Morgunblaðið - 16.05.1961, Side 24
ÍÞROTTIR
Sjá bls. 22.
Vettvangur
Sjá bls 13.
Þriðju.dagur 16. maí 1961
Aflahæst-
ur á Vest-
fjörðum
PATREKSFIRÐI, 13. maí —
Er m.s. Dofri lagði að landi
hér á Patreksfirði, hinn 11.
maí s.l. hafði fréttamaður Mbl
stutt viðtal við skipstjóra hans
Finnboga Magnússon, sem sést
hér á myndinni í stýrishúsi
báts síns. Afli hans var á ver-
tíðinni 1045 smálestir, og er
það vafalaust mesti afli, sem
borizt hefir á land á síðustu
vertíð á Vestfjörðum. Á stærri
myndinni er áhöfnin um borð
í m.s. Dofra. M.s. Dofri var á
línuveiðum til 5. marz, en hóf
netjaveiðar þá. Á línuveiðun
um aflaði hann 288 smál. en
757 á netjaveiðunum.
Finnbogi kvað þetta vera erf
iðustu vertíð sem hann hefði
verið á híngað til. Mjög sisemt
veiðiveður og ýmsar frátafir.
Að öðru leyti var Finnbogi
ánægður með vertíðina og lét
prýðilega af skipshöfn og skipi
Finnbogi er ungur maður,
aðeins um þrítugt. Hann hefir
stundað sjó frá barnæsku. —
Hefir t.d. verið formaður í 8
vertíðir, og ávallt verið fang-
sæll. Óskum við Patreksfirð-
ingar honum og skipshöfn
hans til hamingju með hina
góðu vertíð hans. — Trausti
Álitsgerðir lagadeildanna í Höfn
og Árósum geta ráöið úrslitum
Kaupmannahöfn, 15. maí.
(Frá Siguröi Líndal).
BLAÐHE) Dagens Nyheder
segir í ritstjórnargrein í
morgun, að þjóðþingið geti
ekki samþykkt frumvarpið
um afhendingu handritanna
fyrir hvítasunnu. Þá telur
blaðið vafasamt að handrita-
nefndin fái svar við öllum
spurningum sínum nógu tím-
anlega til að frumvarpið
verði afgreitt fyrir þinglok
5. júní.
Þá segist hlaðið ekki trúa
því að neinn þjóðþingsmeiri-
Vafasamt að handritafrumvarpið nái
fram að ganga fyrir þingslit
Dr. Jóhannes Nordal formað-
ur félagsins Frjáls menning
DR. Jóhannes Nordal, banka-
stjóri, var kjörinn formaður fé-
lagsins I'rjáls menning á aðal-
fundi þess, sem haldinn var í
V.R. húsinu sl. laugardag. Frá-
farandi formaður félagsins Tó-
mas Guðmundsson skáld, setti
fundinn og skipaði Eyjólf K.
Jónsson, fundarstjóra og Eirik
Hrein Finnbogason, fundarritara.
Þá flutti formaður, Tómas
Guðmundsson, skýrslu stjórnar-
innar, en að ræðu hans lokinni
ílutti gjaldkeri félagsins, Lúð-
vík Gizurarson, skýrslu um
reikninga félagsins. Nokkrar um
ræður urðu um skýrslu formanns
og gjaldkera, en að þeim lokn-
um var gengið til stjórnarkjörs,
en stjórn félagsins skipa sextán
menn auk heiðursforseta, sem er
Gunnar Gunnarsson skáld.
* * *
Þessir voru kjörnir í stjórn:
Dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri,
Tómas Guðmundsson, skáld,
Eyjólfur K. Jónsson, ritstjóri, Ár-
mann Snævarr, rektor, Einar
Magnússon, menntaskólakennari,
Þórir Kr. Þórðarson, prófessor,
Benedikt Gröndal, ritstjóri, Eirík
ur Hreinn Finnbogason, cand.
mag., Einar Pálsson, leikari,
Svanhildur Þorsteinsdóttir, frú
Þorsteinn Hannesson, óperusöngv
ari, Páll Kolka, læknir, Guð-
mundur G. Hagalin, rithöfundur,
Baldvin Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri, Lárus Guðmunds-
son, stud. theol. og Ævar Kvaran,
leikari. Endurskoðendur voru
kjörnir þeir Guðni Þórðarson,
framkvæmdastjóri og Þór Vil-
hjálmsson, lögfræðingur. í fund-
arlok kaus hin nýja stjórn sér
formann, Dr. Jóhannes Nordal,
bankastjóra.
* * *
í skýrslu sinni rakti Tómas
Framh. á bls. 23
hluti þröngvi fram vilja sín-
um án þess að þeim spurn-
ingum sé svarað, sem hand-
ritanefndin hefur sett fram.
Beðið álitsgerða
Dagens Nyheder segir, að
álitsgerðir lagadeilda háskól-
anna í Höfn og Árósum muni
vekja mesta eftirtekt. Það bend-
ir á það að háskólaráð Hafnar-
háskóla hafi þegar viðurkennt
rétt löggjafarvaldsins til að
koma fram lögum um afhend-
ingu handritanna en ráðið hef-
ur sem slíkt ekki sérþekkingu á
lögfræði.
Eignarnám og almannaþörf
Blaðið minnist á það að stjórn
Árna Magnússonar stofnunar-
innar hafi mótmælt afhendingu
handritanna og segir, að ef
handritin' verða afhent gegn
þeim mótmælum verði að skoða
það sem eignarnám.
Þá heldur Dagens Nyheder
áfram, að til þess að heimild sé
til eignarnáms þurfi samkvæmt
stjórnarskránni að liggja fyrir
almannaþörf.
Almennt er álitið að meirt
hluti þjóðþingsins skeri úr því,
hvort almannaþörf sé fyrir
hendi. Samt sem áður virðist
þetta tilvik liggja utan við hina
rúmu túlkunarmöguleika á orð-
inu „almannaþörf".
Eftir þingkosningar
Dagens Nyheder segir, að álits
gerðir lagadeildanna geti þegar
öllu er á botninn hvolft ráðið
úrslitum um það að hve miklu
leyti afhending muni eiga sér
stað. Það geti og valdið því að
staðfestingu lagafrumvarpsina
verði frestað þangað til þjóð-
þingskosningar hafa farið fram.
Ungur piltur
drukknar af trillu
SÍÐDEGIS á laugardag drukkn-
aði 19 ára gamall piltur af trillu-
bát undan Kjalarnestöngum.
Hann hét Valmundur Sverrisson,
sonur Sverris Magnússonar og
Guðbjargar Ingimundardóttir á
Norðurgötu 51 á Akureyri. Ekki
er vitað með hverjum hætti slys-
ið varð.
Valmundur, sem hafði verið
á vertíð í Grindavík í vetur, var
að byrja að róa á handfæri með
Guðmundi Lúðvík Árnasyni í
Karfavogi 39 í Reykjavík. Voru
þeir í fyrsta eða öðrum róðrin-
um á laugardag. Um kl. 6 voru
þeir staddir undan Kjalarnes-
töngum, Og hafði orðið vélbilun.
Var Guðmundur í stýrihúsinu að
gera við hana, en er hann leit
næst út, var Valmundur horf-
inn.
Valmundur var hvergi sjáan-
legur og leitaði Guðmundur því
aðstoðar nærliggjandi báta, sem
Valmundur Sverrlsson ^
leituðu lengi með honum, en ár-
angurslaust. Sjópróf verða í mál-
inu í dag. ;
Fiskur fluttnr
flugleiðis á ný
Jóhannes No.
BRÁÐLEGA hefjast aftur fisk-
flutningar í lofti til útlanda. Verð
ur fiskurinn fluttur glænýr með
íslenzkium og bandarískum far-
þegaflugvélum til Lundúna og
þar kemur hann samdægurs á
markaðinn í Billingsgate.
Guðjón Bjarnason, yfirmaður
flugumsjónar á Keflavíkurflug-
velli, stendur að þessum útflutn
ingi, en hann gerði allmargar til
raunir í þessa átt í fyrr og tókust
þær vel.
— ★ —
Guðjón hefur samið við Pan
American, sem flýgur einu sinni
í viku frá Keflavík til Lundúna.
Hann stendur í samningum við
Loftleiðir, sem einnig hafa eina
ferð vikulega — og í sumar mun
Flugfélag íslands hafa vikulega
ferðir til Lundúna. Væntir Guð-
jón þess að geta sent fisk með
öllum félögunum.
Ekki verður um ákveðið magn
að ræða í laverri ferð. Það fer
eftir hleðslu flugvélanna í hvert
sinn. Samt hefur Pan American
heitið að taka a.m.k. eitt tonn
í ferð. Líklegt er samt, að hægt
verði að senda 2—3 tonn með
Pan Ameriean-vélum.
— ★ —
Guðjón mun kaupa fiskinn,
mestmegms lúðu, kola og ýsuflök,
af. trillum í Keflavík og Njarðvík
um. Einnig ætlar hann að senda
út nýjan humar í tilráunaskym.
Fiskurinn er ísaður í plastpoka
1—2 klst. fyrir brottför vélarinn
ar. Umbúðir fyrir eitt tonn af
fiski munu aðeins vega 9 kg og
byggist útflutningurinn m.a á
því hve umbúðirnar eru léttar.
Sögðu upp
samningum
ENGAR viðræður hafa enn farig
fram um nýjan kjarasamning
á síldveiðibátunum. Útvegsmenn
alls staðar á landinu nema f
Vestmannaeyjum óg Akureyrí,
sögðu núgildandi sammng upp 1*
apríl og gengur hann úr gildi um
næstu mánaðamót. Ekki mun
hafa verið boðað til nemna við-
ræðufunda.