Morgunblaðið - 23.11.1961, Side 6
6
MORCinSBLAÐIÐ
Fimmtudagur 23. nóv. 1961
Kristján Adalsteins-
son forseti FFSÍ
LOKIÐ er þingi Farmanna og
fiskimannasambands Islands sem
Staðið hefur undanfarna sex
daga. Fjallaði þingið um fjolda
mála og gerði margar ályktanir.
F o r s e t i sambandsins var
kjörinn Kristján Aðalsteinsson,
skipstjóri á Gullfossi, en með-
stjórnendur þeir Sigurjón Ein-
arsson, Halldór Sigurþórsson, og
Guðmundur H- Oddsson. Eru
menn þessir allir fulltrúar skip-
stjórnarmanna. Af hálfu vél-
stjórnarmanna eiga sæti í stjórn-
inni þeir Daníel Guðmundsson,
Þorkell Sigurðsson og örn Steins
son, aí hálfu loftskeytamanna
Henry Hálfdánarson og af hálfu
bryta Karl Sigurðsson.
Frá brautskráningu stúdenta við háskólann í Delaware. —
Islenzkum stúdent gefst kostur á. að nema við háskólann á
næsta ári.
Styrkur til ársdval-
ar í Bandaríkjunum
Brit inghamstyrkir veitíir að nýju
FRESTUR til þess að sækja um
Brittinghamsstyrk hefur verið
framlengdur til mánudagsins 27.
nóvember sbr. auglýsingu í
Mbl. í gær.
Svo sem kunnugt er veitti
Thomas E. Brittingham jr. ís-
lenzkum stúdentum ríflega
styrki til ársdvalar og náms í
Bandaríkjunum, og hafði ís-
lenzk-ameríska félagið milli-
göngu um veitingu þeirra. Er
Thomas Brittingham lézt fyrir
tveimur árum lögðust þessir
styrkir niður um eins árs skeið.
Styrkir þessir verða nú veitt-
ir að nýju og hefur íslenzk-
ameríska félaginu borizt bréf
þess efnis frá Thomas Britting-
ham III. Verðúr einn styrkur
veittur á skólaárinu 1962—1963
við háskólann í Delaware. —
Styrkurinn nemur öllum skóla-
gjöldum, húsnæði, fæði, ferða-
kostnaði til kynnisferða innan
Bandaríkjanna og allríflegum
vasapeningum. Hið eina sem
styrkþegi þarf að greiða sjálfur
eru ferðirnar til og frá Banda-
ríkjunum. Er hér um að ræða
einn bezta námstyrk, sem völ
er á fyrir íslenzka námsmenn.
Umsækjendur verða að hafa
lokið stúdentsprófi, eða Ijúki
því í vor, þannig að þeir, sem
nú sitja í 6. bekk í mennta-
skólum eiga þess kost að sækja
nm. — Umsóknareyðublöð fást
í skrifstofu íslenzk-ameríska fé-
lagsins, sem veitir nánari upp-
lýsingar um styrkinn, í bóka-
safni Upplýsingaþjónustu Banda
ríkjanna að Laugavegi 13, og í
skrifstofu Háskóla íslands.
Thomas Brittingham Tll. og
móðir hans koma hingað til
lands í næstu viku og munu
hafa tal af umsækjendum mið-
vikudaginn 29. nóvember.
Þátttakendur J fundi afgreiðslustjóra Loftleiða, sem haldinn var í New York fyrir skömnrai.
Sitjandi, talið frá vinstri: Ungfrú Carole, einka ritari Bolla Gunnarssonar, Einar Aakrann,
Luxemburg, A. C. Niesssen, Amsterdam, Ron Watson, Glasgow, David Gould, London, Sven
Berlin, Gautaborg. Standandi frá vinstri: Jóhannes Óskarsson, Reykjavík, Kjell Doescher,
Stavanger, Helmut Ness, Ilamborg, Emil Guðmundsson, Kaupmannahöfn, Bolli Gunnarsson,
New York, A1 Shea, yfirmaður vöruafgreiðslun, New York, Gunnar Asland, yfirmaður vöruaf-
greiðslu, Osló, Edgar R. Nyberg, Helsinki, Rolf Sollie, Osló, Göran Hoving, Helsinki, Pentti
Laitingen, Helsinki.
Viðgerðum að
ljúka á 2 Akra-
nesbátum
Akranesi 22. nóv.
TVEIR bátar koma nú bráðum
i gagnið, sem hafa verið til við-
gerðar og endurnýjunar í skipa-
smíðastöðinni hér. Annar þeirra
er Farsæll, 66 tonn, eign Fiskvers
h.f. búinn að vera þarna eitt og
hálft ár.
Farsæl verður rennt á flót í
næstu viku, byrðingur hvítur,
botninn rauður og brúnt stýris-
hús með nýrri 400 ha. Lister
dieselvél, kastblökk, 30 ha. nýrri
ijósavél, Simrad asdictæki og
fimm tonna nýju snurpinóta-
spili. Hmn oáturinn er Sigurvon,
102 tonna, sem fer á flót í næsta
mánuði, emmg eign Fiskivers h.f.
var tekinn að lokinni sildarvertíð
beint í siippinn yegna leka. Þeg-
ar farið var að rannsaka fortíð
SigurvOnar, kom á daginn að hún
hafði emu sinni strandað og þá
brotnað 6—8 cm skarð í kjölinn.
Haíði verið neglt yfir það með
krossviðarpiötu til að hylja
skemmdirnar, þar sem brotnað
hafði úr kjöinum. Fjögur ný borð
voru sett í byrðinginn, og nýtt
kjalsvín, 5--6 metra langur skór
var negldur undir kjölinn. Sjálf
vélin var endurnýjuð stykki fyr-
ir stykki. Allur fúi sem fannst
var nummn í burtu. — Oddur.
Stórauknir
flutningar
Farþegaflutningar Loftleiða
hafa aukizt stórlega á þessu
ári Fyrstu átta mánuði ársins
cluttu flugvélar félagsins
33.628 farþeg. , en 28.369 far-
bega á sama tíma í fyrra.
Jætanýting félagsins var á
t>essu tímabili 71,7%, en
87,5% í fyrra.
Þessar og aðrar tölur um
stöðugan vöxt félagsins voru
lagðar fram á árlegum fundi
ítarfsmanna félagsins í ýms-
um löndum en hann var að
þessu sinni haldinn á fjalla-
hóteli í Tuddal í Noregi í síð-
asta mánuði. Þangað fór
stjóm Loftleiða til ráðuneytis
við deildarstjóra og aðalum-
boðsmenn félagsins.
Afgreiðslustjórar Loftleiða
héldu svo árlegan fund sinn
að þessu sinni í New York og
stjórnaði honum Bolli Gunn-
arsson, sem er stöðvarstjóri
félagsins þar.
Tveir gestir trufl-
uðu - voru f jar-
lægðir
Lömunarveiki
Washington, 22. nóv.
ALVARLEGUR lömunarveikifar-
aldur geysar nú í Chile og sam-
kvæmt béiðni stjórnarvaldanna
hafa Bandaríkjamenn þegar sent
mikið magn af bóluefni og hjúkr-
unargögnum.
í TILEFNI af blaðaskrifum um
hegðun tveggja gesta sL
fimmtudagskvöld er Hallbjörg
Bjarnadóttir skemmti gestum
hér að Hótel Borg óskar hótel-
stjórinn að taka fram eftirfar-
andi:
Umrætt kvöld kom það í ljós,
að meðal hinna mörgu gesta,
sem hlýddu sér til ánægju á
ágæt skemmtiatriði frú Hall-
bjargar reyndust vera tveir
menn, sem trufluðu nokkuð
með framíköllum. Þetta er eina
kvöldið, sem slíkt hefur komið
fyrir og brugðu þjónar við og
fjarlægðu þá sem fyrir hávað-
anum stóðu. Truflun af völdum
gesta heyrir til algerra undan-
tekninga og þegar slíkt hendir
verður að fara að öllu með
gát til þess að röskun hljótist
ekki af.
I þessu tilfelli var þeim til-
mælum beint til aðila að þeir
trufluðu ekki, en er sýnt var
að þeir óskuðu virkrar þátttöku
í skemmtiatriði kvöldsins voru
þeir fjarlægðir með hægð. Síð-
an hefur Hallbjörg skemmt á
hverju kvöldi við einstaklega
góðar undirtektir og prúða
framkomu gesta.
Með þökk fyrir birtinguna.
Pétur Danielsson.
• Fyrsía heildar-
Iýsingin
Jólabókaflóðið er að byrja,
nokkrar bækur komnar ut og
farið að fréttast af öðrum, sem
væntanlegar eru á næstunni.
Með fyrstu skipunum' var bók,
sem ekki er reyndar bundin
við árstíma eða ár, og ekki er
hætt við að drukkni í jólabók-
arflóðinu. Hér á ég við „Nátt-
úru Islands", sem Almenna
bókafélagið hefur sent frá sér.
Ekki eru nema tiltölulega fá
ár síðan menntaðir vísinda-
menn, hver á sínu sviði, tóku
að rannsaka Island og náttúru
þess. Og ekki hefur verið til
nein heildarlýsing á landinu
frá sjónarmiði nýjustu náttúru
fiæða. Þetta er fyrsta bókin,
sem kernur fram um það efni.
• Auðveldur lestur
Og það sem mér þykir svo
skemmtilegt við þessa bók, er
að allar greinarnar eru skrif-
aðar með það fyrir augum að
flytja þær almenningí, og því
verða þær mjög auðskildar.
I þessa bók skrifa 13 vísinda
menn hver sína grein og voru
þær upphaflega fluttar í út-
varp. I bók verða þær þó enn
auðveldan að skilja, þar eð
hægt er að staldra við og skýr-
ingarmyndir fylgja.
Allt frá fyrstu grein fylgist
lesandinn með því ævintýri,
hvernig Island verður til, fra
því blágrýtishellan myndas$
miðbik landsins sígur og mó-
berg fyllii í dældina, og eld-
stöðvarnar hlaða svo alla veg-
anna formuðum fjöllum upp
eftir aðstæðunum á hverjum
stað. Við fáum að vita hvernig
vötnin, jöklarnir og veðrið
brýtur niður og mótar lands-
lagið, hvar element eins og
heita vatnið og hagnýt jarð-
efni koma inn í, Og þá ér mað-
ur kominn upp á yfirborðið,
að jarðveginum, grösum og
gróðri og sjónum í kringum
eyjuna. Loks er fjallað um það
sem lifir, dýralíf á landi og í
vötnum Og lífið í sjónum.
Að vísu má segja að þarna
sé ekki öiium þáttum íslenzkr-
ar náttúru gerð þau skil sem
æskilegt hefði verið, en ein-
aaitt það hve höfundar halda
sig að fáum atriðum Og að
meginatriðum gerir þessa bók
svo auðveldan lestur hverjum,
sem landi sínu unir, nýtur
náttúrunnar og vill fræðast
um haoa.
• Tækifærisvísa
Labbakutur hefur sent mér
eítirfarandi visu og bréf:
Hamrammur óð Hannes út;
„Hopa“, sagði hann,
„ekki skal",
Hann kvað síðan hreint í kút
heimspeking í Litla Dal.
Fann þessa vísu þar sem hún
var að fjuka inni á Lindar-
götu í dag og mér er sagt að
hún sé líklega úr rímum eftir
Bólu-Hjálmar eða Símon, sem
báðir eru taldir hafa ort um
heimspekinginn Sölva. En ég,
barnið, get ekki um þetta bor-
ið. Gerið svo vel og skýrið
fyrir mig vísuna, því mig lang-
ar til að skilja hana.
Með iynrfram þökk.
Labbakútur.
Ps: Velvakandi treystir sér
ekki til að útskýra þetta, það
yerður hver lesandi að gera
eftir beztu getu.