Morgunblaðið - 18.08.1961, Page 6
6
MORCVNBLAÐ1Ð
Fðstudagur 18. ágAst lððS V
____________________________1
\
Samkomuhús og sjóbúð næstu
verkefni Æskulýðsráðs Rvíkur
liAUSTIÐ 1955 skipaði borgar-
stjórinn í Reykjavík sjö manna
nefnd „til þess að beita sér fyrir
umbótum í félags- og skemmtana
lifi æskufólks í bænum“. Nefnd
þessi hlaut siðar nafnið Æskulýðs
ráð Reykjavíkur og hefur það
unnið mjög mikið og umfangs-
mikið starf meðal æskunnar í
bænum. Má þar nefna allskonar
tómstundastarf, íþróttir, ferða-
lög, dansleiki, sjóvinnunámskeið
og margt fleira.
Fréttamaður Mbl. gekk í gær
á fund framkvæmdastjóra ráðs-
ins, séra Braga Friðrikssonar og
spurði hann um framtíðaráætl-
anir ráðsins.
Ráðið mun halda áfram hinni
umfangsmiklu vetrarstarfsemi
sinni og verður hún næsta vetur
á fleiri stöðum í bænum. í sumar
hefur ráðið verið aðili að íþrótta
námskeiðum, sumarbúðum og
komu vinnu og rannsóknar-
flokka æskufólks frá nágranna-
löndunum. Auk þess haft sam-
vinnu við skátafélögin um tóm-
stundaiðju í Skátaheimilinu.
Um næstu verkefni æskulýðs-
ráðs, sagði Bragi að það væru:
1. Samastaður við sjó fyrir sjó
vinnustarfsemina, þar sem kom-
ið yrði upp sjóbúð, uppsátri og
nauðsynlegum tækjum. þar þyrfti
einnig að vera hægt að stunda
róður og siglingar.
Markvisst hefði verið unnið að
Þátttakendur í sjóvinnunámskeiði Æskulýðsráðs um borð í
varðskipinu Óðinn.
þessu verkefni og stæðu vonir
til þess að lausn þess væri ekki
langt undan.
2 Annað helsta verkefni ráðs-
ins er að fá miðstöð, þar sem
ungt fólk í bænum fái aðstæður
til þess að æfa og flytja leikrit,
tónlist, söng o. s. frv. Þar þyrfti
einnig að vera hægt að halda
skemmtanir Og sýna kvikmyndih
fyrir börn og unglinga. Vonir
standa til að þetta mál leysist
mjög bráðlega.
3. Þriðja verkefnið er að fjölga
samastöðum fyrir tómstundastarf
í bænum og verður þeim fjölgað
nokkuð, þegar á næsta ári.
Bragi Friðriksson sagði að lok
um, að þátttaka í starfi ráðsins
hefði verið mjög góð og væri
ráðið að sprengja utan af sér allt
húsnæði. Starfsemin hefði þó
ætíð notið velvildar bæjaryfir-
valda, félaga og einstaklinga og
með góðri samvinnu þessara aðila
væri hinni nauðsynlegu starfsemi
æskulýðsráðs borgið.
WELA SÚPUR
Takið WELA súpur með i ferðalagið
Vandið valið veljið WELA
WELA SÚPUR - ÓDVRAR SÚPUR
WELA í NÆSTU BÚO
ARNI GESTSSON
UMBOÐ& OG HEILDVERZLUN
Vatnsstíg 3 — Sími 17930
Eigum fyrirliggjandi frá Rotary Hoes Ltd.
1 Bretlandi eftirtaldar gerðir
af garötæturum:
H702 garðtætari m. 7 hp VilHers benzínvél
og 20 tommu tætara
Bantham garðtætari m. 3 hp Villicrs benzínvél
og 10 tommu tætara. Uppl. á skrfistofunni í
Carðtœtarar
„MOORES"
hatfarnsr
eru komnir
Nýjar gerðir — Nýir litlr
Fallegi — Vinsællr
— þægileglr
Klœða alla
Gjörið svo vel og
skoðið i gluggana
Fatadeildin