Morgunblaðið - 22.10.1961, Page 15

Morgunblaðið - 22.10.1961, Page 15
Sunnuctagur 22. okt. 1961 MORGUFiBLAÐlÐ 15 sem viniium Engin bylting hjá mér . wm St. Laurent og hin trygga sýningarstúlka hans, Victoire, sem vill ekki sýna fyrir neinn annan tízkukóng. Á DYRASKILTI hins nýstofn aða tízkuhúss í París stendur aðeins Y. S. L., sem er skamm stöfun fyrir Yves St. Laurent. Innandyra er tízkukóngurinn ungi önnum kafinn við að vinna að fyrstu sjálfstseðu tízkusýningu sinni, sem hann ráðgerir að verði í lok janúar mánaðar Ekki er enn kunnugt, hvaða aðilar hafa veitt fé í tízkuhús ið, og um >að atriði er St Laurent þögull eins og gröfin, þó hann sé óvenju opinskár við blaðamenn um þessar mundir. — Sýning mín verður litil og einföld í sniðum, segir hann. Þannig kann ég bezt við þær. Viðskiptavinir mínir koma eingöngu til að horfa á fötin, sem tii sýnis vdrða, en ekki til að drekka kampavín. Ég er afar kvíðinn fyrir sýn- ingunni; eina stundina er ég ofsahrifinn, augnabliki síðar taugaóstyrkur og skömmu síð ar hamingjusamur. í dag er ég rólegur. Ég er ekki enn farinn að teikna einn einasta kjól eða kápu, hefi verið að athuga efni og ýmislegt smá- dót. Ég ætla ekki að byrja að teikna fyrr en í lok nóvem- ber- mánaðar, og ég geri ráð fyrir að verkið taki mig um hálfan mánuð, enda verða „módelin“ ekki fleiri en hundr að. Hvort það verði bylting í kvenklæðnaði á sýningu mixmi? Nei, byltingar eiga ekki upp á pallborðið nú til dags. Þeir tízkuteiknarar, sem ég dái mest, eru Chanelle og Balenciaga og þeir standa ekki fyrir byltingum. Tízku- teikning er list en ekki iðn- aður — þeir sem vilja gera tízkuhúsin að verksmiðju, hljóta að bíða lægri hlut þeg ar tímar líða. Ég ætla að hafa tízkuhús mitt lítið í sniðum og reyna að koma á það gott orð. Fljdtlöguð kaka Við spurðum eina húsmóð- ur hér í bæ, hvaða köku hún setti inn í ofninn, þegar ein- hver kunningjanna hringdi og segði: — Má ég líta inn í kvöld? Hún svaraði: — Þá baka ég köku, sem ég kalla „Kaka með heitri mjólk“. Það tekur þrjá stund arfjórðunga að baka kökuna. Uppskriftin er þannig: IV2 bolli sykur (mælibolli) 3 egg, 1 Vz b hveiti, 1V2 tsk lyfti duft, Vt tsk. salt, % b mjólk, 2 msk smjör, 1 tsk vanilla eða V2 tsk. sítrónuhýði (nið- urrifið). Eggin þeytt, sykrinu hellt smám saman. Hveiti, lyftiduft og salti blandað snögglega saman við. Mjólkin og smjörið hitað upp undir suðumark en ekki látið sjóða, hellt saman við og vanillan eða sítrónu- hýðið sett út í að lokum. Bakað í tveim hringform- um við lagkökuhita (350— 375F.) Það eru mjög myndar- legir botnar. Sulta sett á milli gott að nota hindberja- eða j arðarber j asultu. Oft baka ég þrjá þynnri botna úr þessari uppskrift, set sultu milli tveggja en mauk ofan á þann þriðja. í maukið fer: 4 msk smjör (50 g), 3 msk rjómi eða mjólk, V2 b púður- sykur, V2 b malaðar hnetur eða möndlur, V2 tsk vanilla. Sykur, mjólk og smjör er soðið saman, þar til það er orðið það þykkt, að hægt er að hnoða mjúka kúlu úr dropa, sem dýft er ofan í kalt vatn. Möndlum og van- illu bætt í. Maukinu er hellt ofan á botninn, öllu stungið inn í ofn í 5—10 mín. og þá er kakan tilbúin. ». Auðvelt er að útbúa hlllur fyrir kryddvörur úr afgangs- krossvið'splötu, 5—10 sm br. eftir ástæðum. Platan þarf að vera hefluð og lökkuð. Hillan er hengd upp með keðjum af ódýrri gerð, samskonar og oft eru notaðar í lyklakippur. — Takið eftir hvernig hillan er hengd upp. Það nýj- rsta í gerð undirfata er heill bolur — tíkastur sund bol — sem kemur í stað skyrtu og nær buxna. Upp- finningin er svissnesk, frá udirfataverk- smiðjunni Helanca. Bol- irnir eru há- rauðir að lit og taldir heppilegir undir síðbux- ur. Þeir eru ætlaðir þeim . , stúlkum, sem hafa pundin á réttum stöðum og eru svo heppnar að þurfa ekki alltaf að nota brjósta- höld. Leifar Fisksnúðar Leifar af köldum soðnum fiski (nýjum eða saltfiski) eru saxaðar einu sinni gegnum saxvél ásamt litlum lauk og nokkrum sneiðum af fransk- brauði útbleyttu í mjólk. í maukið er hrært ofurlitlu af bræddu eða linuðu smjörlíki, 1 eða 2 eggjum og ögn af hveiti. Deigið er mótað með skeið í snúða, sem er velt upp úr brauðmylsnu og síðan steiktir. Borðað annaðhvort 11 utt ivi( Lífgað upp á stofuna Þær stundir koma í lífi flestra húsmæðra, að þeim finnst heimilin sin alveg ó- möguleg. Og þá er hafizt handa; stólar og borð eru flutt til, ný gluggítjöld jafn vel keypt o.s.frv. En kapp er bezt með forsjá; stundum mis heppnast breytingarnar, sér- staklega þegar aðeins litlum hluta stofunnar er breytt, en stundum næst mjög góður ár angur. •Sterkur litur á einum vegg stofunnar getur lífgað hana mikið upp. Það bragð notaði danskur arkitekt við breyt- ingu þeirrar stofu, sem með- fylgjandi mynd er af. Dökkur veggur er á bak við þunga- miðju stofunnar (þ.e. sófinn, borðið og stóllinn), sem er staðsett næst glugganum, og lestrarkróksins, sem saman- stendur af rað-bókahillum og þægilegum lestrarstól; letistól eins og margir- nefna þá. . Þessir tveir þýðingarmiklu hlutar stofunnar eru sem sagt tengdir saman með hinum dökka lit, sem getur verið hvaða litur sem vera.skal, en verður auðvitað að falla inn í litasamsetningu stofunnar. Það er ekki nauðsynlegt að hafa margar myndir á dökk- um vegg og hann myndar fal- legan bakgrunn fyrir bækurn ar í raðhillunum. Táin á kvenskóm tekur tízkubreytingum eins og allir aðrir hlutir i sambandi við klæðaburð konunnar. Á sið- asta ári komu á markaðinn skór með svonefndum þver- tám og fara vinsældir þeirra sívaxandi. Támjóu skórnir hafa samt ekki ennþá horfið, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem er af nýjustu gerð um kvenskóa. með brúnuðu smjöri og kar- töflum eða heitu kartöflusal- ati. — Leifar af köldu kjöti er einn ig hægt að matreiða á þennan hátt. Þá er gott að hafa spínat eða annað grænmeti í jafningl með. Ostleifar Ostleifar eru gott að hag- nýta sér þannig, að bræða þær og láta saman við nokkrax matskeiðar af rjóma og koní aki, — ca. 4 sk. í 125 gr. a östi. Látið kólna og smurt 01 an á brauð. Kjötbýtingur Leifar af reyktu svínslær1 eða köldu kjöti eru skornar í ræmur. Kaldar kartöflur skornar í sneiðar, sömuleiðis nokkur harðsoðin egg. Allt lát- ið í lög í eldfast mót og hví» þykk lauksósa á milli. BrauS mylsnu stráð yfir og litlir kjötbitar látnir á víð og dreií efst. Bakað í hálftíma. Bála< ogr skipajialan 3 úrvals bátar 22 tonna, 26 tonna og 62 tonna Allir í fyrsta flokks lagi. — Mikið af veiðarfærum fylgir. Mjög hagkvæmt verð. Báta og skipa- salan Austurstræti 12. Sími 35639. Tilboð óskast í Morris 10, fjögurna manna fólksbifreið, módel 1947. Bif- reiðin verður til sýnis við bif- reiðaverkstæði N. K. Svane við Háaleitisveg kl. 1—4 í dag, sunnudag 22. þ. m.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.