Morgunblaðið - 07.10.1961, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.10.1961, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 7. október 1961 Alúðar þakkir til a'lra þeirra, sem heimsóttu mig á sjötugs's.Æfmælisdeginum. Einnig þakka ég gjafir og heillaskeyti er mér bárust. Ólafur Bjarnason, Brautarholti Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, sem á sextugs afmæli mínu heiðruðu mig með skeytum, símtölum, blómum, gjöfum eða 4 annan hátt. — Ennfremur son- um mínum og tengdaforeldrum, sem gjörðu mér þessi tímamót ævi minnar ógleymanleg. Guð blessi ykkur öll fjær og nær. Jóhannes G. Jóhannesson, Hrísateig 9, Reykjavík. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig, með heimsóknum, blómum, gjöfum og skeytum í tilefni af fimmtugsafmæli minu 28. sept. sl Guð blessi ykkur öll. Jóna Kjeld, Akurbraut 10, Innri-Njarðvík Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu Oito Brandenburg í kvikmyndínni í Hafnarfjarðarbíó. — # KVIKMYNDIH * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR # Einkasamkvæmi í kvöld HANNES GÍSLASON írá Eskiholti andaðist að heimili okkar, Hlíðardal við Kringlumýrar- veg 5. þ.m. Fyrir hönd okkar og annarra aðstandenda. Guðrún Halidórsdóttir, Sigfús Magnússon Konan mín INGIBJÖRG SIGMUNDSDÓTTIR frá Vatnsenda lézt í Bæjarspítalanum fimmtudaginn 5. þ.m. Helgi Kr. Jónsson Jarðarför SIGURJÓNS JÓHANNESSONAR bifreiðarstjóra er andaðist á Landakotsspítala 1. þ.m. fer fram þriðju- daginn 10. þ.m. frá Fossvogskirkju. — Blóm afþökkuð, en ^þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlega bent á Blindrarélagið. Inga Ólafsdóttir, Ólöf Sigurjónsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson, Elías Sigurjónsson, Hafsteinn Sigurjónsson, Halldóra Sigurjónsdóttir Útför GUÐNA KR. GUÐMUNDSSONAR fer iram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 9. október kl. 10,30. — Athöfninni verður útvarpað. Blóm vinsam- legast afbeðin. Guðmundur Sveinsson, Kárastíg 3, Ástríður Pálsdóttir, Edda Guðnadóttir og systkini. Stjúpfaðir minn ÓLAFUR G. KRISTJANSSON fyrrum skipstjóri verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 9. október kl. 2 síðdegis. Steingrímur Jónsson Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og fyrir vinsemd og veitta aðstoð við jarðarför móður okkar, ÁSTRÍÐAR hORSTEINSDÓTTUR frá Signýjarstööum Ástríður Jósepsdóttir, Þorsteinn Jósepsson Hafnarfjarðarbíó: FJÖRUGIR FEÐGAR Danskur „humor" hefur jafnan þótt léttur og græzkulaus, enda er landið sjálft broamilt og vina- legt. í mynd þessari er það fyrst og fremst hinn glaðværi „húmor“, sem orkar á áhorfandann, en á bak við galsann felst þó vanda- mál, sem margir foreldrar hafa orðið að horfast í augu við. — Átján ára piltur, William að nafni, vinnur á skrifstofu, en leiðist starfið ákaflega, enda er hugur hans allur við jazzinn. — Hann dreyunir um að verða mik- ill trumbuslagari og hann æfir sig öllum stundum í kjallaranum heima hjá sér svo að undir tekur í öllu húsinu. Og hann á líka mikinn aðdáanda, sem Nina heit- ir, og er hún á aldur við hann. Foreldrar Williaims, einkum þó faðir hans, hafa miklar áhyggjur af þessum jazz-áhuga sonar síns og sambandi hans og Ninu og út yfir tekur þegar Nina kemur til hans að kvöldi og fer ekki fyrr en morguninn eftir. Verður nú mikil rekistefna og hávaði í „gamla manninum" og William lætur óvart þau orð falla að för- eldrar hans halda að hann eigi barn í vænum með Nínu. Rekur nú hver atburðurinn annan. Willi am segir upp starfi sínu á skrif- stofunni og faðir hans rekur hann að heiman, en William fær at- vinnu í jazz-klúbbnum. Foreldr- ar hans eru ákaflega sorgmædd út af öllu þessu, en mólalokin verða þó betri en á horfðist og koma áhorfandanum skeanmti- lega á óvart. Mynd þessi er fjörug og bráð- skemmtileg, enda ágætlega leik- in, sem vænta mátti, því að með veigamestu hlutverkin fara hinir mikilhæfu leikarar Marguerite Viby og Poul Reichhardt. Otto Brandenburg leikur William Og Judy Gringer Nínu og fara þau bæði vél með hlutverk sín. Brand enburg munu margir hér kann- ast við, því að hann söng hér í fyrra, að mig minnir í Austur- bæjarbíói og í Lido. Mynd þessi kemur öllum í gott skap. Ein af þessum óvenju skemmtilegu íbúðum að Háa- leitisbraut 36, er til sölu í fokheldu ástandi með miðstöð og tvöföldu gleri eða tilbúin undir tréverk. Miðstöðvarlögn er fullkláruð. — Upplýsingar í dag á staðnum kl. 2—5 og á morgun á sama tíma. Saumastúlka óskast hálfan daginn. Upplýsmgar í síma 36014 Bæjarbíó KÁTI FARANDSÖNGVARINN Þetta er þýzk söngva- og gam- anmynd í þeim stíl, sam svo mjög gætir nú í þýzkum myndum a£ „ þessu tagi. Conny, sem allir hér kannast við, syngur í myndinni lagið „Blue Jean Boy“ skemmti- lega og fjörlega. Annars fara með aðalhlutverkin Fred Bertelmann og Hans Nielsen. Læikur hinn fyrri faransöngvarann Fred Berg hoff en hinn síðari Ottó Vogel- sang, aðalforstjóra. Efni myndar- innar er í stuttu máli það, að Vogelsang, sem er forríkur mað- ur er á við mikið konuríki að búa, hverfur að heiman án þess að láta konu sína vita hvert hann færi. Berghoff, sem er blaða maður við blað, er kona Vogel- sangs á að mestu, er trúlofaður Piu bróðurdóttur Vogelsangs. Berghoff fer á stúfana til að leita Vogelsang uppi og tekst að finna hann. Þeir verða þegar góðir vin- ir og ákveða að ferðast um eins og hverjir aðrir landshornamenn, peningalausir og án vegabréfa. Hefst þar með hið ævintýraleg- asta ferðalag, en Berghoff skrifar jafnóðum pistla um ferðalagið og sendir blaði sínu. Eykur það sölu blaðsins gífurlega. En nú fara frú Vogelsang og Pia, undir leið- sögn flækings, sem hafði stolið fötum Vogelsangs, til þess að hafa upp á eiginmanninurn og unnustanum. Verður sú leit hin sögulegasta en ber þó árangur að lokum. Mynd þessi er skemmtileg, all- viðburðarík og full af glaðværð og söng. Bertelmann syngur mik- ið og sparar ekki röddina, enda er hann ágætur söngvarL Stjörnubíó: LAUSNARGJALDIÐ Þessi ameríska mynd, sem tek- in er í litum, er byggð á skáld- sögunni „The Name is Buchanan“ eftir Jones Ward. Myndin gerist í litlu þorpi í Kaliforníu. Þangað er kominn ævintýramaðurinn Buchanan, sem tekið hefur þátt í-byltingunni í Mexikó. í þorpinu eru allsráðandi Agrybræðurnir, sem eru kaldrifjaðir náungar. Brátt ber þarna að ungan Mexi- kana, er skýtur niður einn bræðr anna, sem hefur ráðist á systur hans. Er gerður aðsúgur að hin- um unga Mexikana, en Buchanan kemur honum til hjálpar. Þeim er báðum varpað í fangelsi og bíða þess eins að verða hengdir. En nú gerast ýmsir atburðir. Fang arnir komast undan en eru aftur teknir fastir. En faðir Mexikan- ans ætlar að leysa út son sinn með ærnu fé, og veldur það heppi legum sögulokum fyrir Buchanan og félagar hans, því að misklíð rís meðal Agrybræðranna un lausnargjaldið. Kemst allt í upp- nám milli þeirra. Er skipst á skotum í gríð og ergi — og að lokum liggja bófarnir í valnurn. Mynd þessi er eins og flestar myndir af þessari tegund, ærið lítilsvirði, þó að í henni sé tölu- verð spenna. Leikurinn er sæmi- legur, en einn ber þar langt Peter Withney, sem leikur einn af Agrybræðrunum. Á svona myndum er lítið að græða fyrir áhorfendur, en lík- lega því meira fyrir framleið- endurna, enda munu þær ein- göngu í því skyni gerðar. Festi höndina í kvörn í FYRRADAG var bakaraneml hjá Alþýðubrauðgerðinni að Laugavegi 61 fyrir því óhappi að festa hendina í kvöm, er hann var að mala tvíbökur. Varð að kalla járnsmiði til að saga kvörnina í sundur til að losa hendi piltsins, og tók það verls um hálftíma. Var pilturinn, Sig- mundur Stefánsson, síðan flutt- ur á Slysavarðstofuna og kom f ljós að einn fingur hafði brotn- að. — -f

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.