Morgunblaðið - 26.02.1961, Side 23

Morgunblaðið - 26.02.1961, Side 23
Sunnudagur 26. febr. 1961 MORGV1VBLAÐ1Ð 23 — Penisilm Framh. af bls. 1 aðrar nýjar tegundir á sama hátt. Þó þetta nýja penisillín strá drepi stafylokokkono núna, þá veit maður ekki nema þeir kunni að brynja sig gegn því á inokkrum árum og því er það mikils virði að geta framleitt nýjar tegundir. I>etta er hin ei- lífi slagur milli lyfja og sýkla. Eingöngu á sjúkrahúsum. ! Dr. Sigurður sagði að þetta íiýja penisillín verkaði á færri tegundir bakteria en venjulegt penisillín og ætti því ekki að nota það nema þegar sýklarann sóknir sýna að sýking stafar ai stafylokokkum. enda er það á- ikaflega dýrt. Það ber því fyrst og fremst að nota það í sjúkra- húsum. i Nýja penisillínið er aðeins inn spýtingarlyf, og ekki er það gef- ið inn, vegna þess að það eyði leggst af magasýrunni. i Þetta lyf hefur einnig þann stóra kost, að þeir sjúklingar, sem búnir eru að fá mikið af fúkalyfjum standa alveg jafn vel að vígi og aðrir gagnvart því. Aukaverkanir af lyfi þessu hafa ekki sézt, en dr. Sigurður sagði að búast megi við að þær verði svipaðar og af öðru pen- isillíni, og er þá fyrst og fremst Ibætta á ofnæmi. Hitinn hvarf eftir sólarhring Beeoham Research Laborator- ies í Bretlandi undirbjuggu fram leiðsluna á þessu nýja penisil- líni sl. ár og í ágúst og septem- iber í haust fóru að birtast grein ar um það í hinum þekktu ibrezku læknatímaritum. Voru þá strax gerðar ráðstafanir til að Landspítalinn fengi það og í nóv embermánuði var það notað þar yið fyrsta sjúklinginn. ‘I I»ar var um að ræða sjúkling með heilahimnubólgu, sem bú- inn var að fá öll fúkalyfin og sulfalyf, án þess að það hefði borið árangur. En sólarhring eftir að hann fékk þetta nýja penisillin datt hitinn niður og varð eðlilegur eftir það. 1 Sami góði árangurinn virðist hafa fengizt af þessu nýja lyfi á Norðurlöndum og í Englandi, þar sem það hefur verið notað, að því er dr. Sigurður sagði. — Utan úr heimi Framh. af bls. 12. .V Tímabært að snúa sér að skólamálunum. Áætlanir um skólabyggingar í Grænlandi og aðrar nauðsynleg- ar framkvæmdir til þess að færa menntunarskilyrði í Grænlandi í eðlilegt horf eru ekki það langt á veg komnar, að neitt heildaryf- irlit um væntanlegan kostnað liggi fjrrir — en ljóst er, að hann verður mikill, ef vinna á að lausn málanna af fullum krafti og ekki spara í neinu. H Útgjöld danska ríkisins til hvers konar framkvæmda í Græn iandi hafa undanfarin 10—12 ár numið ca. 400 milljónum króna árlega (þ.e. yfir 2 milljörðum ísl. kr.) — þar við bætist svo 57 milljón króna kostnaður við iðn- aðaráætlun þá fyrir Grænland, sem hrint var af stokkunum á sl. ári. Ein af afleiðingum þess er sú, að nú eru 4—5 þúsund danskir sérfræðingar í Grænlandi, tækni sérfræðingar, verkfræðingar, i handverksmenn o.s.frv. — Bæði í Grælandsmálaráðuneytinu og fjármálanefnd þingsins eru menn á einu máli um það (að sögn dönsku blaðanna), að hin tækni- iega uppbygging hafi verið nauð synleg, og verði það áfram, en nú sé tími til kominn að hefja sams konar átak á sviði skólamál snna, ef Grænland á að geta fylgzt með hinni almearui fram- þróun i heiminum. Tvö á saltinu UM þessar mundir er sýnt amerískt nútímaleikrit í Þjóðleik húsinu og er það „Tvö á saltinu" eftir William Gibson. Leikurinn hefur hlotið ágæta dóma og túlk- un Jóns Sigurbjörnssonar og Kristbjargar Kjeld er sönn og látlaus. Leikurinn er djarfur og lýsir höfundurinn persónum sín- um vægðarlaust og dregur ekk- ert undan. Næsta sýning verður í kvölcL Leiðrétting í mlnningarljóði um Þorstein Þorsteinsson, fyrrum sýslumann, eftir Ingólf Jónsson, var meinleg villa. Þriðja ljóðlína í síðustu vísu átti að vera „ . . yfir hafið, sem heimana skilur“. - Ólga Frh. af bls. 1 helgina leggja fyrir sambands- þingið tillögu þess efnis, að stað ið verði gegn því ,,með öllum til tækum ráðum“ að stjórn Norð- ur-Ródesíu verði hrifin úr hönd um „ábyrgra manna", eins og hann tók til orða í ræðu í gær. Ýmsar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í löndum Mið-Af- ríkusambandsins til þess að koma í veg fyrir óeirðir í sam- bandi við þessa togstreitu. Þann ig hafa öll leyfi lögreglumanna í S.-Ródesíu verið afturkölluð, og í N.-Ródesíu eru 5 þúsund lögreglumenn og 2 þúsund hvít- ir hermenn með alvæpni að æf- ingum, viðbpnir að taka i taum ana, ef óeirðir skyldu brjótast út. Sjálfstæðisflokkur Afriku- manna í N.- Ródesíu hefir nú snúið sér til brezka landsstjór- ans, Sir Evelyn Hone, og farið þess á leit, að hann geri þegar í stað róttækar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir kyn- þáttaátök — en flokkurinn kveðst óttast að hvítir hermenn kunni að æsa Afríkumenn til uppþota. Sjötugur Hjálmar Jónsson Diego SJÖTUGUR verður í dag Hjálm ar Jónsson Diego Steinhólum við Kleppsveg Hjálmar er einn elzti starfsmaður tollstjóraskrif stofunnar hér í Reykjavík en þar starfar hann enn og hefur starfað óslitið síðan sú skipan þess embættis var tekin undan embætti lögreglustjórans. Hjálm ar er annars bakari og gullsmið ur að iðn. í gamla daga var hann bakari vestur í Bolungar- vík og ísafirði, en fluttist hing- að til Reykjavíkur í heimstyrj- öldinni fyrri. Gerðist hann þá bakari í Björnsbakaríi og stund aði jafnframt gullsmíðar hjá Árna B. Björnssyni. Á þessum merkisdegi verður Hjálmar með börnum og öðrum nánum ætt- ingjum að Brúnavegi 12. — Krúsjeff Framh. af bls. 1 her j arherferð Sovétstjórnarinn- argegn Hammarskjöld og að- gerðum SÞ í Kongó, því að ut- anríkisráðuneytið upplýsti, að sovétleiðtoginn hefði einnig skrifað mörgum fleiri þjóðaleið- togum í Asíu, Afríku, Evrópu og Suður-Ameríku til þess að skýra og leggja áherzlu á sjónarmið Sovétríkjanna í Kongómálinu. • „Svikavefur" f bréfinu til Nehrús fer Krús- jeff mörgum hörðum orðum um Hammarskjöld — og leggur á hann höfuðsök þess, hvernig komið er í Kongó. Segir hann m.a., að Hammarskjöld hafi frá upphafi vitað til hvers skyldi nota herlið SÞ í Kongó (þ.e. til framdráttar nýlenduveldunum) — og hann hefði notað aðstöðu sína til þess að tefja með öllum ráðum allar aðgerðir í þá átt að vernda löglega stjórn Kongó og þing landsins". Lætur hann svo um mælt, að öll stefna Hammar skjölds í Kongómálinu hafi ver- ið einn svívirðilegur svikavefur. — Kveður hann nú engan tíma mega fara til spillis, ef tryggja ætti sjálfstæði Kongómanna — og skorar á stjóm Indlands að styðja stefnu sovétstjórnarinnar í þessum efnum. ★ Ekkert hefir verið sagt af op- inberri hálfu í Nýju-Delhi um orðsendingu sovétleiðtogans. ,• íbúð Skemmtileg íbúð, 6 herbergi, eldhús og bað til leigu á bezta stað í miðbænum. Tilboð merkt: „Skemmtileg — 1242“ sendist afgr. Mbl. fyrir 1. marz n.k. JörS til sölu Jörðin Torfastaðir V í Fljótshlíð er til sölu nú þegar, ásamt íbúðarhúsi og peningshúsum. 12 ha. ræktað tún, góð ræktunarskilyrði. Rafmagn og sími, gott vegasamband. Skipti á íbúð í Reykjavík koma til greina. Nánari upplýsingar gefur eigandi jarðarinnar Óskar Sigurjónsson, Hvolsvelli. Dug'eg stúlka óskast nú þegar í eldhúsið. Upplýsingar gefur ráðskonan. Elli og hjúkrunarheimilið Grund. Hjartans þakkir til allra þeirra er sýnt hafa mér vin- semd og hlýhug í veikindum mínum. Ég þakka starfs- félögum mínum hjá Skemmtigörðum Reykjavíkur, sér- staklega fyrir þá miklu peningagjöf er þeir færðu mér og allan þeirra góðvilja sem þeir hafa sýnt mér og fjöi- skyldu minni að undanförnu. — Guð blessi ykkur ölL Marel S. V. Bjarnason, Suðurlandsbraut 62B. Hjartanlega þakka ég öllum vinum mlnum sem glðddu mig á 70 ára afmæli minu, með heimsóknum, simskeyt- um, gjöfum og hlýjum handtökum. — Lifið heil. , Guðmundur Markússon. Þakka innilega hinum mörgu vinum mínum mér auð- sýnda vináttu á sjötugsafmæli mínu 13. þ.m. Helgi Kr. Jónsson. Maðurinn minn, GUÐJÓN GUNNABSSON framfærslufulltrúi, andaðist 24. febrúar að heimili sínu, Gunnarssundi 6, Hafnarfirði. Amfríður Jónsdóttlr. Jarðarför mannsins mins ÁSTMABS BENEDIKTSSONAB sem andaðist 20. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju þriðjud. 28. þ.m. Athöfnin hefst kl. 10,30 f.h. Bósamunda Guðmundsdótttr. ¥ Útför EINABS GUÐMUNDSSONAB klæðskerameistara frá ísafirði, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. þ.m. og hefst kl. 10,30. Blóm og kransar afbeðið. Athöfninni verður útvarpað. Þuríður Vigfúsdóttir, Sigrún Einarsdóttir, Yngvi Guðmundsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Jónas Helgason. Jarðarför systur minnar guðbCnab magnúsdóttub Eyjum, Kjós, fer fram frá Reynivallakirkju, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 2 e.h. Ferð frá Bifreiðastöð íslands kl. 12,30. Fyrir hönd vandamanna. Haraldur Magnússon. Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem styrktu mig f járhagslega og sýndu mér hlýhug og vinsemd við fráfall eiginmanns míns JÓHANNS BJÖBGVINS EYJÓLFSSONAB Jónína Óskarsdóttir. Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu vinarhug og hjálp í veikindum og samúð við andlát og jarðarför SIGBlÐAB GlSLADÓTTUB Fyrir hönd aðstandenda. Þorlákur Kolbeinsson. Seljum málverk — Skipið á málverkum. Hringið sem fyrst, varðandi mál- verk sem þér ætlið að selja á næsta málverkauppboði. Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar, Austurstræti 12, sími 13715

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.