Morgunblaðið - 02.08.1961, Qupperneq 12
12
MORGUP/BLAÐ1Ð
Miðviku'dagur 2. ágúst 1961
(
Útgefandi: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Áxni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm: Áðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
HVER VILL ÞÁ
U’nginn íslendingur skyldi
^ halda að vinstri stjórnin
hafi gefizt upp og sagt af sér
að gamni sínu haustið 1958.
Forustumenn hennar höfðu
lýst því yfir, og þá fyrst og
fremst forsætisráðherrann,
Hermann Jónasson, að vinstra
samstarfið mundi standa ára-
tugum saman. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði verið ein-
angraður og mundi verða
það áfram um langa fram-
tíð. —
Hvernig stóð þá á þvi að
vinstra samstarfið rofnaði
svo skyndilega sem raun
bar vitni?
Ástæða þess var engin
önnur en sú, að flokkar
vinstri stjórnarinnar gátu
ekki komið sér saman um
nein raunhæf úrræði til
lausnar höfuðvandámálum
þjóðfélagsins. Þetta ósam-
komulag þeirra hafði leitt til
stórfelldra vandræða. — Við
blasti óðaverðbólga og algert
þjóðargjaldþrot. Af því hefði
leitt stórfellt atvinnuleysi
og innreið fátæktar og bág-
inda á íslandi að nýju.
Þessa hættu hafði vinstra
samstarf leitt yfir íslenzku
þjóðina á aðeins rúmlega
tveimur árum. Núverandi
ríkisstjórn og flokkum henn-
ar tókst hinsvegar með mann
dómi og festu aS bægja þess-
ari hættu frá. Bráðabirgða-
ráðstafanir voru gerðar strax
árið 1959 og árið 1960 var
hafizt handa um víðtækar
viðreisnarráðstafanir.
★
Það er margsögð saga, sem
öll þjóðin þekkir, að þær
ráðstafanir höfðu borið mik-
inn og heilladrjúgan árang-
»r þegar kommúnistar og
Framsóknarmenn, flokkarnir
sem mynduðu kjarna vinstri
stjórnarinnar, er gafst upp,
mynduðu niðurrifsbandalag-
ið og hófust handa um víð-
tæk pólitísk verkföll, sem
mú hafa leitt til svo stór-
felldrar aukningar fram-
leiðslukostnaðar, að auðsætt
er að atvinnuvegir lands-
manna fá ekki undir risið.
En hver vill að þeir tímar
renni upp að nýju, sem þjóð-
in horfði fram á haustið
1958 þegar vinstri stjórnin
stökk fyrir borð og gafst upp
við lausn þeirra miklu vanda
mála, sem hún haf&i leitt
yfir þjóðina? Hver vill leiða
óðaverðbólgu yfir íslenzkt
efnahagslíf ? Hver vill að
þjóðin gangi á ný við betli-
staf? Hver vill leiða yfir sig
vöruskort, hver vill taka
upp uppbótakerfi, hver vill
stórhækka skatta og hver
i
TÍMA AFTUR?
vill pólitíska upplausn og
öngþveiti í landinu?
Þetta er auðvitað takmark
leiðtoga Kommúnistaflokks-
ins og Framsóknarflokksins.
En allur almenningur í land-
inu vill þetta ekki. Yfirgnæf
andi meirihluti þjóðarinnar
væntir þess að núverandi
ríkisstjórn haldi áfram við-
reisnaraðgerðum sínum, hlaði
upp í þau skörð, sem niður-
rifsbandalaginu hefur í bili
tekizt að höggva í múra við-
reisnarinnar, skapi efnahags-
legt jafnvægi að nýju og
mæti vandanum af festu og
manndómi.
Þetta er það sem íslenzka
þjóðin vill í dag. Hún vill
ekki hverfa aftur til niður-
lægingar og öngþveitis
vinstristjórnar tímabilsins.
ÆVINTÝRIÐ
UM BRÚNA
Cíðastliðinn sunnudag var
^ vígð 255 m löng brú á
Hornafjarðarfljót. Er þessi
nýja brú önnur lengsta brú
á landinu.
Ingólfur Jónsson, sam-
göngumálaráðherra, gat þess
í vígsluræðu sinni, að aðeins
sjötíu ár væru liðin síðan
fyrsta stórfljótið var brúað
hér á landi. Ölfusárbrúin var
byggð árið 1891. Akfærir
vegir voru þá engir á ís-
landi. Síðan hafa flestar stór
ár landsins verið brúaðar og
í árslok 1960 voru akfærir
vegir í landinu orðnir ellefu
þúsund og fimm hundruð
kílómetrar að lengd.
Þessar framkvæmdir í sam
göngumálum þjóðarinnar eru
ævintýri líkastar. Þessi ör-
fámenna þjóð, sem lengstum
hefur verið fjármagnslaus og
fátæk, hefur unnið það stór-
virki á einum mannsaldri að
leggja akfæran veg um meg-
inhluta lands síns og byggja
mikinn fjölda brúa. Flug-
samgöngum er auk þess hald
ið uppi við alla landshluta
til stórkostlegs hagræðis fyr-
ir allt athafnalíf og við-
skiptalíf þjóðarinnar.
★
En þótt stórátak hafi verið
gert í samgöngumálum ís-
lendinga eru þó mikil verk-
efni óleyst á þessu sviði. —
Samgöngumálaráðherra gat
þess í ræðu sinni að byggja
þyrfti á þjóðvegum og sýslu-
vegum á næstunni 150 nýjar
brýr, sem munu kosta hátt á
annað hundrað milljónir
króna, auk fjölda margra
smábrúa, sem eru innan við
Franska djúpfarið „Arkímedes" fullkomnast i heiml.
„Arkímedes“ kafar í
dýpstu gjá veraidar
IMýtt franskt djúpfar
af fullkomnustu gerð
Vel búiff tækjum
HLEYPT hefur verið af
stokkunum í Toulon nýju
frönsku djúpfari, sem á að
tíu metra að lengd.
Það er vissulega rétt sem
Ingólfur Jónsson sagði, að ís
land verður alltaf í uppbygg-
ingu. Atvinnuvegirnir verða
alltaf að þróast og munu til-
einka sér nýjustu tækni á
hverjum tíma. Á þann hátt
munu lífskjörin á hverjum
tíma geta orðið sambærileg
því, sem gerist hjá öðrum
menningarþjóðum, sagði ráð-
herrann.
íslendingar fagna hverri
nýrri brú sem byggð er í
landi þeirra. Með hverju
slíku mannvirki er nýr sig-
ur unninn í baráttunni fyrir
bættum samgöngum, fyrir
betra og byggilegra íslandi.
Og brúin er ekki aðeins
byggð í þágu þeirra fámennu
héraða, sem hún kann að
vera reist í. Hún er byggð í
þágu þjóðarinnar allrar. —
Fólkið í sveit og við sjó, í
strjálbýli og þéttbýli, á sam-
eiginlegra hagsmuna að
gæta. Greiðar samgöngur eru
frumskilyrði blómlegs at-
hafnalífs og áframhaldandi
þróunar og uppb.yggingar í
landinu. „
geta kafað dýpra í sjó nið-
ur en nokkur farkostur
annar. Djúpfar þetta, sem
er mjög vel úr garði gert,
hefur hlotið heitið „Arkí-
medes“.
rK
Fullkomnasta gerð
Með smíði hins nýja djúp-
fars hefur verið stigið drjúgt
spor í framfaraátt. >að vegur
um 60 smálestir og á að geta
þolað yfir 180 þúsund smálesta
þrýsting. Mun farið geta ver
ið lengur neðansjávar í einu
en nokkurt annað djúpfar
fram til þessa.
í dýpstu gjá veraldar
Skýrt hefur verið frá því,
að „Arkímedas" muni í fyrsta
áfanga verða sendur til rann-
sókna niður á botn einnar af
dýpstu gjám, sem vitað er um
í veröldinni, en hana er að
finna við Kurileyjar, norð-
austur af Japan. Er dýpið þar
um 34.000 fet.
Um borð í „Arkímedes“
verða öll íullkomnustu tæki,
sem gerð bafa verið til rann-
sókna neðansjávar. Þ.á.m. eru
mjög fíngerð og nákvæm tæki
til að hlusta eftir hljóðum, er
frá fiskum stafa. Annar útbún
aður mun m.a. mæla þrýsting,
hitastig og straumhraða. Þá
mun djúpfaríð safna sýnis-
hornum af lífverum. sem haf
ast við á sjávarbotninum
þarna, og loks verður dýralíf
á þessum slóðum myndað með
aðstoð 10,000 watta leitarljósa.
,-K
Piccard á metið
Meðal þeirra, sem viðstadd
ir voru sjósetningu djúpfars-
ins, var Jacques Piccard, son-
ur hins heimskunna sviss-
neska vísindamanns, sem í
byrjun síðastliðins árs setti
nýtt heimsmet í köfun úti fyr
ir eyjunni Guam á Kyrrahafi.
Var það þegar hans komst
niður á 35,800 feta dýpi í
djúpfari sínu „Tríeste“.