Morgunblaðið - 18.08.1961, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.08.1961, Blaðsíða 16
16 MORCVNBLAÐ1L Föstudagur 18. ágúst 1961 Hverfi meS futigerðum veimkerfum. P ~ ÞaJustöðvar. T - Geymar. Hverfí sem muna fa hitavef á ncsstu 4-5 árum .■ 1M .............+ v . ^ Ji/taveita Reykjavíkur • Hitaveita í öllum húsum R.víkur eftir rúm 4 ár Á undanförnum árum hefur hefur verið unnið að stækkun hitaveitukerfisins og hitaveita m. a. verið lögð í meginhluta Hlíðanna. Jafnframt hefur verið unnið að víðtækum rannsóknum og áætlunum um frekari fram- 'kvæmdir, til þess að því marki verði náð, að allir bæjarbúar geti notið hitaveitunnar. Stóri borinn, svokallaði, var keyptur og hefur náðst mjög góður árangur með borunum hans. Hefur hitaveitan nú yfir að ráða miklu varmamagni, sem borað hefur verið fyrir í bænum sjálfum. í beinu framhaldi af þessu hef- ur fyrir nokkru verið fullgerð framkvæmdaáætlun um lagningu hitaveitu í öll hverfi Reykjavík- ur, sem enn hafa ekki fengið hana. Miðast áætlunin við það, að þessu takmarki verði náð í árslok 1965. Var gerð allýtarleg grein fyrir málinu hér í blaðinu fyrir rúmum tveimur mánuðum. Fyrirhuguð stækkun hitaveit- unnar mun ná til hverfa, sem hafa um 30 þúsund íbúa (og eru þá meðtalin hverfi, sem nú er verið að leggja í), en verða full- byggð með *40 þúsund íbúum. í dag eru það einmitt rúmlega 40 þús. manns, sem njóta hitaveit- unnar, og því er þarna í raun- inni um 100% stækkun að ræða. Nú eru um 4400 hús tengd liitaveitunni í Reykjavík og í þeim eru alls um 6750 veitukerfi. Skipting bæjarins í veitusvæði sézt glögglega á uppdrætti þeim, sem hér er birtur. Á uppdrætt- inum og í skýringunum, sem honum fylgja, má jafnframt sjá, hvenær lagning hitaveitunnar verður framkvæmd á hverju svæði. í framkvæmdaáætluninni er gerð nákvæm grein fyrir á hvaða tíma á að vinna hvert verk. Við samningu tímaáætlunarinnar hef ur orðið að taka tillit til vissra atriða. Af tæknilagum ástæðum er þannig, að öðru jöfnu, ráðgert að byggja tvöföld kerfi á undan einföldum. Nokkur hverfi, sér- staklega í Austurbænum, verða að koma seint í áætluninni, vegna þess, að ekki er lokið bor- unum í bæjarlandinu, og þess vegna ekki endanlega sýnt, hvernig aðfærsluæðum verði hagkvæmast fyrir komið. Þá er leitazt við að dreifa framkvæmd- unum um bæinn, þannig að eng- in sérstök svæði eða hverfi njóti forréttinda. Og að síðustu hefur verið reynt að miða framkvæmd ir við það, að fjárþörfin skiptist sem jafnast á þau 4—5 ár, sem framkvæmdir munu standa. Samkvæmt kostnaðaráætlun framkvæmdanna, er fjárþörfin alls áætluð 201 milljón króna en af því er borkostnaður áætlaður 30 milljónir. í áætluninni er mið að við kaupgjald og verðlag í janúar 1961. f>á hefur í stórum dráttúm verið miðað við þá gerð götu- og heimæðastokka, einangrun og frágang, sem nú tíðkast hjá Hitaveitu Reykjavík- ur. Vegna ónógra upplýsinga um Jarðvegsskipti og sprengingar í götum, er sá þáttur mjög laus- lega áætlaður. Vegna þeirra kauphækkana, sem nýlega hafa átt sér stað og gengislækkunarinnar, er þó ljóst að framkvæmdirnar verða all- miklu dýrari en ráð hafði verið gert fyrir. í kostnaðaráætluninni er miðað við að vinnulaun séu 55—60% heildarkostnaðar. Ekki fer á milli mála, að svo stórfelldar framkvæmdir í hita- veitumálunum eru ekki aðeins Reykvíkingum til hagsbóta held- ur þjóðinni í heild. Öll þjóðin mun hagnast vegna hins mikla gjaldeyrissparnaðar, sem í fram- MYNDIN sýnir hitaveitukerfi Reykjavíkur. Hitaveita hefur þegar verið lögð í hverfi A, B og C og auk þess í raðhúsa- hverfið við Bústaðaveg. I>ó geta ekki öll húsin í hverfi C fengið vatn fyrr en dælustöð- in hjá Sundlaugunum er full- gerð, en hún getur væntanlega tekið til starfa í október. Hverfi A hefur svokallað ein- falt veitukerfi, en þá rennur frárennslisvatnið út í klóak- ið. Hverfi B og nær allt hverfi C hafa tvöfalt veitukerfi. En þá er frárennslisvatninu safn- að saman frá húsiunum og hit- að upp á ný eða blandað sam- an við mjög heitt vatn, sem kemur úr sumum borholum. í norðurhluta Hliðanna (B-l) er nú verið að leggja tvöfalt hitaveitunnar. Mestur er hagnaður Reykvíkinga, þó tiðinni mun leiða af lagningu munu njóta hennar, enda er kerfi og verður vatni hleypt á fyrstu húsin í næsta mánuði. í hverfi C-1 (Laugarnes) á að vera lokið lagningu tvöfalds kerfis í árslok 1962. f hverfi E (Mýrar) verður lagt tvöfalt kerfi 1962. í Hagahverfi (D) verður lagt tvöfalt kerfi á ár- unum 1962—’63. Heimahverfi (F) fær tvöfalt kerfi 1963 og fyrrihluta árs 1964 Hverfi E-1 (Leiti) fær tvöfalt kerfi 1963. í Voga- og Langholtshverf (F-l) verður lagt einfalt kerfi 1964 og fyrri hluta árs 1965. Einfalt kerfi verður lagt í Skjólin (D-l) síðari hluta árs 1963 til jafnlengdar 1964. Og að lokum verður svo lagt ein- falt hitaveitukerfi í Smáíbúða hverfið (E-2) og Múlahverfi á árunum 1964 og 1965. heita vatnið selt mun ódýrar, eni aðrir hitagjafar sem til greina koma. ■ Myndin sýnir stjórntækin í dælustöðinni við SundlaugSmar, sem nú hafa verið sett upp. Pess- ari stöð er ætlað að dæla vatni í Teiga-, Lækja- og Brúnahverfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.