Morgunblaðið - 10.01.1962, Page 5

Morgunblaðið - 10.01.1962, Page 5
Miðvikudagur 10. jan. 1962 MoncT'NTtr, aðið 5 r Þriðja janúar s.L fæddust fjór- burar í Englandi. Frú Meaoham, móðir þeirra er 33 ára og átti fyrir einn son 7 ára. Á meðan fjórburarnir voru að fæðast á sjúkrahúsinu, var faðir þeirra á kanínuveiðum með bræðrum sínum. I í sjúkrahúsinu reyndu menn að ná sambandi við hann, því hann þurfti að undirrita leyfi um að gera mætti keisaraskurð á konu hans. Það tókst ekki og frú Mecham varð að undirrita leyfið sjálf. SvO fæddust fjór- buranir stúlka, drengur, stúlka, drengur. Börnin voru öll mjög lítil og voru sett í súrefniskassa. Vinur föður þeirra, fór til að segja honum tíðindin, þegar hann kom heim af kaninuveiðunum. Hann sagði: — Þetta kemur mér svo sannarlega á óvart. Þegar ég fór úr sjúkrahúsinu eftir að kon an mín hafði verið lögð inn í gær, var mér sagt, að hún myndi eklki fæða fyrr en 18. janúar. Læknir á sjúkrahúsinu sagði að fæðingin hiefði gengið vel og móðurinni liði prýðilega. Hin sjö ára gamli bróðir fjór- buranna sagði: — Er þetta ekki stórkostlegt, pabbi?, Þegar hann frétti, að hann hefði eignast fjög- ur systkini. Daginn .eftir að fjórburarnir fæddut bökuðu kokkar sjúkra- hússins stóra köku, sem þeir færðu móðurinni. Kakan var skreytt með bleikum og bláum ís og á henni stóðu nöfn barn- anna: Ohristopher, Yana, Lucille Og Edward. Hinar fjórar konurnar í Eng- landi, sem eiga fjórbura sendu þessari nýju stallsystur sinni heillaóskaskeyti og buðust til að gefa henni ráðleggingar um Phoebe Meaoham, móðir fjór- buranna. hvernig ala ætti upp fjögur börn, jafn gömul, í einu. Karlm|ftins-armbandsúr tapaoist á Þorl á ksmessu nálægt Miðbænum. Finn- andi vinsamlega skili á lögreglustöðina gegn fund- arlaunum. Vil taka á leigfu verzlunarhúsnæði fyrir sér verzlun. Þarf ekki að vera mjög stórt, en góður stað- merkt: „7659“. Kona óskar að taka 1—2 böm í gæzlu á daginn, eða alveg í 2—3 mánuði. Tiliboð send ist Mbl., merkt: „Klepps- holt — 7660“. Orgel til sölu. Uppl. 1 síma 36773. Til sölu saumavél og tauruilla, selst ódýrt. Uppl. í síma 14364. Frímerkj asaf narar sendið mér 25—50 ísl. fri- merki og ég sendi yður þá um hæl 50—100 erl. Birgir Þórðarson Suðurgötu 38, Akranesi. íbúð óskast 2ja herbergja íbúð óskast sem fyrst. Þrennt í heimilL Uppl. í síma 34793. Til leigu 4ra herb. íbúð. Fyrirfram- greiðsla. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Ibúð — 742i7“ fyrir 12. þ. m. ----------------------- Fjórburarnir. Myndin var tekin rétt eftir að þeir fæddust. Eins og sjá má eru börnin mjög lítil. Þau vógu ekki nema rúm 12 pund til samans. 1 LOFTLEIÐIB H.F.: Þorflnnur karls- efni væntanlegur frá N.Y. kl. 10.00. Fer til Glasgow, Amsterdam og Staf- angurs kl. 11.30. Snorri Sturluson er væntanlegur frá Hamborg, Kaup- mannahöfn, Gautaborg og Osló kl. 22.00. Fer tU New York kl. 23.30. FLUGFÉLAG ÍSLANDS H.F.: Milli- landaflugvélin Hrímfaxi fer til Glas- gow og Kaupmannahafnar kl. 08:30 í dag. Væntanleg aftur til Reykjavíkur kl. 16:10 á morgun. Innnlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Húsavíkur, ísa- fjarðar og Vestmannaeyja. Á morgun: Er áætlð að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópaskers, Vest- mannaeyja og Þórshafnar, ^ Sigurður Skagfield, söngvari — minning Dagur er liðinn, hinzti söngur sunginn, síðasti bergmálshljómur druklkinn er. Leitar á hugann tónn svo tregaþrunginn til þín í ljóði krveðju mína ber. Minningin yljar, margt á hugann leitar, man ég þig vinur, bæði í gleði og sorg. Þú áttir brjóstsins lindir hjartaheitar, höfðinginn glæsti í söngsins riku borg. Þegar á lagsins háa raddstyrk reyndi ríklátur varstu, bæði að heyra og sjá. Sönggleði þinnar ástar ei sér leyndi einlægni þín hvern tón að skilja og þrá. Lífið er rnörgum harms og hetjusaga, heiðríkja býr í strengnum, sem það knýr. Mannsæfin, sigur fárra dýrðardaga — draumur, sem aftur til sín heima snýr. Ljóðkveðjur týnast, líður senn á daginn, Xeitar minn hugur oft til þess, sem var. Góðvini mína sé ég hverfa á sæinn, safnast til hinna, bak við djúpið þar. Því ber að virða allt, sem unnizt hefur, æfinnar fögnuð, stríð og harmabót. Eilífðarhiminn ástargeisluan vefur upprisu þinnar fögru vegamót. Kjartan Ólafsson, EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS H.F.: er í Reykjavík. Dettifoss fór frá Dublin 30. des. til New York. Fjallfoss fór frá Deningrad 3 jan. til Rvík. Goðafoss fer frá Fáskrúðsfirði í dag til Eskifjarðar, Norðfjarðar, Akureyr- ar, ÓladÉsfjarðar, Sigluf jarðar, Vest- fjarða og Faxaflóahafna. Gullfoss fer frá Kaupmannahöfn 9 jan. til Deith og Reykjavíkur. Dagarfoss fór frá Akranesi í gær til Reykjavíkur, og þaðan í kvöld til Deith, Korsör og Póllands. Reykjafoss kom til Reykja- víkur 5 jan. frá Rotterdam. Selfoss kom til Reykjavíkur 6 jan frá New York. Tröllafoss kom til Hamborgar 5 jan frá Rotterdam. Tungufoss er í Stettin. HAFSKIP H.F.: Laxá er á Ísaíirði. EIMSKIPAFÉLAG REYKJAVÍKUR H.F.: Katla er í Esbjerg. Askja er á leið frá Canada til Noregs. H.F: JÖKLAR: Drangjökull fer frá Grimsby í dag áleiðist til Amsterdam. Dangjökull er á Akranesi. Vatnajökull lestar á Norðurlandshöfnum. SKIPADEILD S.Í.S.: Hvassafell er í Reykjavík. ArnarfelU er á Raufar:- höfn. Jökulfell er á Homafirði. Dísar- felll fór í gær frá Gufunesi til Kópa- skers og Húnaflóahafna. Litlafell er á Akureyri. Helgafell er á Dalvík. Hamrafell kemur til Reykj avíkur í dag frá Batumi. Skaansund er vænt- anlegt til Hull á morgun. Heeren Gracht er í Reykjavík. Góðu börnin gera það: guð að lofa’ og biðja, læra’ að stafa’ og lesa’ á blað, líka margt gott biðja. Illu börnin iðka það: æpa, skæla’ og hrína; hitt og þetta hafast að, heimta, brjóta’ og týna. (Húsgangar). Illa liggur á henni, af því hún hefur kvefið; allt er fallegt á henni, augun bæði’ og nefið. Illa liggur á honum, enginn má það lá honum, það er farið frá honum fljóðið, sem var hjá honum. (Lausavísur), Radial-sög Lítið notuð 14“ Radial-sög og steypu Vibrator til sölu. — Upplýsingar G. Þorsteinsson & Johnsson Grjótagötu 7 — Sími 24250 Skrifstofuhusnœði 1—2 herb. óskast sem næst Miðbænum. — Tilboð sendist Mbl. merkt. „7219“, fyrir 15. þ.m. Bílstjóri Reglusamur og öruggur bílstjóri, sem er góður í reikningi óskast. Framtíðaratvinna. — Umsóknir merktar: „í'ram — 7533“, sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld. Sendisveinn óskast hálfan daginn. SETBERG Freyjugötu 14 — Sími 17667 Afgreiðsl usfarf Afgreiðslumann eða stúlku vantar nú þegar. Upplýsingar í verzlun Axels Sigurgeirssonar, Barmahlíð 8. Ekki í síma. Skrifstofustarf Innflutningsfyrirtæki vantar nú þegar duglega skrifstofustúlku til aigengra skrifstofustarfa. Vél- ritunar- og bókfærslukunnátta nauðsynleg. — Upp- lýsingar um menntun og fyrri störf leggist inn á afgr. Mol fyrir 15. janúai 1962 merkt: „Skrifstofustarf — 447“. Lækningastofu hefi ég opnað í Holtsapóteki, Langholtsvegi 84. Viðtalstími þnðjudaga og föstudaga kl. 3—4 og eftir umtali. Sérgrein: Barnasjúkdómar. BJÖRN JÚLÍUSSON. læknir Heima-sími 18118. Stofusími 38240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.