Morgunblaðið - 07.10.1961, Side 8
8
MORCVTSBL AÐIÐ
Laugardagur 7. október 1961
ILABAMENN hittu J0rgen J0rg-
•nsen, fyrrv. menntamálaráð-
herra Dana, að máli kl. hálfellefu
á föstudag-smorgun, en það heitir
á blaðamannamáli „fyrir allar
aldir“.
J0rgensen er mjög kótur oj
f jörlegur maður, hýr í bragði, hýr
í lund og hýr í svörum. Hann
hefur setið á þingi síðan árið
1929, verið menntamálaráðherra
frá 1935 til 1942, innanríkismála-
ráðherra 1942—1945 og mennta-
málaráðherra frá 1957 og þar til
nú.
Aðspurður kvaðst hann hafa
dvalizt fimm sinnum hérlendis.
Hann sagði Island vera „eitt
herlegt land“, þrátt fyrir alla
rigningu, og þegar blaðamaður
Mbl. spurði, hvort heppilegt væri
að varðveita handrit í röku lofts-
lagi, sagðist hann ekki efa að
neinu leyti, að íslendingar myndu
igeyma helgidóma sína á þann
veg, a@ bæði handritahöfundun-
«*m og öðrum íslendingum væri
aómi að.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra íslands, Jþrgen Jþrgensen, fyrrv. menntamá'laráðherra
Danmerkur, og Bjarne Paulson, sendiherra Danmerkur á íslandi, ræðast við í forsætisráðuneyt-
inu í gærmorgun. (Ljósm. :P. Thomsen)
Handritin koma til Islands
V'iðtal við Jörgen Jörgensen
Blaðamaður Mbl. spurði, hvort
hann hefði fylgzt með skrifum
íslenzkra blaða, þegar handrita-
málið var mest til umræðu. J0rg-
ensen kvað já við því. Hann hefði
verið „á jour“ að því leyti. Hvern
ig honum hefði líkað þau skrif?
Allvel, var svarið; þau hefðu ver
ið ofstækislaus.
Sagði hann stillingu íslenzkra
blaða hafa verið mjög til sóma og
málstað íslendinga einkar hent-
uga. Æsingalaus skrif túlkuðu
vonbrigðin og sárindin betur en
harðorðar greinar, er andstæðing
ar okkar myndu túlka sem of-
Stopa, frekju og vanstillingu.
Þegar J0rgensen hafði svalað
fróðleiksfýsn Morgunblaðsins að
þessu leyti, hélt hann smátölu um
handritamálið. Eins og jafnan
anætti ekki gleyma því, að tvær
hliðar væru á hverju máli, og m.
a. skyldu allir minnast þess, að
í Danmörku hefðu ávallt verið
uppi menn, sem lifðu bókstaflega
fyrir handritin, hefðu túlkað þau
og skýrt. Það væri skiljanlegt,
mannlegt og eðlilegt, að fræði-
menn í Kaupmannahöfn tregðuð
ust við að afhenda þau. Maður
yrði að skilja tilfinningar þeirra,
sem varið hefðu æviskeiði sínu
til lestrar og aflestrar handrit-
anna í héimaborg sinni, og mættu
ekki til þess hugsa, að þau flytt-
ust norður í höf. Ást margra
þeirra, sem mótfallnir væru af-
hendingu á handritunum væri
sönn, og sú ást væri talandi vott
ur um gildi sagnanna fyrir allar
þjóðir.
Hins vegar væri það ófrávíkjan-
leg sannfæring sín, að íslendingar
ættu að fá handritin og myndu
fá þau. Hér mætti ekki eingöngu
hugsa um lögfræðileg atriði; hin
siðgæðislegu ættu meiri rétt í við
skiptum bræðraþjóða.
— Álítið þér, að handritin komi
heim um síðir?
— Já, frumvarp þess efnis hef-
ur verið samþykkt, þótt þriðjung-
ur þingmanna hafi hindrað stað-
festingu. Hér er ekki um eignar-
nám að ræða, eins og reynt var að
halda fram. Jafnvel Erik Erik-
sen, formaður íhaldsflokksins, er
hlynntur afhendingu, en hann
var á móti aðferðinni. Eg tel, að
málið sé leyst, og að frumvarpið
verði endanlega afgreitt á næsta
/. bindi blaða-
greina Jóns
Siguróssonar
í dag kemur á markaðinn hjá
Bókaútgáfu Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélags 1. bindi rita Jóns
Sigurðssonar, blaðagreinar, en
alls verður blaðagreinasafn Jóns
þrjú bindi og mun annað bindið
væntanlega koma út á næsta ári.
Er þetta hið myndarlegasta rit,
461 bls. að stærð auk ítarlegs
inngangs, sem Sverrir Kristjáns-
son sagnfræðingur hefur skrifað,
en hann hefur séð um útgáfu
ritsins.
Um efnisval 1. bindis segir svo
í formála þess:
„f þetta fyrsta bindi hefur ver
ið safnað blaðagremum Jóns í
xslenzkum blöðum, og eru þær
minnstar að vöxtum, og öllum
greinum, er hann skrifaði í
dönsk blöð á árunurp 1840—1874.
Til viðbótar er látinn fylgja
greinaflokkur sá, ,,Island og is-
landske Tilstande", sem Jón hóf
að skrifa, þegar hann gerðist fast
ur fréttaritari hjá hinu norska
blaði ,,Christiania Intelligenssedl-
er“, á miðju ári 1862.“
• Mikilvirkur
blaðamaður
Sverrir Kristjánsson komst
svo að.orði við fréttamenn í gær,
að Jón Sigurðsson hefði verið
mjög glæsilegur fulltrúi þessar-
ar göfugu iðju, blaðamennskunn-
ar, og virðist hafa kunnað mjög
vel tökin á henni eins og hún var
í Danmörku um hans daga. Jafn-
framt gat hann þess, að blaða-
I greinar Jóns í dönskum blöðum
I hefðu verið miklu meiri að vöxt-
um en þær íslenzku, þótt mestur
| hluti blaðamennsku hans hefði
verið við norska blaðið „Christi-
ania Intelljgenssedler", en hann
var fastur fréttaritari þess í
Khöfn frá 1862 til 1871. Þessi
fréttastarfsemi Jóns fór mjög
| leynt og mun fáa landa hans
hafa grunað, að hann hefði hana
með höndum.
| Eins og fyrr getur, er annað
bindi greinasafnsins væntanlegt
á næsta ári og mun aðallega fjalla
þingi. Almenningsálitið er með
okkur, og þetta mál verður og
skal leyst í anda norrænnar sam
vinnu.
Jþrgensen kvaðst ekki geta
svarað ákveðið spurningu blaða
manns Mbl. um það. hvenær
næstu kosningar færu fram,
en spurningunni um það,
hvort úrslit kosninga gætu
haft áhrif á handritaafhend-
inguna, svaraði hann svo, að ör-
uggur meirihlúti myndi fást um
hana.
Blaðamaður Mbl. sagðist hafa
heyrt frá dönskum stúdentum, að
mótmælaaðgerðir þeirra hefðu að
allega beinzt gegn aðferðum ríkis
stjórnarinnar við að knýja mál
„gegnum þingið", en ekki gegn
afhendinu handritanna í sjálfu
sér, og spurði J0rgensen um skoð
anir hans á því máli. Hann kvað'
stúdentana ekki hafa vitað í raun
inni hverju þeir væru að berjast
gegn. Alda misskilinnar þjóðern
istilfinningar hefði risið meðal
þeirra. Frestunin hefði að því
leyti góð áhrif, að öldur and-
stæðna lægði og beizkjan, sem
kömið hefði á tungu manna í viss
um hópum, myndi hverfa. Beizkj
an hefði verið gagnkvæm og skilj
anleg.
Ummæli afhendingarandstæð-
inga um lélegan geymslustað á
íslandi væri einskis verð. Þau
væru eins góð hér og ytra (þegar
þetta var sagt næddu hljómar
slökkviliðsbifreiða um hlustar-
göng blaðamanna), og hér væru
mætir fræðimenn reiðubúnir til
rannsókna.
Einn blaðamanna spurði nú,
hvað honum hefði fundizt til um
áletruð orð á gönguimannaspjöld-
um danskra stúdenta: „Vi skænk
er Island J0rgen J0rgensen!“ —.
Hann svaraði því til, að hann
hefði verið stoltur þeirra orða
vegna. „Det var meget venligt“.;
Fréttamaður Mbl. spurði enn:
Hvernig verður sinnt væntanleg
um kröfum frá löndum, eins og
t.d. Indlandi og Svíþjóð, um af-
hendingu bóka og gripa, sem
geymast í dönskum söfnum og
bókhlöðum? Gæti afhending
handritanna haft áhrif á kröfur'
þeirra? Ekki hélt J0rgensen það.
Þar hefði ætíð verið um gjafir
og sölur einstaklinga að ræða,
sem ekki væru samjafnanlegar
við ánöfnun Árna Magnússonar.
Aðaláhugamál sitt kvað J0rgen
sen vera að styðja að aukinni
menntun æskufólks. í því sam-
bandi lagði hann áherzlu á, að í
framtíðinni yrðu ungir fræði-
menn Dana styrktir til þess að
heimsækja ísland og öfugt. . j
Jþrgensen kvað inngöngu Dana
í Efnahagsbandalagið vera mjög
umrædda nú. Aðspurður um af-
stöðu sína til NATO, kvað hann
sjálfsagt, að Danir stæðu við
bandalagsskuldbindingar sínar.
Saknaði hann þess þó, að hug-
myndin um varnarbandalag nor-
rænna þjóða hefði kæfzt. *
f samtalinu kom glöggt í ljós,
að Jþrgensen hefur mikinn og
sannan áhuga á íslenzkum mál-
efnum. Norræn samvinna er á
margra vörum, en fágætt er að
hitta mann, sem ber það mál
jafn brennandi fyrir brjósti og
Jþrgen Jþrgensen. Tveir menn
með því nafni hafa öðlazt örugg-
an sess í íslandssögúnni. Sá fyrri
hlut heróstratiska frægð, en þess
sxðara verður ávallt minnzt sem
göfugs vinar íslands og fslend-
inga, sem óttaðist hvergi stundar
gagnrýni eigin þjóðar, þegar rétt
lætismál frændþjóðar var á dag-
skrá.
nW«m|fiTT— • I nm irm»#l“fWr.TrWy.»-w rf.rcmw S- ,■ , .-r -j
.
um fréttagreinar Jóns í „Christi-
ania Intelligenssedler".
>ESSI mynd var tekin þegar
íón Aðils, sagnfræðingur, hélt
íátíðarræðu sína af svölum
Alþingishússins 17. júní 1911.
há um haustið tók Háskólinn
il starfa á neðri hæð húss-
ins.
Mannf jöldinn á myndinni fyll
ir Kirkjustræti og langt út á
Austurvöll, en klofinn dansk
ur fáni blaktir enn yfir hús-
ínu.
f ræðu sinni lagði Jón, sagn
fræðingur, út af orðunum, að
það væri skylda hvers íslend
ings „að þekkja sjálfan sig og
trúa á sjálfan sig, krafta sína
og köllun".
En að því hefur vor ungi
Háskóli stuðlað
Stúdentar í Moskvu
mótmæia
MOSKVA, 5. okt. (NTB .—
Reuter) — Fjöldi stúdenta við
Moskvu-háskóla reis upp til
mótmæla, þegar nokkrir pró
fessorar gerðu tilraun til að
slíta fundi, sem þar var hald
inn í tilefni af heimsókn hóps
af friðarsinnum, sem höfðu
efnt til kröfugöngu frá San
Fransisco.
Ummæli þýzka þátttakandans
Hafði fundurinn staðið í u.þ.b."'
eina klukkustund, þegar prófess
Orarnir reyndu skyndilega að
binda skjótan endi á hann. For-
vígismaður friðarsinnanna, Brad
Lyttle fiá New York, hafði feng
ið 15 mínútur til þess að gera
grein fyrir skoðunum sínum á af-
vopnunarvandamálunum.
Stóð þá upp þýzkur þátttak-
andi í göngunni og sagði: —
Framh. á bls. 23.