Morgunblaðið - 07.07.1961, Síða 18
18
MORCVNBLAÐIÐ
Fösftídagur 7. júlí 1961
Dunriee vann verö-
skuldaðan sigur 3-1
Heimir forðoð/ stærri ósigri
L i S i n
DUNDEE vann KR í gær-
kvöldi með 3 mörkum gegn
1. Sigur Skotanna var fylli-
lega verðskuldaður og hefði
getað orðið stærri, en í veg
fyrir það kom fyrst og fremst
ágæt markvarzla Heimis
Guðjónssonar, sem á stund-
um varði mjög vel. í hálf-
leik stóð 1—0 fyrir Skotana
eftir nokkuð jafnan leik, en
er á leið síðari hálfleik höfðu
Skotarnir öll völd á vellinum
og sóttu nær óslitið.
• Jafnt í upphafi
Fyrsta stundarfjórðunginn var
leikurinn nokkuð jafn. Upphlaup
Skotanna vOru þó fleiri en þau
upphlaup sem KR-ingar náðu
voru öllu hættulegri án þess að
mark Skota kæmist í verulega
hættu, því þau skot sem tókst
að framkvæma fóru utan hjá
marki. Það dró mjög úir þunga
þeirra upphlaupa sem KR náði,
hve útherjarnir voru lélegir og
hafði KR nánast ekki nema
þriggja manna framlínu lengst af
í ieiknum, fyrir þá sök.
Spil KR inga var oft fyrir
þetta mjög þröngt og því ekki
eins hættulegt Skotunum.
• Skotar sækja sig.
Skozka liðið reyndist fram-
an af nolkkuð sundurlaust og
lék ekki hnitmiðað. En er liðið
hafði áttað sig á aðstæðum
breyttist leikur þess og í Ijós
kom að það er sikipað miklu
jaifnari mönnum en St. Mirren
liðið og sókn þess þyngdist stöð-
ugt. Vöm KR var oft grátt leik
in Og komst í margan vandann/
Hornspyxnur á KR voru mjög
tíðar — urðu 7 gegn 1 á Dundee
í fyrri hálfleik — en fáar sköp
uðu spymur þær hættu við KR
markið.
Eftir vel uppbyggð upp-
hlaup komust Dundee menn
oft í góð færi, en Heimir var
vel með, greip fallega inn í
þversendingar fyrir markið
og varði tvívegis mjög fallega
í fyrri hálfleik.
KR átti og sín tækifæri.
Bezt var það er Ellert komst
í gegnum vörnina, skaut
hörkufast að marki en mark-
vörður var öruggur og varði
vel.
Og mörkin létu standa á sér
unz 40 mín voru af leik.
0- I
Fyrir 'hreinan klaufa
jkap KR vamaxinn-
ar tóku Skotarnir forystuna.
Sveinn framvörður hafði knött-
inm við vítateiginn. Hann hugð-
ist gefa til Heimis markvarðar,
en gerði það mjög illa og Waddeli
miðherji komst í sendinguna og
skoraði með lausu skoti.
0-2
4 3. mín síðari hálf-
eiks skorar Penmann
annað mark Skota. Hann hljóp
inn í fallega sendingu Waddels
frá kantinum og skoraði af
2—3 m færi. Rétt áður hafði
Penmann átt hörkuskot sem
Heimir hálfvarði og var Waddell
með knöttinn í dauðafæri en
skaut yfir. Með þessari send-
ingu hefndi hann þeirra ófara.
| __ 2 KR-ingar hristu af
sér slenið og náðu
ágætum kafla eftir daufa byrj-
un í síðari hálfleik. Á 18. mín.
leiðir sú skorpa til marks. Gunn-
ar Felixsson braust í gegnum tvo
varnarmenn og komst einn inn-
fyrir. Sá þriðji sótti að honum
en hann renndi knettinum til
Þórólfs sem fylgdi vel og var i
dauðafæri. Hann skoraði af ör-
yggi af stuttu færi.
| ____ En lokasókn Skot-
* ** anna hófst fyrir mið_-
bik leiksins og stóð til loka. Á
37. mín skora þeir þriðja markið
og það fallegasta. Hinn frægi
Gordon Smith h. úth. einlék 40
m gegnum alla vörn KR og sendi
af öryggi í netið af 10—12 m
færi. Svona einleikur er sjald-
séður.
KR átti aðeins stutta lotu í
síðari hálfleik en utan hennar
sóttu Skotarnir látlaust, náðu
oft góðum tækifærum en mark
KR bjargaðist. Reyndi nú mjög
á Heimi og stóð hann sig af stakri
prýði — sýndi oft glæsileg til-
þrif.
Megingalli KR-liðsins í þessum
leik voru dauðir kantar — eink-
um sá hægri. Runnu mörg upp-
hlaup KR út í sandinn beinlínis
fyrir klaufaskap útherjanna.
Framherjarnir slepptu oft inn-
herjunum of lausum og leiddi
það til þess að 5 Skotar sóttu
leiftursnöggt að vörn KR.
Framan af tókst framherjun-
um oft að stöðva sókn Skota í
byrjun og átti Sveinn þá einkum
góð tilþrif. Þórólfur Beck. var
maður framlínunnar. Oft sýndi
hann meistaraleg tilþrif og sýndi
leikni sem var fyllilega sambæri-
leg við leikni atvinnumanna
Dundee. „3 milljón kr. maður-
inn“, Ure, sem gætti hans stíft
komst oft í hann krappan fram-
an af. En lengstum fékk Þórólf-
ur ekki tækifæri til að sýna
hæfni sína, því leikurinn fór fram
á hinum vallarhelmingnum.
Ellert vann vel — einkum fram-
an af, en úthaldsleysis Og seina-
gangs tók að gæta í lokin. Gunn-
ar var óvenju daufur og mistæk-
ur, en átti þó mestan þátt í
marki KR.
Vörn Dundee, var sterkari hluti
liðs þeirra og bar þó Ure mið-
vörður af. Hann er geisisterkur
og fljótur, traustur og öruggur.
Bakverðirnir fengu létt verk með
útherja KR. Framverðirnir náðu
völdum á vellinum er á leið og
framherjarnir urðu æ ágengari.
Smith útherji er bezti og hættu-
legasti maður „línunnar". öruggi
hans í knattreki er frábært svo
og samleikur hans við samherja
sína. Penman innherji er Og ákaf
lega traustur og góður leikmað-
ur. í hægri arminum var mun
meiri þungi en í þeim vinstrL
Haukur_ Óskarsson dæmdi og
skilaði því hlutverki vel — A.St.
Ánægðir
með
Þórólf
MEÐAL gesta í heiðursstúku
Laugardalsvallarins í gær var
framkvæmdastjóri St. Mirren
liðsins. Hann kom hingað í
þeim erindagjörðum einum að
sjá hæfni Þórólfs Beck.
Við hlið hans sat íþrótta-
fréttamaður frá einu blaði í
Dundee, sem hingað kom til
að segja Dundee-búum frá
leikjum liðs þeirra hér.
Mbl. hitti íþróttafrétta-
manninn í leikhléi. Hann
kvaðst undrandi á getu ís-
lendinga í knattspyrnu og
sagði að hún væri langt um-
fram það sem hann hefði bú-
izt við.
Hann sagði að framkvæmda
stjóri St. Mirren væri mjög
ánægður með það sem hann
þá hefði séð til Þórólfs. Þór-
ólfur væri óvenjulega leikinn
knattspymumaður, sameinaði
það vel að vera sjálfur
hættulegur og að skapa sam-
herjum sín góð færi.
Austurríki
hefur valið lið sitt
12. OG 13. JÚLÍ fer fram í Ósló
„sex landa keppni“ í frjálsum
íþróttum. Mætast þar 3 lið frá
Noregi, lið íslendinga, Dana og
Austurríkismanna. í hverri grein
keppir 1 maður frá hverju landi
(nema frá Noregi 3 .menn). ísl.
liðið hefur verið valið og frá
því sagt hér. Nú hefur Austur-
ríki valið sitt Og er það þannig:
100 og 200 m Noster, 400 m
Pattermann, 800 m Klaban, 1500
m Tulzer, 5000 m Steinbach,
10000 m Lackner, 110 m gr. hl.
Flaschenberger, 400 m gr.hl.
Haid, 3000 m hindrunarhl. Ganzl,
hástökk Donner, langstökk Muc-
hitsch, þrístökk Batik, stangarst.
Gratzer, kúluvarp Poetsch,
kringluk. Köppel, spjótk. Deböuf,
4x100 m boðhl. Noster, Flaschen-
berger, Hrandek, Kunauer og
4x400 m boðhl. Klaban, Haid,
Herle og Pattermann.
Vilhjálmur varö þriðji
Heimsókn
KFUM-Boldklub
III. fl. frá KFUM-Boldklub frá
Kaupmannahöín hefur dvalið
hér að unctanfömu í boði Vals.
Flokkurinn hefir leikið hér þrjá
leiki, fyrst við Val og sigraði
þá með 4 mörkum gegn 2, þá
við Fram en sá leikur endaði
með jafntefli án þess að mark
yrði skorað, síðan við KR og
sigruðu gestirnir með 4—1. í
kvöld leiba svo Damirnir fjórða
og síðasta leik sinn hér að þessu
sinni, og afbur við Val. Fer leik
urinn fram á Laugardalsvellin-
um og hefst kl. 8.30.
Dönsku piltamir gista í félags-
heimili Vals að Hlíðarenda, en
borða á heimilum Valsmanna úr
III. fl.
f næsta mánuði mun III. fl.
Vals endurgjalda þeim heim-
sóknina og verða gestir þeirra í
Kaupmannahöfn.
Flokkurirm heldur heimleiðis
með Gullfossi á morgun.
— í þrístökki
F J Ó R I R ísl. frjálsíþrótta-
menn eru nú í Helsingfors
og taka þar þátt í stórmóti
miklu sem hlotið hefur nafn-
ið ,,heimsleikarnir“ þar sem
þangað er boðið öllum Olym-
píusigurvegurum frá Róm
auk fjölda annara íþrótta-
manna. íslendingum hefur
ekki gengið vel — aðeins
einn er nefndur í fréttastofu
skeytum. Það er Vilhjálmur
Einarsson, sem varð þriðji í
þrístökki með 15.57 m. Val-
björns, Guðmundar Her-
mannssonar og Kristleifs er
ekki getið.
Árangur á mótinu er lakari yf-
í tflelsingfors
irleitt en búizt var við. Einkum
á það við er litið er á 6 manna
úrslit í heild, en þau eru þann-
ig í gær:
Þrístökk: Schmidt Póllandi
16,26 (vallarmet), 2. Rakhamo
Finnlandi 15,59, 3. Vilhjálmur
15.57, 4. Patarinski Buigariu 15.33
5. Tamminen Finnlandi 15,20.
Þess má geta að um árabil
hefur Kakhamo verið í
fremstu röð þrístökkvara.
Hann hefur stokkið yfir 16,40
lengst og komizt mjög langt
á ýmsum stórmótum.
Stangarstökk: Laufer A-Þýzkl.
4.55, Preussger A-Þýzkl. 4,45, 3.
Anko Finnl. 4,35, 4. Sutinen
Finnl. 4.35, 5. Tomasek Tékkósl.
4,35, 6. Nikula Finnl. 4.20.
10.000 m hlaup: 1. Magee Nýja
Sjál. 28.50,8, Power Ástralíu
28.56.6, Onentia Kenya 29.14.0,
Bullivant Engl. 29,19,0, 5. Vragg
Ástralíu 29,43,6,6. Oksanen Finn-
landi 30,18,8.
Sleggjukast: Cieply Póll. 63,18,
2. Nikulin Rússl. 62,28, Zsivitzky
Póll. 62,04, 4. Lawlor Irlandi 61,22
Razic Júgósl. 61,04.
400 m gr. hl.: — Rintameki
Finnl. 51,6, 2. Wagner Þýzkalandi
53.0, Ehoniemi Finnl. 53,7.
300 m hindrunarhlaup: Buhl A-
Þýzkal. 8,39,8, Kryzkowiak Póll.
8.41.6, 3. Tedenby Svíþjóð 8,50,4,
4. Siren Finnl. 8.50,6, 5. Karvonen
Finnl. 8,58,6, 6. Ellefsæter Noregi
9.15.6,
200 m hlaup: Jones Engl. 21,3,
2. Amu Nigeria 21,3, 3. Antao
Kenya 21,4, 4. Ejoke Nigeríu 21,6,
5. Jeffrys S.-Afríku 21,8, 6. Davis
S.-Afríku 22,3.
— Kuwait
Framh. af bls. 1
bandslýðveldisíhs til máls í Ör-
yggisráðinu í dag.
★ Kassim viðurkennir
Fulltrúi Kuwait, Abdul Azis
Hussein, mótmælti því að írak
ætti kröfu til landsins og benti
m.a. á að Kassim forsætisráð-
herra Iraks hefði sjálfur viður-
kennt sjálfstæði landsins. Hefur
Kassim ritað Kuwaitfursta bréf
þar sem hann ræðir um „löndin
okkar tvö“ og leggur til að lönd-
in skiptist á ræðismönnum. Hann
sagði að Kuwait væri sjálfstætt
ríki, sem ógnað væri af öflugri
nágranna, en að brezku hersveit-
irnar þar yrðu kallaðar heim
strax er öryggi landsins hefði
verið tryggt.
Bandaríski fulltrúinn, Francis
Plimpton sendiherra, lýsti því
yfir að Bandaríkin litu á Kuwait
sem sjálfstætt, fullvalda ríki og
mundu styðja umsókn Kuwait
um inntöku í SÞ. Sagði hann að
Bretar hafi gert rétt í því að
verða við bón Kuwait um að
sendá herlið til landsins og fagn
aði jafnframt yfirlýsingu Brela
um að þeir kalli herlið sitt burt
úr landinu jafnskjótt og furstinn
telur því ekki lengur hætta búin
frá írak.
★ Breta burt!
Fulltrúi fraks, Adnan Pacha
chi, endurtók þá kröfu sína frá
í gær, að öryggisráðið beiti sér
fyrir því að Bretar kalli herlið
sitt strax burt frá Kuwait. Sagði
hann að dvöl brezka hersins í
Kuwait stefndi friði Og öryggi
við botn Persaflóa í voða. Þá
endurtók Pachachi þá staðhæf-
ingu að Kuwait væri hluti af
frak og neitaði með öllu að við-
urkenna sjálfstæði þess.
Valerian Zorin, fulltrúi Sovét-
ríkjanna, tók undir kröfuna um
brottflutning brezka hersins frá
Kuwait. Ekki lét Zorin í ljós
hverjum augum hann liti kröfu
íraks til Kuwait, en sagði hins
vegar að varla gæti Kuwait talizt
sjálfstætt meðan það væri „her-
numið“ af Bretum. ,
Omar Loutfi, fulltrúi Arabiska
Sambandslýðveldisins, lýsti því
yfir að hann teldi að leysa bærí
Kuwaitmálið samkvæmt grund-
vallarreglum Arababandaiagsins
og án utanaðkomandi afskipta.
★ Herskip til Aden
í fréttum frá London segir að
sex brezk herskip hafi í dag
siglt um Súezskurð, þeirra á
meðal flugvélamóðurskipið Cent
aur, sem er 22.000 lestir að
stærð. Ekkert var gert til að
tefja för herskipanna um skuið-
inn þrátt fyrir kröfu Arabiska
Sambandslýðveldisins um að
Bretar kalli herlið sitt heim frá
Kuwait. Skipin sigla nú til Aden
á suðvesturodda Arabíuskaga og
verða þar viðbúin kalli frá Ku-
wait ef ástandið versnar í land-
inu.
í þessu sambandi hefur brezka
hermálaráðuneytið tilkynnt að
óþarfi sé að flytja meira herlið
til Kuwait. Þar eru nú um 5.000
brezkir hermenn auk herliðs Ku-
wait og sveita frá Saudi Arabíu.
Hins vegar sé veðráttan þannig
að oft verði að skipta um menn,
því brezku hermennirnir þoli illa
hitann. Brezka stjórnin segir að
enn berist fréttir um liðflutninga
íraks til landamæra Kuwait. Að
alliðsöfnunin er hjá Basra og
Shaiba. Kveðst ríkisstjórnin
skilja það að dvöl brezka hersins
í Kuwait komi írakstjórn illa.
Muni Bretar fúslega samþykkja
að hersveitir SÞ taki við af
brezka hernum í Kuwait. Hins
vegar sé ekki unnt að hafa Ku-
wait varnarlaust gegn ógnunum
fraks.