Morgunblaðið - 24.08.1961, Síða 22

Morgunblaðið - 24.08.1961, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. ágúst 1961 Möguleiki á: 9 milljón .vinningi Hvað llður svari við tilbodi Breta um getraunir hér? HVER mundi ekki þiggja 9 milljón króna vinning? Slík- an er hægt að hljóta fyrir að vera heppinn í getraununum um úrslit knattspyrnuleikja í Englandi. Eitt af þeim fyrir- tækjum, sem slíkan rekstur annazt, hefur boðið íslenzk- um yfirvöldum að starfrækja getraunir hér á þann hátt að þeir sem hér „tippa“, eins og það er kallað að fylla út get- raunaseðilinn, eigi aðgang að hinum stóru vinningum í Englandi á sama hátt og Englendingar sjálfir. Þetta tilboð var sent íslendingum 1957. Það vaknaði þegar áhugi á málinu og íþrótta- nefnd ríkisins taldi æskilegt að verða við þeirri ósk enska firmans að gera tilraun með þessa starfsemi hér í 5 ár. £ Landhelgin stöðvaði Málið strandaði á sínum tíma á landhelgismálinu — þ. e. a. s. viðskipti við Englendinga þóttu ekki æskileg meðan á þeirri deilu stóð. En nú er það mál leyst og samt hefur ekkert heyrzt um gang málsins og það mun enn sófa hjá réttum aðilum. Án efa er áhugi meðal almennings fyrir þessu máli og íþróttahreyfinguna skortir fé, en ef þátttaka er al- menn gæti hún haft verulegar tekjur af þessari starfsemi og þá gæti létt af ríkinu þeim útgjöld- um sem ríkið leggur íþróttunum. Það er því ekki úr vegi að rifja upp hvernig þetta mál var. Það var enska firmað Verner Pools (eitt stærsta getrauna- firma Englands sem bað um leyfi til að reka getraunastarfsemi hér Og yrði starfsemin þannig, að þeir sem „tippuðu" hér ættu á sama hátt og þeir er sendu getrauna- seðla í Englandi rétt til hinna himinháu vinninga — ef þeir gizkuðu einir rétt. £ Vinningar Getraunastarfsemin fer þann ig fram að helmingi veltunn- ar í hverri viku er varið i Drætti frestað til 5. október KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Fram efndi til happdrættis vegna Rússlandsferðar meistara- flokks félagsins. Drætti í happ- drætti þessu hefur nú orðið að fresta og verður dregið 5. októ- ber nk. 33733 BÆJARKEPPNI í frjálsíþrótt- um milli Hafnarfjarðar og Kefla- víkur hófst í gærkvöldi. Eftir fyrri dag eru stig jöfn, 33—33. Keppninni lýkur í kvöld og hefst hún kl. 7,15 á Hörðuvöll- um í Hafnarfirðt vinninga. Skiptizt vinninga- upphæðin jafnt í 5 hluta. Einn hlutann hljóta þeir er getið hafa rétt um 12 leiki, annan þeir sem getið hafa rétt um 11 leiki o. s. frv. Geti einn mað- ur rétt til um úrslit 12 leikja Framhald á bls. 23. Engiendingar hafa keypt skozka knattspyrnumenn fyrir 70 millj. kr. ÞAÐ ER EKKI að ástæðulausu, að framkvæmdastjórar ensku lið anna, fylgjast mjög vel með getu skozkra knattspyrnumanna. Fró því í júní 1958 hafa ensk félög greitt um 600 þúsund pund fyr- ir skozka leikmenn. Hvað orsak- ar þetta, er að sjálfsögðu erfitt að svara, en skozkir knattspyrnu áhugamenn hafa ávallt haldið því fram, að beztu knattspyrnu menn Bretlands sé að finna í Skotlandi. Til gaman skal getið um helztu sölur síðan 1958: A. Parker frá Falkirk til Ever- ton fyrir 20 þús. pund. G. Leggat frá Aberdeen til Fulham fyrir 16 þús. pund. B. Collins frá Celtic til Everton Spretthorðir knattspyrnu- menn FRÉTTIN um að Ragnar Jóns- son FH væri sprettharðasti knattspyrnumaður landsins vakti ótrúlega mikla athygli. Vilja sumir draga í efa að svo sé, en hafa ekki staðreyndir á takteinum. Kemur því til greina að efna til sprettkeppni meðal knattspyrnumanna og er það mál í athugun! Einn af þeim sem hringdu til síðunnar var Hallsteinn Hinriksson þjálfari FH í hand- knattleik. Hann sagði að þeir í FH leggðu sérstaka áherzlu á hraða og snögg viðbrögð. „Á því byggjast okkar snöggu upphlaup í handknattleik“ sagði hann. „Og þeir eru marg ir sprettharðir í liðinu — um helmingur liðs FH fer 100 m á 12 sek. eða þar undir, Þóy þeir séu fljótastir bræðurnir Ragnar og Bergþór. Bergþór hefur hlaupið á 11,3 þó það sé ekki í ár. En í haust ætla ég að taka tímann á þeim öllum. Þeir eru fljótir — en tiltölu- lega enn fljótari í 60 m hlaupi en í 100 m“, sagði Hallsteinn. Aðrir veðja á Árna Njálsson í Val og fleiri eru tilnefndir. Vera kann að hægt verði að koma á sprettkeppni meðal knattspyrnumanna. fyrir 25 þús. pund. W. Fernie frá Celtic til Middles brough fyrir 17 þús. pund. Maokay frá Hearts til Totten- ham fyrir 30 þús. pund. D. Sneddon frá Dundee til Preston fyrir 12 þús. pund. McEwen frá Raith Rovers til Aston Villa fyrir 8 þús. pund. B. Brown frá Dundee til Tott- enham fyrir 15 þús. pund. A. Aitken frá Hibs til W.B.A. fyrir 8 þús. pund. J. White frá Falkirk til Totten- ham fyrir 20 þús. pund. J. Wallace frá Airdrie til W.B.A. fyrir 10 þús. pund. B. Craig frá T. Lanark til Sheffield W. fyrir 8 þús. pund. McBride frá Kilmarnock til Wolverhampton fyrir 13 þús. pund. T. Ring frá Clyde til Everton fyrir 12 þús. pund. J. Gábriel frá Dundee til Ever- ton fyrir 25 þús. pund. B. Evans frá Celtic til Chelsea fyrir 14 þús. pund. J. Planderleith frá Hi'bs til Snæfell sigraði á her- aðsmóti í „frjálsum" HÉRAÐSSAMBAND Snæfells- nes og Hnappadalasýslu hélt hér- aðsmót í frjálsum íþróttum að Hofgörðum í Staðarsveit 16. júlí Ungmennafélagið Snæfell sigr- aði með nokkrum yfirburðum en hörð keppni var um 2. og 3. sætið. Allgóður árangur náðist á mótinu — og þó betri meðal kvenna en karla. Sigurvegarar í einstökum greinum urðu þessir: 100 m hlaup: Hrólfur Jóhannesson St. 11.6 400 m hlaup: Hrólfur Jóhannesson St. 55.4 1500 m hlaup: Hermann Guðmunds. Snf. 4.52.4 4x100 m boðhlaup: Umf. Staðarsveitar A 49.3 Hástökk: Þórður Indriðason Þ 1.66 Langstökk: Þórður Indriðason Þ. 6.31 Þrístökk: Þórður IndriðasoR Þ. 13.42 Stangarstökk: Brynjar Jensson Snf. 3.50 Kúluvarp: Erling Jóhannesson ÍM 14.02 Kringlukast: Erling Jóhannesson ÍM 41,38 Spjótkast: Einar Kristjánsson St. 44.84 80 m hlaup: Svandís Hallsdóttir E 11.4 4x100 m boðhlaup: Umf. Eldborg Hástökk: Svala Lárusdóttir Snf. Langstökk: Svandís Hallsdóttir E Kúluvarp: Svala Lárusdóttir Snf. Kringlukast: Guðbjörg Lárentínusd. Snf. 22,75 Stigakeppni: Umf. Snæfell (Snf) Umf. Eldborg (E) Umf. Staðarsveitar (St) Umf. Þröstur (Þ) íþróttaf. Miklaholtsh. ÍM. Umf. Trausti 58.0 1,29 4,12 7.94 MAÐUR getur næstum því heyrt markvörð Tottenham, Bill Brown, æpa af sársauka, þegar félagi hans, Ron Henry, og Bobby Thomson frá Aston Villa, skella ofan á hann. — Mynd þessi fékk verðlaun í samkeppni British Press Pict- nes, fyrir íþróttamyndir árið 1960. Manchester City fyrir 10 þús. pund. B. Johnstone frá Hitos til Old- ham fyrir 4 þús. pund. G. Thomson frá Hearts til Ever ton fyrir 15 þús. pund. A. Young frá Hearts til Ever- ton fyrir 40 þús. pund. G. Herd frá Clyde til Sunder- land fyrir 40 þús. pund. J. Conway frá Celtic.til Nor- wioh fyrir 10 þús. pund. B. Auld frá Celtic til Birming- ham fyrir 15 þús. pund. Ian St. John frá Motherwell til Liverpool fyrir 35 þús. pund. L. Leslie frá Airdrie til West Ham fyrir 15 þús. pund. J. Mc Leod frá Hibs til Arsenal fyrir 40 þús. pund. D. Moran frá Falkirk til Ips- wich fyrir 12 þús. pund. Ian Crawford frá Hearts til West Ham fyrir 7 þús. pund. B. Kennedy frá Kilmarnock til Manohester City fyrir 43 þús. pund. Ron Yeats frá Dundee U. til Liverpool fyrir 35 þús. pund. Eins og sést á þessu yfirliti þá hefur Everton keypt 6 leikmenn fyrir um 140 þús. pund. Totten- ham hefur keypt þrjá leikmenn og þeir áttu allir mikinn þátt í hinum glæsilegu sigrum sl. keppnistímabil. — Athyglisvert er, að frægasta og ríkasta félagiS í Skotlandi, Glasgow Rangers, hefur ekki selt einn einasta leik- mann sl. þrjú ár. Á þetta vafa- laust rætur að rekja til góðra kjara leikmanna hjá félaginu. Fyrir utan allar þessar sölur, eru margar í vændum og allir muna einnig eftir Joe Baker, sem Hibs seldi til Turin á ítaliu fyrir 65 þúsund pund. Rússar unnu ISTorÖ- menn 3:0ítjærkvöEdi NORÐMENN og Rússar léku landsleik í knattspyrnu í gær- kvöldi. Var leikurinn síðari leik- ur landanna í undankeppni heims meistarakeppninnar. Hinn fyrri unnu Rússar í Moskvu 5—2. Nú unnu Rússar enn með 3 gegn engu. í hálfleik var staðan 0—0 en Rússar höfðu þó átt mun meira í leiknum. En Rússarnir voru staðir og framverðir og bakverð- ir Norðmanna gátu forðað hættu við markið. Á fyrstu mín. síðari hálfleiks skoruðu Rússar tvö mörk. Síðan var um algeran einstefnuakstur að ræða fyrir Rússa. ,,Við getum verið ánægðir með að það stoppaði á 3—0“ seg- ir norska fréttastofan NTB. Norðmenn voru mjög óánægðir með sóknarleikmenn sína — en hrósa leik framvarðanna og vara- arinnar yfirleitt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.