Morgunblaðið - 10.03.1961, Side 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Fðatudagur 10. marz 1961
Búnaðarþing hafnaði til
lögu um minkaeldi
— eftir miklar umræður
NÝLEGA var til síðari umræðu
frumvarp til laga um breytingu
á lögam um loðdýrarækt og er-
indi Sambands íslenzkra sam-
vinnafélaga varðandi minkarækt.
M iklar umræður urðu um þetta
mál á þinginu en því lyktaði
með að þingið samþykkti álykt-
un um að mæla ekki með afnámi
banns við minkaeldi.
Ályktunin hljóðar svo:
„Augljóst er af reynslu bæði
bérlendis og erlendis, að ekki er
iiægt að ganga þannig frá minka-
’óúum, að dýr ekki sleppi úr
haldi og valdi tjóni á fiski, fugli
og búfé landsmanna. Af þessum
sökum vill Búnaðarþing ekki
mæla með afnámi á banni við
minkaeldi á íslandi að svo komnu
máli.
Búnaðarþing leggur hins vegar
ríka áherzlu á, að leitað verði
allra ráða og ekkert til sparað
að útrýma villiminknum, sem nú
er í landinu".
Svofelld greinargerð fylgir
ályktuninni.
Þegar minkarækt var hafin hér
á landi fyrir um 30 árum voru
miklar vonir tengdar við þann
atvinnuveg, ekki sízt vegna
þess, að hann hefði gefið góða
raun hjá nágrannaþjóðum okk-
ar.
En reynslan varð hins vegar
sú, að ekki varð neinn veru-
legur hagnaður af þessu, nema
hjá örfáum mönnum, sem gátu
selt mikið af lífdýrum.
En hitt var þó öllu verra, að
fjöldi minka slapp úr haldi og
lifir nú villtur minkur í landinu
til stórtjóns fyrir annað dýralíf
og hafa útrýmingaraðferðir
kostað mikið fé, án þess að fullur
árangur hafi af þeim orðið.
Af þessum sökum var minka
eldi bannað með lögum frá Al-
þingi nr. 32 8. marz 1951.
Nú um skeið hafa verið uppi
háværar raddir um að afnema
bann þetta og hefja minkaeldi
að nýju og talið að nágranna-
þjóðir okkar hafi um skeið haft
miklar tekjur af þessari atvinnu,
þó er salan háð verðsveiflum og
kventízku á hverjum tíma.
Hins er líka að gæta, að stofn-
kostnaður við stofnun minkabúa
er allmikill og vonin um hagnað
af rekstri þeirra háð því, að tak
ast megi að fá úrvalsdýr með
skinnum, sem komast í hæsta
verðflokk og líka því að verjast
megi að skæðir sjúkdómar berist
með dýrunum og valdi tjóni.
Nýlega hafa borizt þær fregnir
frá nágrannalöndum okkar, að
verðfall sé verulegt á skinnunum
og af þeim sökum sé minnkandi
hagur af rekstri minkabúa.
Talið er af fræðimönnum, að
útilokað sé að verjast því, að
minkar sleppi úr haldi, þó
geymslubúrin séu vel úr garði
gerð og minkar, sem sleppi úr
haldi valdi auknu tjóni og nýjum
vandkvæðum á þeim svæðum, er
þeir taki sér bólfestu á.
Af þessum sökum getur Bún-
aðarþing ekki mælt með að
minkarækt verði upp tekin á
nýju á íslandi.
Fyrri liður ályktunarinnar var
samþykktur með 17:3 atkvæðum,
en síðari liður með 23 samhljóða
atkv. Ályktunin í heild var sam
þykkt með 18 atkvæðum og mál
ið þar með afgreitt frá Búnaðar-
þingi.
I>á var til fyrri umræðu
erindi bændafundar Austur-
Húnvetninga um stofnfjárþörf
landbúnaðarins. Urðu um málið
talsverðar umræður, sem að lík-
indum mun haldið áfram í dag.
P II I L C O
P H I L C O
P H I L C O
P H I L C O
ADEINS
P H LIuC O
10%
ÚTBöRuUN
EFTIRSTÖÐVAR A 9 MAIMIJÐIJM
Hagkvæmir greiðsluskilmálar sem gera flestum
kleift að eignast þessi vinsælu heimilistæki
PHILCO 1478
PHILCO - FRYSTAR PHILCO kæliskápar
PHILCO-BENDIX
þvottavélar
— 8 gerðir —
Árs ábyrgð
Frystiskápar
8 — 11 cub. fet.
Frysti kistur
8,4 cub. fet.
5 ára ábyrgð
— 10 gerðir —
Stærðir: 4,5, — 6, — 7 —
8 — 8,4 — 10,5 — 11 — 12
cub. fet
5 ára ábyrgð
Raftækjadeild 0. Johnson & Kaáer hf.
Sími 24000
Hafnarstræti 1
Undirbúningur er hafinn að útgáfu Ferðahandbók-
arinnar 1961. Þeir einstaklingar og fyrirtæki, sem
ekki voru skráðir í bókina á síðasta ári, en óska
þess nú, svo og þeir, sem vilja koma að breytingum,
eru beðnir að koma upplýsingum sínum hið fyrsta
til ritstjóra bókarinnar, Örlygs Hálfdánarsonar,
fræðsludeild SÍS, Reykjavík.
Þeir, sem hyggjast auglýsa í Ferðahandbókinni, eru
beðnir að hafa hið fyrsta samband við Þorvald
Ágústsson, auglýsingastjóra SÍS, þar eð auglýsinga-
pláss er mjög af skornur skammti.
Hótel Bifröst
Ný lög uiw Vélsbólonu undiibúin
HINN 16. nóvember s.l. fól
menntamálaráðherra þeim Ás-
geiri Féturssyni, deildarstjóra,
Gunnari Bjamasyni, skólastjóra
Vélskólans, og prófessor Finn-
boga R. Þorvaldssyni að undir-
búa setningu nýrra laga um Vél-
skólann.
Nokkru síðar var þeim jafn-
framt falið að undirbúa löggjöf
um stofnun tækniskóla og enn-
fremur að gera tillögur um breyt-
ingar á núgildandi lagaákvæðum
um verknám gagnfræðastigsins
með það fyrir augum að gefa
Sjúkur maður
frá Grænlandi
SL. mánudag var farið héðan frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar
með danskan mann, sem kalið
hafði á tám norður í Daneborg á
Grænlandi. Þaðan var hann flutt
ur með amerískri flugvél. Hafði
verið rudd 700 m löng lendingar-
braut fyrir flugvélina, sem þurfti
650 m. til flugtaks. Tókst þetta
sjúkraflug mjög vel, og flaug
flugvélin beint frá Daneborg
hingað til Reykjavíkur. Þessi
danski maður var starfsmaður við
loftskeytastöðina. í þessu græn-
lenzka þorpi.
brottskráðum nemendum verk
námsdeildanna kost á framhalds-
menntun, er opni þeim leið inn
í Vélskólann og væntanlegan
tækniskóla.
Mun tillögum um síðargreint
atriði verða skilað til ráðuneyt-
isins á næstunni.
Menntamálaráðuneytið,
7. marz 1961.
Holtavörðtiheiðin
illfær
í FYRRADAG tók færð aS
spillast á Hóltavörðuheiði og J
gær var það vonzkuhríð. Aætl-
unarbifreiðin norður kom af
þeim ástæðum seint til Akurb
eyrar í fyrrakvöld, en á Vaðla-
heiði var þá ágætlega fært. 1
gærmorgun fór áætlunarferðin
að norðan og ætlaði í Varma-
hlíð, en bíða þar eftir að veðr-
inu slotaði. Mun henni þá verð»
hjálpað suður yfir.
Félagslíf
Framarar
Skemmtifundur verður fyrir
eldri félaga í Framhúsinu laug-
ardaginn 11. marz. kl. 8.30 e. h.
Skemmtiatriði: Félaasvist Bingó
og fleira.