Morgunblaðið - 22.10.1961, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. okt. 1961
Ný gerð gervitungla
London, Washington, 21. okt.
BANDARÍKJAMENN sendu í
gær á loft gervitungl af nýrri
gerð. Frá því verða milljónár
örsmárra koparnála sendar á
braut umhverfis jörðu og er þeim
ætlað að endurvarpa útvarps-
bylgjum. Gervitunglið var sent á
loft frá vísindastöð í Kaliforníu.
Þessi tilraun Bandaríkjamanna
hefur þegar mætt verulegri gagn-
rýni ýmissa vísindamamua. Allt
frá því Bandaríkjamenn til-
kynntu, að unnið væri að rann-
sóknum henni til unidirbúnings
hafa margir vísindamenn haldið
því fram að koparnálarnar yrðu
til þess að torvelda stjarnfræði-
legar rannsóknir.
Sir Bernard Lovell forstöðu-
maður á Jodrell Bank í Englandi
Ljósfyrirbœrið
fyrir auston
MBL. spurðist í gær fyrir um
ljósfyrirbrigði það fyrir austan
land, sem skýrt var frá í blaðinu
i gær. Fréttaritari blaðsins á
Djúpavogi sagði að skip, sem statt
var ca. 170 mílur austur í hafi
í fyrrakvöld hafi séð mikið ljós,
sem líktist mest stórri rakettu
Og hefði það verið í austurátt.
Einnig sá fólk í land, á Breið-
dalsVík, Djúpavogi og Hornafirði
þelta íjósfyrirbrigði, sem sást
nokkuð lengi og dó svo út. Ekki
geta menn gert sér í hugarlund
hvað þetta hefur verið, það hefur
verið mjög langt austan við land-
ið, úr því skip í 170 mílna fjar-
l@egð sá það í austurátt. .
segir tilraunina blett á geimvís-
indum Bandaríkjamanna sem til
þessa hafi mátt kalla „flekklaua“.
• 350 millj. koparnálar
Þetta nýja gervitungl er 1600
kg að þyngd og var skotið í tvö
þúsund mílna fjarlægð frá jörðu.
Með því eru hylki með 350 millj-
ónum koparnála, sem íiver um sig
er fíngerðari en fínasta manns-
hár. Takist tilraunin, sem ekki
verður fyllilega útséð um, fyrr
en eftir tvo til þrjá daga, munu
nálarnar mynda belti umhverfis
jörðu, en það belti mun geta end-
urvarpað útvarpsbylgjum. Til-
gangurinn með þessum tilraunum
er að auðvelda endurvarp bylgna
um langar vegalengdir.
Talsmaður rannsóknarstöðv-
arinnar í Kaliforníu segir, að
mikill kostnaður muni hamla al-
mennum notum af tilraununum
fyrst um sinn, en þær munu hafa
mikla hernaðarþýðingu, því með
þessu móti verður unnt að koma
í veg fyrir, að sendiboð séu trufl
uð eða ónýtt af andstæðingun-
um, eða á þau sé hlustað.
Hann sagði ennfremur, að
heppnaðist þessi tilraun þannig
að nálamar dreifðust eins og til
væri ætlast, yrðu þær það víðs
fjarri, að gervitunglum yrði ekki
meint af og engar hömlur settar
rannsóknum á himingeimnum.
Margir vísindamenn hafa ekki
viljað samsinna þessum ummæl-
um og lét Sir Bernard Lovell
svo ummælt í dag, að fremstu
visindamenn heims væru andvíg-
ir þessari tilraun og hefðu lengi
verið enda væri hún blettur á
geimvísindum Bandaríkjamanna,
sem hingað til hefðu verið flekk-
laus.
Skipt um myndir í Asgrímssofni
1 DAG er opnuð ný sýning í As-
grímssafni, og er hún fjórða sýn-
ingin síðan safnið var opnað á
síðastiiðnu haustL
Að þessu sinni eru sýnd 17
olíumáiverk í vinnustofu As-
gríms Jónssonar, og eru flestar
myndirnar málaðar á árunum
1930—1957.
A heimili Asgríms, tveim litl-
um stofum, eru sýndar 16 vatns-
litamyndir. 1 annarri þeirra eru
eingöngu myndir málaðar á ár-
unum 1902—1912, að einni undan
skilinnL en sú mynd er af
SkjaidDreið, máluð vorið 1922.
Tvær af eldri vatnslitamyndun-
um eru frá Italíu, málaðar 1908.
1 hinni stofunni eru sýndar síð
ari tíma myndlr, m. a. frá lCrýsu
vík og úr Mývatnssveit.
Asgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudag, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1,30—4. Að
gangur ókeypis.
Ekið á hest og staur
Séra Bjarni Jónsson og frú fyr ir utan heimili sitt í gær ásamt bæjarstjórn Reyjarvíkur og
helztu embættismönnum bæjarins.
— Sr. Bjarnl
Framh. af bls. 1
um, en einnig ávallt lyft gleðinni
í æðra veldi.
Þegar við yngri kynslóðar-
menn hugleiðum göngu sr.
Bjama, göngu tómthúsmannsson
arins frá Mýrarholti í Vestur-
bænum til Dómkirkju og um
Lækjargötu höfuðborgarinnar,
þá er að vissu leyti sem saga
Reykjavíkur sé skráð.
Við minnumst með þakklæti
þeirrar þekkingar sem hann hef
ur miðlað okkur um þróun borg
arinnar, vöxt hennar og viðgang,
tengsla þeirra, sem hann og starf
hans mynda milli 4 eða jafnvel
5 kynslóða á mesta umbrotatíma
sögu okkar, og við gerum okkur
raunar grein fyrir, að vakandi og
eflandi átthagaást Reykvikinga
nú á ekki sízt til þessa starfs sx.
Bjarna rætur sínar að rekja.
Nú er vetrardagurinn fyrsti, en
mér er sagt, að fyrir 80 árum á
fæðingardegi sr. Bjarna hafi ver
ið síðasti sumardagur, og ég held,
að allt líf og starf sr. Bjama
hafi verið okkur Reykvíkingum
sífelldur sumarauki.
Bæjarstjóm Reykjavíkur hefur
óskað eftir því að mega sækja
þig heim, sr. Bjarni, í þeim stof
um, þar sem þú hefur búið við
hlið þinnar góðu konu, frú As-
laugar, sem einnig á þær miklu
þákkir, sem þér eru færðar á
þessum degi.
Bæjarstjórn Reykjavíkur kem
ur hér til að hylla þig, flytja
þér og konu þinni þakkix og
yþkur og fjölskyldu ykkar kveðj
Ur og hamingjuóskir samborgara
ýkkar.
Bæjarstjórn Reykjavíkur kem-
ur hér til að tilkynna, að á fundi
bæjarstjórnarinnar í Reykjavík
hinn 19. okt. 1961 var samþykkt
einum rómi með ið samhljóða
atkvæðum að gera sr. Bjama
Jónsson heiðursborgara i Reykja
vík á áttræðisafmæli hans 21.
okt. 1961.
.Ég bið þig að veita viðtöku
skjali því, er staðfestir samþykkt
bæjarstjórnar.
Þú ert fyrsti og eini heiðurs-
borgari Reykjavíkur,
Megir þú heill njóta sæmdar
um langan aldur og Reykjavík
þin.“
Séra Bjami Jónsson vígslubisk
up svaraði ávarpi borgarstjóra
með þessum orðum:
„Herra borgarstjéri, forseti
bæjarstjómar, háttvirta bæjar-
stjóm og aðrir starfsmenn
Reykj avikurbæj ar.
Það er eðlilegt, að mér verði
nú tregt um tungutak. Það segir
svo í einum sálmi: „Hvað get ég
sagt —það eru möng versin,
sem byrja þannig. Sá maður, sem
þannig spyr, hann er fullur lotn
ingar og aðdáunar og hann á ekki
orð til að lýsa því, sem hefur
gripið huga hans.
Og nú segi ég, hvað get ég
sagt? Ég get sagt, að þetta verm
ir hjarta mitt að verða aðnjót-
andi þessarar miklu sæmdar, og
því get ég sagf það, að fyrsta orð
ið er þakklæti, og í fylgd með
þakklætinu er bænin: Guð blessi
Reykjavík.
Ég tel það heill og heiður að
vera Reykjavíkurbarn frá fyrstu
morgunstund ævi minnar og það
skal ég vera fram að síðustu
stund ævikvöldsins. Ég hef átt
því láni að fagna að búa við vin
sældir bæjarbúa og kannast við
það með innilegu þakklæti nú í
dag. Ég hef fundið svo mörg hlý
handtök og margt sólbros sætt,
sem hefur glatt huga minn og
fajarta. Ég hef unað vel hag mín-
um í Reykjavík og við hjónin
og fjölskylda mín og getum sagt
með orðum ritningarinnar: „Mér
féllu að erfðahlut indælir stað-
ir, og arfleifð mín líkar mér vel“.
Ég vitna nú til orðanna, sem
ég mælti á 175 ára afmæli Reykja
víkur: „Reykjavík, rísi þín frægð,
við röðulskin komandi tíma.“
Blessizt og blómgist Reykja-
vík. Eg horfi á fæðingarbæ minn
og segL „Sólin á þig geislum
hellL“
AKUREYRI, 28. okt. — 1 gær-
kvöldi var bifreið á leið um
Kræklingahlíð norðan Akureyr-
ar. Nálægt bænum Dvergasteini
var hestur á veginum og lenti
bifreiðin á honum og brotnaði
hesturinn illa á fótum og varð
að aflífa hann þegar í stað.
Kl. rúmlega 1 í nótt var bif-
reið á leið sunnan Hafnarstræti'
á Akureyri, nálægt Hótel Kea
Færeyingarnir
gáfu málverk
FÆREYSKU listamennirnir, sem
hér dvöldust um nokkurra daga
skeið í tilefni sýningar á fær-
eyskri myndlist í salarkynnum
Listasafns Islands, eru nú farn
ir heimleiðis. Aður en þeir fóru,
afhentu þeir Menntamálaráði
gjöf frá Listafélagi Færeyja: olíu
málverk eftir færeyska málarann
Ingálv av Reyni. Menntamálaráð
þakikar þessa góðu gjöf, sem það
mun afhenda Listasafni íslands
til eignar og varðveizlu.
(Frétt frá Menntamálaráði)
Nýtt heimspekrit
ÚT ER KOMIN þriðja bókin í
ritverki Gunnars Dals um sögu
heimspekinnar. Nefnist hún „Líf
og dauði“ og fjallar um rökin
fyrir framhaldslífi og fortilveru
mannsins. Hinar tvær bækurum
ar, sem áður eru komnar út eftir
Gunnar eru „Leitin að adit“ og
„Tveir heimar“.
missti bifreiðarstjórlnn vald &
bifreiðinni og lenti þar á götu-
ljósastaur. Staurinn er stein-
steyptur og mölbrotnaði hann og
féll í götuna, en bifreiðin skemmd
ist mjög mikið. Ökumaðurinn var
einn í bifreiðinni og sakaði hann
ekki. — St. E. Sig.
Kviknaði
í bæ í Vopnafirði
VOPNAFIRÐI, 21. okt. — 1 gær
kvöldi kviknaði í bænum Skóg-
um, en þangað er um 10 mín.
akstur frá Vopnafirði. Kviknaði
í geymslu ,sem er í álmu út
frá íbúðarhúsinu. Þegar eldsins
varð vart, logaði út úr dyrum
á geymslunni, en við hliðina á
henni er benzín-ljósarafstöð. —.
í geymslunni var eldiviður, kol
og fleira.
Bóndinn hringdi niður á
Vopnafjörð, en fólkið á bænum
fór að bera vatn á eldinn. Eftir
hálftíma, þegar komið var frá
Vopnafirði, var verið að ljúka
við að slökkva eldinn.
í geymslunni voru 6 rafgeym-
ar, sem átti að láta við stöðina
og brunnu þrír af þeim. Ekki
mun hafa orðið mikið tjón að
öðru leyti. Bóndinn brenndist
lítillega á höndum, er hann var
að slökkva eldinn.
Á Vopnafirði er enginn bruna
bíll, en verið er að ganga frá
bíl fyrir sunnan, sem hingað á
að koma. Vonandi kemur hann
að notum x næsta skipti er
kviknar L — S. J.