Morgunblaðið - 09.05.1961, Page 23
Þriðjudagur 9. maí 1961
MORGUNBLAÐIÐ
23
Sigurður flugmaður
synir i
ÞAB KOM ýmsum á óvart þegar
Sigurður Jónsson flugmaður
eýndi nokkrar pennateikningar í
SMorgunblaðsglugganum í fyrra.
En kunningjar hans og vinir hafa
lengi vitað að þessi fyrsti flug-
maður íslands hefur haft áhuga
á myndlist frá barnaesku. Og nú
gefst bæjarbúum aftur kostur á
að sjá myndir eftir hann, því á
sunnudaginn voru hengdar upp
til sýningar 16 teikningar hans
í Mokka við SkólavörðUstíg.
Myndirnar eru frá Reykjavík,
'Akureyri bg Eyrarbakka og auk
Mokka
„Tvö á saltinu46
í síðasta sinn
í KVÖLD verður leikritið Tvö
á saltinu sýnt í síðasta sinn í
Þjóðleikhúsinu og er það 18.
sýning á þessum Ieik.
Nashyrningar hafa nú verið
sýndir 10 sinnum og er áætlað
að sýna það leikrit þrisvar
sinnum ennþá.
Iþróftir
Framh. af bls. 22
Eyða var í vörn Fram því Rún-
ar batt sig við Þórólf og enginn
fyllti hans stöðu á meðan. En
Ellert vann snaggaralega að
markinu.
Á 12. mín. fá KR-ingar dæmda
vítaspyrnu. Var það ákaflega
harður dómur. En hún færði
KR annað mark — Og aukið ör-
yggi-
Fleiri tækifæri átti KR í leikn-
um. Einkum var Ellert mistæk-
ur við lokahnútinn á upphlaup.
KR átti mun meira í þessum
hálfleik.
• Síðari hálfleikur.
í síðari hálfleik var annað uppi
á teningnum. Fram átti góð færi
í fyrri hálfleik og þá kom átak-
anlega í ljós hvað aftasta vörn
•KR er fumkend og sundurlaus í
vörn sinni. Fram auðnaðist þó
ekki að skora.
En á 17. mín. bæta KR-ingar
þriðja markinu við. Mistök urðu
í vörn Fram og Þórólfur varð
fljótur að nota sér þau vel — lék
á vörn og markvörð og sendi í
netið.
Fram náði nú sóknarlotum,
sem urðu æ þyngri og skeinuhætt
ari KR-vörninni. Um miðbik hálf
leiksins skorar Baldur Scheving
fallegt mark af stuttu færi.
Spyrnti hann viðstöðulaust úr
sendingu frá hægri. Laglega gert
— en þó ekki umfram það sem
hver 1. deildar leikmaður ætti
að kunna og geta sýnt hvenær
sem er.
8 mínútum fyrir leikslok skor-
ar Fram aftur. Var það Björgvin
að verki, einnig eftir sendingu
frá hægri. Skotið var laglegt og
hnitmiðað.
Var nú barizt af hörku. Fram-
arar beittu rangstöðutaktik í
vörn gegn KR-ingum og stöðv-
uðu margt upphlaupið þannig.
Eitt sinn skall þó hurð nærri
hælum er framarar björguðu á
línu upp úr hornspyrnu.
í heild var sigur KR verðskuld
áðru: eftir leiknum. Þeir fengu
þó um of ódýr mörk eins og t.d.
vítaspyrnuna. En óheppnir voru
þeir í önnur skipti — einkum
Ellert.
• Liffin
Bezti maður KR-inga er Gunn-
ar Felixson, en allan glans vant-
ar yfir leik liðsins. Allt er sund-
urlaust og án festu.
Beztur Framara var Rúnar
Guðmannsson þó haxm um of
héldi sig að Þórólfi. Einnig átti
Ragnar framvörður góðan leik.
— A.St.
þess landslagsmyndir víða að af
landinu.
Þegar fréttamaður Mbl. brá
sér upp í Mokka í gær til að
skoða sýninguna, voru þegar seld
ar fimm myndir. Margt var þarna
Sigurffur Jónsson
um jnanninn og vöktu myndirnar
verðskuldaða athygli. Listamað-
urinn var að fá sér hressingu hjá
Guðmundi gestgjafa í Mokka, og
þótti blm. vel við eigandi að fá
hann til að segja nokkuð frá til-
drögum þess að hann tók að snúa
sér að listinni.
En Sigurður var hæverskan
uppmáluð, og vildi ekki heyra
orðið list. „Þetta er ágæt dægra-
stytting eftir erjur dagsins“,
sagði hann.
— Áhuginn á teikningu vakn-
aði er ég var í Landakotsskóla.
Þá var Meulenberg biskup kenn-
ari minn, en hann var listfengur
og sérstaklega þekktur fyrír
blómamyndir sínar. Seinna lærði
ég svo teikningu hjá Birni Björns
syni og Marteini Guðmundssyni.
Nú og svo hefur maður náð sér í
bækur, sagði Sigurður.
— Þessar myndir eru flestar
teiknaðar í ár. Er þetta ekki geysi
mikil vinna?
— Jú, það er nú ef til vill það
eina, sem hægt er að segja um
þær, sagði listamaðurinn.
En gestirnir í Mokka voru hon-
um ekki alveg sammála, því varla
var friður til að tala við hann
fyrir hamingjuóskum.
Sigurður sagði að myndirnar
yrðu til sýnis þarna i Mokka í
um tvær vikur. Þeir Guðmundur
gestgjafi eru gamlir félagar úr
sviffluginu, og átti Sigurður alls
ekki von á öllu þessu umstangi,
þótt hann yrði við tilmælum vin
ar síns um að lána nokrar mynd-
ir til að prýða veggi kaffihússins
í hálfan mánuð.
- NATO
Framhald af bls. 1.
afmörkuðu svæði en útþensla
kommúnista næði nú til allra
heimshluta.
Rusk kvaðst ekki hafa mikla
von um árangur af viðræðum á
ráðstefnunni um bann við kjarn-
orkutilraunum, sem nú stendur
yfir í Genf. Sagði hann Rússa
stöðugt leggja hindranir í leið
samkomulags. Ennfremur sagði
hann að ekki yrðu gerðir neinir
afvopnunarsamningar milli
Rússa og Bandaríkjamanna án
vitundar bandalagsþjóða Banda-
ríkjanna.
Tungliff — Mars — Venus
Rusk rseddi um geimrannsókn-
ir Bandaríkjamanna og sagði að
þeir hyggðust senda mannað
geimfar á braut umhverfis jörðu
seint á þessu árL Þannig hefðu
þeir á prjóraunum ýmsar áætlan-
ir varðandi rannsóknir á tungl-
inu, Mars og Venusi, en ekki
væri unnt að segja fyrir um hve-
nær tilraunir í þá átt yrðu gerð-
ar. Sagði Rusk, að. Bandaríkja-
menn legðu nú áherzlu á að efla
geimvísindi og líklegt væri að
þeir hefðu í framtíðinni samráð
við Atlantshafsbandalagsþjóðirn-
ar í þeim efnum.
Loks tilkynnti Rusk, að Banda
ríkjamenn væru reiðubúnir að
láta Evrópuþjóðum í té eldflaug-
ar af gerðunum Thor, Atlas og
Scout, ef þær óskuðu að senda
á loft eigin geimför.
Fundarmenn sátu um hádegið
matarboð konungs en að því
loknu var fundum haldið áfram
fyrir luktum dyrum.
^HELGflSON/^-.
s.úooRyoc 20 /"(/ b f-c A I 1
leqsieinaK oq
J plÖtUK Ö
9
I 5ÍMR
34333
•kvAin timmu
Ktíatta'bI'gs'b
VéLSKÓTLUrZ
FUITNIN6AVA6NAR.
pVtiGAVmUVÉlAWÍ
^‘^335 G
Öllum ættingjum og vinum, sem glöddu mig á áttræðis
afmælinu 7. maí með gjöfum, heimsóknum og ham-
ingjuóskum þakka ég hjartaniega og bið þeim öllum
biessunar guðs.
Herborg Guðmunsdóttir
Tungu.
Hjartanlega þakka ég þeim sem minntust mín á
60 ára afmæli mínu 5. apríl síðastliðinn fyrir hlýjar
árnaðaróskir og heimsóknir sveitunga, vina og frænd-
fólks og stórmiklar gjafir sem mér voru færðar við
það tækifæri. — Lifið öll heil í guðs friði.
Óskar Hafliðason, Fossi, Rangárvöllum.
Hjartans þakkir sendi ég öllum f jær og nær, er glöddu
mig á níræðis afmælinu. — Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Keflavík.
Móðir okkár JÓDÍS ÁMUNDADÖTTIR lézt að heimili sínu Öldugötu 25 A laugardaginn 6. maí. Börnin. Jarðarförin ákveðin föstudaginn 12. þ.m. kl. 2 frá Fríkirkjunni.
Eiginmaður minn Dr. ÞORKELL ÞORKELSSON fyrrv. veðurstofustjóri, andaðist að heimili sínu Segulhæðum, Reykjavík 7. maí. Rannveig Einarsdóttir.
Móðir okkar GUÐNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR frá Skammbeinsstöðum, andaðist í Bæjcirspítalanum í Reykjavík þann 7. maL Börn hinnar látnu.
Faðir okkar MICIIAEL SIGFINNSSON Langholtsveg 44, andaðist í Landakotsspítala laugardaginn 6. maí. Jónína Michaelsdóttir, Laila Michaelsdóttir, Ásta Michaelsdóttir, Linda Michaelsdóttir, Karl Michaelsson.
Konan mín SIGURBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR andaðist aðfaranótt mánudags að sjúkrahúsinu Sól- vangi, HafnarfirðL Fyrir mína hönd, barna okkar, foreldra og systkina. Útförin ákveðin síðar. Hjálmar Eyjólfsson, Tjörn Herjólfsgötu, Hafnarfirði
Jarðarför litlu dóttur okkar HJÖRDlSAR ARNARDÓTTUR fer fram frá Fossvogskirkju þriðjud. 9. maí kl. 13,30. Blóm afbeðin. — Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Örn Sigurjónsson, Ingr Guðmundsdóttir.
Sonur minn, AÐALSTEINN HÓLM ÞORSTEINSSON vélstjóri, andaðist hér í bæ 5. þ.m. Jarðarförin fer fram frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 10. þ.m. kl. 3 e.h. Þorsteinn Guðmundsson, trésmiður.
Hjartans þakkir sendum víð öllum þeim, sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar ÓLAFAR ÞÓRARINSDÖTTUR frá Viðfirði. Systurnar.
Þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för föður míns KRISTINS BRYNJÓLFSSONAR Ráðagerði. Guðríður Kristinsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður minnar SIGRlHAR SÆMUNDSDÓTTUR Hverfisgötu 23, Hafnarfirði. Sveinbjörn Sveinsson.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför STEFÁNS RUNÓLFSSONAR frá Hólmi. Fyrir hönd vandamanna. Olga Bjarnadóttir.
Innilegar þakkir fyrir viná,ttu og samúð við fráfall ög jarðarför SIGURÐAR BENEDIKTSSONAR Gljúfri. F. h. aðstandenda. Guðný Einarsdóttir