Morgunblaðið - 07.10.1961, Side 6

Morgunblaðið - 07.10.1961, Side 6
6 ’ MORCViy BL ifllÐ ■Laugardagur 7. október 1961 Guðsþjónusta og fundir um trúmál Kvisiilegt studentafélag minnist 25 ára afmælis síns Á ÞESSU ári eru liðin 25 ár xfrá stofnun Kristilegs stúd- entafélags. Það var stofnað í sambandi við heimsókn dr. Ole Hallesby prófessors og nokkurra stúdenta frá Nor- egi árið 1936. Félagið minn- ist afmælis síns þessa dag- ana og hefur í tilefni þess fengið í heimsókn stúdenta- prest frá Osló. Guðsþjónusta og afmælis- samkoma Á sunnudaginn kl. 11 f. h. gengst félagið fyrir guðsþjón- ustu í Fríkirkjunni. Mun séra Jóhann Hannesson prófessor prédika. Texti hans verður: Til þess að þér gjörið ekki það, sem þér viljið. (Gal. 5 17). Sr. Þorstemn Björnsson þjónar fyr- ir altari. — Á sunnudagskvöld- ið verður afmælissamkoma kl. 20.30 í Dómkirkjunni. Aðalræðu menn verða norski stúdenta- presturinn Leif M. Michelsen og Ástráður Sigursteindórsson skóla stjóri. Öllum er heimill aðgang- ur. — Fundir á Gamla Garði Fyrstu þrjú kvöldin í næstu viku verða fundir á Gamla Garði sérstaklega ætlaðir stúd- entum. Efni fyrirlestranna þessi kvöld verða: Hvers vegna einmitt Kristur? Hvað gerir þú við syndir þínar? Hin kristna von. Mun Leif M. Michelsen flytja fyrirlestrana um öll þessi efni og síðan svara fyrirspurn- um, er fram kunna að verða bornar. Dagskrá yfir vetrarstarfið Kristilegt stúdentafélag hefur gefið út sérstaka dagskrá yfir starfið á öllu haustmisserinu. Auk framangreindra atriða er þar gért ráð fyrir leshringum um trúmál, sem þeir prófessor- arnir sr. Jóhann Hannesson og dr. Þórir Kr. Þórðarson munu stjórna. Ennfremur mun svo sr. Bjarni Jónsson vígslubiskup flytja fyrirlestur er hann nefn- ir: Stúdentsárin og eilífðin, og eftir áramót mun Sigurður A. Magnússon rithöfundur fjalla um Kristna trú og nútímabók- menntir á fundi á Gamla Garði. Sendiráð Kúbu miðstöð kommúnistaáróðurs S. Joensen-Mikines: „Grindadráp“, MANILA, 30. sept. — Kúbanskur sendiráðsmaður hér í höfuðborg Filippseyja hefur leitað hælis sem pólitískur flóttamaður. Sagð ist hann ekki getað þolað lengur einræðisstjórn Kúbu, sem stöð- ugt væri að komast undir meira áhrifavald kommúnista. Sagði hann, að sendiráð Kúbu erlendis væru orðin kommúniskar áróð- ursmiðstöðvar og kúbanskir sendimenn misnotuðu réttindi sín á erlendri grund með því að reka alls kyns undirróðursstarf- semi. Sagði hann, að kúbanska sendiráðið í Manila væri miðstöð kommúnistaáróðursins á Filipps- eyjum. Eftir að flóttamaðurinn hafði verið yfirheyrður lét yfir- maður leyniþjónustu Filippseyja hafa það eftir sér, að hann mundi leggja það til' við forsetann, að stjórnmálatengslum við Kúbu yrði slitið. Færeyska mynd- listarsýningin HELGI Sæmundsson, form. menntamálaráðs, kynnti frétta- mönnum í gær færeysku mynd- listarsýninguna, en hún er haldin á vegum menntamálaráðs fsl. Á sýningunni verða um 130/myndir eftir 15 listamenn, m. a. Joensen- Mikines og Ruth Smith, en þau eru talin snjöllustu málarar Fær- eyja, svo og eini myndhöggvari Færeyja, Janus Kamban. ♦ Landkostir í Selvogi ' Þetta bréf barst Velvak- anda frá Hjálmtý Péturssyni, kaupmanni í Nonna á Vest- urgötunni: „í Selvogi var mikil byggð og útræði fram undir síðustu aldamót. Þar voru stórbýlin Nes og Vogsósar og fjöldi ann arra býla. Rétt við landstein- ana eru auðugustu fiskimið íslands — Selvogsbanki. — Fyrir þessa fornfrægu útgerð arstöð hefur aldrei verið gert neitt að hafnarbótum, þótt ef til vill hefði mátt leysa það mál á auðveldan hátt með rennu í Hlíðarvatn, og hefði þá komið þar stór höfn. Með tilkomu Krísuvíkurvegar von- uðu margir, að upp rynni blómatími í Selvogi. Þarna er góðviðrasamt, svo að sauð- fé gengur oft nær sjálfala, ágætt garðræktarland í send- inni jörð, auk þess sem tún eru þar ágæt, t. d. eru þar á einu býli 1000 hesta tún. 12 jarðir eru nú í byggð í Sel- vogi, þó að sumt séu smábýli. • Hver lifir ljóslaus og vegalaus? um óskum um þessa flutn- inga. Frá Hlíðarenda, neðsta bæ í Ölfusi, eru aðeins 15 km. Þar er rafmagn frá Sogi, en það hefur ekki fengizt lagt í Sel- vog/þó að það eitt hefði get- að bjargað sveitinni frá auðn. Þetta er nú öll umhyggjan fyrir dreifbýlinu. Það skal tekið fram, að býlin í Selvogi eru mjög þétt saman, svo að leiðslur á milli þeirra eru ódýrar. • Reynist Strandar- kirkja betri en M.F, og K.Á.? Á Strönd í Selvogi er hin fræga Strandarkirkja, sem er í rauninni dýrlingur þjóðar- innar. Á hana heita menn í raunum sínum, og virðist það gefast flestum vel, því að kirkjan er stórauðug, á nú 4 millj. í sjóði. Allt þetta fé hefur safnazt fyrir áheit og trú á mátt hennar. Það virð- ist ekki ósanngjarnt, þótt ein- hverju af auðlegð Strandar- kirkju væri varið tií hennar sjálfrar og næsta nágrennis, að kirkjan og sveitungar hennar fengju ljós og yl frá raflínu, sem liggur í 14 km. fjarlægð. Hvað segja ráða- menn okkar um raforkumál? Biskupinn yfir íslandi, al- þingismenn og ráðherrar, ekki veitti þeim af að heita á Strandarkirkju í vanda- sömu starfi í þágu alþjóðar. Vilja þeir nú ekki heita því á Strandarkirkju og Selvogs- byggð að leggja þangað raf- magn til að lýsa upp þessa máttugustu kirkju landsins? Og um leið að forða sveitinni hennar frá auðn. Hjálmtýr Pétursson“. ♦ Fornbókasalinn og spíritistinn M. G. skrifar: „Ég vildi mega þakka yð- ur fyrir birtinguna á bréfi mínu í dálkum yðar s.l. laug- ardag og jafnframt leiðrétta ummæli fornbókasalans, sem birtust í blaði yðar. Mér finnst það alger óþarfi af fornbókasalanum við Klapparstíg að tala í lítils- virðingartóni um Hafstein Björnsson miðil og þær bæk- ur, sem skrifaðar hafa verið um hann. Ég læt mér í léttu rúmi liggja þótt hann fjasi um ,,vitleysu“ í sambandi við leit mína að fyrra bindi bók- arinnar um Hafstein miðil. Það er engin goðgá, þótt mað ur viti ekkert um búðarhol- una hans, sem er nýkomin í húsnæði bílasala eins, sem var lengi við Klapparstíginn. Fornbókasali þessi er ekki í símaskránni og ég hafði ekki hugmynd um að hann væri til, fyrr en hann lét Ijós sitt skína í dálkum yðar. Kjarni málsins er þessi: Fyrra bindi bókarinnar um Hafstein miðil er ófáanleg hjá bókaútgefandanum og þeir fornbókasalar, sem ég vissi um, áttu hana ekki heldur til. Fornbókasalinn átti aðeins til eitt stykki af fyrra bindinu, notað, og það sér hver heil- vita maður, að ekki er hægt að gefa hana í tækifærisgjöf. Við erum mjög margir hér á landi, sem annars staðar í heiminum, sem höfum áhuga á sálarrannsóknarmálum, og teljum við okkur ekki þurfa að spyrja fornbókasala né aðra um það, hvað við vilj- um fá endurprentað og hvað ekki. Hver maður á að fá að hafa sinn smekk í friði og því get ég vel unnt blessuð- um fornbókasalanum þess að Lexikon Poeticum verði end- urprentuð sem fyrst undir hans yfirumsjón. En við viljum Hafstein! M. G.“ Við opnun sýningarinnar kl. 3 síðdegin í Listasafni ríkisins mun Helgi Sæmundsson bjóða gesti velkomna, en Hanua við Högadalsá form Listafélags Færeyja svarar fyrir hönd gesta, Þá opnar menntamálaráðherra. dr. Gylfi Þ. Gíslason sýninguna, Sýningin verður svo opnuð al» menningi kl. 6 og stendur í hálf- an mánuð. Verður hún opiit virka daga frá 2 til 10 e. h. og á sunnudögum frá 10 árdegis til 10 síðdegis. • Fimmtán listamenn Alls taka þátt í sýningunnl fimmtán listamenn og fara nöfu þeirra hér á eftir: Stefan Daniel. sen, Frida í Grótinum, Hanua Hansen, William Heinesen og sonur hans Sakarias, Súni Jakob- sen, Birgitta Johannesen, Janus Kamban, Elinborg Liitzen, Sámal J. Mikines, Jákup Olsen, Sig- mundur Petersen, Ingálvur av Reyni, Terji Skýlindal og Ruth Smith. • Mjög færeysk A sýningunni eru myndir af ýmsu tagi, bæði olíu- og vatnslita myndir, teikningar, grafík og höggmyndir. „Allar bera þær mikinn svip að því að vera fær. eyskar“, eins og Helgi Sæmunds- son komst að orði, „því Færey. ingar mála land sitt mikið,*' Benti hann í því sambandi á. að mjög margar myndir Mikines væru frá heimaeyju hans, sem ber sama nafn, og er ein vestasta og afskekktasta byggð Færeyja. Þá lét Helgi þess getið, að í um« mælum sínum um færeysku list. sýninguna í Kaupmannahöfn vet. urinn 1955—56, hefði málarinn, prófessor Axel Jörgensen. talið eina af sjálfsmyndum Ruthar Smith meðal hinna beztu á Norð. urlöndum. í vandaðri sýningarskrá er að finna ávörp, sem Gils Guðmunds son og Hanus við Högadalsá hafa skrifað, auk þess er þar grein um færeyska list eftir skáldið og málarann William Heinesen. f En þessi byggð getur ekki lifað í myrkri og án sam- gangna. Selvogsbúum hefur verið neitað um það árum saman, að sótt væri til þeirra mjólk, þótt vegalengdin frá endastöð Mjólkurbús Flóa- , manna sé ekki nema 14 km. Allar nauðsynjar sínar verða þessir bændur sjálfir að sækja (sem mjólkurbílar hefðu getað flutt) til Þorláks- hafnar eða Hafnarfjarðar, og er það kostnaðarsamt fyrir þessi fáu heimili. Með mjólk- urflutningum hefðu þessi sam göngumál verið leyst. En hið volduga M. F. og K. Á. á Sel- fossi hafa daufheyrzt við öll- .☆ i FERDIINIAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.