Morgunblaðið - 13.01.1962, Page 3

Morgunblaðið - 13.01.1962, Page 3
Laugardagur 13. jan. 1962 MORGUTS BLAÐIÐ NÚ er tínri jólatrésskemmtana liðinn. Það hefur verið glatt á Hjalla í samkomuhúsum bæj arins flesta eftirmiðdaga síð- astliðnar tvær vikur. Jólasvein ar hafa fyrir löngu sungið sig hása og sumir jafnvel ekki staðist freistinguna og fengið sér einn til þess að mýkja kverkarnar. eins og komið hef ur fram í blöðum undanfarið. A þessum samkomum hefur sælgæti og ávextir verið hest- húsað í tonnum og gosdrykk- irnir hafa runnið um unga há.isa í hektólítratali. — Ef öll sú tónlist og gleði, sem þar hefur farið fram, væri tekin upp á segulband, þá m,yndi það ná frá Reykjavik austur á Selfoss, þaðan til baka til Reykjavíkur og austur á Sel- foss aftur. Hvað þurft hefur marga lítra af blettavatni og Iaxerolíu til þess að koma öllu í samt lag aftur skal ósagt lát ið, en eitt er vízt, að börnin hafa skemmt sér konunglega og er þegar farið að hlakka til næstu jóla. Um það sann- færðust blaðamaður og Ijós- myndari Mbl. hér á dögunum. þegar þeir litu inn á síðustu skemmtunina í Sjálfstæðishús inu. EUUIHEIMIEIÐ HELDUR BARNABALL. ÞAÐ er Elliheimilið Grund, sem gengst fyrir þessari jóla- trésskemmtun. Gísli Sigur- björnsson. forstjóri, segir okk ur. að þetta sé í 15 sinn. sem Grund haldi slíka skemmtun í Sjálfstæðishúsinu Forstjóri hússins, Lúðvík Hjálmtýrsson, hefur í öll þessi ár gengist fyr ir því, að allt starfsfólk húss- ins vinni án endurgjalds við þessa hátíð. f Sjálfstæðishús- inu hafa annars verið haldnar 12 jólatrésskemmtanir í ár, og hafa þær sótt að jafnaði um 350 börn, auk fullorðinna, sem verið hafa börnunum til halds og trausts við skemmtihaldið. Meðfylgjandi aðgöngumiðan um voru tveir litlir miðar, sem börnin geymdu, eins og sjáaldur auga síns, enda var þarna um að ræða dýrmæt verðbréf. Gegn beim var hægt að fá súkkulaðibolla með þeyttum rjóma, brjóstsykur og ávexti. Og það var handa- gangur í öskjunni. Þarna voru ungir og gamlir, allt frá þrem árum upp í níunda tuginn. Og gamla fólk ið virti bömin fyrir sér með velþóknun. Stelpurnar döns- uðu saman, en strákarnir helguðu sig að mestu eltinga- leik og feluleik. enda er það mikið skemmtilegra, en að dansa við stelpur. TVEIR ÖLDUNGAR VIÐ hittum tvo unga herra- menn að máli. Þá Axel Eiríks- son og Sigurð Þorsteinsson, sem báðir eru 13 ára gamlir. Þeir voru þarna með systkin- um sínum og hafa farið á jóla trésskemmtanir mörg undan- farin ár. Þóttust þeir mjög alþýðlegir að sækja slíka barnasamkomu. Er ekki gaman, spurðum við. Svolítið, en það er samt miklu meira gaman á alvöru- böllum í skólanum, svöruðu þeir borginmannlega, þetta eru tómir krakkar. Þið dansið við stelpur? Já já. við höfum verið á námskeiði hjá honum Her- manni. Þið dansið þá eins og her- foringjar? Dansa þeit vel? Ég meina. dansið þið velt Svolítið? SIGGI BEIT f EPLIÐ SVO snúum við okkur að stelpunum. Þær standa þar nokkrar i hóp með pappirs- hattana sína og drekka appelsín af stút. Við erum frá Mbl. Megum við taka mynd af ykkur? Jiminn, svara þær allar í kór kallinn ætlar að taka mynd. Þið eruð alltaf að dansa. Af hverju dansiði ekki við strák- ana, eru þeir ekki skemmti- legir? Nehei, það er ómögulegt að dansa við pá þeir kunná ekkert og svo eru þeir svo vitlausir. Nú, hvernig eru þeir vitlaus- ir? Þeir eru alltaf í eltingaleik og allskonar hasar. Fjórir ættliðir skemmta sér. F.v. Jónína Gunnarsdóttir, (3 ára), Fríða Frímannsdóttir, Jónína Guðmundsdóttir og Þorgerður Sigurðardóttir (83 ára). Donsum ekkl við straka. mitt áðan, segir ein ungfrúin, og er lítt ánægð með frammi- stöðu karlþjóðarinnar. Þú get- ur þó alltaf dansað við bróð- ur þinn, segjum við. Nei, hann er alveg jafn vitlaus og hinir. Og dansinn dunar. Baldur Hólmgeirsson syngur af raust í hljóðnemann. Sumir strák- anna eru svo herralegir að bjóða ömmum sinum í dans og þær verða ungar ; annað sinn. Ólafía, hvar er Vigga, Fyrst á réttunni og svo á röngunni, Hausinn oní maga, magann oní skó, er sungið og dansað með viðeigandi tilbrigðum. \ JÓLASVEINN EÐA VENJULEGUR KALL SKYNDILEGA fer kliður um salinn. Jólasveinninn er kom- inn. Yngstu börnin verða mjög alvarleg og fylgjast með lotn- ingu og eftirvæntingu með þessari dularfullu persónu, sem hefur það á valdi sínu, hvort þau fá bíl. dúkkulísur og rakettubyssu í jólagjöf eða r hvort þau fá ,,linan“ pakka. Þeir eru mjög óhagstæðir og innihalda venjulega einhver föt. Eldri börnin eru dularfull á svipinn. Þau vita. Ég veit, að þetta er bara venjulegur kall, segir pattara- legur smásveinn, rjóður í kinnum. Hann pabbi á svona föt og skegg inn í klæðaskáp. Það er bara bómull. Eldri systir hans sussar á hann. Hvaða vitleysa. víst er þetta jólasveinn, svona Siggi, ekki þurrka þér á sparifötunum bínum . . . FJÓRIR ÆTTLIÐIR um við fyrir fjóra ættliði, sitjandi við eitt borðið. Það er Þorbjörg Sigurðardóttir, sem er 83 ára gömul og virð- ist ekki skemmta sér síður en ungviðið. Dóttir hennar, Jónína Guðmundsdóttir, dótt- urdóttirin, Fríða Frímannsdótt ir, og dótturdótturdóttir henn ar Jónína litla Gunnarsdóttir 3 ára. Hún er of lítil til að dansa, en sá jólasveininn. Hún er enn hugsi. Nú er tími jólatrésskemmt- ana liðinn. Við göngum út í lognfrostið og alvara lífsins mætir okkur strax í útidyrun- um. Það er nokkuð skjót breyt ing frá þessum fagnaði áhyggjulausrar æsku og ró- lyndrar elli. Jónína litla fer ekki aftur á ball fyrr en að ári og langamma hennar, Þor- gerður, sjálfsagt ekki heldur. En þó þær létu þess ekki sér- staklega getið. þá gátum við ekki varast þá tilfinningu, að þær sé báðar farið að hlakka til næstu jólagleði. — J. R. m * » m-+ #,0.« m S ÍAKSTtl WIS „MorgunLlaðslygi Þeir, sem leggja á sig að lesa málgagn heimskonMnúnismans á íslandi, kannast við orðið „Morg unbláðslygi‘‘. í því orði er fólg- in öll „röksemdarfræðsla" kom- múnista, þegar reynt er að fá þá til að tala um þjóðfélags- ástandið í kom- múnistaríkjun- um og glæpi þá, sem þar eru dag lega framdir. Svo kynlega bregður þó við, að „Morgun- blaðslygin" um Sovétrikin í nokkra áratugi er nú allt í einu orðin sannleikur, meira að segja að dómi kom- múnistamálgagnsins. I gær rifj- aði Morgunblaðið upp gamla sögu af því, þegar íslenzkir kommúnistar dæmdu Túkatsjev- ski samkvæmt skipun húsbænða sinna. Tilefnið var það, að dag- inn áður hafði Þjóðviljinn sýkn- að þann sama Tugatsjevski, einnig samkvæmt fyrirmælum að austan. Það var árið 1937, sem þessi frægi marskálkur var dæmdur að boði Stalins og þann 12. júní þ. á. sagði kommúnista- málgagnið á fslandi um þær full yrðingar Morgunblaðsins, að hér væri verið að frem.ja réttarmorð: „Þannig eru Sovétfréttir Morg- unblaðsins rakalausar lygar og ósvífinn uppspuni, sem ritstjór- arnir verða að éta ofan í sig svo að segja samstundis." Kommúnistar tala að vonum lítið um það núorðið, að aðrir þurfi að „éta ofan í sig“. Sann- leikurinn er lika sá, að hvert orð, sem Morgunblaðið hefur áratugum saman sagt um réttar- far í Sovétríkjunum, hefur nú verið sannað að var sannleikur. ✓ , ’Bókmenntagfagnrýni' * Hér birtist sýnishorn úr grein um Matthías Johannessen í Þjóðviljanum í gær, eftir bók- menntagagnrýnanda blaðsins: „Það er ekki aðeins móðgun við öll skáld lífs og liðin að verð- launa þann ómengaða leir, sem „ljóða“-bækur Mr. Johannessens hafa inni að halda. Með því er líka verið að svívirða hinn al- menna, hrekklausa lesanda og segja rangt til vegar þeim, sem vilja af einlægni kynna sér nú- tímaskáldskap. Mr. Johannessen er ekki skáld, því miður. Til þess þarf annað og m«ira en átta her- bergja íbúð, lúxusbil og ritstjóra embætti við Morgunblaðið. Það verður engin strompfígúra skáld þótt hún eignist tiu ritvélar og hamri á þær allar daglega og reyni síðan að dreifa moðryki sínu útum heim með krafti aug- lýsinga: „M. Johannessens nye digtsamling er tilligemed Hannes Péturssons „I sommerens dale“ blandt de betydeligste digtsam- linger i de sidste ár ikke blot i Norden. men i hele Europa". Dagens Nyheder hefur þetta eftir dönskum idjót Poul Peder- sen að nafni. „Mín frægð kemur að utau.“ segir kúnstner Hansen. „Skáld- skapur" Mr. Johannessens á sér hvergi rætur. Hann grundvallast ekki á neinni undirstöðu. ©g minnir einna helzt á sápukúlu, sem Iyftir sér ögn og springur. Þetta stafar af því að Mr. Jo- hannessen hefur ekkert að segja. Hann veit ekkert um. lífs- baráttu mannanna. Hann hefur ekki hugmynd um að tveir þriðj- ungar mannkynsins svelta, og ef hann veit það, þá er honum al- veg sama. Enda hefur hann selt sig í þjónustu þeirra, sem þeim hörmungum valda. Þar safna menn ekki öðru en peningum og spiki.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.