Morgunblaðið - 11.03.1961, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.03.1961, Qupperneq 1
20 sfður með Barnalesbök 18. árgangur 58. tbl. — Laugardagur 11. marz 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsins Saksóknari ríkisins og nýskipun sakadóm- araembættisins ÚTBÝTT var í neðri deild Alþingis í gær frumvarpi til laga um breytingu á 1. 27/ 1951, um meðferð opinberra mála. — Aðalatriði frv. er það, að gert er ráð fyrir, að skipaður verði saksóknari ríkisins, er fari með ákæru- vald, og að ný skipan verði gerð á embætti sakadómar- ans í Reykjavík. — Verður sakadómur skipaður þremur til fimm sakadómurum, eft- ír ákvörðun dómsmálaráð- herra, og verður einn þeirra yfirsakadómari. Saksóknari skal fullnægja lagaskilyrðum til skipunar í dómaraembætti í Hæstarétti og hafa embættisskrifstofu í Rcykjavík. — Um verksvið saksóknara segir svo í 7. gr. frv.: Saksóknari skal hafa gætur á afbrotum, sem fram in eru. Hann kveður á um rannsókn opinberra mála og hefur yfirstjórn hennar og eftirlit. Getur hann gefið lögreglumönnum fyrirmæli og leiðbeiningar um fram- kvæmd rannsóknar og verið við hana staddur eða látið fulltrúa sinn vera það. Hann höfðar opinber mál, sbr. þó 112.—114. gr. (I. 27/1951), tekur ákvörðun um áfrýjun þeirra og gegnir að öðru leyti þeim störfum, sem hon- um eru falin í lögum. Blökkumaður verður sendi- herra USA í Noregi WASHINGTON, 9. marz. Skipaður hefur verið nýr sendiherra Bandaríkjanna Noregi — Clifton R. Whart- J on, — fyrsti blökkumað- ur, sem hlýtur ambassadors tign innan bandarísku utan ríkisþj ónustunnar. Wharton hefur starfað í I utanríkisþjónustunni síðan ár j ið 1925, í ýmsum stórborgum I heims, og var raeðismaður ' Bandaríkjanna í Rúmeníu frá 7 1958. — W'harton mun halda )til Noregs 31. marz nk. í Allýtarlegar athugasemdir fylgja frumvarpinu, og fara þær hér á eftir: Með frv. þessu er lagt til, að skipaður verði saksóknari ríkis- ins, er fari með ákæruvald, og að ný skipan verði gerði á emb ætti sakadómarans í Reykjavík. Samkvæmt gildandi lögum nr. 27/1951 um meðferð opin- berra mála fer dómsmálaráð- herra nú með ákæruvaldið. Á Norðurlöndum og víða annars staðar hefur ákæruvaldið verið Framhald á bls. 19. Loksins friðarvon í Laos \ Phouffii Nosavan og Souvanna Phouma ; iætla að vinna sameiginlega að hlutleysi j og friðun landsins Vientiane, Laos, 10. marz. — (Reuter/NTB) — FULLTRÚAR hægri stjórn- arinnar í Laos og hlutleysis- stjórnar Souvanna Phouma hafa komizt að samkomulagi um leiðir til friðar í Laos, að því er tilkynnt var í Vientiane í dag. Þriggja manna nefnd undir forsæti Phoumi Nosavans, sem fór til fundar við Souvanna Phouma í Pnompenh í Kam- bodia, kom aftur til Vientiane í dag. Sagði Nosavan, að um- ræður þeirra hefðu verið árang■■ ursríkar. í tilkynningu stjórnar Boun Oums segir, að Phoumi Nosavan sem er varaforsætisáðhea stjómarinnar, sé þeirrar skoð- una, að Souvanna Phouma sé eini stjórnmálamaðurinn í Laos sem geti verið tengiliður milli hægri manna og Neo Lao, stjórn Bourguiba til Washington WASHINGTON, 10. marz. — Tilkynnt hefur verið, að Habib Bourguiba, forseti Túnis komi í opinbera heimsókn til Banda- ríkjanna í maí. Hann verður gestur Kennedys forseta. Bourguiba kemur væntanlega 3. maí til Washington, dvelzt þar í þrjá daga, en mun að því loknu ferðast milli helztu borga í Bandarík j unum. máladeildar Pathet Lao, Sou- vanna Phouma hefur lýst yfir því, að hann muni gera allt, sem í hans valdi standi til þess að koma á sáttum í Laos. • Kemur stórveldunum á óvart í sameiginlegri yfirlýsingu, sem gefin var út eftir viðræðurn ar í Phompenh sagði, að báðir aðilar væru sámmála um, að samkomulag um algert hlutleysi landsins væri grundvöllur frið- ar.. Báðir aðilar fordæma íhlut- un erlendis frá og vilja ekki að konungurinn og þjóðirn, greiði fyrir blóðuga baráttu um áhrif, sem hún sjálf á engan þátt í. Souvanna Phouma hefur af- þakkað boð um að koma aftur til Vientiane. Hann telur sig hafa betri aðstöðu til að vinna að frið í Laos, ef hann dvelst áfram í Pnompenh. Talsmenn utanríkismálaráðu- neyta Bretlands og Bandaríkj- anna hafa látið í ljós ánægju sína yfir samkomulagi þeirra Nosavans og Phouma um, að vinna sameiginlega að hlutleysi landsins. Þeir, sem með stjórnmálum fylgjast í London telja, að sam- komulagið hafi komið stórveld- unum mjög á óvart, þar sem stjórnir þeirra hafi yfirleitt ver ið þeirra skoðunar að Nosavan og Phouma greindi svo mjög á, að samvinna þeirra í milli væri óhugsandi. • Barist í Laos Bardagar hafa verið síðústu dagana í Laos. Hafa a. m. k. sjötíu hermenn stjórnarinnar særzt eða falið og margir frá Pathet Lao. Hermenn Pathet Lao, sem halda suður eftir veg- inum milli Luang Prabang og Vientiane, komu í dag að bæn- um Muong Kassay, sem stjórn- arherinn tók 22. janúar sl. Meðfylgjandi mynd var tekin, þegar barnsræning- inn Reymond Rolland og danska sýningarstúlkan Lise Bodin voru færð í handjárnum á lögreglustöð ina í París. Fulltrúi Hammar- skjölds til Brussel New York, 10. marz (NTB-Reuter) HAMMARSKJÖLD, framkv. stj. Sameinuðu þjóðanna hefur látið í ljós, að hann efist um að Belg- ir hugsi sér að fara eftir síð- ustu samþykktum Öryggisráðs- ins varðandi Kongómálið. Hef- ur Hammarskjöld ákveðið að senda fulltrúa sinn, Taieb Sabhani frá Túnis, til Belgíu til viðræðna við stjórn landsins um málið. Mun Sahani væntanlega fara til Brússel í næstu viku. Til bjargar Tíbef NÝJA DELHI, 9. marz. (Reuter) — Dalai Lama sendi í dag al)S- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna eindregin tilmæli sín um að sam tökin aðhafizt eitthvað til bjarg ar löndum hans í Tíbet, sem sí fellt búi við áþján og hörmungar af hendi Kínverja. Nú eru tvö ár liðin síðan Dalai Lama varð að flýja frá Tíbet til Indlands Fækka ekki her- mönnum í V-Berlín Washington, 10. marz (NTB-Reuter) STJÓRN Bandaríkjanna hefur tilkynnt að hún hyggist ekki fækka hermönnum sínum i Vestur-Berlín. Blaðafulltrúi utanríkisráðuneytisins, Lincoln White, var í dag beðinn að gera nánari grein fyrir ummælum/ sem Dean Rusk, utanrikisráð- hera viðhafði á fundi með frétta mönnum í gær. White svaraði að Bandaríkja stjóm hefði ekki gert neinar áætlanir um að fækka hermönn- um sínum í V-Berlín og hefði það átt að vera ljóst af ummæl- um Rusks í gær. White gaf enn- fremur fyrstu yfirlýsingu um að Bandaríkjamenn telji sig ekki lengur bundna af tillögum þeim sem þeir báru fram á utanríkis- ráðherra fundinum í Genf, 1959, um fækkun hermanna Vestur- veldanna í V-Berlín. Þáverandi utanríkisráðherra Christian Herter hafði þá sagt, að Vesturveldin skyldu taka til athugunar hvort þeir gætu fækkað í herjum sínum, svo framarlega sem þróun beindist í samkomulagsátt. En þar sem Sovétríkin hafa vísað á bug til- lögum Vesturveldanna, sagði White, erum við þeirrar skoð- unar, að við séum ekki lengur bundnir þessum tillögum í nýj- um viðræðum við Sovétríkin um Berlínarvandamálið. Harriman til Teheran TALSMAÐUR bandaríska sendi ráðsins í Róm skýrði svo frá i dag, að Averill Harriman muni fara til Teheran á sunnudag tU fundar við Reza Pahlevi, keis- ara. Þar mun hann dveljast I tvo daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.