Morgunblaðið - 29.03.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.03.1961, Blaðsíða 24
íþróttir Sjá bls. 22 Rœða Bjarna Benedikissonar Sjá bls. 13. EINS og blaðið skýrði frá sl. fimmtudag er afli nú miklum mun minni í verstöðvunum sunnan og vestan lands en var á sama tíma í fyrra. Blaðið hefir nú aflað sér upplýsinga um verðmun þann sem er á aflanum nú og var i fyrra og er þá miðað við afla þann, sem kominn var á land 15. þ.m. bæði árin og hann met inn að útflutningsverðmæti. Þorskafli bátaflotans er nú 32 þús lestir, en var í fyrra 67 þús. lestir Verðmæti aflans nú er 168 milljónir kr. en var í fyrra 351,75 milljónir. Síld- araflinn er nú 20 þús. lestir og að verðmæti 75 milljónir króna, en var enginn í fyrra á sama tíma. Aflaverðmætið er því 108,75 milljónum króna minna nú en var í fyrra hinn 15. marz. Verðmæti aflans er mjög varlega áætlað og mun óhætt að fullyrða að það nemur vart minnu en 110 milljónum kr., sem bapast hefir fyrir hve minna hefir verið dregið á land það sem af er þessari vertíð. Tölur þessar miðast við óslægðan fisk, sem komið hef- Holtavörðuheiði fœr stórum bílum STAÐ, Hrútafírði, 28. marz. — Héðan fóru 15 flutningabílar suð ur yfir Holtavörðuheiði í dag og voru þeim til hjálpar tvær jarð- ýtur og einn snjóplógur. Ferðin gekk allvel og voru bílarnir 3 klst. á leiðinni í Fornáhvamm. Áætlunarbílar frá Norðurleið 'komu síðar í þessa sömu slóð á leið sinni norður og gekk þeim ágætlega og gera ráð fyrir að komast alla leið til Akureyrar í kvöld, en þeir fá hjálp yfir Öxna dalsheiði. Af hinum fyrrgreindu bílum höfðu 6 verið tepptir hér á Stað síðan á laugardag og sunnu- dag. Nú er komið hér bezta veð- Afhendir trúnaðarbréf HINN 24. marz sl. afhenti Pétur Thorsteinsson, ambassador for- seta Svisslands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Sviss, með búsetu í Bonn. (Frá utanríkisráðuneytinu) Jóhannes G^ir Jónsson MSTKYNNING Mbl. sýnir um þessar mundir má'lverk eftir Jó- hannes Geir Jónsson listmálara í sýningarglugga blaðsins. Jó- hannes Geir er í hópi hinna yngri og efnilegustu listmálara okkar. Hann hefur stundað nám í list sinni bæði hér heima og í Kon- unglega listaháskólanum í Kaup mannahöfn. Hann hefur haldið sjálfstæðar sýningar hér heima og tekið þátt í samsýningum. Hef- ur hann oft fengið ágæta dóma fyrir verk sín. Jóhannes Geir sýnir nú fjög’ur ©líumálverk í sýningarglugga blaðsins. Eru þau öll í einkaeign. ur og snjór er ekki mikill í byggð. Hins vegar er mikill snjór á Holtavörðuheiði og óhæP mun að segja að eins og er, er ófært nema stórum bílum. — Magnús. Lislkynning Mbl. Mokafli á Eyjafirði DALVÍK, 28. marz. — Þótt aðeins tveir netabátar leggi hér upp afla sinn berst nú meiri fiskur á land í hverri sjóferð en áður eru dæmi til og svo virðist sem alltaf sé að aukast fiskmagnið bæði á Gjögramiðum og eins á Ólafs- firði, allt inn að Migindi. I gær var bezti afladagurinn fram til þessa. Fékk Hannes Hafstein um 20 tonn og Máni frá Skagaströnd 17 tonn. Átti hann net sín á Ólafsfirði, en Hannes út af Gjögrum, sum- part var þetta tveggja nátta íiskur. Báðir þessir bátar leggja upp á söltunarstöð Egils Júlíus sonar. Aðrar stöðvar eru ekki starfandi enn. Eins og kunnugt er strandaði togskipið Björg- vin um síðustu mánaðamót og hefir verið í slipp á Akureyri undanfarið. Er viðgcrðinni lok ið og kom skipið til Dalvíkur í gær og mun að öllum líkind- um fara út í kvöld. — SPJ. ir á land á svæðinu frá Horna firði til Stykkishólms. Góð sef- ve'.ði SL. NÓTT kom hingað til Akur- eyrar norska íshafsbjörgunarskip ið Salvator, en það er á þessum tíma að hjálpar- og björgunar- störfum með norsku selveiðiskip unum í Vesturísnum. Hingað kom skipið með sjúkan mann, er slas- ast hafði á öxl og þurfti læknis- aðgerðar. Skipsmenn segja að sel veiðin hafi gengið mjög vel í ár og mörg skip væru þegar farin heim með fullfermi. önnur væru í þann veginn að ljúka veiðum, og fá fullfermi. Nokkur skip hfðu fengið minna. Skipstjórinn á Salvator telur þetta beztu sel- veiðivertíð um árabil og þakkar það einkum því að skipin fundu selinn strax er þau komu á mið- in. Veiðarnar hafa að mestu farið fram milli Grænlands og Jan Mayen. Veður hefur verið sæmi legt, ísinn ekki mikið á hreyf- ingu, en frost mjög hörð. Salvator fór héðan laust eftir hádegi í dag. Hafði þá verið gert að sárum hins slasaða manns og fór hann með skipinu aftur. — St. E. Sig. Eldborg með yfir 1000 tn. síldar HAFNARFIRÐI — í gær fékk Eldborgin milli 1000 og 1100 tunnur síldar austur á Selvogsgrunni, og var hún eini báturinn héðan, sem var þar með síldarnót. Er hér um að ræða ágæta síld, er verður söltuð og fryst. Aðrir bátar eru með þorskanet og hefur verið fremur tregt hjá þeim und- Verður hengdur Addis Ababa, Eþíópíu, 28. marz. — (Reuter) — MANGHISTU Neway her- foringi, fyrrum stjórnandi lífvarðar keisarans, var í dag dæmdur til opinberrar hengingar fyrir þátt þann, er hann átti að misheppnaðri byltingartilraun í Eþíópíu í desember sl. Haínarfjörður HAFNARFIRÐI. — Stefnir, fél. ungra Sjálfstæðismanna, heldur málfund í Sjálfstæðis- húsinu í kvöld, og hefst hann kl. 8,30. Þar flytur Eggert Isaksson bæjarfulltrúi erindi um gang bæjarmálanna. Stefn is-félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Tveir aðrir herforingjar yoru ákærðir með Neway og hlutu þeir 15 og 10 ára fangelsisdóma. Byltingartilraunin var gerð 14. desember meðan Haile Selassie keisari var í opinberri heimsókn í Brasilíu. Handtóku byltingar- menn ýmsa leiðtoga þings og stjórnar og lýstu því yfir að Asfa Wassen ríkisarfi sonur Haile Selassie tæki við af föður sinum, án þess þó að ráðgast um það við prinsinn. Kváðust byltingarmenn ætla að binda endir á „3.000 ára óréttlæti“. Keisarinn hélt þegar heim frá Brasilíu og stuðningsmönnum hans tókst að bæla niður bylting- una á tveim dögum. Samkvæmt upplýsingum ríkis- stjórnarinnar létu rúmlega 300 manns lífið og 800 særðust í bylt ingunni. Réttarhöldin fór fram fyrir opn um dyrum og áttu ýms lönd þar áheyrnarfulltrúa. anfarið. I gær var þó all- sæmilegur dagur, en þá voru þeir með frá 6 tonnum og allt upp í 40. — Togarinn Júní kom af veiðum í gær og var aflanum skipað hér á land. — G. E. Bæjarkeppni HAFNARFIRÐI. — Á skírdag fer fram bridgekeppni milli Hafn firðinga og Selfyssinga og keppa 5 sveitir frá hvorum. Er þetta í 15. sinn, sem þessir aðilar heyja keppni sín í milli og unnu Sel- fyssingar í fyrra. Keppnin fer fram hér í Hafn- arfirði og verður spilað í Alþýðu- húsinu. Hefst keppnin kl. 1,30. Miklar annir við Akranesliöfn AKRANESI, 28. marz. — Allir bátarnir hér eru á sjó nema einn, auk nýja bátsins Haraldar, sem enn er óráðið um hvaða veiði- aðferð stundar. í gær lönduðu þeir samtals 115 lestum. Afla- hæstir og jafnir voru þrír, allir með 14 lestir hver, þeir Sigurfari, Fram og Svanur. Aldrei í manna miíinum hefir verið eins mikið um að vera við höfnina eins og í dag. Hér er Reykjafoss og lestar skreið og saltfisk. Útlent skip, Alfa að nafni, losar salt og Hug-' rún lestar tómar tunnur fyrir síldarútvegsnefnd. í gær var Sel- foss hér og lestaði freðfisk og hvalkjöt. — Oddur. SVONA var umhorfs í brezka togaranum St. Nectan, þegar hann kom inn til Seyðisfjarð- ar eftir hrakningana um helg- ina. Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, var hann stadd ur vestur af Grímsby á laugar daginn, þegar hann fékk á sig sjó, sem braut brúna og eyði- lagði öll siglingatæki og loft- skeytatæki. Stuttu eftir þetta alvarlega áfall varð aff höggva björgunarbátana frá skipinu vegna ísingar. Skipstjóri þorffi ekki aff sigla nálægf landi, en sigldi austur meff norffur- ströndum og suöur með Aust- urlandi, unz neyðarmerki hans sáust frá Borgarfirffi eystra. Brezki togarinn Victrix fylgdi honum svo til Seyffisfjarffar. Ljósmyndari: Ólafur Björns son ,Seyðisfirði. Háskólaíyrirlest- ur um trúarlegar leikbókmenntir DR. E. MARTIN Browne, leik- stjóri og prófessor, mun flytja tvo fyrirlestra í háskólanum um trúarlegar leikbókmenntir. Fyrri fyrirlesturinn var fluttur í gær- kvöldi og nefndist hann „Early Religious Drama“, en síðari fyr- irlesturinn verður fluttur í kvöld, klukkan 20,30 og fjallar hann um „Modern Religi- ous Drama“. Dr. E. Martin Browne og kona hans, leikkonan. Henzie Raeburn, les upp kafla úr leikritum til skýringar. Fyrirlestrarnir eru fluttir f 1. kennslustofu háskólans, og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Enn jnínleflí Á MÁNUDAGINN léku þeirl Botnvinnik og Tal sjöttu skákj sína í keppninni um heims-J meistaratitilinn. Lauk henni \ meff jafntefli eftir 25 leiki. Staffan er nú þannig aff Botn ( vinnik hefur 314 vinning, TalJ 2%. 110 milljón kr. tjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.