Morgunblaðið - 22.10.1961, Síða 8

Morgunblaðið - 22.10.1961, Síða 8
8 MORGVNnr.4 ÐIÐ Sunnudagur 22. okt. 1961 Batnandi hasur fara saman Ræða IngÖlfs Jónssonar, land- búnaðarráðherra á Landsfundi SjálfstæöisfloSiksins £ G mun í þessari ræðu drepa sérslaklega á nokkur mál, sem eru í þeim ráðuneytum, sem undir mig heyra. Vil ég þá fyrst ræða lítillega landbúnaðarmál- in, ekki sízt vegna þess að ýms- ir Framsóknarmenn halda því fram, að nú hafi verið þrengt meira að bændum en öðrum stéttum í þjóðfélaginu. Landbúnaðurinn á auðvitað við ýmsa erfiðleika að stríða nú eins og oftast áður. Bændur sjálfir finna bezthvar skórinn kreppir að, og gera sér áreiðanlega grein fyrir því, hvort að þeim er þrengt eða hvort þeir eru rangindum beittir. Eg hefi talað við marga bændur og ber þeim saman um, að ekki óski þeir eftir að skipta um hlutverk við verkamenn eða ýmsar aðrar launastéttir við sjó inn. Hygg ég að ef hlutlaust er um það dæmt, að þá sé það rétt mat, að bændur þurfi ekki að öfunda launþegana í landinu. Oft er rætt um kjara- bætur og bætta lífsafkomu al- menningi til handa. Er eðlilegt að leitað sé eftir á hvern hátt það megi verða. Þegar um landbúnaðinn er að ræða, er nauðsynlegt að skapa aukna framleiðslumöguleika, skapa skilyrði fyrir aukna rækt un og stækkun búanna. Á þann hátt getur landbúnaðurinn orð- ið arðvænlegur, ef skilyrði eru fyrir sölu á framleiðslunni. Nú- verandi ríkisstjóm hefir lagt grundvöll að því, að markaður sé fyrir hendi fyrir framleiðslu landbúnaðarins. Það var gert Hjt. a. með því að breyta afurða- solulöggjöfinni í árslok 1959 og bæta úr ríkissjóði þann halla, sem verður á útfluttum landbún aðarvörum. Meira örj ggi Önnur mikilvæg breyting var ein 'g gerð ó afurðasölulöggjöf- inni méð því að heimila verð- hækkun landbúnaðarvara fjór- um sinnum á ári, ef kaupgjald eða rekstrarvörur hefðu hækk- að. Eftir þessar mikilvægu breytingar býr landbúilaðurinn við meira öryggi en áður. Nú ber landbúnaðurinn ekki halla af þeim vörum, sem seldar eru ur landi fyrir iægra verð en venjulegt innanlandsverð. Áður höfðu bændur þurft að taka á sig hallann af útflutningsverð- inu og fengu ekki það verð, sem þeim var reiknað af sex manna nefnd samkvæmt verð- grundvellinum. Á sl. ári fengu bændur fullt grundvallarverð fyrir framleiðslu vörunnar og voru það mikil viðbrigði frá því, sem áður gerðist. A verð- bólguárunum 1957 og 1958 varð tjón landbúnaðarins mjög til- finnanlegt yegna halla á útflutt um landbúnaðarvörum, sérstak- lega mjólkurvöfum, en þá var, eins og kunnugt er, engin út- fhitningstrygging og engin til- raun gerð af hálfu stjórnarvald- anna til þess að bæta bændum það mikla tjón, sem þeir urðu þá fyrir. Á þessu hausti varð ekki sam komulag um verðlagningu land- búnaðarvara í sex manna nefnd. Framleiðsluráð landbúnaðarins stillti upp þeim kröfum, sem það taldi æskilegar fyrir bænd- anna hönd. Er ekkert nema gott um það að segja, enda ber Framleiðsluráði að gera slíkt og færa full rök fyrir kröfugerð- inni. Framleiðsluráð hefir þessar skyldur og ber að haga sér eft- ir því, hverjir sem fara með stjórn landsins. Á þessu hausti kom til úrskurðar yfirnefndar um verðlagningu á landbúnaðar vörum. Það hefir skeð þrisvar sinnum áður síðan lög um Fram leiðsluráð tóku gildi. Lögin um Framleiðsluráð Var farið að þessu sinni, eins og áður, að lögum um verð- lagninguna. Bændur fengu tals- verða hækkun á framleiðslunni, enda þótt kröfur þeirra væru ekki uppfylltar. Bændasamsökin verða að gera það upp við sig, hvort þau telja hyggilegra að vinna að því, að verðgrundvöll- urinn verði endurbættur, þann- ig að allir kostnaðarliðir við bú- reksturinn verið teknir til greina, eða þá að beita sér fyrir því að lögum um Fram- leiðsluráð í því formi, sem þau nú eru, verði breytt eða þá felld úr gildi. Þess ber að geta að bændur hafa frá því að verðlagning hef- ir farið fram eftir þesum lögum, talið að verðgrundvöllurinn væri ekki réttur. Á þessu hausti gerði Framleiðsluróð að ætla má fyllstu kröfur um leiðréttingu, en hefir oft áður slakað til svo samkomulag gæti náðst. Þessa skekkju ber að leiðrétta. Má vera að sumir bændur telji eðlilegast að * hafa fulla heimild til að ákveða verðlagið einir á framleiðsluvörum land- búnaðarins. Líklegt má þó telja að þeir sem hyggnari eru, telji þá löggjöf, sem nú er búið við eftir lagfæringuna frá 1959, það mikils virði fyrir bændastéttina, að nauðsynlegt teljist að halda þeirri löggjöf. Fyrst þegar lög um Framleiðsluráð voru sett, töldu Framsóknarmenn það vera beztu lög, sem landbúnaðurinn gæti óskað sér og lögin veittu landbúnaðinum þá tryggingu og vemd, sem nauðsynleg væri. Þetta var sagt á meðan lögin tryggðu bændum ekki fullt verð fyrir þær vörur, sem fluttar voru úr landi. Þetta var sagt á meðan heimilt var aðeins einu sinni á ári að breyta verðlag- inu á landbúnaðarvörum, enda þótt kaupgjald og rekstrarvör- ur hefðu stórhækkað. Þetta var sagt á meðan lögin voru í því formi, að þau tryggðu bændum engan veginn skráð grundvallar verð fyrir afurðirnar vegna hins mikla halla, sem þeir urðu að taka á sig vegna útfluttu var-. anna. Þetta var sagt á meðan að botninn vantaði í löggjöfina. Þeir sem vegsömuðu löggjöfina í því formi, sem hún var, hljóta að telja lögin í því formi, sem þau nú eru, ómissandi fyrir bændastéttina, enda eru þau það vafalaust. Landbúnaðurinn hefir staðizt þung próf á undanförnum ára- tugum. Fólkið hefur streymt úr sveitunum og nú er svo komið, að sveitimar þola ekki meiri blóðtökur. Fólksfjöldi við land- búnaðarstörf er kominn í lág- mark. Að því líður óðum að sá tími kemur, eða er kominn,' að nokkur fjölgun fólks verður að eiga sér stað við landbúnaðar- störfin. Gott er til þess að vita, að mikið er til af góðu landi, sem bíður ræktunar. Þar er vara sjóður og forðabúr fyrir ört vax andi þjóðfélag. Nýrækt og framleiffsluaukning Ræktun hefir verið mikil hin síðari ár. A árunum 1950—’60 voru ræktaðir 32,500 ha. A ár- inu 1960 var nýræktin 3.700 ha. Má telja nauðsynlegt að rækta árlega allt að 4.000 ha. að minnsta kösti. Með því móti verð ur tryggð aukning í frartileiðslu innlendra matvæla, sem þjóðinni eru svo holl og nauðsynleg. Haust ið 1959 leit út fyrir að framleiðsla landbúnaðarvara væri of lítil, enda varð að flytja inn til lands- ins 100 tonn af erlendu smjöri í ársbyrjun 1960. Var því spáð, af Framsóknarmönnum, að sam- dráttur hlyti að verða í fram- leiðslu landbúnaðarafurða á Ingólfur Jónsson landbúnaðarmálaráðherra næstu árum, þar sem nú væri komin til valda rikisstjórn, sem ekki væri hlynnt landbúnaðinum. Framsóknarmenn hefðu þó átt að líta sér nær og átta sig á því, að samdráttur í landbúnaðinum byrjaði 1958, enda sló þá óhug á bændur vegna hins mikla taps, sem þeir urðu að bera vegna út- fluttra vara. Ofan á það komu bjargráðin frægu, sem lögfest vöru í maí, sama ár. Þá var afkomu bænda ógnað, enda komu áhrifin greinilega fram árið eftir með þeim af- leiðingum, að samdráttur varð í framleiðslunni og flytja varð inn smjör vegna þess að mjólk- urframleiðslan varð of lítil. — Segja má, að óhagstætt tíðar- far 1959 hafi valdið nokkru þar um, en hitt var þó enn veiga- meira, að með bjargráðunum 1958 voru lagðar þungar byrð- ar á landbúnaðinn, sem hann fékk á engan hátt bættann. Eftir að afurðasölulöggjöfin var lag- færð í árslok 1959, fengu bænd- ur aftur trú á því, að það borg- aði sig að framleiða og hafa síð- an hagað sér eftir því, eins og raun ber ljósast vitni, þar sem framleiðsla landbúnaðarvara hefir stóraukizt síðan löggjöf- inni var breytt og bændur höfðu ástæðu til að ætla að það verð, sem þeim er ætlað samkvæmt verðgrundvellinum, verði að fullu greitt til þeirra. Hagstætt tíðarfar hefir einnig hjálpað til í þessu efni, en það hefði á engan hátt nægt, ef dugnaður, stórhugur og bjart- sýni bændanna hefði ekki kom- ið til og þeir þess vegna aukið búin og framleiðsluna í sam- ræmi við það. Nú eru til birgð- ir af smjöri og þarf því ekki til þess að koma, að flutt verði inn erlent mjör. Til þess að fullnægja mjólkurþörf lands- manna næstu árin, þarf kúa- fjöldinn að aukast um allt að 800 kýr árlega. Sé gerð fimm ára áætlun, verðúr að hafa í huga að í árslok 1966 verður fjöldi landsmanna um 200 þús. und, sé reiknað með 2,2% fjölg- un árlega. Kjötframleiðslan gerir meira en fullnægja innanlandsþörfinni. Eigi að síður ber að auka kjöt- framleiðslu með méiri fjöl- breytni og útflutningi fyrir aug- um. Verði holdanautarækt tek- in hér upp, mætti ætla að hún gæti orðið arðvænleg, þótt kjöt- ið væri flutt styrkjalaust á er- lendan markað. Aukiff gróffurlendi ísland er stórt að flatarmáli, en of stór hluti þess eru jökl- ar eða gróðurlaus eyðimörk. Fram til þessa hefur víða gengið á gróðurlendið vegna uppblásturs og eyðingar. Talið er að aðeins 14 hluti landsins geti talizt gróið land. Sem bet- ur fer eru möguleikar til þess að auka gróðurlendið. Sandgræðsla ríkisins hefir að undanförnu dreift áburði úr flugvél yfir ógróið landssvæði, með ágætum árangri. Með þessu vinnst tvennt, gróna landið verð ur stærra og beitarþolið vex, og hættan á nýjum uppblæstri minnkar og hverfur með öllu. Halda þarf áfram á þessari braut í auknum mæli. Eins og þjóðin telur nauðsynlegt að stækka landið með því að færa út fiskveiðitakmörkin og hslga sér landgrunnið allt til fisk- veiða, svo er það einnig nauð- synlegt að stækka gróðurlend- ið og forða því frá eyðingar- öflum og uppblæstri. Fram til þessa hefir aðallega verið unn- ið að grasrækt í landinu, enda hefir það verið þýðingarmest hingað til. Hin seinni ár hefir nokkuð verið unnið að skógrækt og telja ýmsir, sem sérþekkingu hafa á þeim málum, öruggt að hér megi koma upp nytjaskóg- um, sem þjóðin geti í ríkum mæli notið góðs af í framtíð- inni. Skjólbelti eru og , þýðingar- mikil fyrir allan gróður, en til þess að koma þeim upp þarf ekki mjög langan tíma. Kornrækt Tilraunir hafa verið gerðar með kornrækt, enda þótt aðeins sé örstutt síðan farið var að rækta korn hér að nokkru ráði. Má segja að kornrækt hafi haf- izt í verulegum mæli á Austur- landi fyrir tveimur til þremur árum síðan, en á þessu ári hef- ir einnig verið ræktað mikið korn á Suðurlandi. Munu 400 ha. hafa verið undir korni sl. sumar. Flestir munu telja, að sl. sumar hafi verið undir með- allagi, hvað hita og góðviðri snertir. Eigi að síður þroskaðist kornið vel á þessu sumri og er talið að uppskeran hafi verið 17—18 tunnur af ha. Árið 1960 var flutt inn 21.200 tonn af fóð- urkorni. Verðmæti þessa koms úr tolli var 66 milljónir og 300 þús. kr. Gjaldeyrir sá, sem lát- inn var fyrir þetta korn nam kr. 55,300,000,00. Það er engin bjartsýni, að halda því fram, að íslendingar geti ræktað mest af því fóðurkorni, sem notað er í landinu. Það hlýtur að teljast sjálfsagt að nýta landið á þann. hátt og spara þann gjaldeyri, sem fram að þessu hefur verið látinn fyrir fóðurkorn. Ég er sannfærður um, að það eru ekki mörg ár þangað til þessu marki verður náð. Til að flýta fyrir því, er nauðsyn- legt í byrjun að styrkja nokk- uð í ,,einu formi eða öðru, kom- rækt í landinu. Má ætla að gengið verði frá því máli á því þingi, sem nú hefir nýlega hafið störf sín, þar sem ríkisstjómin hefir málið í undirbúningi. Þá hefir einnig verið hafin frærækt í Gunnarsholti. Árleg gjaldeyriseyðsla vegna innflutta grasfræs hefir numið á 6. millj. kr. Þá er einnig hafi í Gunnars- holti fóðurtöfluframleiðsla, eins og nú er farið að framleiða víða erlendis. Miðar þetta allt að því að mest öll fóðuröflun fari fram innanlands. Lánamál Til þess að landbúnaðurinn geíi starfað á æskilegan hátt með eðlilegri uppbyggingu og þróun, er nauðsynlegt að lána- sjóðir landbúnaðarins séu á hverjum tíma aflögufærir og geti veitt lán til nauðsynlegrar uppbyggingar. Eins og nú standa sakir, eru lánasjóðir landbúnaðarins á helj arþröm vegna þess að þeir hafa undanfarin ár, að árinu 1960 undanskildu, tekið erlend lán og borið gengisáhættuna. Ef lánasjóðum landbúnaðarins hefði verið útvegað fé með sama hætti og sl. ár, stæðu þeir nú í blóma og gætu veitt landbún- aðinum þá aðstoð, sem æskileg er. Finna verður leiðir til þess að koma stoðum undir sjóðina á ný. Er það verkefni erfitt, en unnið er að þeim málum á veg- um ríkisstjórnarinnar. Enda þótt lánamál landbúnaðarsjóðanna hafi ekki enn verið leyst til frambúðar, verður að útvega fé að þessu sinni með sérstök- um hætti til þess að lánað verði út á framkvæmdir, sem unnar hafa verið á yfirstandandi ári. Sjóðir Búnaðarbankans hafa aldrei lápað eins mikið á einu ári og 1960 eða kr. 67 millj. Er það í mótsögn við það, sem Framsóknarmenn segja nú, að mikill samdráttur hafi átt sér stað í framkvæmdum sl. ár. —• Hinu er þó ekki að leyna, að fjölgi fólki ekki við landbún- aðarstörfin, þarf ekki að búast við að framkvæmdir geti orðið jafn miklar eftirleiðis og verið hefur. Er það því ljóst, að nauðsyn ber til að fjölgun vinnandi handa verði við landbúnaðinn eftirleiðis. Brýna nauðsyn ber til að veita stofnlán til þeirra bænda, sem eru að byrja bú- skap, en það hefir ekki ‘verið talið fært að undanfömu, þótt oft hafi verið um það rætt. Ekki ber nauðsyn til að stofna sérstaka deild við bankánn, þótt slík lán verði veitt, þar sem það gæti verið innan starfsviðs veðdeildarinnar að hafa slíka lánastarfsemi á hendi. Raforkumál Rétt þykir, að ræða hér lítil- lega um raforkumál. Eins og kunnugt er, var gerð 10 ára á- ætlun í raforkumálum 1953. Eft- ir þeirri áætlun hefir verið unn- ið síðan og hin ýmsu byggðar- lög landsins fengið rafmagn samkvæmt áætluninni. Fjöldi þeirra býla, sem fenpið hafa rafmagn síðustu fimm ár- in, er sem hér segir: 1956 .... .... 232 býli 1957 .... — 1958 .... — 1959 .... — 1960 .... .... 215 — og ætla má að á árinu 1961 fái hátt á 3. hundrað býli rafmagn. Kostnaður við að Ijúka 10 ára áætluninni mun vera um 140 milljónir króna, Eftir lok 10 ára áætlunarinnar 1964, murtu 182 þús. manns hafa fengið raf- magn, en um 8.000 manns, eða 4% þjóðarinnar, verður þá án rafmangs. Athugun er hafin á Framh. á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.