Morgunblaðið - 10.03.1961, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.03.1961, Qupperneq 22
22 MORGVT*BLAr>in Föstudagur 10. marz 1961 ISLAND - FRAKKAR ★ Gott spil. Fréttamaður þýzku frétta- stofunnar leggur áherzlu á það, að ísl. liðið hafi vakið mikla at- hygli fyrir hraðan og markviss ann sóknarleik. Við það réðu frönsku varnarleikmennirnir ekki. Og hárnákvæm þrumuskot ísl. liðsins af löngu faeri voru Frökkum ofviða. Á stundum seg ir hinn þýzki fréttamaður sýndi isl. liðið framúrskarandi og fjöl breytt samspil. Beztu menn ísl. liðsins þetta kvöld voru Hjalti í markinu, Gunnlaugur og Ragnar. >á kom örn Hallsteinsson mjög á óvart með 3 mörkum sínum. Kristján var slæmur í hendi en lék þó með. Mörk ísl. liðsins skoruðu Gunn laílgur 5, Ragnar 4, Birgir 3, Örn 3, Pétur 2, Karl Jóh. 2 og Karl Ben 1. Áhorfendur voru 1000—1500 í lítilli höll. Leikvöllurinn er „aðeins“ 19x38 metrar nokkru minni en aðrir vellir er keppt hefur verið á. Mjög góð byrjun hjá ísSenzka liðinu ÍSLAND vann Frakkland í skemmtilegum og góðum leik í Homberg í gærdag með 20 mörku mgegn 13. í hálfleik var staðan 11:3 fyrir ísland og sýndi íslenzka liðið í fyrri hálfleik mjög góðan leik, ákveðna sóknarleikaðferð og ntjög góða vörn, að því er segir í fréttaskeyti frá þýzku fréttastofunni DPA. ■jt Góð byrjun íslenzka liðið byrjaði leikinn mjög ákbeðið. Eftir 15 mín. leik var staðan 7:2 íslandi í vil. Við mjög ákveðið. Eftir 15 mín. leik menn undan allri taugaspennu og náðu á köflum framúrskar- andi góðum leik. En hin góða byrjun í fyrri hálfleik orsakaöi mikla sig- urvissu og leikmenn tóku að skjóta í tíma og ótíma. — Vörnin opnaðist við það í síðari hálfleik og Frakkar sóttu með hörðum leik með jarðarskotum og línuspili. — Hjalti stóð sig vel í mark- inu, en fékk ekki að gert þó markamunur minnkaði. Frakkarnir léku mjög hart og voru þrír þeirra rekn- ir af leikvelli um stundarsak- ir. Dómarinn, Singer, frá A- Þýzkalandi (sá sami og dæmdi Ieik Dana og íslendinga) hafði ekki góð tök á leiknum — snerist að dómi flestra á sveif með sigurvegurunum. Aðrir leikir Úrslit annarra Ieikja í heims- meistarakeppninni í gær urðu þau að Rúmenía vann Noreg með 16 mörkum gegn 14 og tryggði sér efsta sætið í sínum riðli. Tékkar unnu Svía með 15 mörk um gegn 10 í góðum leik, þar sem Tékkar smám saman sköpuðu sér öruggt forskot og höfðw forystu frá upphafi til loka. t hálfleik var 10:5. Ekki er vitað um úrslit í leik Dana og Þjóðverja en í skeyti til blaðsins um leik tslendinga segir að næsti leikur verði gegn Dön- um — og það bendi til þess að Þjóðverjar hafi farið með sigur af hólmi yfir þeim. Mynd þessi er tekin í Ieik Svía og fslendinga sl. þriðjudag. Hún sýnir er Hass Col’.in skorar eitt af 18 mörkum Svía. Birgir fyrirliði horfir á. Island i. landsleikaferð til Balkanlanda E n s k a knattspy rnan í VIKUNNI fóru fram þrír leik- ir í ensku bikarkeppninni, en þéssi lið gerðu jafntefli sl. laug- ardag. Burnley — Sheffield W. .. 2:0 Barnsley — Leieester .... 1:2 Tottenham — Sunderland 5:0 65 þúsund áhorfendur sáu leik- inp milli Tottenham og Sunder- land og urðu margir frá að hverfa. Leikmenn Tottenham léku mjög glæsilega og unnu verð skuldaðan sigur. í hálfleik var staðan 3:0. Mörk Tottenham skor uðu Mckay, Smith, Jones og Dy- son 2. — Framlengja varð leikn- um milli Barnsley og Leicester áður en úrslit fengust. Dregið hefur verið hvaða lið leika saman í undanúrslitum 18. márz n.k. og eru það þessi: S, Tottenham — Burnley \ Leicester — Sheffield U. ÍSLENZKUR handknattleik- ur hefur fengið traust — slíkt traust — að auðsótt mál er nú að fá landsleiki við aðrar þjóðir með hag- stæðum kjörum, þar sem tryggt er að leikur íslands við næstum hvaða annað land sem er verður hörð og tvísýn keppni, sem þúsund- ir manna vilja gefa mikið fyrir að sjá. Margir samningar um lands- leiki eru nú gerðir í Þýzka- landi. Það er líf og fjör í tusk- unum í íþróttaskólanum í Duis- borg, þar sem liðin búa og for- ráðamenn sambanda hinna ýmsu landa semja um fram- tíðina. Berlingske Tidende skýrir frá því að tekizt hafi samn- ingur, sem sé mjög góður og „spennandi“ fyrir Island. — Samkvæmt honum eiga fs- lendingar að fara í keppnis- för til Balkanlanda næsta vetur og Ieika gegn Ung- verjalandi, Júgóslavíu og Rúmeníu. Þar við bætist — segir blaðið — að íslendingar vænta þess að Iandslið Sviss, sem sennilega fer keppnisför um öll Norður- löndin komi og á þeirri leið sinni til Reykjavíkur og leiki landsleik þar. Á þessum sama stað hafa Danir og Svíar samið um landsleiki. Svíar munu fara til Tékkóslóvakíu og Rússlands og Rússar munu senda lið sitt til Svíþjóðar og fara í sömu ferð til Danmerkur og leika þar. Norðmenn hafa einnig haft nokkuð upp úr krafsinu. Þeir munu fara í landsleikaför til Hollands, Belgíu og Frakklands með bæði karla- og kvenna- landslið, eftir því sem Berlinga- tíðindi segja. -K Blaðið náði tali af Axel Einars syni, varaformanni handknatt- leikssambandsins og innti hann eftir hvort frétt þessi væri rétt. Sagðist Axel reikna með að svo væri, því viðræður hefðu átt sér stað um væntanlega ferð árið 1962 til Mið og Austur-Evrópu. Fyrst hefði verið rætt um ferð þessa á þingi Alþjóðahandknatt leikssambandsins í september s.l. Síðan hefðu bréfaviðskipti farið fram og var að lokum ákveðið að gengið yrði endanlega frá samn ingum þegar forystumenn hinna ýmsu ríkja hittust nú í Þýzka landi. Fram haldið Á morgun fara fram 2 leik- ir og eru það leikirnir um 3. og 4. sætið milli Svíþjóðar og Þýzkal. og um 5. og 6. sætið milli íslands og Danmerkur. Leikirnir fara báðir fram í Essen og hefst fyrri leikurinn kl. 5 eftir íslenzkum tíma. Á sunnudaginn leika Tekkósló- vakía og Rúmenía um heims- meistaratitilinn og Noregur og Frakkland um 7. o.g 8. sæt- ið. Leikir þessir fara fram í Dortmund og hefjast kl. 3 eft- ir ísl.' tíma. Úrslit í riðlunum: Tékkóslóvakía .... 3 2 1 0 55:31 5 Svíþjóð ....... 3 2 0 1 43:36 4 ísland ........ 3 1 1 1 45:46 3 Frakkland ..... 3 0 0 3 30:60 0 Rúmenía ....... 3 3 0 0 43:36 6 Þýzkaland ..... Óvíst um úrslit Danmörk....... Óvíst um úrslit Noregur ....... 3 0 0 3 31:41 0 Spá- konan spáði rétt! í GÆR kom inn á ritstjórn blaðsins stórvaxin kona sem vildi hitta blaðamenn. Hún fór ekki í felur með erind sitt og hvíslaði því ekki heldur. „Eg vil fá viðtal við mig í Morgun- blaðið, því ég er að skipta um stefnu“. Það kom hálfgert fát á okk-1 ur, því konan bar sig vígalegak og aðeins var eitt mjótt skrif- borð milli okkar og hennar. Við fórum samningaleiðina að gestinum, sem sagöþit vera1 Sesselja Jónasdóttir, spákona íl Borgarnesi og hún bætti við.j „Eg er mesta spákona ís- lands“. Það varð úr, að hún fékk sér sæti og róaðist þegar við sögðum að við vildum reyna* spádómshæfileika hennar. Við sögðum henni frá landsleik ís- lendinga og Frakka sem hefj- ast ætti eftir skamma stund (þegar þetta gerðist). Um ut- anveru landsliðsins og um þann leik var hún með öllu ófróð. En við létum i það skína að ef hún segði okkur rétt til um úrslitin — yrði hún fræg á morgun. Hún leit í kringum slg, eins og hún væri að lesa úr veggj- unum, dæsti og sagði. „Hér er gott að vera“. Síðan bað hún um spil. Hún vildi fá mann til að „leika útlendingana — Frakka". Fyrir valinu varð Axel Einarsson, varaform. handknattleikssambandsins. Hann átti að draga 3 sinnum fimm spil. Sesselja greip spilin fimmj hverju sinni. Við fyrstu fimm sagði hún. „Miklir örðugleik- ar en batnadi horfur“. Við næstu fimm sagði hún „Mis- heppnað á sumum sviðum — svolítill ábati“. Við hin þriðju fimm sagði hún „Bara orðið dágott — en þó ekki að fullu“. íþróttafréttamaður Morg- unblaðsins vildi hún að dragi fyrir ísl. liðið. Við fyrstu 5 spilin sagði hún „Uppfyllt ósk“ og við næstu fimm „Gleði leg tíðindi“. Við hin þriðju 5 spil „Landinu misheppnast ekki — en það eru einhver leiðindi og einhverjir erfið leikar*. Hún var orðin kvíðin og vildi ekki svara spurningunni játandi hvort fsland ynni þá ekki. „Dragið sinn hvert spil- ið — ljóst spil hefur mikið að segja“. Fulltrúi Frakka dró ljósa drottningu — fulltrúi ís- lands svartan gosa. „Já en það er nú laufagosinn“ sagði Sesselja „og hann er gott spil“. Það verður hver að svara fyrir sig um réttmæti orðai hennar. En við viljum benda á að ísland vann fyrri hálf- leik með 11:3 — en tapaði þeim síðari með 10 gegn 9. — A. St.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.