Morgunblaðið - 24.12.1961, Page 12
12
MORGUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 24. des. 1961
nttirifafrifr
CTtgefandi: H.f Arvakur. Reykjdvík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áóm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
KENNING, SEM ALDREI
VERÐUR ÚRELT
Heyrið, synir, áminning föður yðar.
Og hlýðið til, svo að þér lærið hyggindi.
Því að góðan lærdóm gef ég yður.
Hafnið eigi kenning minni!
ÞANNIG mælir hinn vísi Salómon konungur í Orðs-
kviðum sínum.
Á því fer vel að þessi orð séu rifjuð upp á helgum
jólum. Sá lærdómur og sú kenning, sem jólaboð- j
skapurinn felur í sér verður aldrei úrelt- boðskapur
kærleikans, boðskapur friðar og sátta meðal manna
er eilífur. Mannkynið getur ekki án hans verið, hver
sem trúarbrögð einstakra þjóða þess eru.
Ef til vill hefur heimsbyggðin aldrei þarfnast eins
tilfinnanlega leiðbeiningar siða- og trúarlærdóms
kristindómsins og einmitt í dag. Aldrei hefur mað-
urinn staðið frammi fvrir öðrum eins voða og vanda
og einmitt nú. Aldrei nefur verið meiri hætta á því
að tortryggni og eigingirni baki gjörvöllu mannkyni
óbætanlegt tjón.
:í ★
Frammi fyrir þessari hættu staldrar einstaklingur
hins kristna heims við örstutta stund, tekur sér
hvíld frá starfi, hverfur til heimilis síns og heldur
kristin jól. í eðli sínu eru jólin fyrst og fremst hátíð
friðarins og trúarinnar á mátt kærleikans og mögu-
leika hans til þess að sigra hið illa í mannssálinni.
Þau eru hátíð hins saklausa barns, sem gleðst við
látið jólakerti og horfir björtum augum bernsku
sinnar móti framtíðinni, fullt trúnaðartrausts og
barnslegum fögnuði.
! Það er sú innri gleði og birta, sem jólin og boð-
skapur þeirra veita ungum og gömlum, sem gera
þau öllum öðrum hátíðum helgari og hátíðlegri.
★
En því miður er þessi mikla hátíð oftlega mis-
notuð á marga vegu. Allur viðbúnaður undir hana
er víða genginn langt úr hófi fram. Ekkert er eðli-
legra en að menn skiptist á gjöfum á jólum og þá
sérstaklega að börnum sé gerður dagamunur og
þau glödd á viðeigandi hátt. En það kaupa- og gjafa-
æði, sem víða tíðkast í sambandi við jólin, er víðs
fjarri því að geta talizt skaplegt og eðlilegt. Er og
svo komið í sumum ríkustu löndum hins kristna
heims, að sjálf kirkjan hefur séð sig neydda til þess
að vara við tildrinu og ohófinu í sambandi við há-
tíðahaldið.
! Við íslendingar eru lítil þjóð, sem lengstum hefur
verið fátæk og lítilsmegnandi. En einnig við meg-
um hlusta á þær aðvaranir, sem ýmsir mikilhæfir
leiðtogar kristinnar kirkju hafa beint til þjóða sinna,
vegna stöðugs vaxandi óhófs í jólahaldi.
i Vitanlega er engum of gott áð nota efni sín til
þess að halda hátíð að eigin skapi. En þegar svo er
komið að sjálfur jólaboðskapurinn, boðskapur hins
fórnandi kærleika er kominn í skuggann fyrir
græðgislegri skemmtanafýsn og óhóflegum íburði,
þá er vissulega ástæða orðin til þess að staldra við
og hugleiða það, til hvers kristin jól séu í raun og
veru haddin.
■5 ^ ★
v Við íslendingar höldum að þessu sinni jól við betri
0
Kveðjur til
jdlasveinsins
á Grænlandi
eftir Alan Marey Williams
(
I
^ mn.
Kaupmannahöfn, 18. des.
MILLJÓNIR brezkra barna
trúa því statt og stöðugt, að
jólasveinninn eigi heima á
Grænlandi.
Þetta eru börn, sem síðustu
ár hafa sent jólakort og bréf
með heimilisfanginu „Jóla-
sveinninn, Grænlandi, Dan-
mörku“, og sagt jólasveinin-
um frá „þörfum“ sínum, og
jólasveinninn hefur sjálfur
sent þeim. „persónulegt" svar
ásamt einu eintaki af ein-
hverju af ævintýrum H. C.
Andersen.
Um þetta sér danska ferða-
skrifstofan. Borgarstjórinn,
hinn fimmtugi Sven Acker Og
starfslið hans sjá um þetta, og
segja, að þetta sé góð og þörf
landkynning fyrir Danmörku.
Einnig er þetta gert í því
markmiði að minna fólk á, að
Grænland — stærsta eyja
heims, hulia jökulhjúp að
mestu — sé óaðskiljanlegur
‘hluti lands iþeirra.
Síðan árið 1960 hafa börn,
sem óskað hafa eftir svari frá
jólasveininum, þurft að senda
shillings póstávísun með bréf
um sínum. Danir urðu að kref j
ast þessa, þar sem bréfahafið
var orðið nær óviðráðanlegt.
Árið 1959 komu rúmlega
150.000 bréf frá brezkum börn
í ár eru liðin 12 ár frá því
að byrjað var á þessu, og nú
hafa um 36.000 drengir’ og
stúlkur á aldrinum þriggja til
níu ára skrifað honum, og
hvert barnanna hefur fengið
— eða ^ fær einhvern næstu
daga — fagurlega skreytt bréf
frá karlinum síðskeggjaða
(handritað, síðan fjölprentað)
og eintak af einu af fegurstu
ævintýrum Andersens, „Ham-
ingjufjölskyldan".
Hvað segja börnin svo við
jólasveininn í hinum furðulega
samsettu bréfum sínum, sem
jafnan nálgast það að vera
ólæsileg hjá blessuðum krakka
öngunum?
í fyrsta lagi kemur það yfir
leitt skýrt fram, að börnin
trúa á karlinn, hvað sem taut-
ar. Ósjaldan segja þau eitt-
hvað þessu líkt: „Jean og
Mary Og Barbara segja, að
þú sért ekki til. Viltu skrifa
mér og sanna, að þú sért til“.
Margir senda honum per-
sónulegar kveðjur þakka hon-
um fyrir gjafirnar á síðustu
jólum og óska honum og hrein
dýrum hans góðrar ferðar
heim.
Sum segjast ætla að biðja
mæður sxnar að skilja eftir
mjólkurgias eða jafnvel bjór-
glas og tertusneið handa hon-
um að hressa sig á, þegar hann
loksins kemur og sumir jafn-
vel „hey handa Rudolf" (nafn
á hreindýri jólasveinsins).
Stundum biðjast þau afsök-
unar á því, að þau hafi ekki
hagað sér eins og góðum börn
um sæmir — og löfa því að
1
vera hlýðin á næsta ári.
)
aðstæður en nokkru sinni áður. Almenn velmegun
og velsæld ríkir í landi okkar. Fyrir það ber okkur
að þakka. um leið og við minnumst forfeðranna,
sem börðust í þúsund ár við þröngan kost og erfiðar
aðstæður fyrir lífinu og framhaldi þess í okkar norð-
læga landi. En í gegnum hinar dimmu aldir fátæktar
og umkomuleysis lýsti leiðarljós kristinnar trúar.
Það létti þessari litlu þjóð oft baráttuna, skapaði
henni auka trú á mátt sinn og meginn, oft þegar
dökkt var í álinn og erfiðleíkarnir þjörmuðu að fólk-
inu í hinum lágu býlum, inn til dala og út til nesja.
Við megum ekki halda að þörfin fyrir þessa trú hafi
þorrið með bættum efnahag og nýjum þjóðfélags-
háttum. Því fer fjarri að svo sé. Aðeins kærleiksboð-
skapur kristinnar trúar er þess megnugur að leiða
þjóð okkar og allar aðrar þjóðir fram hjá þeim hætt-
um, sem snilligáfa mannsandans hefur leitt yfir
gervallt mannkyn.
Morgunblaðið óskar öllum lesendum sínum, sjó-
mönnum á hafi úti, flugmönnum á langferðaleiðum,
í ailri hinni íslenzku þjóð gleðilegra jóla.
Stundum senda þau honum s
gjafir — karamellur, til dæmis J|
og lakkrísstengur. Stundum (íl
myndskreyta þau bréf sín,
senda myndir af sér (svo aðáí
hann kannist við þau, þegar 3
hann kemur), eða teikna upp 3.
húsaskipan heima hjá sér, svo(y
að rétt barn fái örugglegajj
rétta gjöf. yx
Venjulega eru brezk börn v
fremur íhaldssöm í jólaóskumöl
sínum, en síðustu ár, segjafy
Danir, hefur tekið að bera á^j
því, að börnin óska sér sífelltSj
dýrari gjafa.
í ár hafa drengirnir einkurr ,fi
óskað sér kúrekabúninga,^,
skammbyssna, riffla og sverða.á
Litlar stúlkur vilja yfirleitt(y
brúður og leikföng. j?
Furðulegur fjöldi stúlknajfi
hefur í ár beðið um „brúðar- «
brúður“ — og þetta kemur.A
jólasveininum dálítið á óvart, (íj'
ekki einungis vegna þess aðjí
slíkt er dýrt, heldur einnigjy
vegna þess að grænlenzkar)!
stúlkur íklæðast ekki hvítumvj
brúðarkjólum, þegar þær gift-
ast. jij
Aðaleinkaritarar jólasveins-y
Ins eru átta aðlaðandi stúlkur, J
sem vinna við dönsku ferða- ;r|
skrifstofuna. En þær fá árlega j
sér til aðstoðar nokkur hundr- c§
uð sjálfboðaliða, þar á meðal
vhúsfreyjur, nemendur í fram- (lj
5'haldsskólum, sjúklinga á jv
(ijsjúkrahúsum og skáta. Þettayj
Jfólk safnar bréfunum í stafla.'rf
^hundrað bréf í hverjum, takad
vfrá póstávísanirnar, glðan eru J
Rbréfin iesin óg börnunum send J
(Sur smáglaðningur, sem á vissuif
Mega sinn þátt í því að bætaví
(ysam/búð ef ekki þjóða, þá A
);a. m. k. æskunnar landa á!y
fmiHi. Jj
(o Auðvitað fá ekki öll börn-i(j
gJ)in svör — eða allt að því 50 «
^á ári —. og er það næstumfij
jiávallt því að kenna, að heim-(y
y ilisfangið hefur ekki verið íu!l J
j!nægjandi*eða þá það er ólæsi-((J
d)legt. Til þess að fyrirbyggja
{(,mikil vonbrigði — ef bréfun-yi
Jum væri ekki svarað, er jaím'rf
?vel hætt við því, að börninj)
^töpuðu trúnni á jólasveininn ÍH
S — hefur ferðaskrifstofan lofað j!
(Lað senda öllum þeim börnum,-fj
Jsem skrifa „kvörtunarbréf“
(f smáglaðnirxg eftir jól.
v Shillingarnir, sem börninjj
S'senda fara ekki í vasa Dana. ’
(bAllur fjársjóðurinn — eftir að)
Jhluti af honum hefar verið:
jy Framh. á bls. 13. J