Morgunblaðið - 02.08.1961, Blaðsíða 2
2
M O RCIJTS BL AÐIÐ
MiðviKudagur 2. Sgúst 1961
Enn góð síldveiði
Talsverð loirduriarbið víðast
MIKIL síldveiði var sl. sólar-
hring út af Dalatanga og Glett-
inganesi, um það bil 40 milur út
af landi. Um 10 skip fengu full-
fermi í fyrrinótt, samtals um
50.000 mál og tunnur.
Margir bátar liggja inni á Aust-
fjarðarhöfnum og bíða löndunar.
Þegar líða tók á daginn, urðu
nokkrir bátar, sem voru á leið
til Raufarhafnar, að leita vars
undir Langanesi, austan megin,
því þá var komin NV-átt, 4 vind-
stig, en Langanesröstin er ekki
árennileg, sízt þegar bátarnir eru
drekk’/aðnir síld. Nokkrir bátar
▼oru komnir inn til Raufarhafn-
ar fyrir kvöldið, en þar verður
ekki landað fyrr en í dag. Lönd-
unarbið er einnig á Austfjarða-
höfnum.
Eftirtaldir bátar komu til Rauf-
arhafnar með afla í gser: Baldur
EA 480 mál, Sveinn Guðmunds-
son AK 450, Pétur Sigurðsson
900, Sigurvon AK 750, Guðbjörg
GK 500, Helgi Flóventsson 850,
Björgvin EA 1400.
Til Vopnafjarðar komu eftir-
talin skip í fyrrinótt og gær:
Vilborg KE 486 mál, Ófeigur
þriðji 160, Hugrún ÍS 400, Halldór
Jónsson SH 1200, Guðbjörg ÓF
650, Einar Hálfdánsson 650, Sæ-
þór ÓF 500, Jón Gunnlaugsson
500, Gnýfari 650, Sigurvon AK
850, Hrafn Sveimbjarnarson 600,
Vísir KE 450 (en með honum
er verksmiðjan á Vöpnafirði búin
að taka á móti 90.000 málum)
Gissur hvíti 900, Höfrungur AK
800, Jökull SH 800, Guðbjörg
ÍS 950.
Síðsat er blaðið hafði samband
við síldarleitina á Raufarhöfn í
gærkvöldi hafði veðrið heldur
lægt, og sumir bátanna, sem lágu
í vari austan undir Langanesi,
höfðu lagt af stað til Raufar-
hafnar Eftirtaldir bátar höfðu
tilkynnt afla sinn til Raufarhafn-
ar til viðbótar þeim, sem áður
hafa verið verið taldir upp: Höfr
ungur annar 1400 mál, Snæfell
1200, Eldborg 900, Hafþór 650,
Straumnes 800 mál. Þeir bátar
sem ekki voru á leið til hafnar
með síld eða biðu löndunar á
Austfjörðum, köstuðu á síld um
það bil 45 mílur út af Skrúði, og
höfðu einhverjir fengið góðan
Síldar-
vísa
^liABINU barst þessi vísa í gær
frá Raufarhöfn:
Oft er á kvöldin ærsl og gleði tóm
og ýtar hafa á brennivini sinnu,
stúlkurnar dansa á hælaháum
skóm
og herrarnir slást í næturvinnu.
S V A R T :
Síldarverksmiðja ríkisins
Raufarhöfn
ABCilEFGH
ABCDEFGH
H V I T T :
Síldarverksmiðja rikisins
Siglufirði
Raufarhöfn leikur: b5—b4
Siglfirðingar svara: Rd4—c6
afla. Þetta bendir til þess að síld-
in sé að færast suður á bóginn.
Tveir bátar komu til Neskaup-
staðar: Hafrún með 5—600 mál
og Sæfaxi með 500 mál.
★
Saltað var á öllum söltunar-
stöðvunum þremur á Seyðisfirði
í gær. Búið er að salta í 11350
tunnur hjá söltunarstöðinni
Ströndin og mun það vera það
mesta, sem saltað hefur verið
hjá einni söltunarstöð á Seyðis-
firði — Sú stúl'ka, sem var
svo heppin að salta í 10.000
tunnuna, Margrét Þórarinsdóttir
frá Másseli á Fljótsd ^iiéraði,
fékk 1000 kr. aukaþóknun og þær
næstu, sinn hvoru megin við,
500 kr. Það voru: Margrét Júlíus
dóttir frá Hafnarfirði og Þórunn
Vilhjálmsdóttir frá Fagradal í
Fjöllum. Hjá söltunarstöðinni Haf
aldan er búið að salta í 10.000
tunnur og hlaut Þuríður Hólm-
geirsdóttir frá Raufarhöfn 1000
kr. í verðlaun, og Kóltorún Jóns-
dóttir, sem hafði saltað í 9999
tunnuna hlaut 500 kr. og Kristín
Steindórsdóttir, sem hafði saltað
í 10001 tunnuna hlaut einnig 500
kr. verðlaun.
Síldarverksmiðjurnar á Seyðis
firði hafa alls tekið á móti á
milli 47 og 48 þús. málum síldar.
Af þeim hafa 34 þús. mál farið
til bræðslu. Allar þrær eru full-
ar, og nokkra daga bið eftir
löndun. Tveir bátar héldu til
Vestmannaeyja með afla sinn í
gær, en áður hafa aðrir tveir
bátar gjört hið sama.
, y tVA /5 hnútar
s SV 50hnútar
X önjahoma
> úii «*'
\/ ókurtr
K Þrumur
Kagn-
ÚsraV
nuioos/rii i n nma ■
Hitaski/ ItJ* Lmgi |
LÆGÐIN við Austurland var
að grynnast í gær, en lægð-
in SV af Grænlandi var að
breiðast austur. Var búizt
við, að hennar mundi fara að
gæta á SV-landi í kvöld. —
Norðanáttin var heldur að
ganga niður og var batn-
andi veður fyrir norðan, en
sólskin og hlýtt sunnan
lands, mest 16° hiti á Kirkju
bæjarklaustri.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
SV-land og miðin: NV stinn
ingskaldi, síðar hægviðri og
léttskýjað, þykknar upp með
SA átt á morgun.
Faxaflói til Vestfjarða og
miðin: NV gola og skýjað með
köflum.
Norðurland til Austfjarða og
miðin: Norðan kaldi, síðar
gola eða hægviðri, léttir til.
SA-land og miðin: Norðan
kaldi, léttskýjað.
Hefir drukkið
bjór í 99 ór
í HUDDERSFIELD í Englandi ]
er öldungur einn, William MalJ
bert, sem þykir óvenjuern —\
en hann varð 107 ára í gær. |
Takmark hans er að ná 110 ára j
aldri — og öruggasta ráðið J
til þess telur hann vera það ’
að drekka minnst tvo lítra afl
bjór á degi hverjum. Fylgir |
hann þessu hollráði sjálfs sín ■
dyggilega, og er daglegur gest]
ur á krá einni í bænum, að \
sögn fréttamanns Reuters.
Þegar Malbert gamli birtist j
í kránni sinni á 107 ára afmæl ]
inu, voru þar fyrir blaðamenn,
sem tóku að spyrja hann spjörl
unum úr. Hann bað þá bíðaj
rólega meðan hann væri að (
hvolfa í sig fyrstu bjórkoll-]
unni — sagðist varla vera við- '
mælandi bjórlaus, hvort eðj
væri. — Ég er nú orðinn svo]
vanur þessu, sagði hann, — ]
hefi haldið mig við bjórinn J
frá því ég var átta ára.
Samið við farmenn
I GÆRMORGUN undirrit-
uðu samninganefndir Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og
vinnuveitenda nýjan kjara-
samning um kaup og kjör
undirmanna á dekki og í vél.
Er aðalbreytingin sú, að hjá
mönnum í millilandasigling-
um hækkar kaup um 11%,
Lýsisgeymar víðast
orðnir fullir
LÝSISGEYMAR eru nú
orðnir fullir bæði á Raufar-
höfn og á flestum Austur-
landshöfnum og er ekki tek-
ið á móti neinni síld á þess-
um stöðum. Síldarflutninga-
skip eru á leið til Siglufjarð-
ar og Hjalteyrar með síld
að austan.
RAUFARHÖFN
Lýsisgeymarnir á Raufarhöfn
eru nú að fyllast. Hefur ekki
verið tekið á móti neinni síld í
þrjá daga, en móttaka hefst
sennilega að nýju í dag. Lýsis-
skip er væntanlegt til Raufar-
hafnar um helgina, og á það að
taka þar 2000 tn. af lýsi. Var
ein síldarþróin losuð til þess að
hægt væri að láta í hana lýsi.
Einnig hefur verið byggð bráða
birgðamjölskemma, sem er að
gólffleti 530 ferm. Var hún
byggð á 10 dögum, og er ætlun-
in að hún verði rifin aftur í
haust. Tvö skip hafa komið til
Raufarhafnar til þess að taka
mjöl, en þar sem framleiðslan
getur komizt allt upp í 2 þús.
sekki á sólarhring, er geymslu-
rými mjög fljótt að fyllast.
NESKAUPSTAÐUR
Síldarverksmiðjan var stöðvuð
í fyrrakvöld, og er ekki búizt
við, að hægt verði að taka á
móti síld aftur fyrr en á föstu-
dag, en Þyrill kemur á morgun
til þess að taka lýsi. Tekur lýs-
isgeymirinn um 1000 tn., en
verksmiðjan getur framleitt um
100 tn. á sólarhring. Alls hefur
síldarverksmiðjan tekið á móti
70.000 málum. Ekki eru nein
vandkvæði á geymslu mjöls í
Neskaupstað, en mjölgeymslur
eru þar tvær og taka samtals
yfir 2.500 tn. Samkvæmt frá-
sögn fréttaritara blaðsins í Nes-
kaupstað hafa alltaf verið vand
ræði með lýsisgeymslur, allt
síðan síldarverksmiðjan þar tók
til starfa fyrir nokkrum árum
og þurft hefur að selflytja lýsið
til geymslu á öðrum höfnum.
VOPNAFJÖRÐUR
Lýsisgeymarnir á Vopnafirði
eru nú orðnir fullir, en þeir
taka um 1.400 tonn. — Von
er á flutningaskipi til Vopna-
fjarðar 4.—6. ágúst, sem tekur
1.100 tn., svo að nokkuð ætti úr
að rætast þá. Mjölskemmurnar
eru ekki orðnar fullar enn, og
von er á skipi í dag, sem tekur
150 tn. af mjöli.
SEYÐISFJÖRÐUR
Lýsisgeymamir á Seyðisfirði
eru ekki ennþá orðnir fullir, og
verið er að stækka mjölgeymsl-
una allverulega. Nú er verið að
setja soðkjarnatækin í samband,
en við það mun sparast allmik-
ið fé. —
SlLDARFLUTNINGASKIP
Fjögur síldarflutningaskip
flytja nú síld að austan. Jolitha,
sem Síldarverksmiðjur ríkisins
hafa á leigu, lestaði í fyrradag
5.000 mál á Seyðisfirði og er
nú á leið til Siglufjarðar. Una,
sem einnig er á vegum Síldar-
verksmiðjanna, kom í gærkvöldi
til Seyðisfjarðar og byrjar að
lesta þar í dag 3—4000 mál, sem
flutt verða til Siglufjarðar. Þá
eru Aska og Talis einnig í síldar-
flutningum.
en hjá strandslglingamönn-
um um 27%. Stafar þessi
mikla kauphækkun strand-
siglingamanna af því, að við
gengisfellinguna fengu menn
í millilandasiglingum 19%
hækkun, sem sanngjarnt
þótti að strandsiglingamenn
fengju einnig nú, þar sem
um sömu störf er að ræða.
í öllum aðalatriðum öðrum
framlengist samningurinn frá
1958, en aðrar breytingar eru
þessar:
Slysatrygging hækkar úr 153
þús. í 200 þús. kr., fæðispeningar
þegar ekki er matazt um borð
verða 50 kr. á dag í stað 31.50
kr. Þá fá smyrjarar og dagmenn
í vél 4% kaupuppbót til viðbótar
mánaðarkaupinu. — Verði samn-
ingnum eigi sagt upp 1. júní
1962 hækkar allt kaup samkvæmt
honum um 4% til viðbótar.
Samningurinn gildir til 1. júní
1962, en uppsagnarákvæði hans
eru hin sömu og í samningum
annarra verkalýðsfélaga.
Dæmdur í 6
mónaðo varð-
hald - og
sviptur öku-
leyfí
f GÆRMORGUN var kveðinn
upp dómur í sakadómi yfir 17
ára gömlum pilti, er olli um-
ferðaslysi sl. haust við Njarð-
argötu. Ók piltur þessi ljóslaus
um bíl með ofsahraða á hús-
vegg — er hann var að reyna
að komast undan lögreglunni
— með þeim afleiðingum, að
félagi hans stórslasaðist, og er
enn ekki búinn að ná sér. Pilt
urinn, sem ók — drukkinní
slapp hins vegar lítið meiddur,
en bíllinn gjöreyðilagðist. —
Nokkrum dögum áður en slys-
ið varð hafði þessi sami piltur,
verið dæmdur fyrir ölvun við
akstur, og hafði auk þess feng-
ið frestað ákæru fyrir bíl-
stuld. — Pilturinn var dæmd-
ur í 6 mánaða varðhald og
sviptur rétti til að öðlast öku-|
leyfi ævilangt.
Biðskákiim lauk
í gær
BIÐSKÁKUM lauk á Norður-
landameistaramótinu í gær i
landsliðsflokki. Gunnar Gunn-
arsson vann Björn Þorsteinsson
og Ljungdahl vann Brynhamm-
ar. Endanleg úrslit urðu sem
hér segir: y
1. Ingi R. Jóhannsson .. 7% v.
2. Jón Þorsteinsson .... 6
3. Jón Pálsson ....... 5% -
4. Axel Nielsen ...... 3% -
John Ljungdahl .... 3% -
6. Bjöm Þorsteinsson .. 3 -
Karl Erl. Gannholm .. 3
Gunnar Gunnarsson .. 3
9. Hilding Brynhammar . 1
í sambandi við keppnina fer
hraðskákmót fram í kvöld og
hefst kl. 7 e.h. í Gagnfræða-
skóla Austurbæjar. Öllum er
þar heimil þátttaka.
Kosningar
í S.-Afríku
PRETÖRIA, S.-Afríku, 1. ágúst.
— Það var tilkynnt opinberlega
hér í höfuðborginni i kvöld, að
almennar þingkosningar muni
fara fram í landinu hinn 18. októ
ber næst komandi.
— Gengisskráningin
Framihald af bls. 1.
1. gr.
1. málsgr. 18. gr. laganna orðist
svo:
Seðlabankinn ákveður, að
fengnu samþykki ríkisstjórnarinn
ar, stofngengi (pari) íslenzku
krónunnar gagnvart erlendum
gjaldeyri og gulli. Kaup- og sölu
gengi má ekki vera meira en 1%
undir eða 1% yfir stofngengi.
Innan þessara marka skráir Seðla
bankinn daglega kaup- og sölu-
gengi þeirra gjaldeyristegunda,
sem þörf er á vegna almennra
viðskipta.
2. gr.
Ákvæði 1. gr. laga nr. 4/1960,
lun efnahagsmál, falla úr gildi,
þá er nýtt gengi hefur verið
ákveðið samkvæmt 1. gr. þess-
ara laga.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört að Bessastöðum,
1. ágúst 1961.
Ásgeir Ásgeirsson.
Gylíi Þ. Gíslason.“