Morgunblaðið - 24.12.1961, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 24. des. 1961
EFNI M. A.:
BLAÐ I.
Forsíðumynd eftir Ólaf K. Magnússon.
Bls. 3: Jón Auðuns: Ljósið skín í myrkrinu.
— 8: Skáþáttur.
— 10: Um jóladagskrá útvarpsins.
— 12: Ritstjórnargrein. Úr ýmsum áttum: Jólasveinninn í Grænlandi.
— 13: Heilagur Antonius eignast íslenzka kirkjuglugga (S. Bj.)
— 15: Jólaleikur.
— 22: íþróttir.
BLAÐ H.
Bls. 25: Selma Lagerlöf: Dauðadómur þrælsins.
— 26: Um grýlu (S.J.).
— 27: Barnamyndir af kunnum borgurum.
— 28: Af sjóskíðum til tíðasöngs (vig.)
— 31: Elínborg Lárusdóttir: Brúðan.
— 32: Staldrað við hjá oddvitanum Helgu á Blikastöðum (E. Pá.)
— 35: Próf. Jóhann Hannesson; Jói á Yangtzefljótinu.
— 36: Allir þekkja Lauritz frænda (B.T.)
— 38: Picasso og aðdáendur hans.
— 40: Gordion, borg Midasar konungs (m.bj.)
Ragnheiður Jónsdóttir: Jól og kjólar.
— 43: Páll V. G. Kolka: Jól á læknisheimili.
— 44: Hugh Walpole: Jólagesturinn.
þ
BLAÐ III.
Bls. 50: Á Hrafnaþingi (h.h.)
— 53: Eiden Muller: Jól í Færeyjum.
— 54: Fréttagetraun (h.j.h.)
— 56: Útvarp Föroyar. (h.JJ&.)
— 58: Ingimar BJrlendur Sigurðsson: Kertaljós.
— 60: Á neonljósri nótt í St. Pauli (H.E.)
i
' — 62: Beztu jólagjaflrnar eftir Lynn Poole.
LESBÓK BARNANNA 32 síður.
Gatan logaði
i slagsmálum
Mikið slark í fyrrinótt
MIKIÐ annríki var hjá lög-
reglunni í Reykjavík aöfara-
nótt Þorláksmessu. Gífurleg
ölvun var í bænum og fyllt-
ist bæði fangageymslan á Síðu
múla og „kjallarinn“ í Fóst-
hússtræti.
) Mikil ölvun og slagsmál
voru fyrir utan Þórscafé að
dansleik loknum og margir
menn hanidteknir þar. Sögðu
lögreglumenn að gatan fyrir
framan danshúsið hefði bók-
staflega logað í slagsmálum.
Nokkuð var farið að bera á
ölvun í bænum þegar eftir há-
degið í gær.
Skugga-
sveinn
Leikrit um jólin
Á annan jóladag, kl. 8,25
e.h., verður flutt revían
„Haustrigning", eftir Pál
Skúlason og Gústav A. Jón-
asson. En hún var leikin 27
sinnum í Iðnó árið 1925.
Revían gerist á árinu 1924
og fjallar um menn og mál-
efni, sem efst voru á baugi
það ár.
Á undan revíunni og á
milli þátta verður fluttur
formáli, sem saminn er af
Páli Skúlasyni og auðveldar
hann yngri kynslóðinni að
fylgjast með efni revíunnar.
Revían var upphaflega í 5
þáttum, en í flutningi henn-
ar í útvarpinu, verður einum
sleppt. Þeir þættir, sem flutt
ir verða gerast á Þingvöllum,
á andasamkomu í skrifstofu
Hf. Stútungs, á Grænlandi
og í Hljómskálagarðinum,
sem ekki var til þegar revi-
an var samin.
Mikil hálka
í gær
MIKIL, hálka var í úthverfum
Reykjavíkur í gær, aðallega
á Suðurlandsbraut lentu f jórir
bílar í árekstri og í Ártúns-
brekkunni var ástandið svo
slæmt, að lögreglumenn voru
þar á verði til þess að afstýra
slysum. Vöruðu þeir menn við
því að aka niður brekkuna
vegna hálkunnar.
Járnbrautarslys
Jámbrautarslys varð á Suð-
ur-ítalíu í gærmorgun og fór-
ust 49 menn en 33 særðust.
Slysið vildi þannig til að jám
brautarlest var að fara yfir brú
er aftasti vagninnn fór úr af
teinunum og félll niður í ár-
gljúfrið.
Happdrætti á
Dalvík
DÁLVÍK. 23. des. — Vinningar
í happdrætti félagsheimilis Dal-
víkur. féllu á ef Úrtalin númer.
Volvo Station bifreið: nr. 20451.
Moskwitch fólksbifreið: nr. 70.
Moskwitch fólksbifreið: nr. 27520
Skoda fólksbifreið: nr. 18523.
Skoda fólksbifreið: nr. 72. —
Aðeins ein bifreiðin kom á seld-
an miða, að því er vitað er, en
hins vegar þá kom ein blokkin
til baka með tveimur vinnings-
númerum, nr. 70 og 72. — Sig.
(birt án ábyrgðar).
Myndirnar tvær eru teknar á hinum sögulega fundi þeirra
Tshombe forseta Katanga og Adoula forsætisráðherra Kongo
i Kitona í vikunni. Efri myndin er af Tshombe (til hægri) með
ráðgjafa sínum en á neðri myndinni er Adoula (í m.iðju).
Lðstkynning
| Morgunblaðsins
Vigdís Kristjáns-
dóttir
LISTKYNNING Mbl. sýnir um
þessar mundir verk eftir Vigdisi
Kristjánsdóttur listmálara og
listvefara. Sýnlr hún myndvefn-
að. röggvarfeldi (ryur) og ís-
lenzkt nálaflos. Vigdís Kristjáns-
dóttir stundaði nám á Konung-
lega listháskólanum í Kb.öfn í 5
ár og síðan listvefnaðamám í
Noregi í tvö og hálft ár. Hún
hefir bæði haldið sjálfstæðar
sýningar á málverkum eftir sig
og listvefnaði sínum. og einnig
hefir hún tekið þátt í samsýn-
ingum utanlands og innan.
Frú Vigdís hefir eins og kunn-
ugt er nýlokið við listofið teppi
af Ingólfi Arnarsyni og Hall-
veigu konu hans. Er það mikið
verk, um fimm fermetrar að
stærð. Kvenfélagssamband Is-
Iands fékk listakonuna til þess
að vinna þetra verk o>g hefir sam-
bandið gefið Reykjavíkurbæ lista
vorkið til væntanlegs ráðhúss.
Ilefir teppið verið hengt upp í
fundarsal bæjarstjórnar Reykja-
1 víkur og þykir fara þar mjög vel
Z' NA 15 hnúiar / SV50hnútar X Snjófcoma > ÚH \7 Skúrir K Þrumur Wí:& !>< KMukit ^ Hitaskit HjkHmh
15 ára inn-
brotsþjófur
handtekinn
AÐFARANÓTT Þorláksmessu
handtók lögreglan 15 ára
gamlan vngling, sem hafði
brotizt inn í benzínstöð BP að
Klöpp við Skúlagötu, en piltar
sem sáu til ferða hans, gerðu
lögreglunni aðvart. Pilturinn.
hafði stolið á annað hundrað
krónum, er að honum var kom
ið, tekið nokkra sígarettu-
pakka, skemmt skáp og stól
og gert tilraun til að stela bíl
sem var inni á smurstöðinni.
Kom hann. bílnum ekki út sök-
um þess að hurðir smurstöðv-
arinnar ganga fyrir rafmagni
og búið var að taka það af.
Piltur þessi var færður í fanga
geymsluna. Hann hefur áður
komizt í kast við lögregluna.
ÞESSA daga vtrða litlar
breytingar á veðurkortunum
frá degi til dags. Þetta er sem
eé ,stiUa“. Lægðardragið helzt
mikið til á sömu slóðum,
þvert yfir Atlantshaf, frá
Biskayaflca til Labrador.
Önnur lægð er vestur við
hana stígur nokkru kaldara
loft suður á bóginn, enda
smákólnar í veðri hér á landi.
í gærmorgun var 2—5 st.
fyrst sunnanlands en frost-
laust á Vestur- og Norður-
landi. Við sunnanverðan
Faxaflóa og á Þingvöllum var
svartaþoka og logn. tn gott
skyggni í Borgarfirði og aust-
an fjalls. Hér lítur út fyrir
aðerðalítið, en smákólnandi
veður.
Veðurhorfur kl. 4 í gær:
Suðvesturland og SV-mi8:
hæg norðaustanátt, bjart veð-
ur. Faxaflói til Vestfjarða,
Faxaflóamið til Vestfjarða-
miða: Hægvirði, síðan SA-
gola, víða þoka, léttir senni-
lega til. Norðurland til Aust-
fjarða, og miðin: Hægvirði,
síðan NA-gola eða kaldi og
snpókoma Suðausturland og
miðin: Hæg norðanátt, bjart-
virði.