Morgunblaðið - 22.06.1961, Page 1

Morgunblaðið - 22.06.1961, Page 1
20 síðúr 48. árgangur 136. tbl. — Fimmtudagur 22. júní 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsins lirúsjeff hótar enn: Semjum frið við A.-þýzka- land fyrir árslok [ Fregnir um, að NATO-herdeildir verði 1 hafðar viðbúnar vegna Vestur-Berlínar ættir ínánd? Virðist ganga samran með Laos-prinsunum þrem í Zúrich Ziirich og Genf, 21. júní. —. (Heuter) —. FULLTRÚAR prinsanna Jjriggja, aðalstjórnmálaleið- toganna í Laos, sátu á fundi í Zúrich í dag, og að honum loknum upplýsti Phoumi Nosavan hershöfðingi, varn- armálaráðherra í stjórn Boun Oum, að verulega hefði nú þokazt í átt til samkomulags milli aðilanna þriggja. Aðal- ágreiningsefnin nú væru þau, hvernig væntanleg sam- steypustjóm þeirra skyldi skipuð og sömuleiðis sú krafa Souphanouvong, leið- toga Pathet Lao, og Sou- vanna Phouma, hálfbróður hans, sem er fulltrúi hlut- lausra, að fyrirhuguð sam- steypustjórn lýsi því yfir, að hún óski ekki eftir vernd Suðaustur-Asíu bandalagsins (SEATO). Á 14 ríkja ráðstefnunni um Laos krafðist fulltrúi Kanada þess, með stuðningi Bandaríkj- anna, að Rússland og Bretland, sem eiga forseta ráðstefnunnar, gerðu ráðstafanir í samráði við þriggja ríkja eftirlitsnefndina í Laos, til þess að nefndin fái flugvélar til afnota og annan þann útbúnað, er hún þarfnast. Phoumi Nosavan ræddi við blaðamenn eftir fund þann, sem fulltrúar prinsanna þriggja áttu í dag, og sagði að þeir hefðu rætt ýtarlega möguleika á myndun samsteypustjórnar í Laos og ráðstafanir til þess að tryggja frið í landinu og sjálf- 6tæði þess í framtíðinni. — Á morgun munu svo prinsarnir sjálfir væntanlega halda áfram umræðum á grundvelli þess, eem gerðist á fundinum í dag. Frh. á bls. 19 Moskvu og London, 21. júní. — (Reuter) — ÞÝZKALANDSMÁLIÐ var enn efst á dagskrá hjá Krús- jeff, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, er hann talaðl á miklum fjöldafundi í Moskvu í dag, sem haldinn var í til- efni þess, að 20 ár eru liðin frá því að herir Hitlers réð- ust inn í Rússland. — Var Krúsjeff allhvassyrtur í garð vesturveldanna á ýms- um sviðum — og sagði m.a., að Sovétríkin „og aðrar frið- elskandi þjóðir“ mundu und- irrita friðarsamninga við A- Þýzkaland við lok yfirstand- andi árs. Sextán ár væru nú liðin frá styrjaldarlokum, án | þess að friðarsamningar hefðu verið gerðir við Þýzka Iand. Væri sannarlega mál til komið að gera slíka samn inga, þótt „vesturveldin kjósi auðsjáanlega að við- halda styrjaldarástandi“. — ★ — Þá sagði Krúsjeff, að Sovét- ríkin ættu nú ýmis kjarnorku- vopn, sem þau gjarna vildu reyna — og mundu þau vissulega hefja slíkar tilraunir á nýjan leik, ef Bandaríkin gerðu það. Einnig mundu þau auka herstyrk sinn á ný, ef vesturveldin gæfu slíkt fordæmi. Það er haft eftir heimild- um í London, sem vanalega hafa reynzt áreiðanlegar, að vesturveldin íhugi það nú, eftir hótanir þær, sem fram Framh. á bls. 2 EKKERT umræðuefni mun | vera eins almennt í Banda- J ríkjunum eins og heilsa 1 Kennedys forseta, siðan bak- verkurinn heltók hann fyrir rúmum mánuði. Menn spyrja, hvort hann muni e. t. v. enn á ný þurfa að ganga undir uppskurð — eins og 1954, en ekki er fyllilega upplýst, hvort hið gamla bakmein hans hefir tekið sig upp, eða hvort hér er um eitthvað nýtt að ræða. — Margir eru áhyggju- fullir — og tala um, að það virðist álög á æðstu embættis mönnum Bandarikjanna að vera meira og minna heilutæp ir. Og það er vísað til for- setanna Roosevelts og Eisen- howers, Herters, fyrrum utan- ríkisráðherra og fleiri. Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var 16. þ.m., sést Kennedy forseti með fylgdar- liði sínu á leið til fundar, þar sem han skyldi halda ræðu. Hann verður nú að láta sér '. lynda að tala úr sæti sínu — * það er fyrirskipun læknisins. Þrír vildu hindra samninga Hiíf semur um dháðan styrktarsjdð Fær 1°/« aukahækkun en effirvinnuálag áfram 50% Fundur í Hlíf kl. 4 í Bæjarbíói A TÓLFTA tímanum í gær- kvöldi tókust samningar milli samninganefndar Verka mannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði og vinnuveit- enda. Verða samningar þess- ir bornir undir félagsfundi aðila í dag. Fundurinn í Hlíf verður haldinn í Bæjarbíói kl. 4 síðdegis. Meginefni hinna nýju samn inga eru þau að vinnuveit- endur greiða 1% af dag- vinnukaupi í styrktarsjóð Hlífar og verður sá sjóður undir stjórn þriggja manna, þar sem einn ef tilnefndur af Hlíf, einn af vinnuveit- endum og sá þriðji af Hæsta rétti. Þá varð samkomulag um það að eftirvinnuálag yrði ekki 60% eins og áður var um rætt lieldur óbreytt, þ. e. 50%, en í stað þess yrði kauphækkun 1% meiri. — Þannig er hcildarkauphækk- unin 11% samkvæmt sam- komulaginu beint til verka- manna auk framlagsins í styrktarsjóð. Þá fá verka- menn 6% orlof af öllu kaupi. Samningurinn gildir til 1. júní 1962 og framlengist síð- an um 6 mánuði í senn en verði honum ekki sagt upp miðað við þann tíma hækk- ar allt kaup um 4%. Ef samkomulag þetta verður samþykkt af félög- unum verður verkfallinu í Hafnarfirði aflétt í dag. f GÆR var haldinn söpilegur fundur í stjórn Verkamannafé- lagsins Hlífar í Hafnarfirði. Þangað komu þeir Hannibal Valdemarsson forseti A.S.Í. og Eðvarð Sigurðsson formaður Dagshrúnar. Eftir miklar deilur i stjórninni var gerð samþykkt um að ganga til samninga við vinnuveitendur á þeim grundvelli, sem nánar er skýrt frá á öðrum stað í blaðinu. Þegar samþykkt þessi hafði verið gerð sögðu 3 af 7 stjórnar- mönnum sig úr Stjórninni af illsku út af því að leysa ætti vinnudeiluna. Lásu þeir upp langa greinargerð, sem að mestu var samansafn svívirðinga um formann félagsins. Má þvi búast við að kommún- istar efni til átaka á Hlífarfund- inum í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.