinni, var að
þyngd 1,5 sinnum það, sem
flugvélin vó tóm. Þetta
langflugsmet án viðkomu
og án eldsneytistöku í lofti,
er enn þann dag í dag gild-
andi heimsmet.
—•—
Á þessum 15 árum hefur
Neptune verið endurbætt
mjög mikið stig af stigi —
og gerðirnar eru nú orðið
ekki færri en sjö. Samtals
hafa um þúsund Neptune-
vélar verið framleiddar og
þær eru ekki aðeins í þjón-
ustu bandariska flotans,
heldur og Hollands, Frakk-
lands, Kanada, Ástraliu,
Brazilíu, Japans og Argen-
tínu.
Með aukinni tækni hefur
nýjum könnunartækjum
stöðugt verið bætt í Neptune
og um skeið var svo komið,
að hreyflarnir tveir báru
vart meira. Þá var tveimur
þýstiloftshreyflum, sem
hvor um sig gefa 3.600
punda þrýsting, bætt á Nep_
tune. Að jafnaði eru þeir
aðeins notáðir í flugtaki, en
þegar nauðsyn krefur er
gripið til þeirra á flugi. Frá
því að þeir eru ræstir og þar
til þeir gefa fullt afl iíða
aðeins 10 sekúndur.
—•—
Fréttamanni Mbl. gafst á
dögunum tækifæri til að fara
með Neptune-vél í könnun-
arferð. Að vísu var ætlunin
ekki beint að skyggnast um
eftir rússneskum kafbátum.
Þetta var öllu heldur ískönn
unarflug meðfram Græn-
landsströnd.
Um þessar mundir er það
in og heimastöðvar hennar
eru í Brunswick, Maine, í
Bandaríkjunum. Aðeins
helmingur sveitarinnar er
hér, hinn helmingurinn hef
ur stöðvar á Spáni sem
stendur. Commander Jens
Hansen er yfirforingi 10.
svéitarinnar hér. Hann er
danskrar ættar eins og nafn
ið bendir til. Báðir afar hans
,.Ef fallhliiin þín
opnast ekki —
kondu þá og fáðu
aðra'4
og ömmur voru danskir inn-
flytjendur, settust að í Mic.
higan — og þar sleit Han-
sen barnsskónum.
— Og nú ætla ég loksins
að láta verða af því að heim-
sækja land feðra mmna,
sagði Hansen brosandi, úr
því að ég er komina hálfa
leið. Eg á mikið af skyld-
mennum í Danmörku, en
því miður tala ég hvorki né
les dönsku.
—•—
Skrýtið að heita Jens
Hansen, en tala ekki dönsku.
Synir hans tveir í Bruns-
wick heita reyndar líka
Hansen og þeir tala heldur
ekki dönsku. í 10. flugsveit-
inni er mikið af norrænu
blóði. Flestir piltanna gætu
allt eins verið Vestur-fslend-
ingar. — Allmargir eru írsk.
ættaðir og einn þeirra sagði
brosandi: „Ef þú talar við
Bandaríkjamann, sem segir
Grikkinn við ratsjána
10. flugsveit bandaríska flot
ans, sem annast könnunar-
flugið frá stöðvum Atlanz.
hafsbandalagsins á íslandi.
Þetta er elzta Neptune-sveit
Úr nefn flugvélarinnar er gott útsýni
þér ekki að fyrra bragði inn-
an tveggja mínútna hverrar
ættar hann er, þá vill hann
leyna þig því, að hann ex
ekki íri“.
—•—
Klukkan sex að morgni er
áhöfnin mætt út í flugskýli
flotans á Keflavíkurvelli.
Menn fara tímanlega á fæt-
ur, því góða stund tekur að
undirbúa ferðma. Comman-
der Hansen ætlar að fljúga
með í þessari ferð svo að
flugmennirnir eru þrír. Flug
stjórinn er Carlson, ljós-
hærður, grannvaxinn og
myndarlegur piltur, kominn
af sænskum og finnskum
innflytjendum. Hansen og
Carlson bregða sér yfir á
veðurstofuna, sem íslend-
ingar og Bandaríkjamenn
reka í sameiningu. Þar er
flugáætlunin tilbúin og
Hlynur Sigtryggsson, veður-
fræðingur, fer með flug-
mönnunum yfir síðasta veð.
urkortið. Spáin er ljómandi,
sól og blíða meðfram allri
Grænlandsströnd, en fer þó
heldur versnandi eftir því
sem austar dregur.
Að svo búnu er gengið
endanlega frá flugáætlun
Framh. á bls. 15