Morgunblaðið - 06.12.1961, Qupperneq 12
12
MORGVISBL 4Ð1Ð
Miðvikudagur 6. des. 1961
CTtgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Frámkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áóm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: úðalstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
DRAGA ÞARF UR NIÐURGREIÐSLUM
egar Viðreisnarstjórnin tók®
við völdum, voru lands-
menn orðnir langþreyttir á
uppbóta-, styrkja- og niður-
greiðslukerfinu. Hafði það
skapað margháttaða spill-
ingu og misræmi um verð-
lag, sem varð til þess að
fjármagni var beint að óarð-
bærum atvinnugreinum, og
atvinnulífið. skilaði ekki
þeim arði, sem hægt hefði
verið, ef réttilega hefði ver-
ið stjórnað.
Viðreisnarstjórninni tókst
með efnahagslöggjöfinni vor-
ið 1960 að afnema algjörlega
uppbóta- og styrkjakerfið,
en hins vegar var þá ekki
talið fært að nema úr gildi
niðurgreiðslur ýmissa vara.
Þær leifar hins úrelta kerfis
eru því enn í gildi, og nema
niðurgreiðslur árlega nokk-
uð á fjórða hundrað milljóna
króna.
Varla verður unnt að
koma niðurgreiðslunum fyr-
ir kattarnef í einu vettvangi,
því að verðlag þeirra vara,
sem nú eru greiddar niður,
mundi þá hækka verulega.
Hins er svo líka að gæta, að
þó að niðurgreiðslur séu
óæskilegar, og í sumum til-
fellum bjóði þær heimbeinni
spillingu, þá eru þær í ,heild
ekki jafnskaðvænlegar og
uppbóta- og styrkjakerfið.
Engu að síður verður að
keppa að því, að niðurgreiðsl
urnar hverfi smám saman og
er þvi sjálfsagt að hefjast
handa í því efni.
Að sjálfsögðu verður ein-
hver verðhækkun samfara
öllum lækkunum niður-
greiðslna. En auðvitað skilja
það allir, að fjár til að
greiða niður vöru er aflað
með sköttum á alþýðu. Lækk
un niðurgreiðslna á næstu
árum þýðir því um ieið
lækkaða skatta, og þegar
tillit er tekið til hinna miklu
skattalækkana, sem þegar
hafa verið framkvæmdar,
ættu menn að geta sætt sig
við smávægilega lækkun nið-
urgreiðslna til að hefja af-
nám þeirra, sem þýða mundi
aukið heilbrigði í íslenzkum
efnahagsmálum, og leiða til
frekari lækkunar skatta og
tolla en orðið er, eins og
stefnt er að með allsherjar-
endurskoðun tollskrár, sem
væntanlega verður lögð fyr-
ir næsta Alþingi.
KARTÖFLUR
OG ÚTFLUTT
KJÖT
/
IMns og kunnugt er hafa
kartöflur verið greiddar
niður með stórum fjárhæð-
um undangengin ár og nem-
ur upphæð sú, sem varið er
í því skyni, um 25 milljón-
um króna. Það er opinbert
leyndarmál, að samfara þess-
um niðurgreiðslum hefur ver
ið margháttuð spilling.
Hægt hefur verið að fara
með kartöflupoka, fá niður-
greiðslu út á hann, taka hann
út aftur á lægra verði — og
jafnvel fara með hann enn
á ný. Eftirlit hefur lítt gagn-
að, enda erfitt um vik.
Hinar miklu niðurgreiðsl-
ur á kartöflum hafa líka
valdið því, að menn hafa
ekki verið eins áfjáðir í að
rækta sjálfir sínar éigin kar-
töflur og því beinlínis orðið
til að draga úr verðmæta-
sköpun við slíka aukavinnu.
Sjálfsagt virðist því vera að
hraða afnámi þessara niður-
greiðslna, jafnvel þótt kart-
öflur hækki við það í .verði.
Þann mismun geta langflest-
ir bætt sér upp með því að
auka eigin ræktun þeirra.
Þá eru ákvæði í lögum um
það, að ríkissjóður greiði það
sem á vantar, til að ná inn-
anlandsverði, þegar kjöt er
selt til útlanda. Ákvæði þetta
er mjög vafasamt, vegna
þess að það dregur úr áhuga
útflytjenda á því að ná hag-
kvæmu verði erlendis. Mis-
muninn fá þeir hvort sem er
bættan.
Það er líka svo, að
lítil sem engin alúð hef-
ur verið lögð við þenn-
an útflutning. — SÍS hefur
verið aðalútflytjandinn og
ekkert gert til að gera vör-
una vel úr garði, heldur hafa
skrokkarnir verið sendir ó-
hrjálegir til útlanda. Hér er
þörf á auknu aðhaldi og betri
vinnubrögðum. I fiskiðnaði
höfum við sótt langt fram,
en á þessu sviði er brýn
þörf vöruvöndunar og um-
bóta í viðskiptaháttum.
TILLAGA GÍSLA
¥ umræðunum um vandamál
togaraútgerðarinnar benti
Gísli Jónsson, alþingismaður
á, hve óeðlilegt væri að tog-
ararnir greiddu stórfé í at-
vinnuleysistryggingarsjóð, á
saflna tíma og menn teldu
eðlilegt að greiða fyrir þess-
um atvinnuvegi, svo að hann
stöðvaðist ekki.
Atvinnuleysistryggingar-
sjóður er orðinn mjög sterk-
ur og safnar árlega stórum
fjárhæðum, m. a. frá togara-
útgerðinni. Hún berst hins
vegar í bökkum af óviðráð-
1
Fyrstu kynni af hnýsnum heimi
HINN 29. nóv. sL-birtist í blað
inu mynd af Margréti Breta-
prinsessu Og syni hennar, er
tilkynnt var, að drengurinn
skyldi skírður David Albert
Charles og bera titilinn Linley
greifi. I>að var eiginmaður Mar
grétar prinsessu, jarlinn af
Snowdon — þekktari sem
Anthony Armstrong-Jones Ijós
myndari — sem tók þessa
fyrstu mynd úr þessum fyrsta
vísi að fjölskyldu-ljósmynda-
safni — fallega mynd, sem sýn
ir, að eiginmaður prinsessunn-
ar hefir ekki glatað sínum list
rænu hæfileikum sem ljós-
myndari við það að vera að-
laður.
— ★ —
' Litla myndin, sem hér birt-
ist einnig — af föður og syni
— var tekin síðasta dag nóv-
embermánaðar, þegar fjöl-
skyldan fluttist frá Clarence
House, þar sem barnið fæddist
rúmum þrem vikum áður, til
Kensington-hallar, framtíðar-
bustaður Margrétar og manns
hennar. — Myndin ei tekin
fyrir utan Clarence House,
þegar jarlinn af snowdon rétt-
ir litla greifann, ofur varlega,
inn um dyr Rolls Royce bif-
reiðarinnar. sem móðirin var
þegair komin inn í. 1>arna
fékk greifinn ungi fyrstu
kynni af því lífi, sem bíður
hans, þegar hann vex upp.
Reyndar svaf drengurinn vært
Og lét sig engu skipta blossa
frá myndavélum allra blaða-
ljósmyndaranna, sem beðið
höfðu lengi úti fyrir Clarence
House eftir þessu fyrsta tæki-
færi til þess að „smella á“
litla greifann. Hann er líka
enn öf ungur til þess að ge’ra
sér grein fyrir'því, í hve furðu
legan, forvitinn og kröfuharð
an heim hann er borinn —
heim, sem hann mun vart fá-
undan komizt og markast mun
einmitt af ljósmyndablossum
eins og á þessari fyrstu ferð
hans „út í heiminn“.
— ★ —
Hvar sem hann fer eftir að
hann kemst á legg, mun hann
setinn af fréttaljósmyndurum
og blaðamönnum — og þá er
gott að eiga foreldra, sem eru
slíku iili vön og geta frætt
hinn unga svein frá byrjun
Framhald á bls. 23.
Lin!ey litli greifi i „flóðljósum'
fréttaljósmyndaranna i fyrsta skipti
anlegum ástæðum. Atvinnu-
leysistryggingarsjóði er ein-
mitt ætlað að koma til að-
stoðar, þegar óhöpp steðja!
að, sem draga úr atvinnu. Er
það í hæsta máta óeðlilegt
að sá atvinnuvegur, sem
berst í bökkum, greiði fram-
lög í sjóðinn. Miklu fremur
ætti að taka fé úr sjóðnum
til styrktar togaraútgerðinni.
Tillaga Gísla um það að
fella niður greiðslur ^ogara-
útgerðarinnar í sjóðinn er
því mjög athyglisverð og
verður án efa íhuguð nánar.
KARL krónprins getur kenmt litla frænda sínum, hvernig
hann á að „bera sig“ í opinberu lífi. — Til vinstri sést Karl
litli, aðeins tveggja ára og dálítið feiminn. En tveim árum
síðar (t. h.) hefir hanm lært listina — framkoman orðin
frjálsmannleg og örugg, eins og verðandi þjóðhöfðingja
sæmir. V *