Morgunblaðið - 18.08.1961, Síða 3

Morgunblaðið - 18.08.1961, Síða 3
PCsfuðagUr 18. ágúst 1961 MORCVlSfíLAÐlÐ 3 1 !■ MORGUNBLAÐIÐ hafði af því spurnir að enn væri til signet Skúla Magnús- sonar landfógeta, föður Reykjavíkur, og að það væri í eigu Skúla Halldórs sonar tónskálds, en hann er elzti afkomandi systur Skúla, sem ber það nafn í dag. — ★ Signet þetta er að sjálf- % _ Signetið séð frá báðum hliðum, en sjálft er það á miðmyndinni, S. M. undir kórúnu. Signet Skúla landfdgeta sögðu hinn mesti dýrgripur og hefir gengið að erfðum milli elztu Skúlaættarinnar frá því að landfógetinn lét smíða það. Við fengum að sjá signetið hjá Skúla Hall- dórssyni og fræddumst af honum og móður hans, frú Unni Skúladóttur, um gang þess gegnum ættina og ann- að það er um það er vitað. Sögn sú er um að signetið sé smíðað utan um tönn úr barni, er Skúli hefði misst, Bendir þetta til að með öll- um sinum krafti og hörku til framkvæmda hafi hann ver- ið tilfinningamaður. Myndir þær, sem hér fylgja með sýna betur, en lýst verður í fáum orðum útlit signet'sins. Eftir Skúla Magnússon landfógeta gengur signetið til afkomenda systur hans, Guð- rúnar Magnúsdóttur. Hennar sonur var Magnús Ketilsson Jónssonar og fyrsti Skúlinn, sem signetið tekur í arf er Skúli Magnússon, sýslumaður i Dalasýslu, sonur hans. Ástæðan til þess að signet- ið gengur i arf til afkom- enda systur Skúla, en ekki afkomenda hans sjálfs, er sennilega sú að Skúli sýslu- maður er elztur í ættinni með þessu nafni, er ömmu- bróðir hans fellur frá. Dóttir hans er Ragnhildur Skúladóttir og dóttir hennar Kristín Þorvaldsdóttir úr Hrappsey og hennar sonur Skúli Thoroddsen, sem hlýt- ur signetið eftir móðurbróð- ur sinn, Skúla Þorvaldsson Sívertsen í Hrappsey. Dóttir Skúla Thoroddsens er svo frú Unnur Skúladóttir, móðir Skúla Halldórssonar, núver- andi handhafa signetsins. — Ekki eru færri en 8 Skúlar nú á lífi fyrir utan Skúla Halldórsson, sem til greina koma sem erfingjar að sign- etinu, sem gengur, eins og fyrr greinir til elzta Skúlans í þessari grein ættarinnar. Myndirnar af signetinu sýna greinilega að á því eru tákn- myndir. Ekki gat blaðið afl- að sér upplýsinga um hvað þær eiga að tákna. Hins veg- ar mætti geta sér til að gyðj an með sverðið, eða kross- inn, gæti verið gyðja rétt- lætisins, en venjulega var bundið fyrir augu hennar og einnig hafði hún vogarskálar í annarri hendi. Hvorugt verður greint á þessari mynd. Hin myndin gæti verið af gyðju frjóseminnar. Báðar þessar táknmyndir gætu hafa verið Skúla kærar. Gyðja réttlætisins sem tákn lög- lærdóms hans og gyðja frjó- seminnar sem tákn endur- vakningar og uppbyggingar. Hvorttveggja þetta eru að- eins lauslegar hugdettur. Gæti verið gaman fyrir þá, sem fróðir eru um tákn- myndir þessa tima að rann- saka þetta nánar. ijómióta, i^etri f>jónuóta A CíUii? imidi,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.