Morgunblaðið - 11.06.1961, Síða 1
24 slður og Lesbók
Danska þjóöþingiö samþykkir handritafrum
varpið með mikl-
um meirihluta
Jörgen JÖrgensen flutti síðustu þingræðu
sína við afgreiðslu málsins
Kaupmannahöfn, 10. júní — (Einkaskeyti frá Páli Jónssyni)
HANDRITAMÁLIÐ var samþykkt í danska þjóðþinginu í
dag með 110 atkvæðum gegn 39. Því næst var milliríkja-
samningurinn um afhendingu handritanna samþykktur
með 110 atkvæðum gegn 40.
Áður en atkvæðagreiðslan fór fram gáfu talsmenn flokkanna
Stuttar yfirlýsingar um afstöðu sína. Þeir létu sér nægja ýmist
að mæla með eða móti frumvarpinu, en það var greinilegt að
deilan stóð til loka umræðnanna.
Umræður um handritamálið voru allharðar síðustu dagana,
en þó er það eftirtakanlegt, að jafnvel þeir menn sem harðast
mæltu gegn afhendingu handritanna forðuðust algerlega að mæla
nokkrum meiðandi eða móðgandi orðum til íslendinga. Að því
leyti hafa umræðurnar þrátt fyrir hitann borið svip kurteisi og
skilnings á milliríkjasambúð.
Með og móti.
Með frumvarpinu greiddu at-
kvæði allir þingmenn Jafnaðar-
mannaflokksins, Radikalaflokks-
ins og hins sósíalíska flokks Aks
els Larsen. í>á greiddu þyí at-
kvæði 16 þingmenn Vinstri
flokksins, 6 úr íhaldsflökknum og
háðir þingmenn Grænlands. Vek
ur það nokkra athygli að fulltrú-
ar Grænlandg voru hlynntir af-
hendingu, því að andstæðingar
afhendingar höfðu sérstaklega
mótmælt því að handrit sem fjöll
uðu um landnámið í Grænlandi
eins og Flateyjarbók yrðu afhent
íslendingum.
Móti frumvarpinu greiddu at-
kvæði flokksmenn fhaldsflokks-
ins 14 þingmenn Vinstri flokks-
ins og þingmenn óháða flokksins.
Frh. á bls. 23.
SÍS greiðir her-
kostnað kommúnista
I SAMNINGUM sem SÍS
hefur gert við Dagsbrún
er ákvæði um, að vinnu-
veitandi greiði sem svar-
ar 1% af dagvinnukaupi í
styrktarsjóð Dagsbrúnar.
í fyrri vinnudeilum hafa
samningamenn Dagsbrún-
ar oft gert kröfu um slíka
greiðslu, en henni hefur
ekki verið sinnt, þar sem
vitað er að fénu, sem
þannig safnaðist myndi
ekki varið í þágu óbreyttra
Dagsbrúnarmanna heldur
til að greiða áróðursher-
ferðir og önnur útgjöld
kommúnista.
Nú hafa þeir furðulegu
hlutir gerzt, að SÍS hefur
samið um að leggja í slík-
an styrktarsjóð. Ef aðrir
atvinnurekendur færu að
dæmi þeirra myndu a.m.k.
2 millj. kr. koma í sjóð-
inn árlega hjá Dagsbrún
einni. Ætti það að duga
fyrir álitlegri „friðarsókn“
eða öðru slíku.
Álit SÍS hefur staðið
höllum fæti í landinu
vegna sérréttinda þess, og
sízt mun álit þess aukast,
þegar það nú fer að
styrkja áróðursherferðir
kommúnista.
Verður Kennedy að
ganga við hækjur?
WASHINGTON, 10. júní. —
Horfur eru nú taldar á því
Styrkja Rússar 8Í8?
Athyglisverðar fjárgreiðslur í sambandi við olíuflutninga
„Hamrafells" fyrir þá
MORGUNBLAÐEÐ hefur
fregnað, að Rússar hafi á
síðasta ári og í byrjun þessa
árs, greitt SÍS u.þ.b. 6 «hill-
ingum hærra farmgjald en
samningsbundið var fyrir
olíuflutninga „Hamrafells“
ærá Rússlandi, enda þótt hið
umsamda verð sé nú tals-
vert hagstæðara en farm-
gjöld á heimsmarkaðinum.
Geta flutt að vild.
Olíukaupsamningunum við
Frh. á bls. 2
að Kennedy Bandaríkjafor-
seti verði að ganga við hækj
ur vegna meiðsla í mjó-
hryggnum, sem hafa tekið
sig upp. Kennedy hefur allt
frá því hann var í skóla haft
tilhneigingu til þursabits og
þegar hann lenti í svaðilförum
á stríðsárunum var hann svo
illa haldinn að setja varð
lítið járnstykki í bakið á
honum. —
Að þessu sinni tók bakverkur-
inn sig upp að nýju hjá Kennedy
er hann var í heimsókn í Kanada
Sumarblóm
á Austur-
velli
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
fyrir nokkru. >ar var Kennedy
eins og fleiri stórmenni, sem
heimsótt hafa Kanada, beðinn um
að planta tré fyrir utan stjórnar-
ráðið í Ottawa. Athöfn sú var
mjög hátíðleg og stóð Diefenhak
er forsætisráðherra hjá og horfði
á, þegar Kennedy mokaði mold
að plöntunni með lítilli skóflu.
Nokkrir viðstaddir tóku eftir þvi,
að Kennedy gretti sig allt í einu,
eins og af miklum og skyndileg-
um sársauka. Að öðru leyti tókst
honum að dylja kvalirnar.
Nú er það upplýst, að Kennedy
hafi allan tímann síðan þjáðst af
bakverk og hafi þetta fengið nokk
Frh. á bls. 23.