Morgunblaðið - 22.10.1961, Side 13

Morgunblaðið - 22.10.1961, Side 13
Sunnudagur 22. okt. 1961 MORCVNBLAÐ1Ð 13 i Nokkrir fulltrúar á landsfundinum í Sjálfstæðishúsinu (taldir frá vinstri og fram eftir): — \ Magrnús Jónsson, fyrrum sparisjóðsstjóri, Borgarnesi; Margrét Konráðsdóttir, Skagaströnd; Jón | Daníelsson, framkv.stj., Gmidavík; séra Gísli Brynjólfsson, Kirkjubæjarklaustri, Sigurbjörn Þorkelsson, kaupm., Reykjavík; Kristján Jóh. Kristjánsson, forstjóri, Reykjavík; Ólafur Bjarna- son, Brir. ilsvöllum, Snæfellsnesi, og Hörður Siffurgeirsson, ljósmyndari, Vestmannaeyjum. Kristjánsson geri e.t.v. helzt til mikið úr því, sem vinir Jóns Sig- urðssonar töldu, að á hann gæti fellt skugga. Til stuðnings þeirri skoðun má vitna til bréfs, sem Lúðvík birtir frá Eiríki Magnús syni til Jóns, ritað hinn 21. marz 1BS6 og er hið síðasta varðandi peningagreiðsluna: „Ég varð feginn að fá bréf yð- ar frá 3. þ.m. og þar með til- kynningu um, að nú væri allt heimt. í>ar er þá okkar plönum svo langt komið, að Sagan fæð- ist, ef ekki vilja til nein óhöpp. En lítið er nú fengið þar með og þó mikið, því að mér hefur fyrir löngu fundizt mest um varða að okkar oddvita yrði svo borgið, að hann þyrfti ekki (Neðanmáls segir Lúðvík: Hér virðist eitt- hvað vanta) að hann gæti haldið áfram að rífast við varmennin, án þess að dnagna niður í eymd og vesaldóm undir ómennsku þeirra, undir hvorra högg hann varð allt að sækja, jafnframt og hann átti í illdeilum við þá. Það er því gott að þetta er nú kom- ið í kring.“ Síðan segir Lúðvík: „Varmennin, sem Eiríkur minn ist á, að Powell hafi orðið að rif- REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 21. okt Séra Bjarni heiðursborgari * Mjög var það vel til fundið, að bæjarstjórn Reykjavíkur skyldi gera séra Bjarna Jónsson beiðursborgara á áttræðisafmæli Ihans. Séra Bjarni er borinn og Ibarnfæddur Reykvíkingur og hef Ur í meira en 50 ár stundað prestsþjónustu hér í bæ. Hann þekkir fleiri heimili í Reykjavík og hefur fylgzt með lífsferli fleiri Reykvíkinga en nokkur annar fyrT eða síðar. Enginn teng ir betur sarnan löngu horfna for tíc og lifandi nútíð en hann. Séra IBjarni er hinn sanni Reykvíking ur, alvörugefinn og starfsamur í dagsins önn, en glettinn og gam lansamur á gleðifundum. Reykvík ingafélagið kjöri hann fyrir heið- ursforseta sinn. Nú er hann orð- inn heiðursborgari Reykjavíkur. ÍMeð því er honum sýnd verðug sæmd. og bæjarstjórnin, sem gerði það einhuga, hefur aukið §inn eigin hróður. „Á slóðum Jóns Sigurðssonar“ 1 sumar birtist bók eftir Lúð- vík Kristjánsson rithöfund, er Ihann nefndi: „A slóðum Jóns Sigurðssonar“. Bók þessi er ekki samfelld saga, heldur þættir og iþó öl'lu helzt tilvitnanir í bréf og gögn, sem varða störf og fjár- Ihag Jóns Sigurðssonar. Segja imá, að menn séu leiddir að tjalda Ibaki og kynnist þess vegna betur ýmsu, sem áður var dulið um eevi hins mikla þjóðarleiðtoga, mesta Islendings er lifað hefur. •Deila má um, hvort allt sé það itil lofs Jóni, er þarna kemur fram, en það skaðar ekki, því að þarna fást þau litbrigði í mynd Jóns, sem áður vantaði að mestu. Hinn glæsti höfðingi heldur reisn sinni en menn kynnast því, að hann eins og aðrir átti í Ihörðu lífsstríði. Ánauðin og Ikvabbið sem á honum hvíldi, var ofboðslegt. Það var þó ekki ein- ungis til trafala og tafar, heldur étti mikinn þátt í vinsældum Ihans, vegna þess að hann leysti Ihvers mann vanda, eða vildi a. m.k. gera það. Hvernig gat hann, Stöðulaus maður, sinnt öllu þessu, verið forystumaður heiilar þjóð- «r og dregið saman þau gögn, er Ihenni entust bezt i sókn til sjálfs- forræðis, en þó haldið sig betur en íslendingum var þá títt? Slógu skjaldborg um hann Lúðvík Kristjánsson gerir grein fyrir þessu í bók sinni. Hann sannar, að íslendingar eýndu lengst af furðu lítinn ekilning á því, að Jón þyrfti eins cg aðrir peninga til að lifa af. Jafnvel hans tryggustu vinir hliðruðu sér hjá að viðurkenna þá einföldu staðreynd. Afsökun- in er sú að menn voru óvanir sjálfsforræði og geta almennings lítil sem engin, þó að sannarlega hefðu verið efni á að launa mann, sem flestir viðurkenndu að væri sjálfsagður foringi þjóð- arinnar, svo að hann gæti verið í því fyrirsvari sem honum var ætlað. Þröiigsýnin var slík, að einn helzti stuðningsmaður Jóns getur þessa árið 1877, tveim ár- um áður en Jón dó: „Mikið hafa sumir álasað þinginu fyrir, að það keypti bókasafn J. Sigurðs- soar“. Danir reyndust Jóni mun bet- ur og á annan veg en hér hefur lengst af verið ætlað. Bezt reynd- ist Jóni brezkur maður að nafni George Powell. Lúðvík rekur þau viðskipti svo sem föng eru til. Það er þó erfitt, vegna þess að ýmsum gögnu-m, sem þar skipta meginmáli, hefur verið eytt, að því er virðist af ásettu ráði. Skýringin er sú, að vinir Jóns, Eiríkur Magnússon, sem út- vegaði honum fé hjá Powell, og Tryggvi Gunnarsson, sem að lok- um beitti sér fyrir að koma fjár hag Jóns í rétt horf, slógu skjald borg um hann í því skyni, að eng inn skuggi félli á hinn mikla forystumann. Hollusta, sem ber að hafa í heiðri Nú er svo langt um liðið að sannleikurimi getur engan meitt, allra sízt Jón sjálfan. Hið merk- asta við rit Lúðvíks er e.t.v. það, að það sýnir hversu frábæra hollustu þeir Eiríkur og Tryggvi veittu Jóni. Þeir lögðu sig alla fram og meira en nokkrir aðrir íslendingar til að greiða götu hans, þegar hann þurfti á að halda og reyndu síðan að dylja það, sem þeir töldu, að öðruvísi hefði mátt vera. Af þeirri dul, sem dregin hefur verið á málið, mætti ætla, að það hefði verið mun verra en var. Einstök atriði skulu ekki rakin hér. Það gerir Lúðvík Kristjánsson í bók sinni og má þó varpa fram þeirri spurn ingu, hvort hann í ákafa rann- sóknarmannsins leggi ekki helzt til mikla áherzlu á það, ®em mið- ur fór, og nússkilji raunar eitt af þeim bréfum, er hann birtir og verulega þýðingu hefur. Sann leikurinn er sá, að þótt Indriði Einarsson hafi, eins og Lúðvik sýnir fram á, hermt rangt um einstök atriði málsins í Skírnis- grein sinni 1911, þá kemst hann, e.t.v. af skáldlegri innsýn og vegna náinna kynna af Jóni, furðu nærri kjarnanum. „Því má ég ekki gjöra það einn?“ Lúðvík tekur þetta upp eftir Indriða: „Svo mun forseti hafa álitið um nokkra hríð að bókasafn hans og handritasafn væri veð- sett í Englandi. Veðsetningar- skjölin og skrá yfir bækur og handrit voru send til Englands, en voru send aftur litlu síðar, því að peningarnir voru greiddir til þess að forseti gæti skrifað íslandssögu í næði.... “ Um þetta segir Lúðvík: „Hér er um einberan skald- skap að ræða, sem marka má af heimildargögnum, er hér verða birt síðar.“ Nokkru síðar vitnar Lúðvík enn til Indriða á þennan veg. „Fjárhagur forseta varð þess vegna (þ.e. hann var embættis- laus) eins og þeirra manna, sem Bjarni Thorarensen segir um: „Konungs hafði hann hjarta með kotungsefnum“ og 1865—68 mátti. ekki lengur við svo búið standa. Eiríkur Magnússon fór þá til George Powells, bezta vinar síns, sagði honum málavöxtu, og hvað við mundi liggja hins vegar fyrir málefni íslands, ef Jón Sigurðs- son yrði gjaldþrota. öll fram- sókn íslendinga gagnvart Dön- um var í veði. Konungshjartað þurfti að fá 27,000 kr., og Eirik- ur Magnússon mun hafa spurt vin sinn, hvort ekki mundi mega fá nokkra enska auðmenn til þess að leggja til féð. Þá hailaði George Powell sér aftur á bak í stólnum, krosslagði hendurnar á brjóstinu og sagði: „Því má ég ekki gjöra það einn?“ Hann lagði fram 27,000 kr. aleinn,“ Þarna er að vísu málum bland- að í einstökum atriðum, aðallega þó löng saga dregin saman í ör- stutt mál, eins og þegar langri atburðarás er lýst í leikriti í ör- fáum atvikum og einu svari. En viðbrögðum George Powells á úrslitastund er rétt lýst og fyrir þau viðbrögð mega íslendingar ætíð meta hann. Hann munaði að vísu ekki mikið um féð, en hann einn allra manna sýndi þá rausn, sem þufti. „Hann gæti haldið áfram að rífast við varmennin“ Þess er áður getið, að Lúðvík ast við til þess að ná í pening- ana handa Jóni Sigurðssyni, eru að sjálfsögðu lögfræðingar eða fjárgeymslumenn gamla Pow- ells.“ „Að okkar oddvita yrði svo borgið“ Hér sýnist þeim, er þetta ritar, að sé um algeran misskilning að ræða. Ef rétt er prentað segir alls ekki í bréfinu, að „Powell hafi orðið að rífast við“ „var- mennin“, eins og Lúðvík fullyrð- ir. Setningaskipun í bréfinu er raunar ekki fullkomin, en sam- hengið finnst með því einu að telja, að „varmennin" séu ekki „lögfræðingar eða fjárgeymslu- menn gamla Powells" heldur Danir. Eiríkur hafði löngum orð á sér fyrir að vera maður stór- orður. Þarna er hann að lýsa skiptum Jóns Sigurðssonar við Dani. Hann leggur áherzlu á, að hann hafi útvegað Jóni pen- ingana í Englandi, til þess „að hann gæti haldið áfram að rífast við varmennin, án þess að dragna niður í eymd og vesaldóm imdir ómennsku þeirra, undir hvorra högg hann varð allt að sækja, jafnframt og hann átti í illdeil- um við þá. Það er því gott, að þetta er nú komið í kring.“ Það er þetta, sem hann segir að sér hafi fyrir löngu „fundizt mest um varða, að okkar oddviti yrði svo borgið". Jón Sigurðsson vissi auðvitað hverjar skuldbindingar hann hafði undirgengizt við PoweU. Þar af komu áhyggjur hans og vina hans síðar. En þetta bréf Eiríks Magnússonar var honum glöggt vitni þess, í hvaða skyni peninganna var aflað. Það var fyrst og fremst til þess að hann gæti ha’dið áfram forystu íslend inga í sjálfstæðisbaráttunni. Samningurinn um ritun sögu Is- lands var að mati sjálfs milli- göngumannsins fyrst og fremst umgerð þess, að foringi íslend- inga gæti fengið fé til að halda áfram forystuhlutverki sínu. Jón Sigurðsson var þess vegna í góðri trú þegar hann lét söguritunina mæta afgangi, enda staðfesti Powell það umsvifalaust, þegar málið var loks lagt fyrir hann á þeim grundvelli. „Hélt sér eingöngu við þurrar tölur ríkisbúskaparins“ Fyrstu útvarpsumræðurnar frá Alþingi urðu að þessu sinni sJL þriðjudagskvöld, frá 1. urnræðú fjárlagafrumvarpsins fyrir 1962. Tíminn getur ekki látið vera að, lýsa óánægju sinni yfir því, hvernig til tókst. Daginn eftir umræðuna þagði hann, en á fimmtudaginn segir hann í for- ystugrein: „Fjárlagaræðan, sem Gunnar Thoroddsen flutti í fyrrakvöld, var með einsdæmum að því leyti, að hann vék nærri ekkert að af- komu þjóðarbúsins og efnahags- málunum almennt. Hann hélt sér nær eingöngu við þurrar tölur sjálfs ríkisbúskaparins.“ Það er sjaldgæft, að maður sé ásakaður fyrir að halda sig að sjálfu umræðuefninu. Þarna var um að ræða „sjálfan ríkisbúskap inn“ og samanburð á honum nú og fyrr. Þetta gerði Gunnar Thor oddsen á skýran og glöggan hátt. Hann vitnaði til þess, að næg tækifæri gæfust til að ræða um efnahagsmálin síðar, enda yrðu þau vafalaust aðalumræðuefnið í umræðunum vantrauststillög- una, sem útvarpað verður n.k. miðvikudag og fimmtudag. Eitur í beinum Framsóknar En af hverju er Tímanum svo illa við að fj ármálar áðherra skyldi halda sig við aðalumræðu efnið, „þurrar tölur sjálfs rikis- búskaparins"? Ástæðan er sú, að Framsóknarmenn þola ekki að heyra samanburð á fjármála- stjóm ríkisins nú og áður. Á ár- inu 1960 urðu útgjöld ríkisins í fyrsta skipti lægri en þau höfðu verið áætluð. Eysteinn Jónsson og félagar hans ærðust, er þeir heyrðu þetta. Þeir vilja umfram allt dreifa athyglinni frá þessum sannindum. Háttur Eysteins Jóns sonar var löngum sá að gera rangar áætlanir um tekjur og gjöld ríkisins, í því skyni að fjármálaráðherra hefði ógrynni fjár úr að moða uta» við fjárlög. Með þessu var í reynd mjög drg- ið úr fjárveitingavaldi Álþingis og því gert ákaflega erfitt fyrir að átta sig á raunverulegri af- komu ríkissjóðs. Réttar áætlan- ir eru undirstaða góðrar fjár- stjórnar en eitur í beinum Fram- sóknar. Stjórnarandstæð- ingar tvísaga Auðheyrt var, að stjórnarana- stæðingum dámuðu ekki þær fréttir, að allar horfur væru á, að jafnvægi næðist 1 tekjum og gjöldum ríkissjóðs á þessu ári eins og 1960. Til að reyna að draga úr áhrifum þessa reyndu þeir að láta svo sem illa hlyti að fara 1962. Þær hrakspár létu kynlega í eyrum, eftir að fjár- málaráðherra hafði minnt á, að annað höfuðmálgagn stjórnar- andstæðinga hafði i sumar full- yrt, að hallinn í ár myndi verða a.m.k. 200 millj. kr.! Karl Guðjónsson sagði ástæð- una fyrir, að öðru vísi hefði til tekist, vera þá, að gengislækk- unin færði ríkissjóði stórauknar tekjur. Hún hefði m.a.s. verið gerð til þess að bjarga ríkissjóði frá þroti. Eysteinn Jónsson var á þveröfugri skoðun. Hann byggði hrakspár sínar fyrir 1962 einmitt á afleiðingum gengislækk unarinnar og fullyrti. að fjárhag- ur ríkissjóðs mundi nú vera með mesta blóma, ef gengislækkunin hefði ekki orðið! Annars var ergelsistónninn það, sem mest bar á í málflutningi Eysteins. Reiði og gremja bera greind hans gersamlega ofurliði. Á hinn bóg inn var hæðnishreimur í öllum orðum Karls Guðjónssonar. Mann fyrirlitningin náði hámarki, þeg ar hann líkti íslenzkum kjósend- um við geðsjúklinga á Kleppi. Þarna talaði sá, sem þykist hafa öðlast æðri vísdóm. Hann heyrir þegar óm hins nýja tíma, kjarn- orkusprenginganna austur í Sovétveldinu, þar sem þeir, er nú boða frið á jörð, eitra andrúms- loftið samtímis því, sem þeir halda flokksþing með þátttöku fólaga Karls Guðjónssonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.