Morgunblaðið - 07.10.1961, Blaðsíða 12
12
MORCV1VBLAÐIÐ
Laugardagur 7. október 1961
CTtgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kris.tinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
JÖRGEN JÖRGENSEN
p óður gestur kom til ís-
lands á fimmtudaginn,
Jörgen Jörgensen, fyrrum
menntamálaráðherra Dan-
merkur. Fáir menn erlendir
hafa reynzt íslendingum
betur en hann. Hann hefur
orðið að þola óvenju stóryrt-
ar árásir úr herbúðum póli-
tiskra andstæðinga sinna í
Danmörku fyrir þá sök eina,
að hann er sannfærður um,
að íslenzku handritin í Kaup
mannahöfn eigi heima, þar
sem þau voru upphaflega
rituð. En Jörgen Jörgensen
hefur ekki látið það á sig fá,
heldur stað'ð við sannfær-
ingu sína af fullkominni
einurð, sem íslendingar
kunna að meta og hér verð-
nr í minnum höfð, þegar
fram líða stundir.
Þegar Jörgen Jörgensen
talaði við fréttamenn á flug-
vellinum í fyrradag, leyndi
sér ekki að þar fór maður
með þann eld í hjarta, sem
er beztur með ýta sonum.
I»ví fagna íslendingar hon-
um innilega við komu hans
hingað.
Islendingar trúa því, að
handritamálið sé komið í
höfn og því hafi einungis
verið frestað um stundar-
sakir vegna formsatriða. —
Þegar Jörgen Jörgensen
ræddi við fréttamenn, var
hann að því spurður, hvort
hann teldi að handritafrum-
varpið yrði lagt fram í
breyttu formi eftir næstu
þjóðþingskosningar. — Hann
svaraði því ákveðið neitandi
og lagði áherzlu á, að stjórn-
arflokkarnir hefðu báðir lýst
því yfir, að þeir mundu bera
málið fram til sigurs að
kosningum loknum. Enn-
fremur styðja fjölmargir
þingmenn úr öðrum flokk-
rnn þá lausn málsins sem
fengizt hefur, svo ástæðu-
laust er að ætla að breyting
verði þar á.
Jörgen Jörgensen er okk-
ur aufúsugestur. íslendingar
þakka honum öll þau vin-
samlegu ummæli, sem hann
hefur viðhaft um ísland og
íslenzka menningu. Um Há-
skóla íslands sagði hann
meðal annars:
„Við í Danmörku höfum
fylgzt með miklum áhuga og
mikilli aðdáun á þróun há-
skólans í þessi 50 ár. Hér
hefur verið komið á fót og
hér starfar menningarstofn-
im, sem nýtur virðingar og
aðdáunar allra þeirra, sem
til þekkja í Danmörku....
Háskólinn er tákn þess, sem
lítil menningarþjóð getur á-
orkað með samstilltum sam-
tökum og átaki landsmanna
og það er ánægjulegt að
sjá, að hér eru aðstæður til
þess að stunda merkilegt
rannsókna- og vísindastarf.
Það er okkur mikil ánægja
í Danmörku að sjá vinnu-
brögð ykkar hér heima og
þið hafið mikinn arf af að
taka frá fornri tíð, og það er
ekki annað sjáanlegt en sá
arfur verði vel geymdur og
vel verði að honum búið í
framtíðinni“.
Þetta eru drengileg orð,
mælt af vörum eins bezta
vinar, sem Island á með er-
lendum þjóðum. Það er ósk
allra Islendinga að Jörgen
Jörgensen hafi ánægju af
dvölinni í því landi, sem
hann hefur skilið betur en
flestir aðrir. Þó hann hafi
borið að garði í haustrigning
um, er það von okkar að
þau hjón eignist hugljúfar
minningar úr því umhverfi,
sem mest mótaði stílgöfgi og
frásagnarsnilld hinna fornu
rita.
VÍSINDIN EFLA
ALLA DÁÐ
a r g i r aðrir góðir gestir
hafa komið til íslands
og eru viðstaddir hátíða-
höldin í tilefni af 50 ára af-
mæli háskólans, sumir til að
veita viðtöku verðskulduð-
um heiðri af hendi háskól-
ans, aðrir sem fulltrúar
menningarstofnana, sem há-
skólinn hefur átt góð og
heilladrjúg viðskipti við. Is-
lendingar geta ekki ávaxtað
þann arf, sem þeim hefur
verið trúað fyrir, án þess að
eiga náin menningarsam-
skipti við aðrar þjóðir. Á af-
mæli háskólans höfum við
viljað sýna, að við metum
þessi samskipti mikils. Við
fögnum því, að fulltrúar er-
lendra háskóla sækja okkur
heim og taka þátt í þeirri
hátíð, sem við nú höldum.
íslenzkir stúdentar stunda
nám við fjölmargar mennta-
stofnanir víða um heim og
ætti það að vera trygging
fyrir því, að erlendar mennt
ir eigi ætíð greiðan aðgang
hingað norður og við getum
sjálfir valið úr heimsmenning
unni. Eins og kunnugt er
lágu margar ástæður til þess,
að íslenzkri menningu hnign
aði stórum á 14. öld. Ein er
vafalaust sú, að íslendingar
hættu að mestu vegna fá-
tæktar og skipaleysis að
sækja heim erlend lönd og
afla sér menntunar á fjar-
Vonbrigöi í Kína
H I N N 1. þessa mánaðar
var hátíð haldin um gjör-
vallt Kína í tilefni þess
að þá voru 12 ár liðin frá
því stjórn kommúnista
tók þar við völdum. Flutt-
ar voru ótal áróðursræð-
ur og blöðin uppfull af
greinum í sambandi við
þennan áfanga. Úr öllum
þessum orðaflaum mátti
lesa viðurkenningu stjórn-
arinnar á framleiðslu-
skorti í landbúnaði og iðn-
aði og vegna efnahagserf-
iðleika er Kínastjórn nú
að athuga „árangur Sovét
ríkjanna af sósíaliskri upp
byggingu“.
Áhrlf uppskerubrestsins
Yfirvöldin í Kína segja að
framleiðsluskortur landbún-
aðarins hafi haft skaðleg á-
hrif á iðnaðinn og lífsafkomu
þjóðarinnar. Margsinnis var
talað og ritað um erfiðleika
vegna náttúruhamfara —
þurrka, flóða og hvirfil-
vinda — á undanförnum
þrem árum. Fyrr í ár hefur
Pekingstjórnin viðurkennt að
kornuppskeran hafi hrugð-
izt. En þetta var í fyrsta
skipti sem stjórnin viður-
kenndi beinlínis áhrif upp-
skeruhrestsins á iðnaðinn og
„lífsafkomu þjóðarinnar“.
Kína er fyrst og fremst
landbúnaðarríki og byggist
innflutningur véla til iðn-
væðingar á uppskerunni og
útflutningi landbúnaðarins.
Ekstrabladet í Kaupmanna-
höfn gerir ástandið í Kína
að umræðuefni nýlega. Þar
segir m.a.:
★ Hungursneyðin ber enn
að dyrum í Kína, þriðja árið
í röð. Sultinum fylgja sjúk-
dómar og farsóttir, sem herja
hina vannærðu þjóð. Frá
brezku nýlendunni Hong
Kong við suð-austur-strönd
Kína, berast fréttir um að
milljónir iðnverkamanna,
skólabarna og stúdenta frá
borgunum eigi að aðstoða
bændur Kina við að bjarga
haustuppskerunni, aðallega
hrísgrjónum og kartöflum.
iz Náttúrúhamfarir hafa
aftur í ár herjað Kína. Óveð-
ur og þurrkar, flóð og jurta-
sjúkdómar. Talið er að saman
lögð uppskera ársins verði
ekki meiri en uppskeran
1957. En síðan hefur íbúa-
talan aukizt um 60 milljónir
í um 700 milljónir. Það hef-
ur 1 för með sér að matar-
skammturinn, sem var naum
ur fyrir, verður enn að
minnka.
★ 1 Hongkong og á For-
mósu, eyjunni miklu þar
sem Chiang Kai-Chek ríkir,
hefur verið svipað veðurfar
og í Kína, en ekki haft jafn
örlagaríkar afleiðingar. Hvers
vegna? Vegna þess að Mao-
ríkisstjómin segir ekki nema
hálfan sannleikann þegar hún
kennir náttúruhamförum um
neyðina í Kína. Sannleikur-
inn er sá að þjóðin er and-
víg pólitískum hrossalækn-
ingum Mao.
★ Mao vill stytta sér leið
í kommúnismann. Hann vill
á fáum árum breyta land-
búnaðarríkinu Kína í iðnað-
arríki. En einkalausn hans,
sameignarþorpin, sem áttu að
styrkja þessa þróun, fór út
um þúfur. Ekki nægði að
taka jarðeignarréttinn af
bændunum. Þeir áttu einnig,
auk skylduvinnu á ökrunum,
að sjá iðnaðinum fyrir birgð
um af hráefni, járni og öðr-
um málmum. Með erfiði sínu
áttu þeir að koma í stað
þess, sem á vantaði í undir-
stöðu tækninnar.
★ Árangurinn varð sá að
iðnaðurinn varð að vinna úr lé
legu hráefni og landbúnað-
urinn var vanræktur. Mao
hefur orðið að draga úr
kröfunum, minnka hraða iðn
væðingarinnar og sameignar-
þorpin eru lítið meir en nafn
ið. En bændurnir hafa misst
áhugann og embættismenn
flokksins trúna. Sulturinn
knýr enn á dyr.
Á Hinir óánægffu fá a-'
minningu. Mao ræður hverjir
fá að borða sig sadda. Her
hans er næst fjölmennasti
her heims, Sovétríkin ein
hafa stærri her. í landher
Kína eru 2% millj. hermenn,
eða fleiri en samanlagt í
herum Atlantshafsbandalags-
ins og Suðaustur Asíubanda-
lagsins. Og þeir fá sinn mat
hvað sem öðru líður.
ic Af stjórnmálaástæðum
hefur Mao ávallt komið fram
i hlutverki gefandans. Á
sama tíma og hann verðuri
að flytja inn hveiti frá auð-
valdsríkjunum Kanada og
Ástralíu, aðstoðar hann „hlut
lausu“ ríkin í Afríku og
Suðaustur-Asíu með því að
senda þangað mætvæli, og
það meir að segja hrísgrjón,
dýrmætustu fæðutegund Kina.
★ Castro á Kúbu hefur
þó greitt fyrir sig. Hann hef-
ur fengið hrísgrjón frá Kína
en sent þangað sykur í stað-
inn. En í Kína er sykur svo
sjaldséður að hann er ein-
göngu ætlaður sjúkum.
Sir Stanley Rous
forseti FIFA
Lundúnum, 28. sept.
ENGLENDINGURINN Sir Stan-
iey Rous var í dag kjörinn for-
seti alþjóða knattspyrnusam-
bandsins. Það var á aukafundi
sambandsins í morgun sem kjörið
fór fram. Rous sem verið hefur
framkvæmdastjóri enska knatt-
spyrnusambandsins í 27 ár, sagði
þegar þvi starfi lausu.
Rous gegnir forsetaembætti al-
þjóðasambandsins til vors er
reglulegur aðalfundur verður. —
Tekur hann því aðeins við for-
setaembætti af hinum látna Arth-
ur Dewey, unz reglulegu kjör-
tímabili lýkur.
lægum slóðum. Það ætti að
vera okkur hvöt til þess að
styrkja unga íslenzka stúd-
enta til menntunar sem víð-
ast í menningarlöndum og
efla aðstöðu þeirra manna,
sem hafa hug á framhalds-
námi í útlöndum.
Ekki verður deilt um hið
mikilvæga hlutverk Háskóla
Islands. Hann hefur fullkom
lega staðið við þau fyrirheit,
sem gefin voru fyrir hálfri
öld, enda hefur hann ætíð
haft hinum merkustu mönn-
um á að skipa í kennarastöð-
ur. Er þess að vænta að
mörg stórvirki verði unnin
á hans vegum á næstu fimm-
tíu árum, ekki sízt í vísind-
um.
Morgunblaðið vill nota
tækifærið nú þegar Háskóli
íslands heldur hátíðlegt
hálfrar aldar afmæli sitt
með þeim glæsi- og menn-
ingarbrag sem raun ber
vitni, að óska honum til
hamingju og þakka það mik
ilvæga starf, sem hann hef-
ur innt af hendi í þágu þjóð
arinnar allrar.
IðníiSlir
Færeyjum
TÓRSHAVN, 29. sept. — Fram-
xararáð sveitanna í DanmörKu
er komið í heimsókn hingað til
Færeyja vegna óska um lán.
til eflingar iðnaðarins hér. Mun
ráðið kanna aðstæður og mögu-
leika til uppbyggingar iðnaðar
í Færeyjum og er þess vænzt,
að ráðið sjái sér fært að veita
umbeðin lán, því þetta er mjög
þýðingarmikið mál fyrir Fær-
eyjar. _ Arge.