Morgunblaðið - 18.08.1961, Blaðsíða 1
XI
Föstudagur 18. agust 1961
Unum glöð í fagurri og vaxandi borg
Viðtal við
borgarstjórann í
Reykjavík, Geir
Hallgrímsson
/ TILEFNI 175 ára afmælis
kaupstaðarréttinda Reykjavík-
ur hefur Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, orðið við tilmœl-
um Morgunblaðsins um að
svara í stuttu máli nokkrum
spurningum, setn blaðiö telur
aö bœjarbúar muni hafa sér-
stakan áhuga á. Fer samtalið
viö borgarstjóra hér á eftir.
— Hvaða verkefnum teljið
þér mikilvœgast að hrinda í
framkvœmd á nœstunnif
Borgarstjóri svaraði:
r —• Ég tel þrjú verkefni mik-
ilvœgust: Hitaveita verður lögð
í öll hús bœjarins á næstu ý—5
árum; skipulagi, ekki eingöngu
innan núverandi lögsagnarum-
dœmis Reykjavíkur, heldur suð
ur um Hafnarfjörð og upp eft-
ir Mosfellssveit, veröur hraðað
eins og frekast er kostur í sam-
vinnu við sveitarfélög t ná-
grenninu og skipulagsnefnd rik-
isins. Loks fylgja t kjölfarið
stórframkvæmdir, sem miða að
því að fullgera gatnakerfiö, svo
að állir íbúar bœjarins búi við
malbikaðar eða steyptar götur,
áöur en áratugur er liðinn.
—• Sumir eru vantrúaðir á,
að unnt verði að Ijúka hita-
veituframkvœmdum á j—5 ár-
um. Hafið þér trú á þvi, borg-
arstjóri, að fyrrnefndar fyrir-
œtlanir muni allar tákast?
— Útlit er fyrir að tákast
muni að afla þess fjár, sem
þarf til hitaveituframkvæmd-
anna. Verkfrœðilegt undirbún-
ingsstarf er vel á veg komið
og framkvœmdir ganga sam-
kvæmt áœtlun. Hugmyndin er
að bjóða framkvœmdir þessar
að langmestu leyti út og er gert
ráð fyrir, að það muni hraöa
verkinu. Hitaveita i Reykjavík
er eitthvert bezta fyrirtœki,
sem landsmenn geta ráðizt í.
Þaö er gert ráð fyrir, aö rékst-
ur fyrirtœkisins verði hagstæð-
ur, enda þótt hitaorkan verði
aðeins seld á 60% af þvi sem
kostar að kynda hús með ölíu.
Er því Ijóst, að það er í senn
brýnt hagsmunamál bœjarbúa
og þjóðarinnar í heild að lögð
verði megináherzla á, að áform
þessi tákist. Ég hef trú á, að
svo fari sem horfir % þeim efn-
um.
Eins og kunnugt er, vinna nú
érlendir sérfrœðingar með ís-
lenzkum skipulagsmönnum að
heildarskipulagningu þess svæð
is, sem ég gat um áöan. Jafn-
'framt er unnið að skipulagningu
á Miðbœnum — eða Kvosinni
éins og hann var kallaöur í
gamla daga. Gera má ráð fyr-
ir, að tiUögur um skipulag hans
liggi fyrir í byrjun vetrar.
Heildarskipulagiö á aftur á
mðtl nokkuð lengra í land. Þá
hefur veriö haldin norrœn sam-
keppni um skipulag Fossvogar-
ins og eru úrlausnirnar sýnd-
ar á Reykjavíkurkynningunni.
— En hvað um göturnar?
— Heildaráœtlun um að mal-
bika eða steinsteypa allar göt-
ur bœjarins er skemmra á veg
komin. Að sjálfsögðu er eðli-
legast að Ijúka hitaveitufram-
kvœmdum áður en götur eru
fullgerðar, svo að ekki þurfi
að brjóta upp nýjar götur. Slík
samrœming á hinum ýmsu
framkvœmdum bœjarins er ein-
mitt eitt af aðálverkefnum hins
nýja borgarverkfrœðings, sem
hefur yfirumsjón með öllum
verklegum framkvœmdum í
bœnum.
— Hvað getiö þér sagt okkur
um Reykjavíkurkynninguna?
■— Ég geri ráð fyrir, að all-
ur þorri Reykvíkinga kapp-
kosti að sjá sýninguna; ég þarf
þvi ekki aö fjölyrða um hana.
Þó vil ég segja, að ég tel til-
gang hennar ekki sízt þann að
gera bæjarbúum auðveldara að
glöggva sig á því, hvernig fjár-
munum þeirra er variö og
hvaöa störf bœjarstofnanir
inna af hendi. Mér er full-
Ijóst, að stöðugra umbóta er
þörf t rekstri bœjarins. Nauð-
synlegt er að gefa bœjarbúum
tækifœri til að kynnast störfum
bœjarfélagsins, svo að þeir geti
gagnrýnt bœjaryfirvöldin af
nauðsynlegri þekkingu og veitt
þeim heilbrigt aðhald. Jafn-
framt örvar undirbúningsstarf-
ið undir sýninguna bœjarstarfs-
menn, nýjar hugmyndir vákna
og þeir koma auga á ýmislegt,
sem betur mœtti fara.
Og að lokum, borgarstjóri:
Hvaö munduð þér vilja segja
frekar við bœjarbúa á þessum
tímamótum.
Geir Hallgrímsson svaraði:
— Ég hef getið nokkurra
þeirra verkefna, sem bœjaryfir-
völdin leggja nú mesta á-
herzlu á. Að sjálfsögðu biöa
fjölmörg mál önnur úrlausnar
og munum við af fremsta
megni leitast við að brjóta þau
til mergjar. ÖU miöast verk-
efnin við að fegra og auöga líf
höfuðborgarbúa. Það ar ósk
okkar og von að geta skilað
bœnum okkar betri t hendur
uppvaxandi kynslóöar. Þess
vegna eru menningar- og fé-
lagsmál, lista- og skólatnál rik-
ur þáttur í daglegum störfum
bœjaryfirvaida. Ég Leyfi mér
að óska þess — og treysti því
raunar — að aliir leggi höná
á plóginn, hvað smm ágrein
ingsefnum Uður, svo að J2«*£
víkingar megi utta glatHr < g
hamingjuaamir t fagurri og Á-
vazatuU borg.