Morgunblaðið - 30.12.1961, Side 19
Laugardagur 30. des. 1961
MORGVNBLÁÐ1Ð
19
— Gjaldeyrisstaðan
Framh. af bls. 20.
izt um taepar 250 miiljón krónur
fyrstu ellefu mánuði ársins, en
stutt vörukaupalán erlendis
Ihækkuðu á sama tíma um 35
millj. kr.
jÞessi hagstæða þróun gjald-
eyrisstöðunnar gerir það kleift
að áliti Seðlabankans að hefja nú
endurgreiðslu fyrmefndra bráða
birgðalána, en þau eiga að greið-
ast að fullu á næstu 2—3 árum.
Er því nauðsynlegt að hægt verði
að styrkja gjaldeyrisstöðuna enn
verulega á næstu árum til þess
að umnt verði að greiða þessar
skuldbindingar á tilsettum tíma
én þess að það þrengi um of að
greiðslugetu bankanna erlendis.“
Vegna fréttar þessarar fregnaði
folaðið hjá Gylfa Þ. Gíslasyni við
6kiptamálaráðherra og J ónasi
Haralz ráðuneytjLsstjóra að lán
iþað, sem hér er nú byrjað að
greiða niður, hafi verið tekið ein
vörðungu til að greiða lausaskuld
ir bankanna sem safnast höfðu
fyrir í tíð stjórna þeirra, er sátu
ó undan núverandi stjórn og
vegna þeirrar efnahagsstefnu
sem rekin hafði verið um langt
órabiL
Á árinu 1960 var fengin heim-
ild til yfirdráttar að upphæð 20
millj. dollara hjá Evrópusjóðn-
um í París og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum í Washimgton. Af þeirri
heimild voru notaðar 12—13 millj
dollara, 7 milljónir teknar hjá
Evrópusjóðnum og milli 5 og 6
milljónir hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum. Það sem veldur því að
íbyrjað er að greiða niður skuld-
ina hjá Evrópusjóðnum er að
bæði er heimildin þar til
skemmri tíma en hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, vextir þar
nokkuð óhagstæðari og lánið
hærra.
RÉTT fyrir jólin var framið
morð í Ðanmörku, sem vakið
hefur mikla athygli. Var það
yfirfangavörður í gæzlustofn-
un í Herstedvester, sem myrti
einn af geezluföngunum með
bladaneitri. Við yfirheyrslu
sagði fangavörðurinn: Ég get
þetta ekki lengur. Enda þýðir
það ekki neitt. Það er rétt að
ég drap hann viljandi. Hann
kvaldi mig.
Fangavörðurinn skýrði frá
því að hann hafi verið kom-
inn alveg í klæmar á gæzlu-
fanganum, sem var geðsjúkl-
ingur. Hafði fangavörðurinn
átt mök við fangann, en fang-
inn notaði sér þetta til að
kúga út úr verðinum ýmiskon
ar varning eins og tímarit. tó-
bak og kaffi. Og kröfurnar
fóru vaxandi. Fangavörðurinn
Holger Andreas Hansen er 37
ára, kvæntur og á börn. Hann
Hansen fangavörður gróf andlitið í höndum sér, er blaða-
ljósmyndarar ætluðu að ná mynd af honum við handtökuna.
Vörðurinn myrti fangann
verður nú fluttur í geðrann-
sókn. Hansen segir að fanginn,
Preben Riegels, hafi heimtað
að hann færði sér áfengi í
klefann. — Guðirnir vita að
ég vat í klónum á honum, en
áfengi vildi ég ekki gefa hon-
um. sagði Hansen.
Daginn fyrir morðið var
Hansen að róta til í áhalda-
skúr í garði síntxm þegar hann
kom auga á flösku með bladan
eitri, en það er notað mjög út
þynnt við úðun garða. Datt
honum þá í hug að hann gæti
notað eitrið til að losa sig við
Riegels. Hellti hann nokkm
af eitrinu á meðalaglas, sem
hann svo tók með sér í vinn-
una daginn eftir. Ekki var
hann þá ákveðinn í því á
hvern hátt hann gæti komið
eitrinu í Riegels. En tækifær-
ið kom þarrn dag.
Riegels á+ " afmæli þennan
dag og nú heimtaði hann
flösku af áfengi. Hansen átti
ekkert áfengi, en bauð fangan
um vínkonfekt. Hellti hann
koníaki úr súkkulaðiflöskum
1 bolla og bætti út í það eitr-
in úr meðalaglasinu. Riegels
tæmdii úr Vollanum og gekk
til klefa síns þar sem hann
lézt skömmu seinna.
Gjaldeyrisstaðan hefir farið
stöðugt batnandi undanfarin tvö
ór og er nú netto gjaldeyriseign
erlendis 393 milljónir og raunar
hærri í frjálsum gjaldeyri eða
455,9 milljónir en þar á móti
kemur skutd í vöruskiptagj a-ld-
eyri er nemur 62,3 milijónum
Ikróna.
Hafa þá verið reiknaðar allar
erlendar skuldir og væri því
raunar hægt að greiða þær að
fullu, en slíkt er ekki framkvæm
Bnlegt þar sem við verðum að
eiga gjaldeyrisvarasjóði, ef vel
ó að vera 6—700 milljónir. en
iþað svarar til tveggja mánaða
gj aldeyriseyðslu.
Greiðsla sú er hér að framan
getur í frétt Seðlabankans er
mikilvægasta staðfestingin, sem
tfengizt hefir á því, að viðreisnar-
stefna núverandi stjórnar er rétt
og sýnir að nú stefnir efnahags-
þróunin í rétta átt, þótt enn sé
að vísu langt í land að til fulls
ihafi verið rétt við það efnahags-
öngþveiti, sem þjóðin var komin
í. er núverandi ríkisstjórn tók
við völdum.
— Læknadeilan
Framh. af bls. 20.
svipaðar breytingar, en auk þess
fá þeir lítilsháttar hækkun fyrir
ákveðna viðtalstíma.
Ástæðan til þess að þetta sam-
komulag var gert, segir Arin-
björn er að nú hillir undir sam-
komulag svo og hitt að til þess
að hægt sé að semja á grundvelli
hins nýja frumvarps þari lítils-
háttar breytingu á tryggingar-
löggjöfinni, sem ekki mun geta
náð fram að ganga fyrr en í febr.
Blaðið snéri sér einnig í gær-
kvöldi til Gunnars Möllers fram-
kvæmdastjóra Sjúkrasamlags
Reykjavikur. Hann kvað sam-
lagið hafa lagt fram ákveðin til-
boð í aðalatriðum varðandi þessa
deilu og hefðu læknar hafnað
þeim til þessa. Á grundvelli
þeirra hefði þó nú fengizt bráða-
birgðasamkomulag.
Gúnnar sagði að um sjálfan
samningsgrundvöllinn, sem lagð
ur er með frumvarpinu, væri
ekki um stórvægilegan ágreining
að ræða og bætti því við áð
hann væri í samræmi við sjónar-
mið, sem áður hefðu komið
fram af hálfu samlagsins, en
gengi þó ekki eins langt til móts
við þau og æskilegt væri. Þegar
kæmi til launagreiðsla til lækna
bæri hinsvegar mun meira á
milli og þá sérstaklega um greiðsl
ur fyrir sérfræðistörf.
Varðandi orlof og trygginga
sjóðsgreiðslur til sérfræðinga
sagði Gunnar að til þessa hefðu
þeir ekki fengið þær greiðslur
vegna sérgreinar sinnar. Þetta
kæmi nú hinsvegar til fram-
kvæmda. Þá væri fallizt á að þeir
tækju 15—20 kr. gjald af þeim
sjúklingum, sem óskuðu eftir við-
tali á fyrirfram ákveðnum tíma.
Sjúkrasamlagið telur gott að
enn hefir fengizt frestur til að
kanna til hlítar hvori hægt er að
ná samkomulagi um greiðslur til
lækna, en þar ber sem fyrr segir
mikið á milli, segir Gunnar að
lokum.
í Júlia VE 123 liggur þarna í vestur af Vestmannaeyjum til Eyja, var báturinn orðinn
Vestmannaeyjahöfn milli j fyrradag. Þegar Lóðsmönn- drekkhlaðinn af sjó og allt
í
Lóðsins og m/b Sjöstjörnu,
{ en bæði komu á vettvang, er
um hafði tekizt að slökkva
brunnið innan úr honum I
fram í.
| kviknaði í Júlíu 24 sjómílur eldinn í Júlíu og draga hana Ljósm. Sigurgeir Jónsson. |
VJ 4LFLUTNINGSSTOF/V
Aðalstræti 6, Ul. hæö.
Einar B. Guðmundsson
tíuðlaugur Þorláksson
Guðmundur Péturssun
Hafa lofað að
skila þýfinu
Patreksfirði 29. des. —
AÐFARANÓTT miðvikudags s.L
stálu þýzkir sjómenn, er hér
voru með togaranum vo i Herten,
fötum úr anddyri húss hér á
staðnum. Einnig stálu þeir hundi
póstmeistarans.
Síðan hefir verið ríkjandi mik-
il sorg hjá drengjum hér, en hund
urinn var mikið uppáhald bama
og unglinga. Er þetta íslenzkur
hundur óg ber nafnið Lubbi.
Sýslumaðurinn, Ari Kristins-
son hafði samband við togarann
út af þessu máli, en hann var kom
inn út á mið, er uppvist var um
þjófnaðinn. Lofaði skipstjóri að
koma við á Patreksfirði áður en
skipið sigldi heim á leið og yrði
þá skilað þýfinu og hundinuim
Lubba. — Trausti.
HPINCUNUM.
Skip í smíðum
á Akranesi
AKRANESI, 28. des. Nýr eikar-
bátur, 122.5 tonna, er í smíðum í
Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ell-
erts. Talið er, að smíði bátsins
verði lokið 1 vor, áður en farið
verður á sumarsíldveiðarnar. í
bátnum verður 525 ha díselvél,
af Mannheim-gerð, 18 kw Ijósa
vél, forláta japönsk miðunarstöð
sem miðar um leið hún heyrir
hljóðið, og sjálfvirkur stýrisút-
búnaður. Áætlað er, að báturinn
fullsmíðaður með öllum tækjum
af nýjustu gerð, muni kosta 7.2
millj. kr. Burðarmagn þessa báts
á að verða eins og 165 tonna stál
skips. Magnús Magnússon, skipa
smíðameistari, hefur gert teikn-
ingu af bátnúm, en Einar J. Mýr
dal stjórnar skipasmíðastöðinni
nú í veikindaforföllum Magnús-
ar- — Oddur.
Láti* dætur yðar læra að sauma
5 og 6 mánaða námskeið byrja 4.
mai og 4. nóv. Sækið um ríkisstyrk.
Kennaramenntun tvö ár. — Biðjið um
skólaskrá. 4ra mánaða námskeið 4.
jan., 3ja mánaða 4. ágúst. C. Hargb0l
Hansen, Sími Telf. 851084. — Sy- og
T.ilskærerskolen, Nyk0bing F. Danm.
HMUR MORTHENS
syngur og skemmtir
Hljómsveit
Árna Elfar
Dansað til kl. 1.
Matur frs nreiddur frá kl. 7.
Borðpantanir i slma 15327.
Kennsla