Morgunblaðið - 24.12.1961, Blaðsíða 17
{ Sunnudagur 24. des. 1961
MORGVNBLAÐIÐ
17
«<SxSxSx8kSxSxSxSxSxíkSxSxSx8xSx8xSxíxSxSxSkSk8>xíxSxSkSkíxíxíxSk8xíx8xSxSxíkSx8xSxíxSxÍxSxSx®*
Frá upptöku jólaóperu útvarpsins „Hans og Grétu“ eftir
Humperdinck. (Ljósm.: Pétur Xhomsen) -
Framh. af bls. 10.
valdanna, sem eru honum
andvíg vegna hins mikla
kostnaðar, sem hljótast
myndi af því að breyta öllu
kerfinu. Aðalefni leikritsins
eru átök læknisins og yfir-
valdanna.
Jólaþættir
Á jóladag kl. 7 e.h. verður
fluttur þátturinn „Jól í sjúkra
húsi“ í umsjón Baldurs Pálma
sonar. Sagði Baldur okkur, að
þetta væru þriðju jólin, sem
hann heíði slíkan þátt með
höndum.
Að þessu sinni heimsækir
Baldur bar.dakotsspítalann og
talar við séra Hacking, syst-
ur Clementinu og nokkra
sjúklinga, börn og fullorðna.
Systir Clementina flytur bæn
og séra Hacking les jólaguð-
spjallið.
Klukkan 8,35 á jóladag verð
ur Jólavaka í umsjón Ævars
Kvarans.
Meðal efnis Jólavökunnar er
leikþáttur, eftir Ragnar Jó-
hannesson og ræddum við
nokkra stund við höfundinn
um efni hans.
— Þegar Ævar bað mig um
að gera leikþátt til flutnings á
.jólunum, datt mér í hug að
gaman væri að bregða upp
mynd að aðfangadagskvöldi á
íslenzkum sveitabæ fyrir 80
til 100 árum. Þar sem hvorki
ég né Ævar munum svo langt,
hafði ég til hliðsjónar Jóla-
sögu eftir Jón Trausta og þar
fékk ég að láni aðalpersónuna,
Boggu 18 ára stúlku. Auk þess
að vera ein persónan í leikn-
um, er hún einnig sögukona.
Hún er leikin af Guðrúnu
Ásmundsdóttur.
Aðrar persónur eru foreldr-
ar Boggu (Anna Guðmunds-
dóttir og Brynjólfur Jóhann-
esson), og tvö yngri, systkxni
hennar (Sigrún Kvaran og
I-Ialldór Karlsson).
Þó leikendurnir séu ekki
fleiri, gerist leikþátturinn á
fjölmennu heimili. Ævar Kvar
an er leikstjóri.
Við snerum okkur síðan til
Ævars og spurðum hann um
önnur atriði kvöldvökunnar.
— Ég les upp kafia úr Þor-
lákssögu helga, sem segir frá
andláti Þorláks biskups. Jón
Aðils les Jólasögu frá Garði
(Stúdentagarði í Kaupmanna-
höfn) eftir Þórhall Bjarna-
son_ biskup.
Aðfangadagskvöld í Winne-
peg eftir Gest Pálsson les <ung
ur leikari Gísli Alfreðsson,
sem er nýútskrifaður frá leik-
listaskóla í Munchen og er
nú tekinn til starfa . ið Þjóð-
leikhúsið.
Fluttar verða jólaþulur
sungnar og leiknar. Flytjend-
ur eru Þuríður Pálsdóttir og
Jórunn Viðar, sem leikur und
ir og hefur raddsett öll lögin
og samið sum þeirra.
í lok kvöldvökunnar les ég
kvæðið Jól eftir Matthías
Jochumsson, sagði Ævar að
lokum.
S . J.
Baldur Pálmason talar viff séra Hacking og systur Ciem-
entiu. (Ljósm.: Ól. K. M.)
olivettl
Divisumma 24
•«
□
□
■
© ©
© © ©
® ©
©l©l®
f
Hraðgengasta skrifandi samlagningarvélin á heims-
markaðnum, snýst 220 snúninga á mínútu, Hefur
10 lykla leturborð og auk þess lykla með 00 og
> - 000. Frádráttur með kreditsaldó. Léttur ásláttur og
OLIVETTI hallandi leturborð.
ELETTROSUMMA 22
OLIVETTI
MULTISUMMA 22
Fyrir samlagningu, frádrátt og margföldun.
Skrifar margföldunartölur og margfeldi á pappír-
inn og útkomur í rauðu. Tekur 12 stafa tölur í inn-
slætti og 13 í útkornu. Sérlega einföld margföld-
unarvél.
O
®® ®
®® ®
® ® ®
DDD
soa
BS
SÐ
□
□
■
® ® ®
® ®®
®® ®
DDG9
OLIVETTI ELETTRO-
SUMMA DUPLEX
É
OLIVETTI
DIVISUMMA 24
OLIVETTI
TETRACTYS
Afar hraðgeng samlagningarvél með 2 teljara. Til-
valin fyrir gjaldkera því báða teljara má nota
sjálfstætt. Þetta eru því 2 vélar í einni.
Alsjálfvirk skrifandi reiknivél, sem leggur saman,
dregur frá, margfaldar og deilir. Hefur bæði áfram-
haldandi og negativa margföldun og ,,minni“, sem
nota má sem aukateljara, Snýst 240 snúninga á min-
útu og skrifar alla liði útreikninganna á pappír.
Fullkomnasta skrifandi reiknivélin á heimsmark'
aðnum. Hefir 2 teljara sem geta unnið hvor fyrir
sig eða saman. Útkomur flytjast á sjálfvirkan hátt
milli teijara. Tilvalin við útreikninga á nótum,
vinnulaunum vörubirgðum o. fl Allir útreikning-
arnir eru greinilega merktir með auðskildum
merkjum.
HVAÐ SEM ÞÉR REIKNIÐ, REIKNIÐ ÞÉR
AUÐVELDAST, FLJÓTAST OG ÖRUGGAST
Á OLIVETTI.
G. Helgason & Melsted
Rauðarárstíg 1 — Hafnarstræti 19 — Simi: 11644.