Morgunblaðið - 19.07.1961, Qupperneq 18
18
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 19. júlí 1961
og hið sjöunda jafnað
Landskeppni Rússa og Bandankjamanna:
Sex ný heimsmet
Ein mesta frjálsiþróttakeppni
íþróttasógunnar
H1' N tvö stærstu stórveldi á íþróttasviðinu, Bandaríkin og
Rússland, háð*u landskeppni í frjálsum íþróttum um helg-
ina. Bandaríkjamenn sigruðu í greinum karla með nokkr-
um yfirburðum, 124 stigum gegn 111, en rússnesku val-
kyrjurnar báru ægishjálm yfir þær bandarísku, hlutu
68 stig gegn 39. — .
+ HEIMSMETIN
Keppni landanna er
„stríð“ sem lengi mun minnzt
sem mestu landskeppni allra
slíkra. Sex ný heimsmet voru
sett, hið sjöunda jafnað og
frábær árangur náðist í mörg
um öðrum greinum.
Nýju heimsmetin eru þessi:
4x100 m boðhlaup karla
Bandaríkin 39.1 sek.
4x100 m boðhl. kvenna
Bandaríkin 44.3 sek.
Hástökk karla, Brummel,
Rússl. 2.24 m.
Langstökk karla, Boston,
Bandar. 8.28 m.
Langst. kvenna, Tjelka-
nova, Rússl. 6,48 m.
Kringlukast kvenna, Press,
Rússl. 57.43 m.
100 m hlaup kvenna, Rud-
olph, Bandar. 11.3 sek.
Hið síðastnefnda er met-
jöfnun.
Keppnin var ákaflega hörð.
Bandaríkin mættu öheppni í
tveim greinum. Drayton var
dæmdur úr leik í 200 m hlaupi
fyrir að hlaupa inn á aðra braut
í beygjunni. Hann kom annar í
mark. f 400 m hlaupinu hélt hinn
blakki hlaupari Plummer að um
þjófstart hefði verið að ræða,
stoppaði og tapaði minnst 3 metr
um. Hann þaut svo af stað, en
ætlaði sér of mikið. Vann bilið
upp á fyrstu 100 metrunum en
stífnaði upp á endasprettinum og
varð 2. í mark.
Hápunktur keppninnar var
„einvígi" Bostons óg Ter-Ovan-
sjan í langstökki og „einvígi"
Brummels og Thomas í hástökki.
Það kom í ljós að hinn hávaxni
negri var Ovansjan mun sterkari
og Brummel reyndist sterkari
Thomas. Thömas var hónum þó
fyllilega verðugur keppinautur.
Brummel fór 2.24 m en Thomas
ekki, átti þó mjög góða tilraun.
A Glæsilegur sprettur
Wilma Rudolph sýndi hvað
mesta yfirburði. Hún sigraði
með yfirburðum, létt og leik-
andi í 100 m hlaupinu og jafn-
aði heimsmetið. En í boðhlaup
inu vann hún enn glæsilegri
sigur. Hún tók við keflinu 3,5
m á eftir „endakonu" rúss-
nesku sveitarinnar, en fræði
Bandaríkjunum öruggan sigur
og nýtt heimsmet. Tími sveit-
anna var 44,3 og 44,5. Frétta-
menn lýsa hlaupi Rudolph
sem mesta spretti kvenmanns
í íþróttasögunni.
í boðhlaupi karla skiptu
Bandaríkjamenn óvenju vel
og bættu heimsmet sitt og
Þjóðverja um 4/10 í 39,1. Það
Danskt hand-
knattleikslið
í Hafnarfirði
j í kvöld
’ Hér er nú statt á vegum
Víkings danskt handknattleiks
lið S. K. E. M. Það samanstend
ur af liðsmönnum úr fjórum
félögum og meðal þeirra er
einn unglingalandsliðsmaður.
1 kvöld leikur þetta lið í
Hafnarfirði og mætir jafnöldr
um sínum /17 18 og 19 ára)
úr FH.
Leikurinn í kvöld fer fram
á Hörðuvöllum og hefst kl.
8,15.
Úr einu
í annað
TÍr BRODNIK, Júgóslavíu hefur
sett landsmet í tugþraut.
Hann náði 7466 stigum.
ýk Argentínskt met hefur verið
sett í kúluvarpi. Helf heitir
methafinn og varpaði 17.76.
Þjóðverjinn Drbach hefur
sett þýzkt met í kúluvarpi-18.06
m. Lingnau landi hans hafði ný-
bætt eldra met í 17.89.
-jlf Stangarstökkvarar F i n n a
keppa oft og ná góðum ár-
angri. I Essbo stukku Ankio og
Jonasson 4.40 m. 1 Funkalaiduu
stökk Landström 4.41 og Nikula
4.30 m. Leino varpaði kúlunni
17.01 m.
gefur meðaltíma undir 9,8 sek.
Stórkostlegur sprettur.
Bandaríkjamenn áttu svo sínar
sterk-u greinar í stuttu hlaupun-
um og stangarstökki. Rússarnir
„áttu“ og sínar greinar þar sem
Framh. á bls. 19 I
——----------------------------<s>
Hinrik bakv. Fram varð það á að snerta knöttinn með lienúi.
Það kostaði vítaspyrnu, sem KR misnotaði.
KR og Fram brugðust
en Heimir varði með tímanlegu
úthlaupi, en varð þó að sjá af
boltanum aftur til Guðmundar
Óskarssonar, sem var í góðu færi
innan vítateigs, en brenndi af
heldur linu skoti. 11. mínútan
færir Guðmundi annað færi, þá
eftir allgóðan samleik, en enn
brenndi Guðmundur af. Baldur
Soheving reyndi á 20. mín. að
skora af löngu færi, — gott skot
en rétt utan hjá. Þóróllur skaut
fallegu skoti frá vítateig, en einn
ig það fór hárnákvæmt framhjá.
A 40. mín. varði Geir hörkuskot
Bllerts Scram.
2:0 fyrir gróf mistök.
Er tæpar 4 mínútur voru til
leiksloka og spenna á hámarki,
þar eð Fram átti en tækifæri á
að jafna, urðu mikil mistök í
Fram-vörninni hjá Halldóri Lúð
víkssyni, sem annars átti ágætan
leik, og Þórólfur fékk leikið inn
að markinu og skoraði framhjá
Geir, 2:0. Og þannig lauk leiðin-
legum leik, með sigri öllu skárra
liðsins.
Liðin brugðust sem sagt mjög
illilega í þessum leik enda þótt
segja megi að veðrið hafi gælt
við leikmenn. Framlína KR var
mjög slöpp og enginn framlínu-
mannanna var svipur hjá sjón.
Mörkin má þakka forsjóninni, —.
og Halldóri Lúðvíkssyni. Tilraun-
in með Helga Jónsson sem inn-
herja fór að mestu út um þúfur,
sömuleiðis með Gunnar Felixsson
sem útherja. Sveinn og Garðar
voru heldur ekki eins frískir og
virkir og vanalega. Garðar er
að vísu nýkominn aftur í liðið
cftir meiðsli og eflaust á hann
eftir að lyfta KR-liðinu mikið
með endurnýjaðri þjálfun. Vörn
KR stóð sig eftir atvikum, en
annars þarf vörn ekki að vera
sterk til að hindra árásum hinna
veiku framherja Fram.
í Framliðinu átti beztan leik
þjálfari liðsins, Reynir Karlsson,
æfingalaus að mestu. Baldur
reyndi alltaf að leika og var dug
legur að vanda. Hinrik var harð-
ur og stöðvaði Þórólf og hélt hon
um niðri að miklu leyti. Geir átti
heldur slök úthlaup a. m. k. í
ein 4 skipti og munaði litlu aS
mark hlytist af.
Dómari var Einar Hjartarson
úr Val. Dæmdi hann með eindæm
illa, dæmdi Oft lítið sem ekkert,
það sem hann dæmdi. Það verð-
ur þó að reikna honum gjalda-
megin að sólin, sem var að setj-
ast í vesturátt truflaði hann og
leikmenn mikið, en vitaskuld
hefði hann átt að geta haldið sig
meira í vestanverðum vellinum,
heldur en hann gerði og þannig
haft sólina í bakið.
— jbp.
KR vann lélegan leik 2:0
í FYRRAKVÖLD léku KR
og Fram í íslandsmóti 1.
deildar á Laugardalsvellin-
um. —
Leiksins mun einna helzt
minnzt fyrir það hve eindæma lé
leg knattspyrna var þarna til sýn
is í eindæma fögru sumajrveðri.
Hvorugt liðið hefur sýnt svo gjör
ómögulegan leik í sumar sem nú.
Sendingar milli 2ja eða 3ja sam-
milli tveggja eða þriggja sam-
herja, að maður nú ekki tali
um þaðan af fleiri, sáust vart.
Slepjan og seinagangurinn í
framlínum beggja gerði að verk
um að marktækifærunin urðu
fá og leikurinn fór fram að
mestu á miðbiki vallarins, og
á hlaupabrautunum umhverfis
völlinn.
Þórólfur eyðilagði „gjafa“-
vítaspyrnu dómarans
KR-ingar reyndust mun meira
„grasserandi" í fyrri hálfleikn-
um og á 15. mín. er þeir voru
innan vítateigs Frams varð einn
varnarmanna fyrir því óhappi
að boltinn hoppaði upp í „dauða“
höndina. Dómarinn, Einar Hjart-
arson, flautar: Vítaspyrna, enda
þótt aðeins skuli dæmt á hendi
að yfirlögðu ráði. Þórólfur Beck
tók vítaspyrnuna og brenndi af
hátt yfir markið.
Skömmu síðar henti það sama
innan vítateig^, er knötturinn
hrökk í hönd Birgis bakvarð-
ar Frams, en nú var ekkert
dæmt, — réttilega.
KR átti nú nokkra „pressu"
að Frammarkinu en ekki er
hægt að segja að hún hafi verið
stórhættuleg, þó skall hurð
nærri hælum, á 30. mín., er
Geir hljóp út vitlaust, en þá
var bjargað á marklínu. Ellert
átti og jákvætt skot úr miðj-
um vítateignum, en rétt fram-
hjá.
Garðar nærri að skora —
en Gunnar fullkomnaði verkið
Það var loks á 39. mínútu að
markið kom og þá líkast þrumu
úr heiðskíru lofti. Garðar Árna-
son, sem lék nú aftur með eftir
meiðsli, skaut þrumuskoti af
ekki minna en 30 metra færi,
en knötturinn lenti í þverslánni
án þess að Geir hefðist að, lenti
síðan fyrir framan fætur Gunn-
ars Felixsonar rétt fyrir utan
markteiginn og átti hann auð-
velt með að skora í tómt mark-
ið, því Geir var þá búinn að
kasta sér — eftir skoti Garð-
ars.
Annars áttu Framarar svo
sem líka marktækifæri, þó ekki
væru sérlega góð né mörg. Guð-
jón skaut laglega innan víta-
teigs á 38. min. og hefði lík-
lega skorað, ef knötturinn hefði
ekki hrokkið í varnarmann KR.
Rétt fyrir hálfleikslok átti Guð-
mndur tækifæri á að jafna leik
ana, en var of fljótur á sér.
Seinni hálfleikurinn hófst með
allsæmilegum tækifærum Gunn-
ars Guðmannssonar á 2. og 4.
mín, en í bæði skiptin klúðraði
hann.
Gullna tækifæcrið hjá Fram
kom á 10. mín., þegar Hörður
Felixsson brást illilega og Grétar
möðherji komst inxi að markinu,
Hér sjást sigurvegarar og Golfmeistarar á Akureyri. F. v.: Gunnar Konráðsson, Ak., Gunn
ar Sólnes, Ak., Isl.meistari, Hafliði Guðmundsson, Ak., Jóhann Þorkelsson, Ak., Bragi Hjart
arsson, Ak., Sævar Gunnarsson, Ak., Jóhann Guðmundsson, Ak., Stefán Árnason, Ak.
(Ljósm. St. S. Sig.)