Morgunblaðið - 04.08.1961, Qupperneq 20
IÞROTTIR
Sjá bls. 18
Einbúinn
Sjá blaðsíðu 11.
173. tbl. — Föstudagur 4. ágúst 1961
Forsetar Alþingis höfðu I gær
hádegisverðarboð inni fyrir
Nils Langhelle forseta norska
Stórþingsins og frú hans í
Sjálfstæðishúsinu.
Jóhann Hafstein forseti
neðri deildar Alþingis bauð
heiðursgestina velkomna með
stuttri ræðu en Langhelle
svaraði með ræðu.
Á myndinni sjást, talið frá
vinstri: Frú Langhelle, Jó-
hann Hafstein, Frú Ingibjörg
Thors og Nils Langhelle Stór-
þingsforseti. — Samsætið var
haldið í Sjálfstæðishúsinu.
— Ljósm. Mbl.
Kommunistaaróðurinn hefur
ekki hljómgrunn í Noregi
segir Langhelle, forseti Stórþingsiris
— ÞINGMANNASAMBAND
NATO-ríkjanna hefur að undan-
förnu unnið árangursríkt starf.
Það er eins konar tengiliður milli
ríkisstjórnanna og fólksins í
NATO-löndunum og það hefur
eflt gagnkvæman skilning
NATO-þjóðanna á sameiginleg-
um vandamálum og hagsmuna-
málum, sagði Nils Langhelle, for-
seti norska Stórþingsins og for-
maður þingmannasamb. NATO-
ríkjanna, í viðtali við Mbl. í gær.
Langhelle er hér í boði forseta
Alþingis og dvelst hér ásamt
'■onu sinni í eina viku.
★—★—★
— Þingmannasambandið var
stofnað 1955, hélt Langhelle
áfram, og það heldur fundi ár-
lega, venjulega í aðalstöðvum
NATO í París. Þangað senda öll
NATO-ríkin þingmannanefndir.
Þar eru framtíðarmál bandalags-
ins rædd, kynni og tengsl for-
ystumanna bandalagsríkjanna
efld og styrkt. Þingmennirnir
öðlast þar betri og víðtækari
þekkingu á vandamálunum, sem
við er að etja, og verða því fær-
ari um að skýra þau fyrir fólk-
inu heima.
— Formaður þingmannasam-
bandsins er kosinn til árs í senn
og það er m. a. hlutverk hans
að heimsækja einhver bandalags-
ríkjanna Ég fór til Kanada í vor
Og bráðlega fer ég í stutta heim-
sókn til Grikklands. íslandsförin
er innan þessa ramma. Ég hef að
vísu komið hingað tvisvar áður,
en ég fagna tækifærinu til þess
að koma hingað í þriðja sinn.
★—★—★
Næst var vikið að norskum
stjórnmálum og sagði Langhelle,
að kosningar til Stórþingsins
færu nú í hönd, þær yrðu 11.
september, og væri kosningabar-
áttan að hefjast fyrir alvöru.
— Nú verður skorið úr um
það hvort verkamannaflokkurinn
verður áfram í meirihluta í Stór-
þinginu, það er stóra spurningin.
Flokkurinn hefur verið í meiri-
hlutaaðstöðu þar siðan 1945 og
þykir mörgum sem nú verði háð
stærri orrusta en oft áður. Deil-
urnar um afskipti ríkisvaldsins
Flugsýning
í Reykjavík
FLUGMÁLAFÉLAG íslands und
irbýr nú mikla flugsýningu á
Reykjavíkurflugvelli sunnudag-
inn 27. ágúst. Verður sýningin
í tilefni 25 ára afmælis félagsins,
25. ágúst.
Friðrik vann
Sliwa
PRAG í gærkveldi: — í þriðju
umferð skákmótsins í Marianske
Lazne sigraði Friðrik Ólafsson
Pólverjann Sliwa og er nú efstur
með 2*4 vinning. Filip vann
Perez, Niemela vann Lundquist
og Johannessen vann Gragger.
Aðrar skákir fóru í bið.
Staðan eftir 3 umferðir er
þessi: — 1. Friðrik 2 Yz v.,
Uhlmann 2 v. og biðskák, Szabo
2 og biðskák, Filip og Sliwa 2
hvor, Milic 114 og biðskák, Jo-
hannessen 1*4, Blom, Bobotzov
og Ciric 1 og biðkák hver,
Gragger, Niemela og Perez 1
hver, Bardendregt 14 og bið-
skák, Ghitescu 14 og biðskák
og Lundquist engan.
af efnahagslífinu setja svip sinn
á kosningabaráttuna fremur en
allt annað. Um afstöðuna til Frí-
verzlunar- og Markaðsbandalags-
ins eru flestir sammála. f Noregi
verður það ekkert hitamá)
★—★—★
— Ný flokkur er nú kominn
til sögunnar, sósialiski þjóðar-
flokkurinn, hliðstæður flokki
Larsens í Danmörku. Þessi nýi
flokkur í Noregi klofnaði þó ekki
út úr kommúnistaflokknum, það
eru nokkrir verkamannaflokks-
menn, andstæðingar NATO, sem
Framh. á bls. 19.
Sjóréttur í Talismálinu:
Meyr síldin rann
yfir framskiirúmið
AKUREYRI, 3. ágúst. — Sjó-
réttur var settur á Hjalteyri í
gær vegna óhappsins, sem sildar-
flutningsskipið Talis varð fyrir.
í réttinum kom það fram, að
skipverjar urðu varir við halla
á skipinu út af Vopnafirði og
jókst sá halli stöðugt. Þeir opn-
uðu þá framlestina, til þess að
athuga af hverju þetta stafaði,
Og kom þá í ljós að síldin í lest-
inni, sem var orðin mjög meyr
Og vatnskennd, kastaðist yfir
framskilrúmið og ofan í tómt rúm
fremst í lestinni. Þá var tekið
til þess ráðs að dæla olíu yfir
í bakborðstankana, því skipið
hallaðist á stjórnborða. Einnig
var dælt sjó í tanka, til að jafna
hallann. Þrátt fyrir þessar ráð-
stafanir hélt skipið stöðugt áfram
að hallast. Þegar hallinn var orð-
inn það mikill að ekki þótti
öruggt fyrir mannskapinn að
vera um borð var skipið yfir-
gefið, eins Og fram hefur komið
í fréttum.
Við rannsókn á skipinu, eftir
Eim rænulítill
ÁSKELL ÞORKELSSON, mað-
urinn sem slasaðist í Hrísey á
miðvikudagsmorgun var enn
mjög rænulítill í gær. Til frek-
ari skýringar á því hvernig slys
ið vildi til, má geta þess að tunn-
urnar, sem verið var að skipa upp
voru í hökum í brjósthæð og
sveifluðust á manninn.
Bóndanum á Tjörnum, sem
lenti undir dráttarvél og var flutt
ur á sjúkrahús á Akureyri, líður
furðanlega vel, virðist óbrotinn
en illa marinn.
að það er Orðið tómt, kemur f
ljós, að framskilrúm, sem er
þvert yfir lestina og byggt upp
af tréplönkum, hefur lyfzt upp
um a. m. k. 2 þumlunga og hefur
því síldin getað runnið þar í gega
líka.
Viðgerð á þessu hefur farið
fram í dag og er búizt við atS
skipið geti lagt út í nótt, en
fullnaðarsjóréttur verður síðar,
St. E. Sig.
Nýja
gengiö
Ekki allar ferðir til fjár
Sízt til brennivmssÖhi til Austfjarða
ESKIFIRÐI, 3. ágúst. — Mið-
vikudaginn 2. þ. m. fékk lög-
regluþjónninn í Búðakauptúni,
Lárus Salomonsson, vitnekju
um að leynivínsali væri í kaup-
túninu og gerði sýslumanninum
í Suður-Múlasýslu, á Eskirði, að
vart.
Eftir nokkrar vitnaleiðslur
bárust böndin að bílstjóra nokkr
um að sunnan, sem er í sumar-
fríi á æskustóovum á Aust-
fjörðum. Var bílstjórinn tekinn
og leit gerð í bíl hans og fund-
ust 13 flöskur af brennivíni á
ýmsum stöðum í bílnum. Játaði
bílstjórinn brot sitt og var vín-
ið gert upptækt.
Var bílstjórinn sektaður um
tæpar 12.000 kr. Það eru ekki
allar ferðir til fjár, allra sízt til
Austfjarða til brennivínssölu.
— G.W.
Kaup Sala
1 Sterlingspund 120,20 120,5«
1 Bandaríkjadollar w 42,95 43,06
1 Kanadadollar 41,66 41,77
100 Danskar krónur ~~ 621,80 623,40
100 Norskar krónur 600,96 602,50
100 Sænskar krónur ~~ 832,55 834,70
100 Finnsk mörk 13,39 13,42
100 Franskir frankar .. 876,24 878,43
100 Belgiskir frankar 86,28 86,50
100 Svissneskir frank. 994,15 996,70
100 Gyllini 1.194,94 1.198,00
100 Tékkneskar kr 614,23 615,86
100 Vestur-þýzk mörk 1.077,54 1.080,30
1000 Lírur 69,20 69,38
100 Austurr. sch 166,46 166,88
100 Pesetar 71,60 71,80
Háseti fór í spilið
og slasaðist
í FYRRADAG er mótorbáturinn
Skógarfoss var að veiðum úti 1
Faxaflóa varð það slys að einn
hásetinn festist í spilinu, með
þeim afleiðingum að upphand-
leggurinn brotnaði og tók fram-
an &f fingrum.
Báturinn var nýkominn út á
Svjð og var að draga annað kast
ið er slysið varð. Athygli allra
bátsverja beindist að pokanum,
en sá háseti sem var við spilið
festist einhvernveginn í því og
vafðist handleggurinn upp á það
með fyrrnefndum afleiðingum.
Skógarfoss sneri strax til lands
með manninn, sem var fluttur á
Landsspítalann.
Ekki gæfuiegur verkaiýðsíeiötogi
HANNIBAL Valdimarsson for
seti Alþýðusambands Islands
lætur hafa það eftir sér á for-
síðu Þjóðviljans í gær að ráð-
herrarnir séu „illræðismenn
gegn þjóðfélaginu en ekki
ríkisstjórn“. Þessi kurteislegu
orð eru það helzta, sem æðsti
maður launþegasamtakanna
hefur til mála að leggja, þegar
við hann er rætt sem slíkan.
Hannibal Valdimarsson er
einhver ógæfusamlegasti mað-
ur í ísl. stjórnmálum. Hann
var vel á vegi með að eyði-
leggja Alþýðuflokkinn, þegar
hann var aðalforustumaður
hans og nú logar allt í illdeil-
um í kommúnistaflokknum,
sem hugðist hagnýta þennan
mann. En verst er, að fyrir
áhrif hans, fremur en nokkurs
annars, hefur þannig verið
haldið á málum íslenzkra laun
þega, að þeir einir hafa ekki
bætt kjör sín meðan allar ná-
grannaþjóðirnar hafa sótt
hratt fram til bættra lífskjara.
Verkfallastefna Hannibals hef
ur æ ofan í æ fellt gengi ís-
lenzku krónunnar. Stundum
hefur hann sjálfur orðið til
að staðfesta orðið gengisfall
eins og í vinstri stjórninni
1958, er gengið var fellt um
34%; stundum hafa aðrir aðil-
ar skráð það gengisfall, sem
Hannibal og hans menn
hrundu fram.
Gengisfellingin núna er
11,6% eða tæpur þriðjungur
af gengisfellingu á tímum
vinstri stjórnarinnar árið
1958, sem var mesta góðæri,
sem hér hefur komið, með
metafla. Sú gengisfelling var
ágæt að dómi forseta Alþýðu-
sambands íslands af því
stjórn, sem hann átti sæti í,
varð til að staðfesta hana.
Hannibal Valdimarsson læt-
ur að því liggja að hann muni
reyna að beita áhrifum sínum
til að hefja verkfallsbaráttu,
sem skerði gengi krónunnar
einu sinni enn. Ekki er Morg-
unblaðið trúað á að honum
takist enn einu sinni að hindra
raunhæfar kjarabætur laun-
þega með verkfallsstefnu. Hitt
er deginum ljósara að gengl
Hannibals Valdimarssonar fer
héðan í frá hríðfallandi í ísl.
stjórnmálum og um það leyti,
sem það nálgast núllið, mun
kjarabótastefnan ráða í iaun-
þegasamtökunum, andstætt
verkfallastefnunni, og þá
munu lífskjörin líka batna hér
jafnt og þétt ekki síður en í
nágrannalöndunum.