Morgunblaðið - 10.03.1961, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 10.03.1961, Qupperneq 23
Föstudagur 10. marz 1961 MORGVNBLAÐ1Ð 23 — Ræða BJarna Benediktssonar 1 Framh. af bls. 8. heldur er það hreinn meirihluti sem úrslitum ræður um kosn- ingar dómaranna í báðum þess- um stofnunum. Rétturinn okkar einasta skjól l>að er þess vegna ein af þeim furðulegu blekkingum, sem hér hefur verið talað um og haldið fram, þegar látið er í það skína, að Alþjóðadómur- inn sé einungis verkfæri stór- veldanna. Ég ítreka það, sem ég sagði áðan, að það má ekki líta á dómara stórveldanna, þá, sem frá þeim koma sem þeirra verkfæri — sem þeirra fulltrúa, — þeir eru þar sem sjálfstæðir dómendur, er eiga að fara eftir sinni eigin samvizku. En jafn- vel sú hætta er nú fyrir löngu tindir lok liðin, að það séu stór- veldin, sem ráði skipun þessa dómstóls. í*að eru einmitt þau ríki, sem hv. 2. þm. Vestfjarða '(Hermann Jónasson) vitnaði í, áður en hann trylltist alveg í þessu máli, og sagði þá, að mundu með sinni tilkomu í Sameinuðu þjóðirnar skapa okk ur réttargrundvöllinn til þess að gera nýjar útfærslur, það eru einmitt þessi nýju ríki, sem nú orðið ráða úrslitum að veru legu leyti í Sameinuðu þjóðun- um og hvergi geta fyrr komið áhrifum sínum fram heldur en einmitt varðandi skipun slíkrar stofnunar, eins og alþjóðadóm- stólsins. Ég segi þetta enn og aftur, með þeim fyrirvara, að þessa menn má ekki skoða sem fulltrúa sinna ríkisstjórna, held- ur einungis meta þá sem hlut- lausa og réttláta dómara. Um þetta mál mætti margt segja og er þó í raun og veru éþarft að fjölyrða um það. Þau rök, sem hér hafa komið fram af hálfu andstæðinga málsins, hafa öll þegar verið hrakin lið fyrir lið og ég skal ekki tefja þingheim á þeirri upptalningu. En ég vil- segja, að þetta mál snýst að lokum fyrst og fremst Um það, hvort íslendingar vilja, að íslenzka lýðveldið, okkar sjálfstæða, litla þjóð eigi að vera réttarriki héðan í frá eins og hingað til. Við byggðum ætíð kröfur okk ar til sjálfstæðis á réttargrund- velli. Því var oft haldið fram, að þetta tal um rétt og tilvitn- Un í gamlar heimildir væri hé- góminn einber. Það væri ann- að, sem úrslitum réði. En ís- lendingar byggðu ætíð mál sitt á réttargrundvelli. Það er vegna þess, að öllum íslending- um er það í blóð borið, að rétturinn, lögin, séu okkar ein- asta skjól. ,, slenzk lög og alþjóðaréttur“ Og ég vil að lokum segja það til lofs andstæðingum stjórnar- innar í þessu máli, að þrátt fyrir allt þeirra tal nú síðustu dagana um, hvað það sé hættu- Jegt, ef við ætlum að fylgja réttinum í þessum efnum, al- þjóðalögum, þá bera þeir þó ejálfir fram tillögu um það, að við eigum framvegis eins og hingað til, að fara eftir „íslenzk um lögum og alþjóðarétti*. Það sýnir, hversu hugmyndirn- ar um löghlýðni og skyldu til |>ess að hlíta réttinum eru þó þrátt fyrir allt ríkar í okkur, að þegar andstæðingar okkar hafa það harðast á móti okkur og Ibregða okkur um allar vammir og skammir'af því að við viljum láta æðstu réttarstofnun í heim- inum, Alþjóðadómstólinn, skera úr um ágreining, sem kynni að verða um síðari útíærslu okkar á landhelginni, þá játa þeir jafnvel enn í dag, að við verð- um að fara eftir „íslenzkum lög- um og aliþjóðarétti". Mennirnir, sem í öðru orðinu segja: Það var ekki farið eftir alþjóðarétti og alþjóðalögum 1958 og segja, að það sé hættulegt, ef við ætl- um héðan í frá að fara eftir alþjóðarétti, þ. e. alþjóðalögum. Þeir bera sjálfir fram tilllögu um að setja þetta berum orðum inn í fskj. þáltill. Það sann- ar, að þrátt fyrir allt moldviðr- ið, þrátt fyrir allar blekking- arnar, þá vita þessir menn, að íslenzka þjóðin telur það hina mestu smán og óvirðingu við sig, ef á að fara að halda því fram, að hún sé ekki réttar- ríki, að hún vilji*ekki fara að alþjóðalögum. Hún vill sækja mál sitt af festu og eindrægni, en ætíð á þann veg, að lög og réttur ráði okkar gerðum. Enda er það svo, að hvenær sem við tækjum upp aðra með- ferð á okkar málum, ég vil segja, hvort sem þau eru þýð- ingarlítil eða þýðingarmikil, en hvað þá í svo þýðingarmiklu máli sem þessu, ef við ætlum að hverfa af réttargrundvellin- um, hverfa frá alþjóðalögum, hverfa frá því að láta fremstu stofnun til túlkunar gildandi alþjóðarétti bera úrskurðarvald í stað kúgunar og vopnavalds, þá er gæfu íslands illa komið. En hún mun sannarlega endast til þess að þjóðin styðji og styrki réttlætis- og réttarhugsjónina, sem kemur fram í þvi sam- komulagi, sem hér er lagt til, að gert verði. — Kongóstjórn Framh af bls. 6. eru 33 örmur skip væntanleg þangað. Ennfremur sagði Dayal, að starfsmenn SÞ ynnu nú að því að semja um brottflutning þeirra hvítra manna, er vilja yfirgefa Kivu-héraðið, en um það bil 300 hvítir menn munu vera þar í mestu vandræðum. Meðan Dayal er í New York annast störf hans súdanskur maður (Mekki Abbas). Dayal sagði fréttamönnum, viðvíkj- andi kröfur Kasavubus um brottrekstur hans frá Kongó, að hann mundi gegna starfi sínu meðan Hammarskjöld ósk- aði þess. í dag var von á 600 her- mönnum frá Túnis, er bætast liðsafla SÞ í Kongó, og gert er ráð fyrir, að fyrsti flokkurinn af 3000 manna indversku liði komi 12. marz Tékknesku kuldaskórnir svörtu irteð rennilás: Karlmanna- Drengja- Barna- Karlmannaskó- hlífar. ’Ödýrir skór í bomsur fyrir kven fólk og karlmenn. Póstsendum. SKÖVERZLUN VétuAS /Jrufoassonax Laugav. 17. — Framnesv. 2. \ \ \ \ \ \ \ \ \ \ \ \ \ \ 1 \ \ \ \ \ \ \ \ \ - Úr ýmsum áttum Framh. af bls. 12. þær að því að styrkja brjóst og þindarvöðvana, prófraun- in á það, hvort þjálfuninni sé lokið að þessu leyti, er sú sem ein myndin hér á síð- unni sýnir. Það skal tekið fram, að söngkennarinn er meira en í meðallagi þung- ur, og stúlkan skal bera hann á bringsmölum sér með bros á vör, án áreynslu merkja — annars hefur hún ekki staðizt prófið! — Býsna harðneskjulegar að- ferðir, finnst ýmsum, — en árangurinn kvað vera góð- ur, sem fyrr segir. RöLft Haukur Morthens j SKEMMTIR ásamt hljómsveit Arna elfar. ) ★— \ Matur framreiddur frá ki. 7. \ Borðapantanir í sima 15327. \ Dansað til kL 1 1 BÍLASALINN VIÐ VITATORG Sími 12-500 á Ut í hvem kima Arnold Rose heldur söng skóla sinn í Holland Park Road í Lundúnum, — og það hefur verið sagt um hann, að hann vaki yfir nemendum sínum eins og góður garðyrkjumaður yfir gróðurhúsinu sínu. Sá tími er nú liðinn, segir hann, er merm gerðu sig ánægða með, að söngvarinn léti hátalarann flytja lag- legu, litlu röddina sína út um salinn. Nú skal hann syngja, án hátalara, og þó geta látið röddina berast út í hvern kima hinna stærstu salarkynna. En tdl þess þarf að hafa alla vöðva í góðu lagi — og því legg ég svo mikla áherzlu á hina „lík- amlegu“ þjálfun, segir þessi sérstæði söngkennari. Hjartanlega þakka ég börnum mínum og tengdabörnum, sem færðu mér stórar gjafir og heimsóttu mig á sjötugs afmæli mínu 4. marz sl. Einnig þakka ég öllum vinum mínum, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og* skeytum. Guð blessi ykkur öll. Ragnheiður Jónasdóttir, Vesturgötu 96, Akranesi. Öllum vinum og vandamönnum sem sendu mér vinar- kveðjur, heillaóskir og gjafir á 75 ára afmæli mínu, færi ég mínar innilegustu þakkir og óska þeim öllum blessun- ar guðs í framtíðinni. Kristján Brandsson, Bárðarbúð Hjartanlega þakka ég öllum þeim er glöddu mig á 70 ára afmæli mínu 2. febrúar sl. með heimsóknum, gjöfum, skeytum og hlýhug öllum og gjörðu mér daginn ógleymanlegan. En sérstaklega þakka ég Ragnheiði Jóns- dóttur og sonum hennar fyrir þeirra miklu gjafir mér veittar fyrr og síðar. Guð launi ykkur öllum og blessi allar stundir. Helga S. Geirsdóttir, Keflavík LokaS í dag vegna jarðarfarar BJÖRGVIN SCHRAM UMBOÐS-OG HE/LDVERZLUN Moskwitch ’55 í góðu standi fæst ódýr gegn staðgreiðslu. Fargo vörúbill ’47, tvískipt drif í mjög góðu standi, ódýir. Opið frá kl. 9—7. Einnig í hádeginu. BÍLASALINN VIÐ VITATORG Sími 12-500 Félagslíf Knattspyrnufélagið Valur Knattspymudeild Meistara, og fyrsti flokkur, — fjölmennið á æfinguna í kvöld kL 7.40. — Kaffifundur á eftir. Stjómin. Jósepsdalur Farið verður í Dalinn um helgina. Skiðakennsla fyrir byrj- endur, brekkan upplýst. Fjöl- mennið í Dalinn. Allir velkomn- ir. Ferðir frá B.S.R. kl. 2 og 6 á laugardag. Stjórnin. Skíðaferðir um helgina Laugardag kl. 2 og 6. Sunnudagsmorgun kl. 9 og kl. 1 e. h.. Afgreiðsla hjá B.S.R. Skíðamenn og konur athugið að Stefán Kristjánsson íþrótta- kennari æfir um helgina við KR skálann í Skálafelli. Tímatökur laugardag kl. 4 og sunnudag kl. 11. Áríðandi að allir keppendur mæti. Skíðafélögin í Reykjavík. BEZT AÐ AUGI.VSA I MORGUNBLAÐINU Maðurinn minn EINAB SIGURJÓNSSON, vélstjóri lézt af slysförum 7. þ.m. Magnca Hallmundsdóttir UNA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Stykkishólmi andaðist að Hrafnistu miðvikudaginn 8. marz. Aðstandendur Innilega þakka ég hinum mörgu vinum nær og fjær, sýnda samúð og hlýju við andlát og útför mannsins míns ÞÓRARINS GRlMSSONAR VÍKINGS Guð blessi ykkur öll. Ástríður Eggertsdóttir Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við langvarandi sjúkdóm, andlát og jarðarför ÞÓRUNNAR JÖRGENSEN Ottó Jörgensen Freyja og Gunnar Jörgensen, börnin og aðrir vandamenn Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlá,t og útför systur okkar og frænku GUÐRUNAR magnUsdóttur Eyjum Haraldur Magnússon, Hans Magnússon Ólafía Ólafsdóttir Magnús Sæmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.