Morgunblaðið - 26.02.1961, Síða 1
24 síður
Krúsjeff rœðsf
á Hammarskjöld
Biður nú Nehrú um stuðning til að fá
honum vikið úr embœtti framkvœmda-
stjóra S.Þ.
Moskvu, 25. fébr. (Reuter)
ERLENDUM blaðamönnum
i Moskvu var í dag afhent
afrit af bréfi, sem Nikita
Krúsjeff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, sendi Nehrú,
forsætisráðherra Indlands,
Mok; 1
veiði
við Nýfundnaland
ST. JOHNS, Nýfundna-
landi, 25. febr. (Reuter) —
Fiskimálaráðherra Ný-
fundnalands hefur lýst því
yfir, að það megi teljast
alvarlegt vandamál, hve
mikill fjöldi erlendra tog-
ara hafi flykkzt á mið-
in undan suðvesturströnd
landsins að undanförnu. —
Þarna er nú geysimikil
veiði, og sagði ráðherrann
til marks um það, að skip-
in yrðu nú að fleygja
miklu magni af fyrsta
flokks fiski, svo að hvar-
vetna mætti nú sjá dauð-
an fisk velkjast í sjónum
— í þúsundatali.
— ★ —
Fiskimenn á Nýfundna-
landi hafa kvartað undan
því, að margir hinna er-
lendu togara hafi að und-
anförnu sótt um 1 mílu
inn fyrir 3ja milna land-
helgislínuna.
9 —
Lumumbamenn
taka Luluborg
LEOPOLDVILLE, 25. febrúar.
(Reuter) — IJpplýsingamálaráð-
herrann í stjórn Josephs Ileos í
Leopoldville tjáði Dayal aðal-
fulltrúa SÞ þar í dag, að ef SÞ
hefðu ekki afvopnað um það bil
300 hermenn Lumumba-sinna og
rekið þá hiurt úr Luluaborg, höf-
uðborg Kasai-fylkis, innan sex
klst. mundi ríkisstjórnin grípa
til sinna ráða — og yrðu þá SÞ
að taka afleiðingunum.
] ★
•' Hinir 300 Lumumbahermenn
náðu Luluaborg á sitt vald í gær,
átakalaust, enda þó þar væru
tfyrir um 2.000 hermenn Leopold-
villestjórnarinnar, sem hún taldi
sér trúa. — Talsmaður SÞ sagði,
að lið þeirra hefði ekki getað
aðhafzt neitt í þessu sambandi,
þar sem allt hefði farið fram
með friðsemd — hlutverk þess
væri aðeins það að hindra
árekstra og blóðsúthellingar.
i ★
; TJm 1000 Ghana-hermenn úr
liði SÞ voru í gær sendir inn í
Kasai til þess að hindra átök
milli Lumumbasinna og andstæð-
inga þeírra. — Óttast nú margir,
að Lumumba-menn hyggist sækja
til vesturs frá LuJuaborg — til
Leopoldville.
fyrir þrem dögum, þar sem
hann fer fram á samstöðu
Indlands um það að fá Dag
Hammarskjöld vikið úr emb-
ætti framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna. Endurtek-
ur Krúsjeff í bréfinu fyrri
ásakanir sovétstjórnarinnar á
hendur Hammarskjöld um
að hann beri að nokkru
ábyrgð á morði Patrice Lum-
umba og hafi rekið erindi
nýlenduaflanna í Kongó.
• Ný herferð.
í bréfinu er og borin fram til-
laga um stofnun nefndar full-
trúa frá ýmsum Afríkuríkjum til
þess að vinna með ,,lögmætri“
stjórn Kongó (Iþ.e. Gizenga-
stjórninni í Stanleyville) að því
að reka „erindreka nýlenduveld
anna“ burt úr landinu, losa það
undan hvers konar erlendri í-
hlutun og „endurreisa" sjálf-
stæði þess. — Jafnframt telur
Krúsjeff nauðsynlegt að hætta
aðgerðum SÞ í Kongó, a.m.k. í
núverandi mynd — enda hafi
þær ekki aðeins misheppnast al-
gerlega, miðað við hinn yfirlýsta
tilgang, heldur beinlínis orðið
til þess að gera ástandið í land-
inu enn verra en telja xnegi, að
það hefði ella orðið.
Þetta bréf Krúsjeffs virðist að
eins einn þátturinn í nýrri alls-
Frarnh. á bls. 23
IMýja penisillínið
tekið í notkun hér
Viiinur á stafylokokkum
sjúkrahúsanna
í HAUST kom á markaðinn
í Bretlandi ný tegund af
penisilíni, sem vinnur á
hinum illræmdu stafylok-
okkum, en þeir sýkl-
ar hafa verið mikið vanda-
mál á spítölum, hér og er-
lendis, og engin örugg lyf
unnið á þeim. í viðtali frétta
manna Mbl. við lækna um
hálsbólgusýkla fyrir skömmu
kom það fram að þetta nýja
Iyf hefði verið notað á
Landspítalanum. Blaðið hef-
ur nú leitað upplýsinga hjá
dr. Sigurði Samúelssyni, yfir
lækni lyflæknisdeildar. Sagði
hann að Landspítalinn hefði
undir eins gert ráðstafanir til
að fá hið nýja penisillín og
hefði það þegar verið notað
við einn sjúkling með mjög
góðum árangri.
— Nú hefur þannig í fyrsta
skipti fengizt penisillínteg-
und, sem ekki eyðileggst af
efnum þeim, er sýklarnir
stafylokokkar framleiða sér
til varnar. Við þá hafa
sjúkrahúslæknar verið að
berjast síðustu 10 árin, þar
eð kokkarnir hafa gert sig
ónæma fyrir hinum eldri
penisillíntegundum, sagði dr.
Sigurður.
Möguleikar á fleirí tegundum.
En sigurinn liggur ekki siður í
því, að með því að breyta for-
múlunni og fá iþessa nýju teg-
und af penisillíni, er komið inn á
nýjar brautir, sem veita mögu-
leika til að halda áfram að finna
Frh. á bls. 23
Það er sagt að sá sim finn-
ur fjögra blaða smára, finni
hamingjuna, en það er víst
sjaldgæft. Ljósmyndari Mbl
Ól. K. M. og blaðamaður
fundu þessar fjórar stúlkur
í Sundlaugunum á dögun-
um. Einhverjir fjórir ung-
ir menn munu vonandi ein-
hvern tíma finna hamingj-
una með þeim. Æska feg-
urð og hreysti einkennir
þær allar — og svo það
fjórða en það er aðeins
þeirra, sem finna fjögra
blaða smárann. Hvorki
blaðamaðurinrn eða ljós-
myndarinn treysta sér tU
að þekkja stúlkurnar með
nöfnum, þær eru allar jafn
fallegar, en það er meira
um þær á þriðju síðu blaðs
ins í dag.
Ólga í Mid-Afríkusambandinu
— vegna uppkasts oð stjórnarskrá
fyrir Norbur-Ródesiu
Lusaka, Norður-Ródestu,
25. febrúar. (Reuter)
MIKIL ÓLGA ríkir nú í
þessu brezka verndargæzlu-
svæði, svo og í Njassalandi
og sjálfstjórnarnýlendunni
Suður-Ródesíu, en þessi lönd
mynda MiöAfríkuríkjasam-
bandið svonefnda, eins og
kunnugt er. — Virðist svo,
sem hvenær sem er geti
dregið til átaka með hvítum
mönnum og svörtum í lönd-
um þessum, en orsakirnar er
að rekja til uppkasts brezku
stjórnarinnar að nýrri stjórn
arskrá fyrir Norður-Ródesíu,
sem miðar að því, að blökku-
menn fái fleiri fulltrúa en
áður á löggjafarsamkund-
unni. — Afríkumenn þ. e.
blökkumenn) skipa þar nú
aðeins 8 þingsæti af 22. Þeim
þykja tillögur brezku stjórn-
arinnar ganga of skammt, en
hvítum — með Sir Roy
Welensky, hinn harðsvíraða
forsætisráðherra ríkjasam-
bandsins, í broddi fylkingar
— finnst þær hins vegar
ganga alltof langt til móts
við óskir Afríkumanna.
★
Welensky hefir algerlega for-
dæmt stjórnarskráruppkastið og
lýst því yfir, að hann muni eftir
Framh. á bls. 23