Morgunblaðið - 29.03.1961, Side 3

Morgunblaðið - 29.03.1961, Side 3
Miðvik'udagur 29. marz 1961 MORCVNBLAÐIÐ 3 1 DAG verður skemmti- || leg sýning opnuð á Lauga 11 vegi 26 (í húsi Ólympíu). Hún nefnist „Húsgögn '|l 1961“, en að henni stend- ur Félag húsgagnaarki- M tekta. Þar sýna átta arki- tektar nýjustu gerðir hús- ^ gagna sinna, en auk þeirra J sýna margir aðilar, ýmsa listmuni til híbýlaprýði. Um páskaleytið í fyrra hélt félagið fyrstu húsga^nasýn- ingu sína, sem var mjög vel sótt og vakti almenna athygli. | Hún var haldin í fremur þröngum 'húsakynnum, þegar miðað er við stærð sýningar- ' innar. Þessi sýning er hins Húsgagnaarkitektarnir, sem teiknað hafa húsgögn á sýningunni. — Þeir eru, talið frá vinstri: ^ vegar á rúmgóðum stað, hef- Arni Jónsson, Gunnar Guðmundsson, Gunnar Theódórsson, Halldór Hjálmarsson, Helgi Hall- * ur þrefalt stærri gólfflöt, eða gr;insson, Hjalti Geir Kristjánsson, Kjartan Á. Kjartansson og Þorkell G. Guðmundsson. um 400 fermetra. • Bjartur og léttur svipul Ef einkenna ætti sýning- una með einhverjum orðum, væri helzt hægt að segja að yfir henni 'hvíldi léttur og bjartur blær, sem minnir mann notalega á það, hve smekkur fólks á húsgagnastíl hefur breytzt til batnaðar síðustu árin. Þeir tímar eru liðnir, að hægt sé að ílytja inn tröllauknar ullarjótamubl- ur í tonnatali frá Kaupmanna höfn. Tími grimmilegra og forljótra Ijónsbrammastóla, sem maður þorði varla að koma nálægt, hvað þá setjast í, af ótta við árás, er vonandi allur. Fólk girnist nú stílhrein og létt húsgögn. Sumum finnst e. t. v. að unga fólkið gangi of langt í ‘dálæti sínu á tilgerðarlegum, nýtízku húsgögnum, og rétt mun það vera, að tízkusnobbið getur orðið það sterkt, að menn gleymi því, að stóll á fyrst og fremst að vera setgagn, þægi- legt hægindi. En almenningur þarf ekki að kvíða því, að á þessari sýningu sé tildrið í hávegum. Þvert á móti virðist manni, að vel hafi tekizt að samræma kröfur notagildisins og kröfur fegurðarskynjunar- innar. » íhaldssemi Reykvíkinga Einn arkitektanna lét þess getið til dæmis, að danskt áklæði, sem enginn vildi líta við hér fyrir átján árum, þyki nú hæstmóðins. Mörland inn er furðu seinlátur um sumt, t. d. húsgagnatízku, þótt annars staðar sé hann fljótur að taka við sér, svo sem í kventízku. Þegar spurt var, Húsgögn 1961 hvort fólk úti um land væri ekki seinna að taka upp hina nýju húsgagnatízku, var því svarað neitandi. Þótt Reykvík- ingar væru oft fljótir að taka upp nýja siði, væri þeir nokk uð íhaldssamir á sviði hús- gagnatízku, eins og í stjórn- málum. Hins vegar væri ut- anborgarfólk oft fúst að kaupa eingöngu mjög nýtýzku leg húsgögn, þegar það stofn aði bú. Húsgögn á sýningunni eru úr öllum algengum smíðaviði, eik. hnotu, Asíutekki, hinu sterka Afríkutekki o. s. frv. Lögð er þó á það áherzla af sýningaraðilum að notast eins mikið við íslenzkt hráefni og unnt er. • Þar kennir margra góðra grasa Sýningarsalnum er skipt í 34 bása, þar sem auk hús- gagna eru sýndir silfurmunir, smeltimunir, vefnaður, leir- kerasmíði, veggteppi, gólf- teppi og alls konar ullariðn- aður, sem sagt margir þeirra hluta, sem eitt heimili mega prýða. Átta húsgagnaarkitektar og fjórir aðrir aðilar hafa teikn- að húsgögnin. Þar eru öll hús gögnin af nýjum gerðum, sem hvorki hafa verið sýndar né seldar hérlendis áður. Alls konar tegundir húsgagna eru sýndar, húsgögn í borðstofu, dagstofu, barnaherbergi og svefnherbergi, borð, stakir stól ar, ruggustólar o. m. fl. Arkitektarnir átta, sem teiknað hafa húsgögnin, eru Árni Jónsson, Gunnar Guð- Benedikt Guðmundssynir og Axel Eyjólfsson og Manfred Vilhjálmsson arkitekt teikn- að húsgögn. Silfurmuni hafa gert Jó- hannes Jóhannessön, Hall- dór Kristinsson, Asdís Sveins dóttir, Reynir Guðlaugsson og Jens Guðjónsson. Leirkerasmíði er frá leir- brennslunni Glit h. f. Smíðin er eftir Ragnar Kjartansson, Ragnheiði Jónsdóttur og Stein unni Marteinsdóttur. Svefnherbergishúsgögn teiknuð af Árna Jónssyni hús- gagnaarktitekt. Sýnandi er Húsgagnaverzlun Árna Jóns- sonar, Laugavegi 70. mundsson, Gunnar Theódórs- son, Halldór Hjálmarsson, Helgi Hallgrímsson, Hjalti Geir Kristjánsson Kjartan Á. Kjartansson og Þorkell G. Guðmundsson. Auk þess hafa þrír hús- gagnasmiðameistarar, Jón og Smeltivinna er eftir Sig- rúnu Gunnlaugsdóttur og Jó- hannes Jóhannesson. Listvefnaður er eftir Bar- böru Árnason, Guðrúnu Jónas dóttur og Ásgerði Ester Búa- dóttur. Ullariðnaður er frá verk- smiðjum. Álafoss sýnir nýja tegund húsgagnaáklæðis og værðarvoðir. Húsgagnaáklæði eru frá Últíma og Gefjuni, og skinn frá Iðunni. öll gólfteppi eru frá Vefaranum h. f., en dúkar, sem skilja sýningar- básana, eru frá Dúkaverk- smiðjunni h. f. á Akureyri. • Sýning í Múnchen Félagi húsgagnaarkitekta hef- ur verið falið að annast hlut- deild íslands í hinni árlegu hand- og listiðnaðarsýn- ingu, sem haldin verður í Múnchen 31. maí -— 11. júní. Verða munir sendir af sýn- ingunni „Húsgögn 1961“ til Múnchen, þar sem íslenzka deildin fær 40—50 fermetra svæði. Sýninganefnd „Húsgögn 1961“ skipa: Hjalti Geir Kristjánsson, form., Gunnar Guðmundsson, Gunnar Theo- dórsson, Halldór Hjálmarsson og Kjartan Á. Kjartansson. Stjórn Fél. húsgagnaarkitekta skipa: Hjalti Geir KristjánS- son, formaður, Helgi Hall- grímsson og Árni Jónsson. Sýningin verður opnuð kl. 10 í dag og stendur í tíu daga. Hún verður opin virka daga frá kl. 2 til 10, og helgidaga kl. 10—10. Steimuui Marteinsdóttir virðir fyrir sér leirvasa frá Glit hf. S T\KS T [ I \ \ S» Austræn kjaraskerðing Ein af ástæðunum til þess a3 ekki hafa orðið hérlendis svipað- ar kjarabætur og í nágrannalöncL unum, er sú, að íslendingar hafa neyðzt til að kaupa dýrar og lé- legar vörur fyrir austan járntjaid til þess að geta selt þangað fisk- afurðír. Bent hefur verið á það hér i blaðinu, að íslenzkur al- menningur verði t. d. að kaupa strásykur hvorki meira né minna en 2,50 kr. of háu verði hvert kíló. Svipað er að segja um ýmsar vörur aðrar, sem við höf- um neyðzt til að kaupa í kommúo istaríkjunum. Þegar t. d. var farið að kaupa þaðan ljósaperur, mun hafa látið nærri að gjaldeyrisnotkun til kaupa á þeirri vörutegund hafi tvöfaldazt, enda er það alkunna, hve lélegar Ijósaperur hafa verið flufcfar til landsins að austan. Margur fleiri iðnaðarvarningur er álíka Iélegur. Lélegir bílar M. a. höfum við neyðzt til að kaupa veruleggn fjölda af bifreið um frá kommúnistaríkjunum, bæði vörubilum og fólksbílum. Bílar iþessir hafa reynzt misjafn- lega, en yfirleitt þó miklu ver en þeir bílar, sem hægt er að fá í frjálsum löndum, ekki sizt vöru- bílarnir, sem sumir hverjir hafa verið hálfónýtir eftir 1—2 ára notkun. Það er athyglisvert, að stjórnarvöldin í kommúnistaríkj- unum hafa lagt megináherzlu á að við keyptum þessa vöru. Skýr ir það sig sjálft hvers vegna slíkt kapp er lagt á þetta. Varahluti í bifreiðarnar er ekki hægt að fá annars staðar en þar austur frá og er þetta því talin hin ákjós- anlegasta leið til að gera okkur háða áframhaldandi viðskiptum þar, þótt þau séu óhagkvæmari en annars staðar. Auk þess hefur verið talið æskilegt að láta allan almenning kiynnast iðnaðarfram- leiðslu kommúnistaríkjanna. Hafa menn austur þar sjálfsagt imyndað sér, að varan mundi líka jafnvel og sú, sem fæst á frjáls- um mörkuðum, þó að niðurstað- an hafi orðið sú að þetta hafi reynzt vafasöm landkynning. Það fer ekkert á milli mála, að veruleg kjaraskerðing hefur hér á landi orðið af þessum viðskipt- um og vonandi að utanríkisvið- skipti okbar íslandinga geti orðið hagkvæmari í framtíðinni. Vitlaus fjárfesting í ritstjórnargrein Þjóðviljans í gær segir m. a. á þessa leið: „Fjárfestingin er stjórnlaus og vitlaus, þannig að hún dregur framleiðslugetuna niður í stað þess að auka hana“. Má um þessi orð Þjóðviljans segja, að bragð er að þá barnið finnur. Kommúnistar hafa verið aðalfrumkvöðlar þeirrar ofstjórn ar efnahagslifsins, sem leitt hef- ur tii hinnar vitlausu fjárfest- ingar, þar sem ekkert tillit hefur verið tekið til þess, hvort fyrir- tæki gætu borð sig eða ekki, og allt verið látið reka á reiðanum. Nú hefur verið snúið af þessari braut og er engum blöðum um það að fletta, að miklar og varan- legar kjarabætur munu nást, þegar skynsamlegar er á málum haldið. önnur meginástæðan til þess að við höfum ekki getað náð sömu kjarabótum og aðrar þjóðir er einmitt þessi vitlausa fjárfest- ing, sem Þjóðviljinn ræðir um. Allt það eftrlitstildur og fjárfest- ingarhömlur, sem hér hafa verið, hefur stuðlað að óhagkvæmri fjárfestingu. Og hin pólitísku yfirráð meginhluta fjármagns þjóðfélagsins hefur einnig leitt til hins sama. Er vissulega ánægju legt að kommúnstar skuli loks vera farnir að skilja betta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.