Morgunblaðið - 20.09.1961, Síða 23
Miðvikudagur 20 sept. 1961
MORCVlSHr AÐIÐ
23
Viljayfirlýsing kristilegra demókrata:
Adenauer áfram kanslari
- en frjálsir demókratar neita
samstarfi undir forustu hans
Bonn, V.-Þýzkalandi, 19. sept.
-— (AP — NTB — ReuterJ —
KRISTILEGIR demókratar,
flokkur Adenauers kanslara,
héldu fund í Bonn í dag til
þcss að ræða viðhorfin eftir
kosningarnar, þar sem flokk
urinn missti meirihluta sinn
á þjóðþinginu. Eftir fundinn
var gefin út yfirlýsing þess
efnis, að flokkurinn vilji að
Adenauer gegni áfram kansl
araembættinu — og að hann
reyni samninga við frjálsa
demókrata um myndun sam-
steypustjórnar.
Um svipað leyti ítrekaði
Erich Mende, foringi frjálsra
demókrata, fyrri yfirlýsingar
um það, að flokkur sinn væri
fús til samninga við kristi-
lega demókrata um stjórnar-
myndun -— með því skilyrði,
að Adenauer verði ekki
kanslari — jafnvel ekki að-
eins stuttan tíma.
frjálsum demókrötum og jafnað-
armönnum, og stjórnmálafrétta-
ritarar eru ekki heldur trúaðir
á, að Adenauer myndi minnihluta
stjórn flokks síns, þótt þeir úti-
loki ekki þann möguleika. Ad-
enauer hefir hins vegar hafnað
þeirri tillögu Willy Brandts, borg I
arstjóra Vestur-Berlínar og I
kanslaraefnis jafnaðarmanna, að
nú verði mynduð samsteypu-
stjóm flokkanna þriggja. Brandt
játaði það og í dag, að litlar lík-
ur væru nú til þess, að hann yrði
næsti forsætisráðherra V.-Þýzka-
lands, enda þótt flokkur hans
ynni mjög á í kosningunum — og
gaf í skyn, að hann myndi áfram
gegna borgarstjórastöðunni, þótt
hann verði þingmaður á sam-
bandsþinginu í Bonn.
Möguleikar Aderrauers
Þrátt fyrir það, að sam-
kvæmt framanskráðu virðast
ekki miklir möguleikar á lausn
þýzku stjórnarkreppunnar að I
— Russar krefjast
Vilja Erhard eða
Gerstenmaier
Frjálsir demókratar skipuðu
I dag nefnd til þess að eiga við-
ræður við flokk Adenauers, en
Mende sagði á blaðamannafundi,
að ekkert tilboð um viðræður
hefði borizt frá stjórnarflokkn-
um. Jafnframt undirstrikaði
hann, að flokkur sinn mundi ekki
falla frá neinum þeim skilyrðum
fyrir stjórnarsamstarfi við kristi
lega demókrata, sem sett hefðu
verið fyrir kosningar — en eitt
af þeim væri, að Adenauer yrði
ekki stjórnarformaður. Hann hef-
ír lýst því yfir, að frjálsir demó-
kratar mundu sætta sig við Lud-
Wig Erhard efnahagsmálaráð-
herra eða Eugen Gerstenmaier í
embætti kanslara.
Brandt — áfram
borgarstjóri
Litlar líkur eru taldar til, að
Stjórnarmyndun takist með
Framh. af bls. 1
í örstuttu ávarpi, að þingið hæf-
ist nú „í skugga hins mikla
harms“. — „Þetta er ekki rétta
stundin til þess að tala um hinn
mikla missi vorn, eða að ræða
ágæti þeirra, sem nú eru látnir.
Tii þess mun gefast’ tóm síðar“,
sagði Boland. Bað hann síðan
þingheim að rísa úr sætum og
standa í þögn eina mínútu í virð-
ingarskyni við Dag Hammar-
skjöld. Síðan frestaði hann fundi
þar til á morgun, kl. 2 (að ísl.
tíma).
Bak við tjöldin
í allan dag höfðu sendinefndir
hinna ýmsu ríkja setið á fundum
í aðalstöðvunum í New York og
rætt ástand það, sem skapazt hef-
ir við fráfall Hammarskjölds.
Einkum voru það fulltrúar vest-
urveldanna, sem ræddu mjög um
það, hvernig unnt yrði að leysa
spurninguna um framkvæmda-
Sorgarblær á
abalstöðvum SÞ
ÁRNI Ágústsson, sem um
skeið var íþróttafréttaritarl
Morgunblaðsins, en dvelst nú
í Bandaríkjunum, kom i aðal-
bækistöðvar Sameinuðu Þjóð
anna í New York á mánudag-
inn — skömmu eftir að þang-
að höfðu borizt fregnir af frá-
falli Hammarskjölds. Um
komu sína þangað skrifar
Árni m. a.:
— í aðabækistöðvum Sam-
einuðu Þjóðanna var afar
hljótt og sorgarblær yfir öllu.
Fánar aðildarríkjanna höfðu
verið dregnir niður, og fáni
Sameinuðu Þjóðanna blakti
einn i hálfa stöng — yfir auð-
um fánastöngum aðildarríkj-
anna, fallandi laufum trjánna
og fölnandi blómum skrúð-
garðsins fyrir framan aðal-
bygginguna.
Er inn í bygginguna kom,
yar engu likara en komið væri
inn í líkhús. Sorgarsvipur
hvíldi yfir öllu og það var
eins og allir reyndu að ganga
eins hljóðlega um og unnt var.
í blaðamannadeildinni var
allt hljótt eins og annars stað-
ar, þótt nokkrir tugir blaða-
manna biðu þar eftir frekari
fréttum af hinum hörmulega
slysi.
Kl. 4 e. h. kom blaðafulltrú-
inn og tilkynnti klökkum
rómi, að frétt hefði borizt um,
að sá er enn væri lifandi, en
mikið slasaður, væri starfsmað
ur Sameinuðu þjóðanna hér i
New York, Bandaríkjamaður-
inn Harald Julian, en hann er
í gæzluliði S. Þ.
Þegar blaðafulltrúinn hóf
mál sitt, var rödd hans mjög
klökk, og þótt dauðahljóð
væri í salnum, þurfti einn
blaðamaðurinn að kalla upp:
— Getið þér ekki talað svo-
lítið hærra. Málrómur blaða-
mannsins og frekjutónninn í
röddinni stakk mjög í stúf við
andrúmsloftið í salnum, sem
þrungið var alvöru og hryggð,
og skutu margir ásakandi
augnaráði til hrópandans, sem
fór allur hjá sér.
svo stöddu, hefir Adenauer þó
möguleika skv. stjórnarskránni
til að verða áfram kanslari — en
hún veitir eftirfarandi möguleika
í sambandi við kanslarakjör, að
sögn AP-fréttastofunnar:
1) Sambandsforsetinn stingur
upp á kanslaraefni í þinginu, og
eru þá greidd atkvæði um tillög-
una í neðri deildinni, án um-
ræðu. En kanslaraefnið verður
að hljóta meirihluta atkvæða til
að ná kjöri.
2) Ef „kandídat" forsetans er
felldur, skal þingið greiða at-
kvæði að nýju innan 14 daga —
en þá þarf viðkomandi einnig að
fá meira en helming atkvæða.
3) Ef engin úrslit fást að held-
ur, skal .ný atkvæðagreiðsla fara
fram án tafar — og skal þá sá
„kandídat", sem flest atkvæði
hlýtur, teljast kosinn, þótt ekki
sé um helming atkvæða að ræða.
En ef svo er ekki, skal forsetinn
innan sjö daga annaðhvort út-
nefna hann kanslara, eða leysa
upp þingið og fyrirskipa nýjar
kosningar.
Þannig gæti Adenauer orðið
kanslari, án stuðnings meirihluta
þingsins.
stjórn samtakanna nú, að Hamm-
arskjöld látnum. Ekkert hefir ver
ið greirtt opinberlega frá þessum
viðræðum, en talið er, að meðal
þeirra möguleika, sem ræddir
voru, hafi verið þeir að veita að-
stoðarframkvæmdastjórunum til
bráðabirgða það vald, sem Hamm
arskjöld hafði — eða hitt, að
reyna að koma á samkomulagi
um, að fulltrúi einhverns hlut-
lausu ríkjanna gegni fram-
kvæmdastjórastarfinu til bráða-
birgða, meðan verið sé að leita
frambúðarlausnar. Var sú skoðun
m.iög uppi, að reynt yrði að fá
Allsherjarþingið til að sam-
þykkja, að Mongi Slim, aðalfull-
trúi Túnis, sem nú er einn í kjöri
til forseta þingsins, gegndi jafn-
framt skyldum framkvæmda-
stjóra til bráðabirgða — án þess
þó hann yrði formlega útnefndur
sem slíkur.
■Jt Þolir enga bið
Yfirlýsing Gromykos, sem sagði
Orðrétt: „við höldum fast við
þann grundvallar-skilning, að
ekki sé rétt, að hafa einn mann“
(sem framkvæmdastjóra) — hef-
ir nú mjög veikt vonir manna
um lausn þá, sem minnzt er á
ér að framan. Þó sagði Stevenson,
aðalfulltrúi Bandaríkjanna, er
honum voru tjáð umrnæli Gromy
kos: — Eins og kunnugt er, stönd
um við (Bandaríkjamenn) ein-
dregið gegn „þrístjórninni“. Þetta
virðast vera skipulagðar aðgerðir
til þess að slá á frest máli, sem
þolir enga bið. Það er ekki hægt
að bíða með skipun framkvæmda
stjóra — Og nægir þar að benda
á hið alvarlega ástand í Kongó.
Við verðum að fá framkvæmda-
stjóra skipaðan til bráðabirgða,
sagði Stevenson og lét í Ijós von
um, að einhverjir aðilar bæru
það mál fram án tafar. Hins veg-
ar gaf hann í skyn, að Banda-
ríkin mundu vart bera fram til-
lögu þar að lútandi sjálf.
— ★ —
Hugmynd Rússa er, að þriggja
manna framkvæmdastjórn Sþ
verði skipuð einum manni frá
kommúnistaríkjunum, einum frá
vesturveldunum og einum frá
hlutlausu ríki — og hafi hver um
sig neitunarvald. Vestrænu ríkin
og mörg hinna hlutlausu telja, að
með slíku skipulagi væru Sþ svipt
ar möguleikanum til þess að hefja
skjótar aðgerðir, þai sem þörf
kann að reynast — svo sem í
Kongó fyrir rúmu ári.
Konrad Adenauer var von-
glaður á svip, er hann
greiddi atkvæði í kosningun-
sl. sunnudag.
— Listsýningin
Framh. af bls. 2
bronsstyttu sinni af sitjandi,
ungum manni, er hún nefni
„Sonur“, og í ennþá fullkomn-
ara verki í brenndum leir
(terracotta) af ungri, sofandi
stúlku, að nafni „Greta“.
„í einum hinna stóru mið-
sala“, segir greinarhöfundur síð-
ar í greininni, „er ágætlega
fyrirkomið verkum íslenzka
abstraktmálarans Jóhannesar Jó
hannessonar og björtum lands-
lags- og blómamyndum eftir
hinn mikla, aldraða listmálara,
Jón Stefánsson".
Jan Zibrandtsen lýkur grein
sinni með þessum orðum:
„íslendingum eru á skemmti-
legan hátt sýndir straumarnir í
norrænni list á þessari stóru
sýningu í Reykjavík“.
—• Fréttaritari.
— Sænska rikið
Framhald af bls. 1.
Ekki hefir enn verið ákveðiðs,
hvenær útförin fer fram. Graf-
riitur Hammarskjöld-ættarinnar
er í Upp-ólum.
Eini maðurinn, utan konungs»
ættarinnar, sem jarðsettur hefir
verið á kostnað sænska rikisins á
síðari tímum, var Louis de Geer,
frægur stjórnmálamaður, sem
lézt árið 1896.
Bróðursonur hins látna, Knut
Hammarskjöld, er nú á leið til
Ndola í Ródesíu til þess að sækja
lík frænda síns. í Rómaborg slóst
í för með honum Pier Pasquale
Spinelli, einn af aðstoðarfram-
kvæmdastjórum Sameinuðu þjóð
anna og forstöðumaður Evrópu-
skrifstofu samtakanna, og mun
hann einnig fylgja líki Hammar-
skjölds til Svíþjóðar.
Jt Friðarverðiaun Nobels?
Aftobladet í Stokkhólmi lagði
í dag til, að Hammarskjöld yrðu
veitt friðarverðlaun Nobels við
næstu úthlutun — og minnti á,
að ekkert í reglugerð verðlauna
sjóðsins hindri það, að verðlaun-
in séu veitt manni að honum
látnum.
Spilakvöld
HAFNARFIRÐI. — Það er t
kvöld kl. 8,30, sem félagsvist
Sjálfstæðisfélaganna hefst, og
verður spilað í Sjálfstæðishús-
inu. — I vetur verður spilað
á miðvikudagskvöldum og
verðlaun veitt hverju sinni og
síðan heildarverðlaun um jóla
leytið. — Öllum er heimil þátt-
taka meðan> húsrúm leyfir.
Tónleikar fiðluleik-
arans Michael Rabin
TÓNLISTARFÉLAGIÐ hefir nú
aftur hafið starfsemi sína eftir
sumarhléið. Amerískur fiðluleik
ari, Michael Rabin, hélt tónleika
fyrir styrktarfélaga félagsins í
Austurbæjarbíói í gær og fyrra-
kvöld við húsfylli og ágætar und
irtektir.
Fyrst á efnisskránni var Róm-
ansa í F-dúr, op. 50, eftir Beethov
en. Þetta er ekki eitt af merk-
ustu verkum tónskáldsins, og
nýtur sín ekki til fulls nema í
upprunalegum búningi sínum,
með hljómsveitarundirleik. Að
þessu sinni virtist það næsta ris-
lítið og bragðdauft. Næsta við-
fangsefni, Sónata í A-dúr, op. 13,
eftir franska- tónskáldið Cabriel
Fauré (1845—1924), var veiga-
mesta verkið á efnisskránni og
naut sín hér enn betur en ella
hefði verið, vegna þess hvernig
verkefnavali var hagað að öðru
leyti. Samleikur fiðluleikarans
og aðstoðarmans hans, píanóleik
arans Mitchell Andrews, var með
ágætum £ sónötunni, sem og í
öðrum viðfangsefnum á tónleik-
unum. En píanóið í Austurbæjar-
bíói virtist vera með lakasta móti,
hljómlítið, og — þegar á leið
tónleikana — áberandi óhreint.
Vonandi verður bætt úr þessu
hið bráðasta og nýtt hijóðfæri
fengið í húsið, ef tónleikahald
verður þar áfram.
Síðari hluti efnisskrárinnar var
heldur léttvaegur og afar ósam-
stæður. Þar ægði saman ljóð-
rænum verkum eftir Chausson
og Bloch, útsetningu á píanóverki
eftir Chopin og lögum, sem
mundu hafa sómt sér bezt á
kabarett-skemmtun,, eða etf til
vill sem aukalög að lokinni efnis-
skrá. Þetta spillti heildaráhrifum
tónleikanna.
Michael Rabin er mjög snjall
fiðluleikari og á vafalaust mikla
framtíð fyrir höndum. Tækni
hans og tónhæfni er óaðfinnan-
leg. Tónninn er mikill og voldug-
ur en ekki að sama skapi mjúkur
eða hlýr, og mun honum því
sennilega láta betur að túlka þau
verk, sem byggjast á skýrum.
sterkmótuðum heildarlínum, en
hin, þar sem smáatriðin sitja í
fyrirrúmi. Hefði verið ánægju-
legt, að betra tækifæri hefði gef-
izt til að kynnast þessari hlið
listamannsins á þessum tónleik-
um.
J. Þ.
— Við hefðum
Framh af bis. 24.
— Voruð þið lengi undir hon-
um?
— Ég gerði mér enga grein
fyrir því, en það getur varla hafa
verið mjög löng stund.
— Voruð þið farnir að drekka
sjó?
—Nei, ekki ég að minnsta kosti
en Unnar var lengur undir bátn-
um. Ég sá honum skjóta undan
bátnum, þegar ég var sjálfur
fyrir nokkru kominn á sund of-
ansjávar.
— Eruð þið báðir góðir sund
menn?
— Já, við erum báðir velsynd
ir, og það hefur án efa orðið okk
ur til lífs, bæði til að komast
undan bátnum og sökkva ekki.
— Voruð þið lengi á sundi?
— Nei, Óskar kom fljótlega til
okkar, og þeir náðu strax að
draga okkur um borð.
— Hvernig var veðrið?
— Það var kaldi úti fyrir, og
svo þessar vindhviður innan við
Vattarnes. Það komu tvær hvið-
ur á undan þessari, en báturinn
bar þær vel af sér.
— Ykkur hefur ekki orðið
meint af þessu?
— Nei, við erum færir í allan
sjó.
— En báturinn?
— Hann ber sig líka vel.