Morgunblaðið - 18.07.1961, Side 18
i.
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. júlí 1961
18
★ ÍÞRÓTTIH ★
3 mef
seft
í sundi
(JHET Jastremski frá Oliio
setti um helgina tvö heims-
met í sundi á móti í Evans-
ville i Indiana.
Hann synti 100 m bringu-
sund á 1.09.8 og bætti 4 ára
gamalt met Rússans Min-
askins um 1,7 sekúndu.
Á laugardag synti harm-
200 m bringusund á 2.35.3, en
það er 1.3 sek. betri tími en
fyrra heimsmetið sem Ástralíu
maðurinn Gatherhole átti.
Á sunnudaginnr setti svo
kanadisk stúlka Mary Stew-
art nýtt heimsmet í 100 m
flugsundi kvenna. Tími henn-
ar var 1.10.7 og náðist á móti
í Vancouver.
KR, Valur og Akur■
eyri sigruðu
ÞESSI mynd er tekin á Islands
mótinu í útihandknattleik
kvenna. Mótinu lýkur 20. júlí
en leikir þess hafa verið marg
ir hverjir jafnir og skemmti-
legir, og í þeim barist af
hörku eins og mynd Sveins
Þormóðssonar sýnir.
ÞRÍR leikir íslandsmótsins í 1.
deild hafa farið fram um þessa
helgi. Á sunnudagskvöldið mætt
ust Vaismenn og Akumesingar á
Eaugardalsvellinum og fóru Vals-
Danir og KR
keppa í kvöld
á Meiavellmum
Danir og KR á Melavellinum 333
HÉR eru nú staddir knattspyrnu
menn danskir, sem hingað era
komnir í boði Vals og er heim-
sóknin liður í 50 ára afmælishá-
tíðahöldum félagsins. Er þetta
annað danslca liðið sem sækir
yngri félaga Vals heim. Þetta er
lið frá Lyngby Boldklub, en það
er eitt stærsta og fjölmennasta
félag yngri leikmanna í Dan-
mörku hefur 450 pilta starfandi
í 19 liðum.
Liðið er mjög gott og á glæsi-
legan leikferil að baki. Þeir hafa
þegar leikið hér einn leik við B-
lið Val og sigruðu dönsku piltarn
ir með 4—0. Sýndu þeir mjög
fallega knattspymu.
En fyrsti reglulegi leikur liðs-
ins verður í kvöld a Melavellin-
um og mætir liðið þá KR (2. fl.)
Um næstu helgi leika Danirnir
svo í Vestmannaeyjum, en þar er
eitt sterkasta 2. flokks lið lands-
ins um þessar mundir.
f sfirðingar
sigr uðu
ísafirði, 17. júlí
ÍSFIRÐINGAR og Breiðablik
kepptu í knattspyrnu á ísafirði sl.
laugardag í sambandi við ís-
landsmótið í 2. deild. Leikar fóru
þannig að ísfirðingar sigruðu
með 4 mörkum gegn 3. Á sunnu-
dag léku sömu lið aukaleik. Sigr-
uðu ísfirðingar þá einnig með 3
mörkum gegn 2. — AKS.
menn með sigur af hólmi, skor-
uðu 3 mörk gegn 1.
Valsmenn náðu frumkvæði x
leiknum strax í upphafi og í hléi
stóðu leikar 3 gegn 0. Var sigur
Vals í leiknum verðskuldaður,
en leikurinn var ekki sérlega vel
leikinn og þófkenndur á köflum.
• Akureyri — Hafnarf jörður
Á sunnudaginn léku Hafnfirð-
ingar og Akureyringar á Akur-
eyri. Akureyringar unnu auð-
veldan sigur, skoruðu 6 mörk
gegn 1. Leikurinn var heldur
dauflegur samt og þyngslalegur
hjá báðum liðum.
• KR — Fram
í gærkvöldi mættust KR og
Fram á Laugardalsvellinum.
Mikillar hörku gætti í leiknum
Og lítið sást af góðri knattspyrnu.
KR skoraði 2 mörk gegn 0. í hálf-
leik stóð 1:0.
Golfmeistaramóti íslands lauk
á Akureyri um helgina. Akureyr
ingar urðu mjög sigursælir í
þessu móti og báru sigur úr být
um ■ öllum flokkum. 1 meistara-
flokki og 1. flokki voru leiknar
72 holur og urðu úrslit scm hér
segir:
Meistaraf Iokkur:
íslandsmeistari: Gunnar Sólnes,
Ak, 322 h. 2) Gunnar Konráðs-
son, Ak, 332 h. 3) Hafliði Júlíus
son, Ak, 332 h. 4) Sigtryggur Júl-
íusson, Ak, 334 h. 5) Óttar Yngva
son,R, 335 h. 6) Jóhann Eyjólfs-
son, R, 337 h. 7) Hermann Ingi-
marsson, Ak, 340 h. 8) Helgi
Jakobsson, R, 344 h. 9) Pétur
Björnsson, R, 345 h.
1. flokkur.
1) Bragi Hjartarson, Ak, 350 h.
Skíðamóf á
miðri síldar-
vertíð
SIGLUFIRÐI, 17. júlí. — Sl.
sunnudag var skíðamót haldið í
Siglufjarðarskarði. Þykir það tíð-
indum sæta í miðjum júlímánuði
og meðan síldarvertíð stendur
sem hæst. Keppendur voru frá
ísafirði, Siglufirði og úr Reykja-
vík.
Keppt var í svigi karla. Fyrst-
ur var Svanberg Þórðarson úr
Reykjavík á 86 sek., tvöföld um-
ferð, annar var Árni Sigurðssön
fná ísafirði á 86,3 sek. og þriðji
Bogi Nilsson frá Siglufirði á 88,9
sek.
Veður var ágætt og nægur
snjór. — Stefán.
2) Jóhann Guðmundsson, Ak, 352
h. 3) Ragnar Steinbergsson, Ak,
353 h.
2. flokkur. »
1) Sævar Gunnarsson, Ak, 191
h. 2 )Stefán Árnason, Ak, 196 h.
3) Jón Guðmundsson, Ak, 202 h.
John Konrads
til Randaríkjanna
HINN heimsfrægi sundmaður,
John Konrads frá Ástralíu, sem
sigraði í 1500 m sundi Rómarleik
anna er nú á förum til Bandaríkj
anna. Hefur hann hlotið 3ja ára
námsstyrk við Suður-Kaliforníu
háskólann.
Golfmeistaramótið:
Akureyringar unnu
í öllum greinum
Hannes Kr. Hannes-
son málarameistari
í DAG verður til möldar bor-
inn góðkunnur Reykvíkingur,
Hannes Kr. Hannesson, málara-
meistari. Hann lézt hinn 13. þ.m.
tæplega sjötugur að aldri.
Hann var fæddur hér í bænum
8. okt. 1892, sonur hjónanna
Kristínar Árnadóttur og Hannes-
ar Hannessonar.
Um þær mundir sem Hannes
var í heiminn borinn, voru að
gerast merkileg þáttaskil í sögu
Reykjavíkur. Þá var að hefjast
nýtt tímabil í atvinnuháttum
bæjarins, einkum hvað sjávarút
veginn snerti, og átti véltæknin
þar drýgstan hlut að máli. Þessi
þróun atvinnulífsins, sem eins
mætti kalla byltingu, hlaut óhjá-
kvæmilega að draga að sér mjög
aukið vinnuafl, enda fjölgaði bæj
arbúum þá mjög ört ár frá ári.
í kjölfar þessa sigldu svo miklar
byggingarframkvæmdir, bæði
íbúðarhúsa og annarra bygginga
í sambandi við hina stórauknu
útgerð. Fól'ksfjölgunin leiddi svo
af sér margháttaða atvinnumögu-'
leika; mikil vinna skapaðist við
hverskonar verzlun, mikil þörf
varð einnig fyrir iðnaðarmenn,
bæði vegna byggingarfram-
kvæmda svo og vegna almennrar
þjónustu, sem vaxandi bæjarfé-
lag hlýtur að krefjast.
Á yngri árum sínum var
Hannes heitinn leng^ í póstferð-
um með hinum kunna pósti Hann
esi Hanssyni, hér austur um
sveitir. Jafnframt því fór hann
einnig að vinna að húsamálun,
en mun ekki hafa snúið sér að
þeim störfum eingöngu fyrr en
hann fór að vinna hjá Lauritz
Jörgensen, málarameistara, er
hann var að mála hús Nathan &
Olsen, sem nú er Reykjavíkur
Apótek. Var það síðan hans ævi-
starf.
Hannes var liðlega meðalmað-
ur á vöxt, samsvaraði sér vel og
yfirbragð hans bjart og glaðlegt.
Hann var hið mesta snyrtimenni
og háttvís í allri umgengni, og
báru öll vinnubrögð hans mjög
keim af þeim eiginleikum. Hann
var hinn mesti iðjumaður, sem
aldrei lét neitt tækifæri ónotað
til vinnu, Og stundvís með afbrigð
um. Vinnufélagi var hann ágæt-
ur, gamansamur óg hnyttinn í
órði, en gat þó skipt skapi ef
hinum mislíkaði eitthvað Og gat
þá verið fastur fyrir.
Hannes starfaði um áratugi í
Slökkviliði Reykjavíkur. Reynd-
ist hann þar hinn ötulasti maður,
Og var jafnan skipað þar í sveit,
sem mest reyndi á þrek og ör-
yggi. Marga hefi ég heyrt tala
um það hve viðbragðsfljótur
hann var þegar brunakall kom.
Hann skildi vel að hver mínúta
gat ráðið miklu um það, hvort
takast rriætti að forða stórtjóni og
kannske mannslífum.
Það er naumast hægt að gera
sér grein fyrir mikilvægi þess
starfs, sem ötull slökkviliðsmað-
ur innir af hendi fyrir bæjarfé-
lag sitt og samborgara. Á þetta
þó einkum við hér fyr á tímum,
meðan flest hús voru úr timbri,
Og eldfæri öll og ljósbúnaður
með þeim hætti, að margföld elds
hætta var að, miðað við það sem
nú er, jafnframt því sem öll tæki
Og aðbúnaður slökkviliðsins var
lakari.
Vegna þessa starfs, svo og fyrir
hin daglegu störf sín sem iðnað-
armaður, var Hannes velþekktur
borgari og vinmargur.
Mörgum Reykvíkingum er vafa
laust enn í minni hin frostkalda
vetrarnótt er Hótel ísland brann.
Segja má að þá hafi miðbærinn
verið í bráðri eldshættu, enda
þótt slökkviliðsmönnum tækist
þá með fádæma dugnaði og
hreysti að stöðva útbreiðslu elds-
ins. Það mun hafa verið síðasti
stórbruninn, sem Hannes barðist
við með félögum sínum, og hlífði
sér þá hvergi þótt kominn væri
af léttasta skeiði. Þá varð líka
mönnum starsýnt á hann um
morguninn, eftir næturlanga bar
áttu við þennan mikla eldsvoða,
þar sem hann stóð í klakabrynju
frá hvirfli til ilja, en brosandi
og glaðlegur á svip yfir unnum
sigri.
Hannes kvæntist 24. júli 1920,
eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu
Kristmundsdóttur. Eignuðust þau
þrjú börn, sem öll eru á iifi:
Dagmar, gift Guðmundi Þorleifs
syni, skipstjóra; Sigrún, gift Ás-
geiri Péturssyni, lögfræðingi og
Valgeir, málarameistari, kvænt-
ur Ásdísi Árnadóttur.
Nú er þessi mæti Reykvíkur
horfinn af sjónarsviði okkar, eftir
langan og gifturíkan ævidag.
Hann sá Reykjavík va»:a úr smá
þörpi í stórborg, og hann hafði
sjálfur alla tíð lagt drjúgan
skerf fram til þess að svo mætti
verða. Þess vegna munu margir
minnast hans með hlýhug og
þakklæti.
Ég kveð svo þennan gamla vin
minn með góðar minningar í
huga, um leið og ég votta fjöl-
skyldu hans og öðru venzlafólki
samúð mína.
Jökull Pétursson.
— Síldarskýrslan
Framh. af bls. 3
Pétur Sigurðsson Reykjavík 6525
Rán Hnífsdal 3483
Reykjaröst Keflavík 1698
Reynir Vestmannaeyjum 3002
Reynir Akranesi 4505
Runólfur Grafarnesi 4000
Seley Eskifirði 4091
Sigrún Akranesi 2515
Sigurbjörg Búðakauptúni 1375
Sigurður Akranesi 4514
Sigurður Siglufirði 5856
Sigurður Bjarnason Akureyr! 4169
Sigurfari Vestmann^eyjum 2751
Sigurfari Akranesi 3769
Sigurfari Patreksfirði 3903
Sigurfari Hornafirði 1287
Sigurvon Akranesi 4739
Skarðsvík Hellissandi 1560
Smári Húsavík 4779
Snæfell Akureýri 7052
Snæfugl Reyðarfirði 4100
Stapafell Ölafsvík 7029
Stefán Arnason Búðakauptúni 2329
Stefán Ben Neskaupstað 1515
Stefán Þór Húsavík 3217
Steinunn Ölafsvík 5718
Steinuian gamla Keflavík
Stígandi Vestmannaeyjum 2688
Straumnes ísafirði 2072
Stuðlaberg Seyðisfirði 5830
Súlan Akureyri 3194
Sunnutindur Djúpavogi 6639
Sveinn Guðmundsson Akranesi 1385
Sæfari Sveinseyri 5404
Sæfaxi Neskaupstað 1584
Sæfell Ölafsvík 1811
Sæljón Reykjavík 1331
Særún Siglufirði 1484
Sæþór Olafsfirði 3695
Tálknfirðingur Sveinseyri 4170
Tjaldur Stykkishólmi 3221
Unnur Vestmannaeyjum 1668
Valafell Ölafsvík 5030
Vattarnes Eskifirði 2555
Víðir II Garði 11468
Víðir Eskifirði 6085
Vilborg Keflavík 3489
Vísir Keflavík 1224
Vonin II Keflavík 4859
Vörður Grindavík 4157
Þorbjörn Grindavík 4951
Þorgrímur Þingeyri 1718
Þórkatla Grindavík 3645
Þorlákur Bolungarvík 5051
Þorleifur Rögnvaldsson Olafsfirði 1263
Þórsnes tykkishólmi 122Æ
Þráinn Neskaupstað 3335