Morgunblaðið - 24.08.1961, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.08.1961, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. ágúst 1961 Á MORGUN halda héðan 24 ungir Vestur-Rerlínarbúar, er hér hafa ðvalizt sl. hálfan mánuð. Eru þau félagar æsku Iýðsfélags Marienfelde-kirkj- unnar í heimaborg sinni, en það er einmitt í Marienfelde, sent hinar miklu búðir fyrir flóttamenn frá Austur-Þýzka- landi eru staðsettar. Þar sem Berlín hefur verið svo mjög í fréttum að undanfömu öatt okkur í hug, að það gæti ver- ið gaman að rabba dálítið við þetta unga fólk, og því var það, sem við brugðum okkur einn rigningardaginn fyrir skömmu inn í félagsheimili Ungmennafélags Reykjavíkur, þar sem það hefur dvalizt. Þegar við komum að hús- inu sjáum við í gegnum einn gluggann, hvar jiokkrar ung- ar stúlkur eru í óða önn við að flysja kartöflur og stússa Þýzki æskulýðsfélags hópurinn sem hér er. Kaldar kartðflur í hádegismat við matarpotta. Þrátt fyrír annríkið inni fyrir knýjum við þó dyra og á móti okkur tekur sr. Ólafur Skúlason æskulýðsprestur þjóðkirkjunn ar, en á bak við hann greiin- um við forvitin andlit, sem við könnumst ekki við af göt- um Reykjavíkui Ólafur segir okkur, að sl. sunnudagskvöld hafi þau sungið við hljómleika í Nes- kirkju við mjög góðar undir- tektir. Þegar við höfum feng- ið þetta upplýst, linnum við auðvitað ekki látum fyrr en þau hafa falilizt á að syngja fyrir okkur nokkur lög og satt að segja furðum við okk- ur ekkert á því, þótt þau hafi hlotið góðar móttökur í Nes- kirkju. Eftir sönginn kynnir Ólaf- ur okkur fyrir fararstjóra 'hópsins, Eleonore Thiimler, sem er guðfræðingur að mennun og hefur tekið prest- vígslu, og stöllu hennar Irm- hild Barend, og spjöllum við þær nokkra stund. — Hafið þið ferðazt mikið um landið síðan þið komuð? — Já, nokkuð, við erum ný- komin úr þriggja daga ferða- lagi og heimsóttum við m. a. Geysi, Gullfoss, Þingvöll, Laugavatn og æskulýðsheim- ilið að Vindáshlíð og þangað þótti okkur sérstaklega gott að koma. Við höfum notið dvalarinnar hér mjög vel og sjóum svo sannarlega ekki eftir að hafa komið hingað. — Hafið þið ferðazt til annarra landa? — Já, í hitteðfyrra fór hóp- urinn til Frakklands og auk þess höfum við ferðazt tals- vert saman um Þýzkaland. Annars stefnum við að því að heimsækja sem flestar er- lendar þjóðir og vonum að geta farið í slíkar heimsóknir helzt annað hvert ár. — Hver er tilgangur ykkar með þessum ferðalögum? — Ein aðalástæðan er auð- vitað sú, að okkur langar til þess að kynnast öðrum lönd- um, en fyrst og frernst viljum við þó reyna að kynnast hugs unarhætti æskunna. í þeim löndum, sem við heimsækj- um. — Hvað hafið þið annars haft fyrir stafni þessa daga, sem þið hafið dvalizt hér? — Auk ferðalaga út úr bænum höfum við t. d. skoð- að ýmsa merkisstaði hér í bænum, eins og háskólann, Þjóðleikhúsið og Listasafn Einars Jónssonar Þá höfum við verið viðstödd guðsþjón- ustur og einn daginn bauð biskupinn yfir íslandi okkur til tedrykkju, það var mjög ánægjuleg stund. Næst röbbum við lögreglu- þjóninn í hópnum, Friedrich Fabarius. — Hefurðu verið lengi í vestur-þýzku lögreglunni? — Ég hef starfað se-i lög- reglumaður í 4^ ár, eða síð- an ég var 18 ára gamall. Starf mitt gerir það að verk- um, að ég verð að fara milli Vestur-Þýikalands og Vestur- Berlínar með dálítið öðrum hætti en félagar mínir. — Nú, hvernig þá? — Austur-Þjóðverjar líta á þá sem starfa í vestur-þýzku ’lögreglunni sem landráða- menn og hafa oft og tíðum 'handtekið þá, þegar færi hef- ur gefizt. Ég verð því að fara loftleiðis milli Vestur-Þýzka- lands og Vestur-Berlínar, en félagar mínir geta farið með járnbraut, því að vestur- 'þýzka stjórnin hefur lagt fyrir lögreglumenn sína að fara ekki landleiðina vegna handtökuhættunnar, sem sí- fellt vofir yfir þeim. ★ Hinum ágæta söng þýzku unglinganna stjórnaði einkar 'geðþekk, Ijóshærð stúlka og var ekki annað sýnna en hún væri þeim starfa þaulvön. Við spyrjum hana því, hvort 'hún hafi sérstaklega lagt stund á tónlistarnám, en þá 'kemur í .jós að hún hefur lært söngstjórn sem einn lið af margþættu náimi trúar- bragðakennara. Nafn hennar er Margrét Rasp og aldur 23 ár. — Námið tekur fimm ár, segir Margrét, fjögur ár bók- legt og eitt ár verklegt. Hún segir okkur einnig, að skortur sé á ungu fólki til trúar- ’bragðakennslu á vegum kirkj unnar, því að launin séu lág. Félagar í æskulýðsfélagi Marienfeldekirkjunnar eru þrjátíu. Þau koma saman reglulega 2—3 í viku, spjalla saman, syngja og leggja á ráðin um ferðalög og starf- •semi sína. — Hafið þið nokkuð kynnzt flóttafólkinu í Marienfelde, spyrjum við? — Það getur tæpast heitið, segir Margrét, við sjáum það alltaf og tölum við það. Einu sinni í mánuði förum við til búðanna og leikum og syngj- um fyrir flóttamennina, — þar eru margir daprir í 'bragði — en við sjáum alltaf ný og ný andlit í hvert sinn. Fólkið er ekki nema örfáa daga í Marienfelde, síðan fer það flugleiðis áfram til Vestur-Þýzkalands. Það er athyglisverður þátt- Ur í starfi æskulýðsfélaganna 4 Vestur-Berlín að sérhver kirkjudélld hefur haft sam- bana við kristið æskufólk í einhverju hverfi Austur- Berlínar. Hafa unglingarnir skipzt á heimsóknum en ekki blæs byrlega um áframhald þess starfs, úr því landamær- unum hefur verið 1-kað. Að lokum hittum við að máli Ludvicu Eberstein, sem stundar háskólanám í guð- fræði. Hún skýrir okkur frá því að þriðji hluti guðfræði- stúdenta í Berlín séu stúlkur og þær megi stunda öll sömu prestastörf og karlar. — Hefur það verið lengi svo í Berlín? — Já, ég held mér sé óhætt að segja um fjörutíu ár. — Megið þið starfa áfram ef þið giftist. — Aðeins eitt ár. Þá verð- um við að hætta að messa, en megum inna af hendi eftir sem áður ýmis aukaverk prestsembættisins. — Hvað tekur námið lang- an tíma? — Meðaltal er átta misseri — en margir eru allt að tíu misserum. ★ Kartöflurnar eru orðnar kaldar. Við sjáum fram á að við munum eyðileggja mál- tíðina með öllu ef við ekki hypjum okkur þegar í stað. Rit um V-íslend- inga að koma út UM þessar mundir er að koma út hjá bókaforlagi Odds Björns- sonar á Akureyri, merkilegt rit um Vestur-íslendinga og ættir þeirra. Þetta er 1. bindi af ævi- skrám Vestur-íslendinga, og hef- ir séra Benjamín Kristjánsson buið verkið til prentunar, og einnig ásamt þeim Steindóri Steindórssyni, menntaskólakenn- ara og Áma Bjarnarsyni, bókaút-' gefenda safnað efninu. Gísli Ól- afsson yfirlögregluþjónn hefir safnað, tekið og undirbúiö mynd- irnar. í þessu fyrsta bindi, sem er um 490 blaðsíður, eru 500 manna- myndir en 455 æviskrár, og er getið nafna 0615 manna og kvenna. Þarna er að finna nöfn íslenzkra manna, sem fóru vest- ur um haf, e auk þess foreldra þeirra, og einnig eru ættir raktar lengra aftur. Þessi bók er því ekki einungis almenningi kær- komin, heldur er hún hrein gull- náma fyrir ættfræðinga og aðra þá sem yndi hafa af fornum fróð- leik um menn, störf þeirra maka og afkomendur. Hugmyndina að þessu starfi munu þeir eiga Steindór Stein- dórsson og Árni Bjarnarson, og fóru þeir ásamt séra Benjamín og Gísla vestur um haf árið 1958. Söfnuðu þeir þá allmiklu eíni og myndum. Mikils stuðnings nutu þeir félagar frá séra Jóni Guðna syni skjalaverði, en hann hefir einnig farið yfir handritið af þessu fyrsta bindi. Séra Benja- mín taldi að hlédrægni fólksins hefði verið mikil og hefði það háð þeim félögum nokkuð. „Það vildi ekki segja neitt um sjálft sig eða sín málefni“. Sigurður O. Björnsson prentsmiðjustjóri hefir ráðizt í mikið stórvirki, að gefa út þetta verk, því það mun vera allkostnaðarsamt, en útgáf- an ber það með sér að ekki er horft í kostnað því ritið er sé* - lega vandað. Búast má við að verkið í heild verði a. m. k. 4—5 bindi þegar því er lokið. Þessi útgáfa mun verða einn sterkasti liðurinn í að tengja saman þjóðarbrotið í Vestur- heimi. St. E. Sig. Talið frá vinstri, fremri röð: Sr. Benjamín Kristjánsson, Árni Bjarnarson. Aftari röð: Gísli Ólafsson, Steindór Stein dórsson og Geir S. Björnsson, forstj. POB. Vill bætt starfs- skilyrði kennara EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt á fundi Fræðsluráðs Akraness 24. júlí sl. „Eins og háttvirtri fræðslu- málastjórn er kunnugt, er mjög miklum erfiðleikum bundið að fá ráðna vel menntaða og hæfa kennara í stöður við barna- og gagnfræðaskóla. Augljóst virðist að ýmsir góð- ir hæfileikamenn leiti frá kennslu til annarra starfa, og virðist það einkum launakjör kennara, sem því valda, en segja má að hróplegt ósamræmi sé milli launa kennara og annarra stétta þjóðfélagsins, t.d. iðnað- armanna. Fræðsluráð Akraness telur.'að til vandræða hafi horft um langt skeið af þessum sökum, — og telur tíma til kominn að spyrnt sé við fótum, kjör kennara og annara skólamanna bætt að mun, svo að tryggt sé, að á hverjum tíma veljist sem hæfast starfslið til að vinna að uppeldismálum. Fræðsluráð Akraness ályktar því að beina því til háttvirtrar fræðslumálastjórnar, að hún beiti sér fyrir, að launakjör og starfs- skilyrði kennara verði stórlega bætt frá því sem nú er, og verið hefur um árabil.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.