Morgunblaðið - 02.08.1961, Qupperneq 22
22
MORCVTSBLAÐÍÐ
MiðviKudagur 2. ágúst 1961
Kristleifur bætti metið um 10 sek
Jón hlaut bronsverðSaun
fyrir 2.01 í hástökki
Svíar höfðu yfirburði í gœr
Tugþrautin á Bislet
nutttíURLÍ NDAMÓTINU í frjálsíþróttum var fram hald-
ið á Bisletleikvanginum í Ósló í gær. — Hafi nokkur þjóð
nokkru sinni „slegið í gegn“ á slíku stórmóti, þá gerð'u
Svíar það þennan dag. Svíar sigruðu í öllum karlagreinum
dagsins — unnu þar 6 gullverðlaun. Sænsku stúlkurnar létu
sinn hlut heldur ekki eftir liggja. Þær sigruðu í 3 af 4
kvennagreinum. Aðeins Nina Hansen frá Danmörku gat
komið í veg fyrir hreinan sænskan sigur þennan dag í öll-
um greinum. En til þess varð hún að setja Norðurlanda-
met í fimmtarþraut kvenna.
v íslenzk afrek
En frá sjónarmiði minnsta
„■bróðurins“, — Islands, var
dagurjnn einnig happa- og sig
urdagur þó ekki tækist að
krækja í eftirsótt gullverð-
laun. Kristleifur Guðbjörns-
son vann það frábæra afrek
að bæta sitt eigið fslandsmet,
sett fyrir rúmum hálfum mán-
uði, um hvorki meira né
minna en rúmar 10 sekúndur.
Hann vann í hindrunarhlaupi
afrek sem fullkomlega getur
talizt á Evrópumælikvarða og
sýndi enn eihu sinni hver
keppnismaður^hann er.
I Jón Þ. Ólafsson hefur nú
einn íslendinga verðlaunapen-
ing fyrir frammistöðu sína á
Bislet. Hann Várð þriðji í há-
stökkinu með.-2.01 og er þvi
eini íslendingurinn sem tví-
vegis hefur sigrað 2 metrana.
Met hans er 2.03. Hann var
nærri silfrinú en það féll
Evrópumeista*hhum núver-
andi í hlut — en þó aðeins á
sömu hæð og'Jón fór. Afrek
/ Jóns er því s^rlega lofsvert.
Fyrir utan þes&a tvo voru aðrir
tveir íslendingar I eldinum í dag.
Það voru þeir Válbjörn Þorláks-
son og Björgvin Hólm sem báðir
keppa í tugþraut.
if Landsmet
Það var rigning af og til á
Bislet í gær meðan mótið fór
fram, en að öðru leyti voru skil-
yrði Og aðstæður ákjósanlegar.
Fyrsta grein kvöldsins, 400 m
hlaup kvenna, færði nýtt
Norðurlandamet Og tvö landsmet.
En ýmis fleiri landsmet voru
sett. Kristleifur setti sem fyrr
segir íslandsmet í hindrunar-
hlaupi. Horrpu setti finnskt met
í sleggjukasti þó ekki nægði það
til sigurs. Þá eru met kvennanna
í fimmtarþraut og 400 m hlaupi.
400 m hlaupið vann Petterson
á sterkari endaspretti en Rinta-
mæki gat sýnt. í 800 m hafði
Srionen forystuna fram að síð-
ustu beygju en þá rann Waern
létt fram fyrir hann og sigraði
örugglega. Þessar tvær millivega-
lengdir vöktu mesta gleði áhorf-
enda. Áhorfendur voru annars
heldur vonsviknir — ekki vegna
heildarúrslita mótsins — heldur
vegna frammistöðu Norðmanna,
þennan dag hlutu aðeins 3 brons-
verðlaun. En ýmislegt annað fang
aði hugi fólksins og það var ákaft
Kristleifur og Ellefsæter .yfir vatnsgryfjunni á Bislet.
Jón yfir ránni.
fagnað yfir góðum afrekum og
landsmetum.
Hindrunarhlaupið
Ellefsæter tók forystuna í
hindrunarhlaupinu og hélt
henni fyrsta kálómeterinn. Hin
ir fylgdu honum fast éftir. En
yfirburðir Svíanna komu
smám saman í ljós. Sigri
þeirra varð aldrei ógnað en
það var hörð barátta um
næstu sæti og Kristleifur átti
sinn þátt í að gera hana
skemmtilega — og enda hana
með góðu sæti fyrir island
og stórum sigri fyrir sjálfan
sig. Að slá hálfs mánaðar gam
alt met um 10 sek. er gott, en
ennþá betra þegar árangur er
þannig að sæmandi væri á
hvaða móti sem er.
* Hástökkið
Petterson fór 2.11 í hástökkinu
í 2. tilraun en hafði enga mögu-
leika á 2.14 m sem hann reyndi
þrívegis við. Evrópumeistarinn
Dahl Vann silfrið aðeins fyrir
öryggi sitt, en Jón Ólafsson ógn-
aði honum — sjálfum Evrópu-
meistaranum, og átti vel skilið
að fá þau verðlaun sem hann
fyrstur íslendinga á þessu móti
tók við á Bislet.
Eftir tveggja daga keppni
standa löndin þannig að stigum.
Karlagreinar: 1. Finnland 110.5,
2. Svíþjóð 106, 3. Nöregur 46.5,
4. Danmörk 9, 5. ísland 8 stig.
Kvennagreinar: 1. Svíþjóð 56,
2. Danmörk 35, 3. Finnland 32,
4. Noregur 27 og ísland 0.
Hér fara svo á eftir úrslit í ein-
stökum greinum, en þau tala skýrustu
máli um gang keppninnar.
800 m hlaup
Norðurl.meistari Dan Waern S. 1:48,9
2. O. Salonen Finnlandi ..... 1:49,7
3. Jan Bentzon Noregi ....... 1:49,9
4. P. Plander Finnlandi ..... 1:50,1
5. Per Knuts Svíþjóð ........ 1:50,3
6. G. Lathen Finnlandi ...... 1:51,0
400 m hlaup
Norðurl.meistari Patterson Svíþj. 47,1
2. Rintamæki Finnlandi ........ 47,6
3. Johanson Svíþjóð ........... 47,7
4. Raukala Finnlandi .......... 48,3
5. Johanson Svíþjóð ........... 48,6
6. Dag Wold Noregi ............ 48,6
Hástökk
Norðurl.meist. Stig Pettersson S. 2,11
(Nýtt vallarmet á Bislet).
2. Richard Dahl Svíþjóð ....... 2.01
3. Jón Þ. Ólafsson íslandi .... 2,01
4. G. Huseby Noregi .......... 1,98
5. Henrik Hellen Finnlandi .... 1,98
6. Markkula Finnlandi ......... 1,98
7. Vang Noregi ............... 1,90
8. Nilsson Svíþjóð ............ 1,90
Sleggjukast
Norðurl.meistari Asplund Svíþj. 62,98
2. Horppu Finnl. (finnskt met) .... 62,23
3. Föleide Noregi ............ 59,61
4. Johansson Svíþjóð ......... 57,95
5. O. Krogh Noregi ........... 57,88
6. Orla Bang Danmörku ........ 53,89
110 m grindahlaup
Norðurl.meistari Forsander Svíþj. 14,4
2. Koivu Finnlandi ............ 14,8
3. Gulbrandsen Noregi ......... 14,9
4. Bergland Svíþjóð ........... 14,9
5. Lindqvist Svíþjóð ........ 15,0
6. Holen Noregi ............... 15,6
3000 m hindrunarhlaup
Norðurl.meistari Tedenby Svíþj. 8:51,0
2. Tjörnebo Svíþjóð ......... 8:52,0
3. E. Siren Finnlandi ....... 8:52,4
4. Virtanen Finnlandi *...... 8:56,0
5. Kristleifur Guðbjörnsson ísl. 8:56,4
Nýtt ísl. met. (gamla 9:06,8)
6. Gustavsson Svíþjóð ....... 8:57,0
7. Ellefsæter Noregi ........ 9:04,6
8. R. Dahl Noregi ........... 9:05,2
9. Næss Noregi .............. 9:26,8
Spjótkast kvenna
Norðurl.meist. Ingrid Almqvist S. 50,85
2. Talvensari Finnlandi....... 47,13
3. Toivola Finnlandi ......... 47,04
4. Johansson Svíþjóð ......... 44,55
5. O. Lange Noregi ........... 38,48
Fimmtarþraut kVenna
Norðurl.meist. Nina Hansen D. 4367 st,
Nýtt danskt- og Norðurl.met
2. G. Cederström Svíþjóð .... 4353 —•
3. Vahtera Finnl. (finnskt met) 4127 —
4. G. Norman Svíþjóð ........ 4058 —
5. Lillevold Noregi ......... 3907 —
6. O. Lange Noregi .......... 3826 —
7. S. Olsen Noregi .......... 3776 —
400 m hlaup kvenna
Norðurl.meistari Östberg Svíþjóð 56,6
Nýtt Norðurl.. og sænskt met
2. Tegelius Svíþjóð ......... 57,8
3. Jaakkola Finnlandi ......... 58,8
4. Sandberg Noregi (Norskt met) 59,2
5. Jörgensen Danmörku ......... 59,8
G. Gladheim Noregi ............ 62,8
4x100 m boðhlaup kvenna
Norðurlandameistari Svíþjóð ... 48,2
2. Danmörk .................... 48,5
3. Finnland ................... 48,7
4. Noregur .................... 49,5
Þá fóru fram undanrásir í nokkrum
greinum og urðu úrslit þessi:
400 m grindahl. (3 beztu úr hvorum
riðli í úrslit). — 1. riðill: 1. Anderson
Svíþjóð 54,0; 2. Rintamæki Finnlandi
54,2; 3. Marks Svíþjóð 54,2; 4. Berg-
lund Noregi 54,4; 5. Aaraviita Finn-
landi 55.2. — 2. riðill: 1. Ehoniemi Finn
landi 53,4; 2. Gulbrandsen Noregi 53,6;
3. Librandt Svíþjóð 54,5; 4. Skjelvaag
Noregi 54,9.
200 m hlaup (3 beztu í riðli fara í
úrslit). — 1. riðill: 1. Bunæs Noregi
21,8; 2. Pallsten Danmörku 21,9; 3.
Löfgren Svíþjóð 22,1; 4. Madsen Dan-
mörku 22,2; 5. Ehrström Finnl. 22,3.
— 2. riðill: 1. Jonasson Svíþjóð 21,8;
2. Strand Finnlandi 22,0; 3. Fernström
Svíþjóð 22,2; 4. Rekola Finnlandi 22,3;
5. Marsteen Noregi 22,5; 6. Grundtvig
Danmörku 22,9.
Auk þess voru undanrásir 1 200 m
hlaupi kvenna og 80 m grindahlaupi
kvenna.
Valbjörn þriöji, Björgv^
fimmti eftir fyrri daginn
VALBJÖRN Þorláksson og
Björgvin Hólm voru meðal
þátttakenda í tugþraut Norð
urlandameistaramótsins, sem
hófst á Bislet í gær. Val-
björn hefur komið nokkuð á
óvart í keppninni og eftir
fyrri daginn er hann í 3.
sæti en Björgvin er í 5. —
Alls eru keppendur 9.
Valbjörn byrjaði heldur illa
Hann náði aðeins 11.2 sek í 100 m
hlaupi, en í langstökki rétti hann
nokkuð hlut sinn með því að
stökkva 6.55 m. Er það nokkru
lengra en búizt var við. Kúlunni
varpaði hann 12.08 metra og eftir
3 greinar var hann í 3. sæti.
Þá gfc^ði hann það bragð að
stökkva 1.80 m í hástökki og
er það vel gert. Tryggði það
honum áfram 3. sætið. Náði
hann 3. sæti í hástökkinu, að-
eins Suutari og Eriksor. voru
honum fremri, en þeir stukku
báðir 1.85.
í 400 m hlaupinu kom Val-
björn einna mest á óvart.
Hann hljóp á 51.1 sek og náði
3. bezta tíma keppendanna.
Erikson Svíþjóð náði beztum
tíma 49.9, Suutari Finnlandi
50.3.
★ Afrek Björgvins.
Björgvin gekk öllu miður í
flestum greinum og náði langt
frá sínum bezta árangri. Hann
hljóp 100 m á 11.2 sek og stökk
aðeins 6.41 m í lángstökki. Hann
náði sér nokkuð upp í kúluvarp-
inu með því að varpa 13.80 m,
Þá náði hann 4. sæti á eftir Val-
birni. En með því að stökkva að-
eins 1.70 m í hástökki — sem er
langt frá hans bezta — hrapaði
hann aftur um sæti. 400 m hljóp
Björgvin á 7. bezta tíma kvölds-
ins á 52.7 og heldur hann 5. sæt-
inu eftir fyrri daginn.
Röðin eftir fyrri daginn er
þessi.
1. Suutari Finnland 4144 stig,
2. Khama Finnland 3660. 3. Val-
björn Þorláksson ísland 3612.
4. Erikson Svíþjóð 3575 5. Björg-
vin Hólm island 3360 6. Skaset
Noregi 3299 7. Hove Noregi 3224
8. Sönderlund Danmörk 3127 9,
Lerfall 3017.