Morgunblaðið - 11.03.1961, Page 20

Morgunblaðið - 11.03.1961, Page 20
í kvikmyndaskcla Sjá blaðsiðu 8. ©íppmMaMfo 58. tbl. — Laugardagur 11. marz 1961 íþróttir eru á bls. 18. Isfirðingar tina pen- inga úr skolpræsinu ísafiröi, 10. marz. NÝR atvinnuvegúr er kom- inn til sögunnar hér á ísa- firði. Enn sem komið er, er hann einungis stundaður í hjáverkum sem aukavinna, en engu að síður hefur hann reynzt ýmsum furðu ábatasamur. Hann er fólg- inn í því að ganga um fjör- una neðan við skolpræsi og tína saman peningaseðlarifr- ildi, sem þar finnast nú í hrönnum. Ef þau eru nógu heilleg, er farið með þau í bankann og þeim skipt fyrir nýja seðla. Á mánudagskvöldið voru börn að gramsa og róta í fjör- Lislkynning Mbl. unni fyrir neðan Tanga. Fundu þau þá . hundraðkrónaseðil í tvennu lagi. Þetta fréttist um bæinn, og á þriðjudag fór eitt- hvað af fullorðnu fólki að snuðra í fjörunni. Fann það þá talsvert magn af seðlum, allt frá 5 krónum upp í 500 krón- ur. Enginn var alveg heill og margir í tætlum, en nokkrir svo óskaddaðir, að hægt var að skipta þeim í banka. Fram á þennan dag hefur fólk svo sí- fellt verið að finna meira og meira. Allir eru seðlarnir af eldri gerðinni, en vitaskuld jafn gjaldgengir fyrir það. — Fara sumir með feng sinn á lögreglu- stöðina, en aðrir í banka og fá þar nýja og hreina seðla fyrir. Til þessa hafa menn hirt þarna milli 5 og 10 þúsundir króna, en líklegt má telja, að ekki hafi minna magn farið for görðum á flæðum. Seðlarnir virðast enn halda áfram að ber ast út úr ræsinu. Sumir eru rifnir í smáagnir, aðrir þrí- eða tvírifnir, og enn aðrir lítið eitt sneiddir á jöðrúm. Er engu lík- ara en einhver hafi rifið seðl- ana af ásettu ráði og skolað þeim niður um salemi. Málið er nú í rannsókn hjá lögregl- unni. — Guðjón. „Vatnajökull" lendir í árekstri í Tempsá M S. Vatnajökull lenti í árekstri við rússneskt skip á Tempsá (Thames) í fyrra- kvöld. — Enginn skipverja slasaðist, en nokkurt tjón mun hafa orðið á skipinu. Franken framseldu með skilyrðum Sólveig Eggerz Pétursdóttir LISTKYNNING Mbl. hóf í gær sýningu á vatnslitamyndum eftir Sólveigu Eggerz Pétursdóttur. Eru það 11 málverk, sem öll eru „interiör“ myndir frá forseta- bústaðnum á Bessastöðum. Hafa þau verið máluð á síðustu mán- uðum. Málverkin eru til sölu í heild en ekki einstakar myndir. Sólveig Eggertz Pétuwidóttir er ung listakona, sem stundað heOur náim í málaralist hér heima og í Englandi. Hún hefur haldið eina sýningu í Bogasal þjóðminjasafnsins, og seldi þá mörg verka sinna. Listkynning Mbl. hefur einnig sýnt málverk eftir hana einu sinni áður. Hæstu vinningar Happdrættis H.I. í GÆR var dregið í 3. flokki happdrættisins. Vinningar voru 1000, samtals 1,840,000 kr. Hæstu vinningar: 200,000 kr. nr. 52051. 100,000 kr. nr. 7896. 10,000 kr. nr. 10998 15810 17633 17915 20339 20346 24301 28783 29150 35867 36884 38296 43567 44011 49468 50096 51668 55614 56079 — Aukavinningar 10,000 kx. nr. 52050 og 52052. (Birt án ábyrgðar) DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ kvað upp þann úrskurð í gær, að rétt þætti að verða við beiðni þýzkra yfirvalda um framsal á Þjóðverjanum Frank Franken og tilkynnti utanríkis. ráðuneytinu það. Utanrikisráðu- neytið mun því væntanlega ganga frá þessu máli við full- trúa v-þýzku stjórnarinnar en þangað til er Frank Franken á- fram í haldi. Blaðinu barst í gær eftirfar- andi fréttatilkynning um þetta frá dómsmálaráðuneytinu: „Dömsmálaráðuneytið heir í dag tilkynnt utanríkisráðuneyt- inu að rétt þyki, með nánar til- greindum skilyrðum að verða við framkominni framsalsbeiðni þýzkra yfirvalda varðandi þýzk- l borgara, Gúater Hermann Frank Franken, vegna refsi- verðra brota gegn þýzkum lög- um. Hefir við þessa ákvörðun verið höfð hliðsjón af 6. grein laga nr. 59 1936, u«n eftirlit með útlendingum, þar sem segir að rétt sé að „meina þeim mönn- Sœmileg fœrÖ víðast í GÆR var sæmileg færð yf- ir Hellisheiði og eins fyrir Hvalfjörð. Nokkur snjór var þá á þessum slóðum, en leið- irnar færar flestum bílum. Þá var einnig fært upp í Borgarfjörð, en Holtavörðu- heiði ófær. Stóð til, að jarð- ýta ryddi slóð norður um heiði fyrir áætlunarbíla og aðrar stórar bifreiðar, semi væru á norðurleið, en ekki gert ráð fyrir, að ekið yrði suður yfir. um útlendum að stíga hér á land, setjast hér að eða dvelj- ast hér, sem: — Mafa orðið sek- ir, þar sem þeir hafa áður dval. izt, um verk sem svívirðileg eru að almenningsáliti, eða lögregla þar lýsir eftir þeim vegna brota á landslögum þar.“ Samkomu- laginu fagnað Á FUNDI í Útvegsmannafélagi Reykjavíkur í gærkvöldi var eftirfarandi tillaga samþykkt með öllum atkvæðum fundar- manna: „Fundur í títvegsmannafélagi Reykjavíkur fagnar samkomu- lagi því, sem nú hefur náðst í fiskveiðideilunni við Breta. Eitt þýðingarmesta atriðið í samkomulaginu er, að Bretar hafa skuldbundið sig til þess að hlíta úrskurði alþjóðadómstóls um ágreining, sem kann að verða um fiskveiðilögsögu ís- lands utan 12 sjómilna mark- anna. Þannig er bægt frá þeirri hættu, að frekari útfærsla fisk- veiðilögsögunnar á íslenzka landgrunninu, verði mætt með nýju ofbeldi af hálfu Breta, og réttur Islands tryggður í sam- ræmi við alþjóðalög". 14 árekstrar Á TÍMANUM frá kl. 6 í gærmorg un til kl. 9 í gærkvöldi urðu 14 árekstrar, smáir og stórir, í bænum. Lítið var um slys á mönnum, einn maður meiddist þó lítils háttar í árekstri, sem varð á horni Stýrimannastígs og Rán- argötu. Um daginn hafði skipið verið í Gravesend og skipað þar upp frystum fiski. Undir kvöld var lagt af stað niður ána í svarta- þoku, áleiðis til Amsterdam, og var hafnsögumaður um borð. Þegar skipið var komið 17 Vz mílu niður fyrir Gravesend, kl. hálfátta, varð árekstur við rúss. neska skipið „Aleksandr Tert- sjín“. Rakst stefni rússneska skipsins utan í Vatnajökul bak- borðsmegin fyrir framan brú, á móts við fjórðu lest. Skipið skemmdist talsvert, og kom í það dæld fyrir ofan sjólínu, frá fenderlista að borðstokki. Ætlunin mun í fyrstu hafa verið að snúa við til Grav- esend, þegar þokunni létti. Lagzt var við akkeri og beðið birtu, en um morguninn höfðu skipverjar gert bráðabirgða. viðgerð á skemmdunum. Fékkst leyfi Lloyds til að halda ferð- inni áfram til Hollands. Var lóss inum skilað í land í Margate og síðan haldið áfram kl. 10.20 í gærmorgun til Amsterdam, þar sem gert verður við skemmd- imar. Átti skipið að koma þangað á miðnætti í nótt. í Hollandi mun skipið losa fisk og taka vörur til baka. — Skipstjóri á Vatnajökli er Bogi Ólafsson. Milljónasíi leikhús- gesturinn HVER verður milljónasti leik húsgesturinn í Þjóðleikhús- inu? Næstu daga verður þessi happamíði seldur í aðgöngu-1 miðasölu Þjóðleikhússins og sá sem hlýtur hann verður( verðlaunaður. Verðlaunin eru 2 aðgöngu- miðar, er gilda einu sinni á livert leikrit, sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu á árinu 1961. Auk þess verða veitt tvenn aukaverðlaun. Þeir, sem hljóta næstu miða fyrir neðan eða| númer 999.999 og næsta núm- er fyrir ofan eða númer 1..000.001 hljóta aukaverðlaunl in og eru það 2 aðgöngumiðarjft á tvær sýningar í Þjóðleito-^ húsinu á þessu leikári. Um þessar mundir eru f jór- ar leiksýningar í gangi í Þjóð^ leikhúsinu. „Engill horfðu heim“, sem hefur verið sýnt 31 sinni og verður sýnt í síð asta sinn n.k. miðvikudag. Þá er það „Þjónar drottins“ „Tvö á saltinu“ og lok „Karde- mommubærinn‘“ sem virðist ætla að ganga endalaust. Leik urinn hefur nú verið sýndur 63 sinnum og enn virðist ekk- ert lát á aðsókninni. Verð- launahafar eiga þess kost að hljóta miða á einhverja afí þessum sýningum, eða á ein-7 hverja af þeim sýningum, semj færðar verða upp á leiksviðil Þjóðleikhússins á þessu ári. | Týndi skyrtu, skóm og úri en náði engu þýíi Akranesi, 10. marz. BROTIZT var inn í húsið Skóla braut 10 um miðja sl. nótt, með því að mölvuð var smárúða uppi á lofti og smogið þar inn. Þegar rúðubrjótur var inn kominn, fór hann úr skónum, áður en lagt skyldi í leiðangur um húsið. Hann mun von bráðar hafa upp- götvað, að han» hafði farið húsavillt, því að Alþýðubrauð- gerðin, Skólabraut 12, geymdi herfangið, sem hann sóttist eft- ir. Skauzt hann í skyndingu út gluggann aftur og skildi skóna eftir í írafárinu. Hann hafði sið an engar vöflur á, snaraðist yfir að bakaríinu, sem er áfast Skóla braut 10, mölvaði þar rúðu og tróðst í gegnum gatið. Eitthvað mun hann hafa skorizt við þetta því að þegar inn kom, fór hann úr skyrtunni og hugaði að sár- um sínum. — Mun honum hafa fundizt þau ærin, því að nú þótti honum svo mikil nauðsyn á að ná læknisfundi, að hann þaut út aftur sömu leið og hljóp til læknis. í ofboðinu gleymdi hann skyrtunni og missti af sér úrið fyrir utan. — Meiðslin reylidust ekki alvarleg. Þetta er 16 ára piltur úr Reykjavík, sem er hér á bát, og mun hann hafa verið mikið ölvaður. — Oddur V ARÐARKAFFI í Valhöll í dag kl. 3-5 s.d.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.