Morgunblaðið - 29.03.1961, Síða 2

Morgunblaðið - 29.03.1961, Síða 2
2 < MORGVNBLAÐIÐ JL Miðvik'udagur 29. marz 1961 Hagnýting skelfisks Tillaga samþykkf á Alþingi ALÞINGI samþykkti í fyrra- dag með samhljóða atkvæð- um þingsályktunartillögu þeirra Sigurðar Bjarnasonar, Jónasar G. Rafnars og Guð- laugs Gíslasonar um hagnýt- ingu skelfisks. Hafði fjárveit- inganefnd fengið málið til meðferðar og leitað um það álits Fiskifélags íslands og fiskideildar Atvinnudeildar Aðalf. Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis AÐAL.FUNDUR Sparisjóðs R- víkur og nágrennis var haldinn i Þjóðleikhússkjallaranum s. 1. laugardag. Af hálfu ábyrgðar- manna sjóðsins voru kosnir í stjórn Einar Erlendsson húsa- meistari, Sigmundur Halldórsson arkitekt og Ásgeir Bjamason skrifstofustjóri. Bæjarstjórn R- víkur mun í næsta mánuði kjósa tvo menn til viðbótar í stjórn sjóðsins og tvo endurskoðendur. Hagur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis stendur með mikl- um blóma. Varasjóður hans nem ur nú 7 milljónum króna og spari sjóðsinnstæður voru um sl. ára- mót 108 milljónir króna. Helgitónleikar í háskólanum Á SKÍRDAG, fimmtudag 30. marz, kl. 5 stundvíslega verður tónlistarkyning í hátíðasal há- skólans. Flutt verður af hljóm- plötutækjum skólans ítölsk, rússnesk og þýsk helgitónlist, allt fró frumkristni, m. a. elzta söng- gerð, sem til er við Faðirvorið. Flutt verða og dæmi um Gregors- söng og miðalda tónlist og enn- fremur stuttir þættir úr verkum eftir Palestrína, Schiitz eitt mesta þýzkt tónskáld fyrir daga Bachs, Buxtehude, Bach (úr hámessunni í h-moll), Archangelsky o. fl. Er hér bæði um að ræða einsöng, tvísöng, fersöng og kórsöng. Efnis skrá verður afhent við inngang- inn. Guðmundur Matthíasson tón- listarkennari flytur ingangsorð ®g skýringar á verkunum. Aðgangur er að vanda öllum heimill. háskólans. Mæltu báðir þess- ir aðilar með samþykkt til- lögunnar. Jónas G. Rafnar var fram- sögumaður fjárveitinganefndar í málinu. Lagði nefndin einróma til að tillagan yrði samþykkt. Tillagan er svohljóðandi eins og hún var samþykkt: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjómina að láta fram fara í samráði við Fiskifélag Islands og fiskideild Atvinnudeildar háskólans rannsókn á skelfisks- magni við strendur landsins. Jafnframt verði athugaðir mögu leikar á hagnýtingu skelfisks til útflutnings og atvinnuaukningar í landinu". Frá borgarlækni: Engir matareitrun- arsýklar fundust MÁNUDAGINN 20. þ.m., siðla eftirmiðdags, barst mér kvört- un um magakvilla, er sagður var Þjá f jölda manns, sem neytt hafðj matar á skemmtun í Sjálfstæðis- húsinu laugardagskvöldið 1S. þ. m. Var sjúkdómseinkennum lýst þannig, að vel gæti bent til mat- areitrunar. Var strax haft samband við lækna þá, er læknavakt höfðu aðfaranótt sunnudags og þann dag, en þeir höfðu ekki verið kallaðir til neins af gestum þeim, er í veitingahúsimi voru umrætt kvöld, og ekki hefur heldur bor- izt tilkynning frá öðrum læknuro um matareitrun, eða grun urn hana. Engar upplýsingar liggja þannig fyrir frá læknum um út- breiðslu eða einkenni veikinnar, en skv. upplýsingum stjómar fé- lags þess, er stóð fyrir umræddri skemmtun, hafa 137 manns veikzt af 177, er til hefur náðst af þeim, er þátt tóku í borðhaldinu, sem alls munu hafa verið 218. Vegna þess hve tilkynning um veikina barst seint, kom rann- sókn á sjúklingum ekki til greina. Jafnskjótt sem tilkynn. ingin barst voru tekin sýnishom af þeim matarleifum, er þá voru eftir í veitingahúsinu, en ekki náðist nema í lítinn hluta þeirr? rétta, er neytt hafði verið um kvölaið, og enga þá tegund, sem líklegust er til að valda matar- eitrun. Veizlumatur var „kalt borð“ með einum heitum rétti. Ennfremur hafa verið tekin sýn- ishom til sýklarannsókna frá mat reiðslufólki því, er starfaði í veitingahúsinu þetta kvöld. Niðurstöður rannsókna á fram an greindum sýnishornum hafa nú borizt frá Rannsóknarstofu Háskólans. Engir sýklar fundust í sýnishornunum, er skýrt gætu veikindi þau, er hér hafa verið rædd. Við rannsókn málsins hefur ekkj verið unnt að finna orsök sýkingar þeirrar, er hér mun hafa átt sér stað. Rétt þykir að benda á óheppi- lega tilhögun, er viðhöfð var við framleiðslu matarins, en hann var látinn standa á borðum í samkvæmissölum í allt að 7 klst. við hærra hitastig en geyma má viðkvæman mat við, en matar var neytt tvisvar á skemmtun- inni. Þótt ekkert sé hægt að full- yrða um, hverja þýðingu þessi háttur, sem hér var hafður á, hefur haft i þessu tilfelli, skal eindregið varað við þessari til- högun, sem því miður virðist vera að ryðja sér rúm hér. Að lokum þetta: Aldrei verður nóg- samlega brýnt fyrir þeim, er við matvæli og neyzluvörur fást, að viðhafa í smáu sem stóru full- komið hreinlæti og fyllstu að- gætni í hvívetna. Reykjavík, 28. marz 1961. Jón Sigurðsson. Kópavogur Stjómmála- og málfundanám- skeið Týs í Kópavogi heldur á- fram í kvöld, miðvikudagskvöld 29. marz kl. 20,30. Fundurinn hefst á því, að Helgi Tryggvason leiðbeinir um fram- sögu. — Á fundinum mætir Þór Vilhjáilmsson, lögfræðingur, for- maður S.U.S. og flytur erindi um ræðugerð. Á eftir verður mál- fundur. Félagar eru mjög eindregið hvattir tii að mæta og taka þátt í starfi félagsins. Einnig væri framlag eldri Sjálfstæðismanna í Kópavogi mjög vei þegið. ÞESSI mynd var tekin austur á Seyðisfirði hér á dögunum af bátskelinni, sem brezki áfengisþjófurinn notaði til að ferja þýfið í út að togara sín- um. Það var aðfaranótt 7. marz, að brezkir sjómenn af togaranum Dinas voru að slarka í landi, og gerðist einn þeirra þyrstur, þegar leið á nótt, enda hét hann hinu vin- sæla wisky-nafni Haig. Brauzt hann þá inn í „rikið“ á Seyð- isfirði og stal tveimur kössum af wiskyi o. fi. Tók hann síð- an bátkænu traustataki og damlaði áleiðis að skipi sínu, en ferjan fylltist, sökk og brotnaði. Þannig ieit hún út, þegar hún var endurheimt úr greipum Ægis með þrettán flöskum innbyrðis. Myndina tók Leifur Haralds son, Seyðisfirði. Bandarískt skóla- fólkíheimsókn Á PÁSKAD AGSM ORGUN er væntanlegur til Reykjavíkur hóp. ur bandarísks skólafólks, er á- kveðið hefir að dvelja hér í páska fríinu. Hér er um að ræða 15 ung- linga á aldrinum 15—16 ára, 7 stúlkur og 8 pilta í umsjón tveggja kennara. Auk þess eru með í förinni tveir amerískir fréttaljósmyndarar. Hópurina kemur hingað með flugvél Loft- leiða. t Gísli Guðmundsson leiðsögu- maður hefir skipulagt dvöl hópa þessa hér á landi. Unglingarnir munu búa á heimilum nemenda úr 5. .og 6. bekk Verzlunarskól- ans. Þeir munu ferðast í boði Karla kórs Reykjavíkur austur yfir fjall m. a. til Þingvalla. Fræðsluráð Reykjavíkur kynnir þeim skóla- mál bæjarins og einnig er í ráði að þeir fari til Akraness í kynn- isför. MÁLFUNDUR verkalýðsráða Sjálfstæðisflokksins og mál- fundarfélagsins Óðins fteliur niður í kvöld. Ungir Sjálf- stæðismenn ÞÓR, félag ungra Sjálfstæðís- manna á Akranesi, spilar Bingó á Hótel Akranesi mið- vikudaginn 29. marz og hefst kl. 8,30 stundvíslega. Glæsileg verðlaun. Dansað til kl 1 60 milljón króna gjöf til Kongó Leopoldville, Kongó, 28. marz. — (Reuter) — ÓTTAZT er að þrír hermenn frá Ghana í liði SÞ í Kongó, sem saknað er síðan á föstu- dag, hafi verið drcpnir í átök um við Kongómenn í Kasai- héraðí. Á Ieið í sjúkrahús Skýrt var frá því að jeppa- bifreið, sem Ghanamennirnir höfðu tii umráða, hafi fundizt sundurskotin. Ghanamennirnir voru á leið til sjúkrahúss með særðan Kongóhermann og tvo félaga hans. Höfðu þeir komið þar að sem nokkrir Baluba- hermenn voru að deila við mann af Luluaættflokki, en þessir ættflokkar hafa lengi átt í erjum. Reyndu Ghanamenn- irnir að stilla til friðar, en úr því kom til átaka og særðist Toppfundur í Moskvu NA-átt og éljagangur var í gær norðan lands og austan, en hlýtt þokuloft suður und- an. Hæðin yfir Grænlandi var heldur vaxandi og búizt við, að hún mundi ráða veðri hér á landi fyrst um sinn. Veðurútlitið kl. 22 í gær- kvöldi: SV-land til Breiðafjarða Qg \ miðin: NA gola og kaldi, létt-) skýjað. Vestfirðir til NA-lands • og miðin: NA kaldi, sumstað- \ ar stinningskaldi, snjóél. Aust S firðir og SA-land og miðin: A- • gola eða kaldi, sumstaðar snjó i, koma fyrst, en úrkomulaust á S morgun. MOSKVU, 2«. marz, (Reuter). — Leiðtogar átta þjóða Varsjár- bandalagsins, komu í dag saman tii fundar í Moskvu, og er talið að þeir muni ræða ýms þau vandamál, sem nú eru efst á döf- inni í heiminum, þar á meðal Laos, Þýzkaland og Berlín. Ekkert hefur enn verið Iátið uppi um ráðstefnu þessa og flokksblaðið Pravda segir aðeins frá komu sendinefndanna. Á ráðstefnunni mæta flokks- og stjórnarleiðtogar auk utanrík- is- og varnarmálaráðherra allra bandalgsríkjanna nema Albaníu. Formaður albönsku nefndarinn ar er Balluku varnarmálaráð- herra, og telja menn að þetta sé afleiðing þess að Albanir hallast frekar að stefnu Kínverja varð- andi sambúðina við Vesturveld- in en stefnu Krúsjeffs, sem þeir telja of friðsamlega. Kínverjar hafa áheyrnarfull- trúa á ráðstefnunni og er það sendiherra þeirra í Moskvu, Láu Hsiao. Krúsjeff er nýkominn til Moskvu úr ferð um landbúnaðar- héruð Sovétríkjanna. einn Balubamaðurinn. Lézt hann á leiðinni í sjúkrahús, en félagar hans tveir, sem í jeppa- bifreiðinni voru, komu þangað heilir á húfi. Ekkert hefur til Ghanamannanna spurzt. Frá hafnarborginni Matadi berast fréttir um að þar safnist nú saman birgðir til hers SI* í Kongó, en SÞ-sveitirnar voru hraktar úr borginni fyrir þrera Vikum. Hafa yfirvöldin hótað að selja birgðirnar ef SÞ leggi ekki fram viðeigandi tollskjöl vegna birgðanna. 11.200 lestir af hveiti Bandaríkin hafa tilkynnt að þau muni senda Kongó að gjöf 11.200 lestir af hveiti og eru fyrstu 700 lestirnar þegar komnar til Matadi. —. Annað skip með 700 lestir af hveiti kom til Matadi í dag. Talsmaður bandaríska sendi. ráðsins í Leopoldville segir að 700 lestir af hveiti nægi til að fæða alla íbúa Kongó utan Kat- anga í eina viku. Ætlunin er að þetta gjafahveiti verði selt i brauðsölubúðum, og gefi Kongó. stjórn um 60 milljónir króna hagnað til að bæta efnahag landsins. STUTTGART, V-Þýzkal., 28.3. (Reuter). — Saksóknarinn í Stutt gart tilkynnti í dag að Otto Haupt fyrrverandi liðþjálfi í stormsveit um Hitlers haíi verið handtekinn grunaður um að hafa myrt 100 manns í Danzig-Stutthoff fanga. búðunum árin 1940—1944. Á Haupt að hafa myrt fangana með því að sprauta benzíni inn i beirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.