Morgunblaðið - 11.03.1961, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.03.1961, Qupperneq 3
Laugardagur 11. marz 1961 MORGVNBLAÐIÐ 3 Fyrsta höggið ræður úrslitum S Á sem kemur fyrsta högginu á andstæðinginn verður heimsmeistari. Þannig eru horfurnar um úrslit heimsmeistara- keppninnar í þungavigt í hnefaleikum, sem háð verður milli Svíans Inge- mar Johansson og Banda- ríkjamannsins Floyd Patt- erson aðfaranótt næst- komandi þriðjudags í Convention Hall, Miami í Florida, eftir því sem íþróttafréttamenn Ekstra- blaðsins í Kaupmanna- höfn segja. FYBSTA HÖGGIÐ Fréttamennirnir eyddu einni kvöldstund í að skoða ítarlega kvikmyndir af tveim fyrri keppnum sem þeir Ingo og Floyd hafa háð um heims- meistaratitilinn, og komust að raun um það að sá, sem fer bezt af stað, muni sigra Segja þeir að myndirnar sýni eftir- farandi: 1. Fyrsta högg Ingemars gerði út um heimsmeistarakeppn- ina 1959. 2. Fyrsta högg Floyds gerði út um heimsmeistarakeppnina 1960. En myndirnar sýna einnig verulegan mun á þessum tveim hnefaleikameisturum, og virðist sá munur Floyd Patterson í hag í þessari þriðju — og sennilega síðustu — keppni þeirra um heims- meistaranafnbótina. EKKI INGO í VIL — Þegar hægri hönd mín hittir í mark, mega þeir telja upp að 1000 yfir vesalings Floyd, sagði Ingo áður en síð- ari keppni þeirra hófst. Eins og efalaust flestir í fyrsta sinn sem Floyd var sleginn niður í keppninni 1959 má segja aS sigur Ingos hafi verið tryggður. I fyrsta sinn sem Ingo var var sigur Floyds tryggður. muna, fór þetta nú öfugt, og verður að líta á orð Svíans sem markleysu. Munurinn á Floyd og Ingo liggur að vísu í höggfestu, en sannarlega ekki Svíanum í vil. Hægri hönd Ingemars hefur vakið ógn um víða veröld. En sann- leikurinn er sá að Floyd slær fastar en Svíinn, bæði með vinstri hendi og þeirri hægri. Aillir, sem einhvern skilning hafa á hnefaleikum,, hljóta að sjá þetta við samanburð á kvikmyndunum tveim. FLOYD FYLGIR EFTIR Fyrsta högg Ingós í keppn- inni 1959 gerði að vísu út af við Floyd. Það fékk mjög mik ið á hann. Hann var sleginn niður sex sinnum, en stóð upp aftur. Sjöunda höggið, sem felldi Floyd, var óhreint, og ekki leikur vafi á því að hann gat staðið upp ef það hefði komið að gagni. Allt öðru máli gegndi þeg- ar Floyd sló Ingemar niður í fyrra. Fyrsta höggið gerði al- gjörlega út um leikinn. Svíinn lá. Hann stóð upp þegar talið hafði verið upp að níu, en var mjög valtur á fótunum. Næsta högg. Floyds batt enda á leik- inn. Niðurstaðan hlýtur að vera sú að Floyd slær fastar en Ingo. Þar að auki kann hann að fylgja strax eftir áhrifum fyrsta höggsins. Það lýsir ó- neitanlega veikfjika Svíans að hann gat ekki lokið fyrstu sleginn niður í keppninni 1960 keppninni fyrr en hann sló Floyd niður í sjöunda sinn. HVOR VINNUR? Hvor vinnur svo þessa spenn andi keppni að þessu sinni? ; Ekki að ástæðulausu telja ^ flestir hnefaleikasérfræðingar Floyd miklu sigurvænlegri og telja hann hafa sýnt greini- ( lega yfirburði sína í keppn- inni í fyrra. En í Svíþjóð eru ; inargir, sem trúa algerlega á i sigur Ingos. Ef til vill byggist bjartsýni þeirra á þeirri stað- , reyhd að í þungavigtarkeppni 1 getur allt skeð. Það er athyglisvert að fylgjast með fréttunum, sem berast frá æfinga- stöðvum hnefaleikaranna. i Báðir eru þeir varkárir. Fyrir fyrstu keppnina sagðist Floyd Patterson I ekki álíta Svíann hættu- legann andstæðing, og Floyd beið ósigur. Fyrir næstu keppni var Ingo óspar á gortið og var sleg inn í rot. í þetta sinn eru bæði Floyd og Ingo bjartsýnir, en nú virða þeir báðir andstæðinginn. Hvorugur mun verða of sigurviss. Hvorugur mun vanmeta keppinautinn. barnaheimili Hafnarfjarðar Glaumbæ Hafnarfjarðarbíói. Hafnfirðingar. Styrkið barna heimilið í Glaumbæ með því að kaupa merki dagsins, og tryggið með því dvöl a.m.k. 30 hafn- firzkra barna á sumri komanda. Fjáröflunardagui barnuheiMÍlis- sjóðs í Gluumbæ ^BARNAHEIMILISSJÓÐUR Hafn erfjarðar hefur fjáröflun fyrir barnaheimilið í Glaumbæ við óttarsstaði á morgun sunnudag inn 12. marz, en það er afmælis dagur Theodórs heitins Mathie- Fyrri vígslan 25. maí STOKKHÓLMI, 9. marz NTB Hin borgaralega hjónavígsla þeirra Birgittu Svíaprinsessu og Georges prins af Hohenzoll ern hefur verið ákveðin 25. maí n.k. Kirkjuleg, rómversk- kaþólsk vígsla mun fara fram nokkrum dögum siðar í Sig- maringen, heimahögum brúð gumans. sens læknis. Alls hafa nokkuð á annað hundrað börn dvalið í Glaumbæ undanfarin fjögur sum ur. Hefur heimilið bætt úr mjög brýnni þörf. Stjórn þess hafa áv.allt borizt miklu fleiri beiðn ir um sumardvöl. barna heldur en hægt hefur verið að sinna. Það eru barnaverndar- og líknar félögin í Hafnarfirði, sem hafa sameinazt um rekstur þessa heim ilis. Ennfremur háfa Hafnarfjarð arbær og ríkissjóður styrkt heim ilið með myndarlegum fjárfram lögum. Þá hafa margir einstakl ingar stutt það með ráðum og dáð. Það kostar mikið fé að reka slíkt heimili sem Glaumbæ, og á sunnudaginn kemur verður merkjasala í bænum til fjáröflun ar fyrir Glaumbæ. Verða merkin afhent í skátaskálanum kl. 10— 12 á sunnudagsmorguninn. Góð sölulaun verða veitt. Þá verður skemmtun fyrir börn kl. 13 í STAK8TEII\IAR „Sorglegur atburður“ Tíminn kallar það í gær „sorg legan atburð“ að Alþingi skull hafa samþykkt tillögu ríkisstjórn arinnar um lausn fiskveiðideil- unnar við Breta. Allir fslending- ar vita þó, að ríkisstjórn undir íorystu Framsóknarflokksinn, vinstri stjórnin, gerði árið 1958 brezku stjórninni tilboð til sátta í fiskveiðideilunni, sem var ís- lendingum stórum óhagstæðara en það samkomulag, sem nú hef ur náðst. Með tilboði Hermanns Jónassonar til Breta var gert ráð fyrir því að Bretar fengju >t fiska milli 12 og 6 mílnanna næstu 3 ár kringum allt landið. Þar var ekkert svæði undanskil- ið. Þar var heldur ekki gert rá8 fyrir einni einustu grunnlínu- breytingu. Fyrir þetta vildi Hermana Jónasson kaupa viðurkenninga Breta á 12 mílunum fyrir rúm- um 2 árum. Nú, þegar samkomulag hefur orðið, um mikla útfærslu gruna- lína og stórum takmarkaðri fisk- veiði Breta milli 6 og 12 mila- anna næstu 3 árin, en tilboð Her- manns Jónassonar gerði ráð fyr- ir, þá kaliar Tíminn og Frana- sóknarflokkurinn slíkt samkomu lag við Breta „sorglegan atburð“! Það er auðsætt, að Framsóka- arflokkurinn er hættur að gera minnstu tilraun til þess að vera sjálfum sér samkvæmur. Hann hefur gengið í björg með komm únistum, sem dilla honum þar og æra með hinum austræna seið. Sjómennirnir dóm- bærastir Alþýðublaðið birtir í gær for- ystugrein um laiusn fiskveiði- deilunnar og er í niðurlagi henn ar komizt að orði á þessa leið: „Samtök sjómanna og útvegs- manna og ýmis önnur samtök fagna þessari lausn fiskveiði- deiiunnar og telja hina nýju út- færslu, er grunnlínubreytingam ar hafa í för með sér mjög mik- ilvæga fyrir íslenzkar fiskveiðar. Engir eru dómbærari á þessi mál en sjómenn og útvegsmenn. Á- nægja þeirra með lausn málsins sýnir, að ríkisstjórnin hefur far- sællega ieyst fiskveiðideiluna við IBreta og tryggt sigur þjóðar- innar í miklu hagsmunamáli fs- lendinga“. Alþjóðadómstóllinn og íslendingar f ræðu, sem Bjarni Benedikts- son, dómsmálaráðherra, flutti í umræðunum um Iausn fiskveiði deilunnar sl. fimmtudag, vakti hann m.a. athygli á þvi, að ís- Iendingar hefðu árið 1952 byggt ráðstafanrir sínar til verndar fiski miðunum á grundvelli úrskurðar alþjóðadómstólsins í Haag í fiski veiðideilu Norðmanna og Breta. Ádeilur stjórnarandstæðinga hér heima nú, og tortryggni gagn- vart alþjóðadómstólnum væru því hinar fráleitustu. Komst dómsmálaráðherra síðarr að orði á þessa leið um þetta efni: „Það var hann, þessi alþjóða- dómstóll, sem nú er sagt að ætíð sé á eftir, það var hann sem settj fram í skýru og stuttu máli þær helztu röksemdir sem við höfum fram á þennan dag byggt á, ekki aðeins það sem við gerðum 1952, heldur einnig réttarlega túlkun á því, að aðgerðirnar 1958 hafi haft við lög að styðjast. Það er þess vegnra algjört öfugmæli og lýsir fullkominni vanþekkingu á sögu þessa máls, og alls sem f því hefur gerzt, þegar sagt er að alþjóðadómstóllinn sé þarna át eftir þróuninni, 20—30 árum, þeg ar það liggur fyrir að í því eina máli þessarar tegundar, sem lagt hefur vepið undir hann, vann hann brautryðjandastarf og okk- ur fslendingum alveg sérstaklega ómetanlegt brautryðjendastarf“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.