Morgunblaðið - 06.07.1961, Side 20
FANCAHJÁLPIN
Sjá bls. 8.
rogfttttMðfrifr
ÍÞRÓTTIR
Sjá bls. 18.
148. tbl. — Fimmtudagur 6. júlí 1961
Björgunarafrek á síldarmiðunum:
Komst til meðvitundar eft-
ir 4 klst. lífgunartilraunir
RAUFARHÖFN — Sá at-
burður gerðist á síldarmið-
unum á Rifsbanka í fyrri-
nótt, er vélbáturinn Hávarð-
ur ÍS 160 var í þann veginn
að kasta, að maður féll út-
byrðis af bátnum. Skipstjór-
inn, Sigurður Brynjólfsson
frá Keflavík, varpaði sér þeg
ar til sunds til að bjarga
manninum, Haraldi Jóns-
syni. Tókst honum að ná til
Haraldar, sem þá var
orðinn meðvitundarlítill og
hafði drukkið mikinn sjó.
Skipstjóra gekk björgunin
erfiðlega, þar sem illt var að
athafna sig og nokkur hluti af
nótinni úti. Tókst að ná báðum
Caronia hefur komið í
10 ár ■ rigningu og þoku
í GÆR var hér í Reykjavík stóra
enska skemmtiferðaskipið Caron-
ia, sem hefur komið hér árlega
4., 5. eða 6. júlí með um 540
farþega sl. 10 ár. Það er einkenni
legt, en engu að síður rétt, að
þann dag sem Caronia hefur
stanzað á íslandi, hefur alltaf
verið einhver úrkoma, rigning
eða skúrir, þokuveður og skyggni
farið niður í ekki neitt. Veður-
stofan gekk úr skugga um þetta
fyrir nokkru. Skárst var veðrið
1959, en þó ekki þurrt. Það er
leitt til þess *ð vita að allur
þessi sægur af ferðafólki, á 6. þús
und manns, skuli ekki hafa séð
svo mikið sem Esjuna í sólskini.
Með .skipinu í gær voru mest
Bandaríkjamenn. Ferðaskrifstofa
ríkisins sá um fyrirgreiðslu hér.
Skipið kom snemma morguns og
átti að fara kl. 11,30 í gærkvöldi.
Fóru farþegar til Þingvalla og
um Hveragerði eða skoðuðu bæ-
inn, heimsóttu söfn og horfðu á
glímu í Melaskólanum.
Gripsholm í dag
I dag er svo væntanlegt sænska
stórskipið Gripsholm með 425
farþega, sem einnig eru mest
Bandaríkjamenn. Ferðaskrifstofa
Géirs Zoega sér um farþegana og
mun áformað að þeir fari hring-
inn til Þingvalla og Hveragerðis.
Síldar-
bræðslur
Norðmanna
f SKEMMTILEGRI grein, sem
'fyrir nokkrum dögum birtist
í „Bergens Tidene“ og aðal-
lega fjallar um síldveiðar'
Norðmanna á miðum við ís-
land, kemur fram, að í Noregi
eru nú um 100 síldarbræðslur
metnar á um 400 milljónir
norskra króna. Geta þær unn-
_ið úr 515.000 hektólítrum af
;síld á sólarhring. í meðalsíld-
arári eru þessar verksmiðjur
í gangi 22 sólarhringa. Alla
aðra daga ársins standa þær
óhreyfðar.
í vetur veiddust 7—800.000
hektólítrar. Ef allar síldar
bræðslur hefðu fengið þennan'
afla til vinnslu og byrjað á
sömu stundu, hefðu þær getað
lokið bræðslunni á hálfum
öðrum sólarhring.
Sumaríerð
Vorðor 23.
)Ull
HIN ÁRLEGA sumarferð
ÍLandsmálafélagsins Varðar
verður farin sunnudaginn 23.
júlí n.k. — Nánar auglýst síðar
r
Islandsmynd
fyrir ferðamenn
KVIKMYNDATÖKUMENN frá
erlendum sjónvarpsstöðvum hafa
verið óvenju tíðir gestir hér í
sumar. Þeir hafa komið frá Frakk
landi, Bandaríkjunum og Bret-
landi. Hingað er einnig von á
sjónvarpsmönnum frá Belgíu og
taka þeir myndir fyrir öll Bene-
liux-löndin. Þá kemur hingað
heimsfrægur þýzkur kvikmynda
tökumaður, Alfred Erhard, og
tekur „íslandsmynd" á vegum
Ferðamálafélagsins og flugfélag
anna. Þessi mynd verður notuð til
landkynningar erlehdis. Það er
sagt um Erhard, að hann hafi
með einni kvikmynd gert Portú
gal að ferðamannalandi. Þvílík
sé snilld hans á þessu sviði.
mönnunum frá bátnum, og var
þá sá, sem fallið hafði útbyrðis,
meðvitundarlaus, og skipstjóri
missti meðvitund í sama mund.
Til meðvitundar eftir 4 kist.
Lífgunartilraunir voru þegar
hafnar á báðum mönnunum, og
jafnaði skipstjóri sig brátt. Lífg
unartilraunum var haldið áfram
á hinum manninum, og sást
fyrst lífsmark með honum eftir
klukkutíma, en til meðvitundar
komst hann ekki fyrr en eftir
fjögurra klukkutíma lífgunartil-
raunir. Hafði báturinn á meðan
siglt með fullri ferð til lands.
Er í land kom tók læknir á
móti bátnum, og dældi hann sjó
upp úr Haraldi, sem nú er í
landi, og líður eftir atvikum
eftir volkið.
Sigurður skipstjóri hélt hins
vegar þegar af stað aftur á
miðin, og þykir hér karlmann-
lega að verið. — E.
Engor tnl-
stöðvaviðgeiðiij
Raufarhöfn, 5. júlí
MIKIL óánægja rikir nú með
al sjómanna hér vegna þjón-
; ustu Landssímans varðandi
;ialstöðvar síldarbátanna. Svo
sem kunnugt er eru talsstöðv
arnar í eigu Landssímans, en
svo virðist sem Landssíminn
hugsi ekkert um viðhald stöðv
ianna. Á Raufarhöfn er nú eng
inn viðgerðarmaður, né held-
ur nokkrar varahlutabirgðir,
og virðist sem Landssíminn'
hafi daufheyrzt við öllum
'kvörtunum sjómanna í þess-,
um efnum. — E.
Dr. Dirk U. Stikker.
Stikker kemur
í heimsókn
FRAMKVÆMDASTJÓRI Atlants
hafsbandalagsins, Dr. Dirk U.
Stikker dvelur hér á landi dag
ana 17. og 18. júlí. Er þetta
fyrsta opinbera heimsókn hans
til íslands frá því er hann tók
við framkvæmdastjórn, en áður
hefur Dr. Stikker komið hingað
nokkrum sinnum sem sendiherra
Hollands. Dr. Stikker mun ræða
við forseta íslands og ríkisstjórn.
Búizt var við góðri veiði í nótt
en færri skip eru a miðunum vegna
löndunarerfiðleika — sleitulaus söltun
GÓÐ VEIÐI var á síldarmið-
unum í fyrrinótt og sæmileg
í gærdag og komu alls 20
skip til lands með samtals
13.500 tunnur síldar frá kl. 8
í gærmorgun til kl. 11 í gær-
kvöldi. Veður var gott á mið
unum í gærkvöldi, lyngt en
þoka. Er blaðið fór í prentun
Landhelgisbrot
tafði ferðafólkið
SKAGASTRÖND, 5. júlí. Síðan í
fyrrakvöld hefur beðið hér hópur
af ferðafólki frá Ströndum eftir
því að komast heim. Það hafði
verið á landsmóti UMSÍ að Laug
um um síðustu helgi. Varðskipið
Þór var á leiðinni til Skaga-
strandar til að flytja fólkið vest-
ur, þegar hann hitti brezka land
helgisbrjótinn á Skagagrunni, og
olli það töfinni. Þór kom svo
hingað í morgun og flutti ferða-
fólkið heim. — Þ. J.
skömmu eftir miðnætti höfðu
allmörg skip kastað á síld, og
sum fengið góð köst. Guð-
björg frá Sandgerði hafði þá
fengið geysigott kast við Kol-
beinsey, og var að biðja um
hjálp til að ná upp síldinni.
Bjuggust menn við góðri veiði
í nótt, en færri skip eru nú á
miðunum en í fyrrinótt sök
um erfiðleika við löndun.
Á Siglufirði og Raufarhöfn var
saltað sleitulaust í gær og nótt,
en frá því kl. átta á þriðjudags
morgun til átta í gærmorgun lönd
uðu 72 skip samtals 53.700 tunn
um. Þar af fóru til Raufarhafnar
20 skip með 13.400 tunnur.
__ Heildarsöltunin rúmlega
Á miðnætti í fyrrakvöld nam
heldarsöltunin á öllu landinu
150.546 tunnum og höfðu þar af
verið saltaðar á Siglufirði 92.898
tunnur. Á sama tíma í fyrra nam
heildarsöltunin fyrir norðan að-
eins 6.448 tunnum.
„Domus Medica64 verður
við Egilsgötu
BÆJARRÁÐ samþykkti fyrir
skömmu tillögu samvinnunefnd-
ar um skipulagsmál um staðsetn-
ingu á læknahúsi, Domus medica,
við Egilsgötu.
f . samtali við Mbl. skýrði
Bjarni Bjarnason læknir, formað-
ur stjórnar Domus medica, að í
1. áfanga hússins yrði m. a. fé-
lagsheimili með samkomusal,
bókasafn, skrifstofur og lækn-
ingastofur fyrir 10—20 lækna.
Þá sagði Bjarni, að bygging
læknahúss væri mjög þýðingar-
mikið mál fyrir læknasamtökin
í heild og ekki síður fyrir góða
læknisþjónustu við almenning.
Kvaðst hann telja, að með þess-
ari staðsetningu hefði fengizt góð
lausn á málinu.
Fyrir nokkrum árum var gerð
frumteikning að læknahúsi við
Miklatorg, en vegna mikillar um-
ferðai á þeim slóðum þótti ekki
fært að leyfa byggingu hússins
þar, þegar til kom. Sú lóð, sem nú
hefur fengizt er, eins og fyrr
segir, við Egilsgötu, á bak við
Skátaheimilið og nær að lóða-
mörkum heilsuverndarstöðvarinn
ar að vestan, en að norðan eru
mörkin enn óákveðin. Teikningu
hússins, sem þegar er hafin, ann-
ast arkitektarnir Gunnar Hans-
son og Halldór Jónsson.
Á sínum tíma stofnuðu Lækna-
félag íslands og Læknafélag
Reykjavíkur sjálfseignarfélag um
byggingu læknahússins, og var
sérstök stjórn skipuð til þess að
sjá um byggingu þess og málefni.
Stjórnina skipa nú auk formanns
hennar, Bjarna Bjarnasonar, þeir
Kristinn Stefánsson prófessor,
Jón Sigurðsson borgarlæknir,
Eggert Steinþórsson læknir Og
Bergsveinn Ólafsson augnlæknir.
Bráðlega saltað upp í
samninga
Búið er að semja um sölu á
230 þúsund tunnum af síld, að
mestu til Svíþjóðar og iFnn-
lands, svo og nokkru til Dan-
merkur og Noregs. Er því langt
komið að salta upp í gerða samn
inga.
Samningar standa nú yfir
við Rússa um kaup á síld,
en ekkert er hægt að segja
um þá að svo komnu máli.
Rússar sömdu um kaup á 60
þús. tunnum Norðurlandssíld
ar í fyrra, en ekki reyndist
unnt að uppfylla þann samn-
ing.
Á Siglufirði var saltað sleitu-
Iaust í gær og nótt, og var bú-
izt við að í nótt mundi heildar-
söltunin þar fara yfir 100 þús.
tunnur. Ekki hefur gefizt tími
til að hreinsa þar til á plönum,
Framh. á bls. 19.
Flotinn
gæti annað
200 þús.
tunnum
AÐ ÖLLU jöfnu hafa síldvelði*
skipin fyrir Norðurlandi verið
220—260 talsins, en útlit er
fyrir að þau verði nokkru
[færri í ár, eða um 200. Franr
til ársins 1958 var síldveiði-
skipunum gert að skrá sig hjá.
atvinnumálaráðuneytinu, og
eftir að síldveiðarnar voru
gefnar frjálsar, hefur verið'
erfitt að hafa nákvæma tölu á
fjölda skipanna fyrir norðan.
Fiskifélag íslands hefur skrá
yfir þau skip, sem fengið hafa'
'afla, en önnur ekki. Um tvö
hundruð skip eru nú á miðun
um, og mundu þau geta borið
um 1000 tunnur síldar til jafn
aðar, þannig að flotinn allur
’ gæti komið til hafnar með a.
m.k. 200 þús. tainnur í einu, ef
nægileg síld væri fyrir hendi.