Morgunblaðið - 28.02.1961, Page 7
Þriðjudagur 28. febr. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
7
Kári Þorsteinsson frá
Bakka — Minningarorð
„Ómar af lögum og brot úr
brögum,
bergmál frá ævinnar liðnu
dögum
af hljómgrunni hugans vaknar."
(E.B.)
Margar minningar streymdu
fram í hugann er ég fyrir rúmri
viku síðan frétti lát bernsku-
vinar míns, Kára frá Bakka í
Öxnadal.
Það var bjartur vordagur V.
maí 1908. Ólöf á Hlöðum var
komin að Möðruvöllum, hafði
verið sótt í mesta flýti, því mik-
ið var í húfi að ljósa kæmi ekki
of seint. Okkur krökkunum var
ekki vel ljóst hvað um var að
vera, fundum þó á okkur, að
eitthvað óvanalegt væri á seiði.
Allt fór vel og brátt flaug frétt-
in um bæinn, að fjórði dreng-
íurinn væri fæddur hjónunum
Ólöfu Guðmundsdóttur og Þor-
steini Jónssyni, sem í mörg ár
hafði verið ráðsmaður hjá for-
eldrum mínum á Möðruvöllum.
Þorsteinn var Þingeyingur að
ætt, frá Fornastöðum í Fnjóska-
dal, mesti dugnaðar- og merkis-
maður. En Ólöf kona hans var
settuð úr Húnavatnssýslu, dóttir
Guðmundar smiðs Guðmunds-
sonar, er var föðurbróðir Guð-
mundar Björnssonar landlæknis
og þeirra systkina. Stóðu miklar
og fjölmennar ættir að Ólöfu
vestur þar.
Ólöf ólst ekki upp hjá for-
eldrum sínum, sem kornbarni
var henni komið í fóstur hjá
ömmu minni Jórunni Magnús-
dóttur á Helgavatni í Vatnsdal,
sem hún kallaði móður sína.
Fluttist Ólöf með fóstru sinni
norður að Möðruvöllum til for-
eldra minna vorið 1889, eftir að
fóstra hennar brá búi á Helga-
vatni. Þar kynntist hún Þor-
steini manni sínum. — Ólöf var
mjög merkileg kona, fríð sýnum
og drengileg í allri breytni.
Nokkrum sinnum heyrði ég, að
hún þætti skapstór, en það fann
ég aldrei. Hún var síglöð og
hressandi, dáði ég hana mjög
mikið frá því ég man fyrst eftir
mér. Söngelsk var hún og hjavta
hlý, kunni öll ósköp af kvæðum
og þulum, þvi minnið var gott.
Dugnaði hennar var viðbrugðið
að hverju sem hún gekk og var
hún velvirk eftir því. Óskaði ég
þess oft, er ég var barn, að ég
yrði eins sterk og dugleg eins
og Óla. En af því gat ekki orð-
ið. Margt kenndi Óla mín mér,
sem ég hef notið góðs af síðan.
Að ég minnist nú Ólafar sér-
staklega þegar Kári er farinn
'kernur til af því, að mér fannst
Kári svo líkur móður sinni.
Kári komst á legg og varð
snemma duglegur drengur. Þó
okkur eldri krökkunum, sem
áttu að gæta hans, fyndist hann
oft fyrirferðamikill og erfiður
viðureignar, þá þótti okkur
vænt um hann, því brátt kom í
Ijós að hann óar viðkvæmur og
hlýr. Þau einkenni fylgdu hon-
um allt lífið.
Á Möðruvöllum lékum við
okkur saman þegar færi gafst í
þrjú ár. Þá fluttu foreldrar
hans búferlum að Arnarnesi í
sömu sveit, en mitt fólk fór al-
farið til Akureyrar. — Þorsteinn
og Ólöf undu ekki hag sínum
út við sjóinn. Þau voru bæði
dalabörn. Hugðu þau sér því
gott til glóðarinnar, þegar Bakki
í Öxnadal var laus til ábúðar
vorið 1912. Þangað fluttu þau
þá með drengina sína 5, því einn
bættist í hópinn í Amarnesi. Og
þar var ekki tjaldað til einnar
nætur. Á Bakka festu þau
rætur, bjuggu þar myndarbúi í
tvo áratugi og bræðurnir 4 urðu
mikilsmetnir bændur í Öxnadal.
Þó lengra yrði nú á milli okk-
ar, þá var vináttan sú sama, og
á hverju sumri fékk ég að vera
hjá vinafólki mínu á Bakka um
lengri eða skemmri tíma. Hús-
bændurnir voru mér sem for-
eldrar og drengirnir eins og
bræður mínir. Frá þeim árum
á ég margar ljúfar minningar.
Þá sóttist ég eftir að fara fram
að Bakka um páskana. Ólöf hús
freyja hafði sérstakt lag á að
gera dagamun á heimili sínu.
Ekki hafði hún þó ætíð úr
miklu að moða, en mér fannst
allt vaxa í höndum hennar og
hún átti ráð undir rifi hverju.
Páskadagsmorgnarnir hennar
eru mér ógleymanlegir. Það var
oft lítið sofið í baðstofunni á
Bakka páskadagsnótt, tilhlökk-
unin var svo mikil og eftirvænt-
ingin. Okkur krökkunum fannst
nóttin aldrei ætla að líða, það
var hvíslað og pískrað. Undir
morguninn féll á okkur mók, en
við vöknuðum brátt við ilminn
af góðgætinu, sem húsfreyja
bar inn handa öllu fólkinu.
Guðs orð var lesið og sunginn
sálmur. Þarna var helgistund í
litlu baðstofunni, sem hafði slík
áhrif á mig, að ég mun aldrei
gleyma. Þegar ég lít til baka
finnst mér sólin ætíð hafa skin-
ið inn um baðstofugluggana,
þessa páskadagsmorgna og fyllt
baðstofuna sérstökum unaði.
Ég reið um hlaðið á Bakka og
kvaddi vinafólk mitt, er ég
flutti úr Eyjafirði vestur í Húna
vatnssýslu. Lét ég þá orð falla
við húsfreyju um það, að gam.
an væri ef einhver drengjanna
kæmi til mín vestur og yrði þar
um tíma. Tók hún því vel.
Næsta vor kom Kári v^stur að
Þingeyrum, og var þar heimilis-
maður í nokkur ár, hann var þá
16 ára. Þótti mér vænt um að
hann kom, reyndist hann mér
ætíð sarni góði drengurinn.
Kári unni söng og hljómlist
eins og móðir hans. Minnist ég
þess, er útvarp kom fyrst heima,
þá fannst okkur Kára við ekk-
ert mega missa af hljómlist út-
varpsins. Sátum við og hlustuð-
um fram eftir kvöldum þar til
síðasta lagið var sungið eða
leikið, enda þótt allir á bænum
væru gengnir til náða og glóðin
kulnuð í stónni.
Bar þá margt á góma. Liðnar
stundir oð norðan voru rifjaðar
upp og áætlanir gerðar um
framtíð unga sveinsins. — Hann
vildi verða bóndi, helzt norður
í Öxnadal og gera þar garðinn
frægan. Að nokkru leyti rættist
draumur Kára. Hann fluttí aft-
ur norður í átthagana. Eignaðist
góða konu, Sigrúnu Sigurjóns.
dóttur frá Ási á Þelamörk, sem
hann unni mjög. Þau hjón eign-
uðust tvo drengi, Þórð og Elías.
Fyrstu hjúskaparárin bjó hann
á Þverá hjá Ármanni bróður
sínum og Önnu konu hans. sem
er systir Sigrúnar. Reyndust
hjónin á Þverá Kára framúr-
skarandi vel alla tíð.
Nú var Kári og fjölskylda
hans flutt fyrir nokkrum árum
að Hólum, næsta bæ við Þverá,
eyðibýli, sem hann var að end-
urreisa og gera að kostajörð.
Skrifaði hann mér fyrir jólin í
vetur lét hann vel af högum sín-
um, taldi mesta erfiðinu lokið
Byggingar væru að komasí í
gott horf og ræktun fleygði
fram. Vonaðist hann til að létt-
ara yrði undir fæti framvegis,
því drengirnir væru orðnir stór-
ir og stæltir, Þórður við búnað-
arnám á Hvanneyri í vetur, en
Elías hjálpaði sér heima.
Kári var félagslyndur að eðlis
fari. Lét hann mikið til sín taka
í félagsmálum sveitar sinnar,
einkum Ungmennafélagi Öxn-
dæla. Honum varð það ljósara
með aldrinum, hve brýn þörf er
á góðum leiðtoga æskufólks í
hvaða sveit sem er. Nú er öllu
lokið. Þessi stóri og duglegi
maður var kallaður burtu í
miðju starfi. Mig langaði til að
vera stödd á Bakka í dag og
fylgja honum síðasta spölin, en
mér lánaðist það ekki. Verð að
láta mér nægja að senda kveðju
norður yfir fjöllin, þakka hon-
um góða vináttu og biðja Guð
að blessa ástvini hans og vini
alla.
Blönduósill/2 1961
H. Á. S.
Til sölu
mjög fallegur pels. — Sími 23336.
Hótel til sölu
Hótel Skjaldbreið í Reykjavík er til sölu nú þegar,
ef viðunandi tilboð fæst í eignina.
I hótelinu eru 15 gistiherbergi, ásamt góðum
veitingasölum og eldhúsi.
Hótelið stendur á eignarlóð í Kirkjustræti 8,
einum bezta stað í Miðbænum.
Allar nánari upplýsingar um eignina gefur hótel-
stjórinn Hr. Kári Halldórsson.
Óskað er eftir tilboðum í eignina sem sendist
í box 1098 fyrir 10. marz. nk. merkt: „Hótel No.8“.
Heimilt er að taka hvaða tilboði sem er, eða
hafna öllum.
STJÓRNIN.
Tilkynning
frá félagsniálaráðuneytinu
Að marggefnu tilefni tilkynnist hér meö að heimild
til endurgreiðslu úr sparimerkjabókum er bundin
við giftingu eða að menn hafi náð 26 ára aldri.
Undanþágur þær sem skattayfirvöldum er heimilt
að veita skulu aðeins veittar frá þeim degi að um
undanþáguna er beðið. Undanþágan felur aldrei í sér
heimild til endurgreiðslu þess fjár, er áður hefur
verið aflað og skylt var að leggja inn.
Félagsmáíaráó'uneytið, 25. febrúar 1961.
Vélbátar til sölu
12 lesta vélbátur með nýrri vél og nýjum dýptarmæli.
18 lesta vélbátur smíðaár 1955.
20 lesta vélbátur með nýrri vél, nýuppgerður.
22 lesta vélbátur í góðu standi.
33 lesta vélbátur með dragnótaveiðarfærum.
43 lesta vélbátur.
51 lesta vélbátur í ágætu standi.
TR766IH6AR
FASTE16NIR
Austurstræti 10, 5. hæð
sími 12328 og 24850
eftir kl. 7 sími 33983.
* *
föMonafitif
* * *
Fegrunarkrem og sápur
með skjaldböku-olíu.
í dag notfærir konan sér efnafræðilegar
nýjungar PERSONALITY snyrtivörurnar.
Dagleg notkun á PERSONALITY kremi
og sápu gerir húð yðar ótrúlega mjúka og
silki-matta.
M/usxmafflíf
* * *
* * *
Deep Cleansing Cream, Skinfood, Foundation Creani,
Cleansing Milk og Hand Cream.
Fæst í eftirfarandi snyrtivöruverzlunum:
OCIJLUS h.f., Austurstræti.
Verzlunin STELLA, Bankastræti.
REGNBOGINN s.f., Bankastræti.
Verzlunin EDDA,Keflavík.