Morgunblaðið - 26.10.1961, Page 24

Morgunblaðið - 26.10.1961, Page 24
Hvað er til varnar ? — Sjá bls. 10 — rogAttiMðftifr 243. tbl. — Fimmtudagur 26. október 1961 Bréf trá New York Sjá bls. 8. ISLENZKAR bækur voru sennilega sýndar í fyrsta skipti á stærstu bókasýningu heims, sem haldin er í Frank- furt am Main, þar sem 1800 bókaforlög sýna bækur sín- ar. Það var Almenna bókafélag ið sem kynnti þar nokkrar bækur í samstarfi við Univer- sitetsforlaget í Osló. Bækurn- ar vöktu mikla athygli og voru rómaðar fyrir góðan frágang. Myndin (hér að ofan) sýn- ir forstjóra Universitetsfor- laget, Tönnes An.denæs t. v. sýna indverska útgefandanum og bókainnflytjandanum R. N. S.ichdev bók Jóns Eyþórsson- ar, Vatnajökull. Vantraustið órðk- stutt í umræðunum RíkísstJórnin hefur tekizt á við vandann - - og mun gera það áfram í GÆRKVÖLDI var útvarp- að frá Sameinuðu Alþingi umræðum um vantrauststil- lögu Framsóknar á hendur ríkisstjórninni. Ekki verður sagt annað en að mikið hafi skort á, að stjórnarandstæð- ingar færðu nokkur gild rök fýrir því, að stjórnarskipti væru æskileg — eða ástæða væri til vantrausts á núver- andi stjórn fyrir störf henn- ar. — Þvert á móti kom það Heimsbyggöinni stefnt í voða Alyktunartillagan fyrir Alþingi A KVÖLDFUNDI Alþingis í gær var lögð fram þings- ályktunartillaga sú um mót- mæli gegn risasprengingu Sovétríkjanna, sem Mbl. gat um í gær. Eru flutningsmenn hennar þeir Sveinn S. Ein- arsson og Benedikt Gröndal. Er m.a. sérstaklega mótmælt neðansjávarsprengingum Sov étríkjanna, sem í tillögunni segir að stofnað geti í hættu lífsafkomu íslendinga. Tillagan er orðrétt á þessa leið: ALÞINGI ályktar að mótmæla eindregið sprengingu Sovét- ríkjanna á risakjarnorku- sprengju og skorar á þau að hætta nú þegar kjamorku- sprengingum sínum, þar sem geigvænleg geislunarhætta af þeim stofnar framtiðarvelferð allrar heimsbyggðar og þar með íslenzku þjóðarinnar í voða. Sérstaklega mótmælir MikiEI ósigur Rússa NEW YORK, 25. okt. — Rússar biðu mikinn ósigur við atkvæðagreiðslur í stjóm málanefnd Allsherjarþingsins t dag. — Eftir að samþykkt hafði verið með nokkrum meirihluta að taka þegar til umræðu tillögu 8 ríkja (þ.á. m. Islands) um að skora á Rússa að hætta við að sprengja 50 megalesta vetnis sprengju sína, var áskorunin samþykkt í kvöld eftir litlar umræður með yfirgnæfandi atkvæðamagni, eða 75 gegn 10 atkvæðum kommúnista- blokkarinnar — og Kúbu. — Eitt ríki, Malí, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Júgóslav neski fulltrúinn var í hópi þeirra, sem greiddu atkvæði með tillögunni. Alþingi neðansjávarsprenging um, er geta stofnað afkomu- möguleikum íslendinga í hættu. Alþingí skorar enn fremur á kjarnorkuveldi heimsins að gera hið fyrsta samkomulag um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn og öruggt eft- irlit með því. Greinargerð: Það er alkunnugt, hvílík hætta mannkyninu er búin af notkun kjarnorkunnar til hernaðarþarfa, ekki aðeins í ófriði, ef til kemur, heldur einnig vegna tilrauna með slík vopn á friðartímum. Vegna fordæmingar almenn- ingsálitsins í heiminum á tilraun um með kjarnorkuvopn féllu stórveldin, Bandariki Norður- Ameríku, Stóra-Bre,tlad og Sovét ríkirl, frá slíkum tilraunaspreng- ingum um árabil, eða þar til Sovétríkin rufu þessa samstöðu og hófu á ný kjarnorkuspreng- ingar 1. september síðastliðinn. Síðan hefur þetta 1 stórveldi sprengt yfir 20 kjarnorkusprengj ur, að því er talið er, þar af eina neðansjávar, en hinar í andrúms lofti jarðar, með þeim afleiðing- um, að geislavirkni í gufuhvolfi jarðar hefur aukizt geigvænlega síðan. Áhyggjur manna hafa ekki sízt vaxið, síða'n fcwsætisráð- herra Sovétríkjanna boðaði ný- verið sprengingu risasprengju, er að afli til samsvarar * 50 milljónum smálesta af TNT sprengiefni, og að því virðist beinlínis í ögrunarskyni. Nú berast fregnir um það, að risasprengja af þvílíkri stærð hafi verið sprengd 23. október nálægt ströndum Norður-íshafs- ins, og enn fremur, að sprengd hafi verið kjamorkusprengja neðansjávar í Norður-lshafinu. Þessi síðarnefnda sprengja gæti skapað hættu fyrir fiskstofnana Framh. af bls. 2 glöggt fram í umræðunum, að unnið hefði verið af festu og einurð að því að koma efnahagslífi þjóðarinnar á réttan kjöl eftir hinn hörmu lega viðskilnað þeirra, sem að vantrauststillögunni standa. FYRST tók til máls fyrri flutn- ingsmaður vantrauststillögunnar, Hermann Jónasson (F). í upphafi ræðu sinnar gat hann þess, að kjósendur kysu frambjóðendur eftir þeim loforðum, sem þeir gæfu fyrir kosningar, og eftir því, hvernig þeir treysta þeim til þess að koma þeim í framkvæmd. Nú- verandi ríkisstjórn hefði gefið mörg loforð og brotið þau öll. 1 landhelgismálinu hefði verið lof að að hopa hvergi fyrir Bretum, það hefði verið svikið. Þá hefði verið lofað að stöðva verðbólg- una, en viðreisnin hefði haft í för með sér dýrtíð, sem almenningur kallaði óðaverðbólgu. Ríkisstjórn in hefði lofað að hætta skuldasöfn un við útiönd, en tekið í þess stað geysistór eyðslulán. Einnig værl skrum ríkisstjórnarinnar um gjaldeyrisafkomu bankanna að hájfu leyti blekking, því hún hefði heimi.að einkaaðilum að taka stór lán erlendis til að létta á bönkunum. Þá hefði ríkisstjóm in lofað að koma framleiðslunni á traustan grundvöll, og ennfrem- ur skyldi hið gamla og slitna upp- bótarkerfi niðurlagt. Það loforð Framh. á bls. 23. Vantrausts umræður áfram í kvöld I KVÖLD verður haldlð á- fram umræðum um van- trauststillögu Framsóknar- manna. Verða ræðuumferðir þrjár, 20, 15 og 10 minútur til handa hverjum flokkl. Rö3 flokkanna verður þetssi: Sjálf- stæðisflokkur, Framsóknar- flokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag. \ ‘ ~ ~ —------ - - —1„ |—, HÆTTAN FÆRIST IMÆR FREGNIRNAR a£ ógnar- sprengingum Rússa hafa hér sem annars staSar vakið mikinn ugg. Geisla- virkni mun mjög aukast næstu daga og hugsanlegt er að sprengingin neðan- áhrif á sjávarlíf við ís- land. 1 ritstjórnargrelnum f dag er rætt um hættu þá, sem okkur getur stafað af sprengingunum og varúð- arráðstafanirnar, sem gera þarf. —. sjávar geti haft hættuleg Jón Skaftason Aímennur borgarafundur gegn kjarnorkusprengingum Hefst í Gamía kl. 5.30 í dag F R E G NI N um stórsprengju Rússa sl. þriðjudag hefur vakið ugg og reiði almennings um all- an hinn vestræna heim. Fregnir hafa borizt um mótmælagöngur víða, enda líkur fyrir því, að helryk muni á næstunni breið- ast yfir þéttbýl svæði. íslendingar hljóta að horfa með kvíða á þróun þessara mála. Fiskimið landsins eru í mikilli hættu og andrúmsloftið kann að eitrast af hinu geisla- virka ryki. í tilefni þessara síðustu stór- sprenginga boðar Stúdentafélag Reykjavíkur og Stúdentaráð Há- skóla íslands til almenns borg- arafundar til að mótmæla kjarn orkusprengingum, í Gamla bíói í dag kl. 5.30. Ræðumenn á fundinum verða þessir: Arinbjörn Kolbeinsson, læknir. Benedikt Gröndal, ritstjórl. Jón Skaftason, hdl. og Sveinn S. Einarsson, verkfr., Fundarstjóri á fundinum verð ur Alexander Jóhannesson, fyrr- um háskólarektor. Er ekki að efa að Reykvík- ingar munu fjölmenna á fund þennan og sýna með því í verki almenna andúð á því hættu- spili, sem hér er verið að leika með líf alls mannkyns. Arinbjörn Kolbeinsson Benedikt Gröndal

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.